Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 5
FÓLK
VINCENZO Montella var maður
helgarinnar í ítölsku knattspyrnunni.
Montella skoraði fjögur mörk fyrir
Roma sem vann stórsigur á Lazio,
5:1, í nágrannaslag Rómarliðanna,
frammi fyrir 80 þúsund áhorfendum á
Ólympíuleikvanginum. Roma náði
með þessu Inter að stigum á toppi
deildarinnar.
CLARENCE Seedorf, hollenski
miðjumaðurinn, skoraði bæði mörk
Inter sem gerði jafntefli, 2:2, við Juv-
entus í toppslag á laugardaginn. See-
dorf jafnaði metin á lokamínútunni
með þrumuskoti af löngu færi.
Skömmu áður hafði Igor Tudor skor-
að fyrir Juventus.
ALESSANDRO Del Piero, David
Trezeguet og Lilian Thuram, leik-
menn Juventus, meiddust allir í leikn-
um gegn Inter. Ólíklegt er að Del
Piero og Thuram verði með liðinu
gegn Bayer Leverkusen í meistara-
deild Evrópu í kvöld en Trezeguet
verður sennilega með.
GUISEPPE Signori, sóknarmaður-
inn gamalkunni, skoraði bæði mörk
Bologna sem lagði AC Milan, 2:0.
VALENCIA er áfram með eins
stigs forskot á Real Madríd í spænsku
1. deildinni en bæði liðin unnu um
helgina. Valencia lagði Sevilla, 2:0, í
leik þar sem Victor Salas hjá Sevilla
og Miguel Angel Angulo hjá Val-
encia voru reknir af velli. Áður tókst
Angulo, sem kom inn á sem varamað-
ur, að skora síðara mark Valencia en
það fyrra gerði Juan Sanchez.
REAL Madrid vann Villarreal
mjög örugglega, 3:0, á laugardaginn.
Raúl Gonzalez, Fernando Hierro og
Steve McManaman gerðu sitt markið
hver.
REAL Betis kemur enn á óvart og
er í þriðja sæti eftir sigur á Barce-
lona, 2:1. Dani Martin skoraði bæði
mörk Betis en Jóhannes Karl Guð-
jónsson lék ekki með liðinu.
CATANHA skoraði þrennu fyrir
Celta Vigo sem lagði Valladolid, 4:2,
á útivelli en þetta var fyrsti sigur
Celta í sex leikjum. Catanha er nú
næst markahæstur í deildinni með 14
mörk en Fernando Morientes hjá
Real Madríd er á toppnum með 16.
EBBE Sand, danski sóknarmaður-
inn, kom Schalke upp í fjórða sæti
þýsku 1. deildarinnar þegar hann
skoraði sigurmarkið gegn Stuttgart,
2:1, á lokasekúndunum í leik liðanna á
sunnudaginn.
RONALDO verður að öllu óbreyttu
í landsliði Brasilíu þegar það mætir
Júgóslavíu 27. mars. Ronaldo hefur
ekki spilað með Inter á Ítalíu síðan á
Þorláksmessu þegar hann tognaði í
læri en læknir brasilíska landsliðsins
segir að hann sé tilbúinn á ný. Ron-
aldo var í heimalandi sínu um helgina
og lék þar listir sínar í „knattblaki“,
sem mikið er spilað á ströndum lands-
ins.
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 B 5
11.-17. mars
mán-
fim
Heklusport
kl. 22.30
Arsenal - Deportivo
Meistarakeppni Evrópu kl. 19.30
Leverkusen - Juventus
Meistarakeppni Evrópu kl. 21.40
þri
Barcelona - Liverpool
Meistarakeppni Evrópu kl. 19.30
Man. Utd. - Bayern M.
Meistarakeppni Evrópu kl. 21.40
mið
Ítalski boltinn
kl. 13.45
Aston Villa - Arsenal
Enski boltinn kl. 15.55
Philadelphia - Orlando
NBA kl. 18.0
Epson-deildin
Úrslitakeppnin kl. 20.30
sun
Middlesbrough - Liverpool
Enski boltinn kl. 11.40
Barcelona - Real Madrid
Spænski boltinn kl. 20.20
lau
Upphitunin
er hafin
Arnar Þór Viðarsson var valinní lið vikunnar í belgísku
knattspyrnunni í gær hjá dag-
blaðinu Het
Nieuwsblad fyrir
frammistöðu sína
með Lokeren gegn
Sint-Truiden. Lok-
eren tapaði óvænt á heimavelli,
1:0, en Arnar Þór fékk 3 í einkunn
fyrir leik sinn og var hæstur leik-
manna liðsins. Arnar Grétarsson
og Rúnar Kristinsson fengu tvo í
einkunn og Auðun Helgason einn.
Auðun átti þó ágætis leik og
Arnar Grétarsson lék vel en þarf
að vera beittari þegar hann kemur
inn í vítateiginn. Rúnar átti fal-
legar sendingar en skapaði sér
engin færi.
Arnar Þór mataði félaga sína á
frábærum sendingum í leiknum en
allt kom fyrir ekki því Lokeren
var fyrirmunað að skora. Arnar
Þór var sívinnandi og átti góðar
fyrirgjafir en hann hefur náð upp
meiri hraða og hefur tekið miklum
framförum á einu ári.
„Við vorum með boltann í 70
mínútur en það gekk ekkert inni í
vítateignum. Við verðum að finna
okkur markaskorara,“ sagði Paul
Put, þjálfari Lokeren.
Arnar Þór í liði
vikunnar Í Belgíu
Kristján
Bernburg
skrifar frá
Belgíu
Leikurinn bar þess merki að það ergrunnt á því góða milli leik-
manna þessara félaga. Mikið var um
gróf og ljót brot út um allan völl. Alls
veifaði Andy D’Urso dómari gula
spjaldinu níu sinnum og því rauða
einu sinni. Þóttu spjöldin síst of lítið
notuð og D’Urso sýna leikmönnum
mikla þolinmæði, einkum liðsmönn-
um Tottenham sem hefðu svo sann-
arlega verðskuldað að vera a.m.k. ein-
um leikmanni færri í fyrri hálfleik. Á
sjöttu mínútu var Eiður Smári við að
sleppa í gegnum vörn Tottenham,
rétt utan vítateigs, þegar Dean Rich-
ards beinlínis klippti hann niður og
var svo stálheppinn að fá aðeins gult
spjald. Félagi hans Les Ferdinand
mátti einnig prísa sig sælan að sleppa
með viðvörun skömmu síðar þegar
hann réðst gróflega á William Gallas
eftir að hafa misst af boltanum. Gallas
svaraði hins vegar hressilega fyrir sig
á 12. mínútu þegar hann opnaði
markareikning Chelsea og skoraði
eina mark fyrri hálfleiks.
En að margra mati var Eiður
Smári perlan á leikvellinum, maður-
inn sem sökkti vonum heimamanna
ásamt félaga sínum Emmanuel Petit
sem lék einhvern sinn besta leik síðan
hann gekk til liðs við Chelsea sl. sum-
ar. Eiður var valinn maður leiksins á
bresku sjónvarpsstöðinni Sky, sem
sýndi leikinn í beinni útsendingu.
„Eiður var ískaldur þegar hann skor-
aði mörk sín og stóð klárlega fremst-
ur meðal nokkurra jafningja í góðu
liði Chelsea,“ segir m.a. í umsögn Sky
um leikinn.
Eiður bætti við öðru marki Chelsea
á 48. mínútu eftir að hann fékk
stungusendingu inn fyrir vörn Tott-
enham frá Graeme Le Saux. Dean
Richards, sem felldi Eið í fyrri hálf-
leik, var nú aðeins áhorfandi að því er
Eiður geystist einn upp völlinn og
skoraði af yfirvegun með skoti milli
fóta Neil Sullivan sem árangurslaust
reyndi að verjast með úthlaupi. Le
Saux bætti við þriðja markinu á 54.
mínútu áður en Eiður skoraði annað
mark sitt og fjórða mark Chelsea á
66. mínútu. Enn komst hann einn inn
fyrir vörn Tottenham og skoraði hik-
laust framhjá Sullivan. Rúmlega
stundarfjórðungi fyrir leikslok var Le
Saux rekinn af leikvelli. Það breytti
engu fyrir lánlausa leikmenn Totten-
ham sem ekki tókst að klóra í bakk-
ann þótt fleiri væru á leikvellinum.
„Það er styrkleikamerki á liði mínu
að það skyldi vinna 4:0 án þess að
Jimmy Floyd Hasselbaink skori,“
sagði Claudio Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea glaðbeittur að leikslok-
um.
Löng leið á Þúsaldar-
leikvanginn
Hasselbaink segir að þrátt fyrir
góðan sigur og þá staðreynd að lið
Chelsea hafi leikið vel að þessu sinni
þá hjálpi það ekki í næstu umferð bik-
arkeppninnar þegar liðið mætir Ful-
ham. Enn sé löng leið að úrslitaleikn-
um á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff
í vor. „Við höfum ekkert unnið
ennþá,“ sagði Hasselbaink.
„Mínir menn voru yfirspenntir, en
fyrst og fremst töpuðum við leiknum
með slakri einbeitingu, þannig gáfum
við leikmönnum Chelsea tækifæri á
að skora auðveld mörk,“ sagði Glenn
Hoddle, knattspyrnustjóri Totten-
ham, og sagði frammistöðu sinna
manna og úrslitin vera gríðarleg von-
brigði.
Fleiri miðlar en Sky jusu Eið
Smára lofi fyrir frammistöðu sína.
Götublaðið The Sun gaf honum níu í
einkunn og sagði hann hafa verið
besta mann leiksins ásamt Petit.
Þrátt fyrir að Tottenham sé úr leik
í bikarkeppninni er líklegt að fram-
koma stuðningsmanna Tottenham
dragi dilk á eftir sér. Nokkrir þeirra
hentu smápeningum inn á völlinn og
kom m.a. einn þeirra í höfuð annars
aðstoðardómarans. Enska knatt-
spyrnusambandið bíður nú skýrslu
frá D’Urso dómara áður en næsta
skref verður stigið. Forráðamenn
Tottenham segjast ætla að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að koma
í veg fyrir að þeir sem stóðu að smá-
peningakastinu komist á leiki félags-
ins í framtíðinni.
Eiður Smári Guðjohnsen fór á kostum er Chelsea kjöldró Tottenham
Reuters ReutersAP
Við vildum ná
fram hefndum
„VIÐ vildum hefna okkar eftir 5:1 tapið í deildabikarnum,“ sagði
Eiður Smári Guðjohnsen eftir 4:0 sigur Chelsea á Tottenham á
White Hart Lane í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar á sunnudag. Þar
fór Eiður á kostum og átti ríkan þátt í að Chelsea hreinlega kjöldró
leikmenn Tottenham á þeirra eigin heimavelli. Hann skoraði tvö
markanna, lagði upp færi fyrir félaga sína auk þess sem hann átti
að fá vítaspyrnu í síðari hálfleik þegar brotið var harkalega á honum
innan vítateigs. Þar með hefur Eiður skorað 21 mark fyrir Chelsea á
leiktíðinni.