Morgunblaðið - 12.03.2002, Síða 7

Morgunblaðið - 12.03.2002, Síða 7
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 B 7 stemmningunni þar, bæði fyrir og eftir leikinn, er mjög erfitt að lýsa með orðum. Hávaðinn var þvílíkur að erfitt var að tala við mann sem stóð þér næst. Fólk var mætt á völlinn til að skemmta sér og öðrum og taka þátt í karnivalhátíð sem við Íslend- ingarnir upplifum ekki á hverjum degi. Undirritaður hefur verið á Old Trafford og verið viðstaddur leik Manchester United og Liverpool ásamt 64.000 áhorfendum og eins á leik Milan-liðanna AC Milan og Inter Milano á San Síró leikvanginum í Míl- anó þar sem saman voru komnir um 90.000 manns. Þó svo að stemmningin og andrúmsloftið í þeim leikjum hafi verið stórskostleg þá toppar hún ekki þá umgjörð sem var á leik Brasilíu og Íslands. Fyrir leikinn var flugelda- sýning að hætti hjálparsveita skáta heima á Fróni og eftir hann var haldið áfram að skjóta upp rakettum. Ekki skal mann undra þótt þeir ungu og óreyndu strákar, sem að mestu skip- uðu íslenska liðið í leiknum, hafi hreinlega farið í annan heim þegar liðin gengu út á leikvöllinn. Og það er eins líklegt að þeir hafi enn verið í öðrum heimi þegar leikurinn var flautaður á því eftir aðeins 240 sek- úndur höfðu Brassarnir skorað mark og þar með gefið tóninn hvað koma skyldi. Úrslitin vita allir en ekki efast ég um eitt andartak að með leiknum og ferðinni í heild öðluðust leikmenn íslenska landsliðsins ómetanlega reynslu sem þeir eiga eftir að búa að allan sinn feril. Fara í Brasilíubúningana og halda með Brasilíu á HM Brasilía er heillandi land og heim- sóknin í þetta mikla knattspyrnuland var í alla staði ævintýraferð og með henni rættist draumur margra leik- manna íslenska liðiðsins frá því þeir voru smápeyjar. Um brasilíska lands- liðið er fátt annað hægt að segja en að leikmenn þess eru listamenn og knattspyrnuáhugamenn heima á Ís- landi ættu að leggja nöfn eins og Kaká, Belletti, Polga, Kleberson, Edilson og Juan á minnið áður en þeir setjast inn í stofu í sumar til að fylgj- ast með HM í knattspyrnu. Sumir af þessum strákum koma til með að bætast í hóp með snillingum á borð við Rivaldo, Carlos, Cafu, Denilson, Junior, Ronaldinho, Serginho og Marcelinho, sem ekki léku á móti Ís- lendingum, þegar Scolari, landsliðs- þjálfari Brasilíu, velur hóp sinn sem leikur á HM. Fyrir hönd brasilísku þjóðarinnar vona ég að Romario hljóti náð fyrir augum landsliðsþjálf- arans því hann er í guða tölu hjá íbú- um landsins og sumir þeirra sem blaðamaður ræddu við sögðust vona að liðinu gengi illa á HM færi svo að Romario yrði ekki valinn. Íslensku landsliðsmennirnir koma örugglega flestir til að halda með Brasilíumönnum í keppninni eftir heimsóknina til S-Ameríkulandsins og eflaust munu þeir klæðast bras- ilísku búningunum sem þeir náðu að skipta við liðsmenn Brassanna eftir leikinn þegar þeir setjast fyrir fram- an sjónvarpið og fylgjast með leikjum þeirra á HM. Morgunblaðið/Guðmundur Hilmarsson e Fragelli-leikvanginum í Cuiabá. Eftri röð frá vinstri: Þórhallur Dan Jó- steinsson, Hjálmar Jónsson og Haukur Ingi Guðnason. Neðri röð frá utur Arason, fyrirliði, Ólafur Stígsson og Grétar Hjartarson. Brasilískur trúður gefur til kynna ást sína á keppnistreyju númer 10 en þetta númer á bakinu bar Pele, þekktasti knattspyrnumaður Brasilíu, og þótt víða væri leitað. Íslensku landsliðsmennirnir höfðu ekki undan að gefa fólki á öllum aldri eiginhandaráritanir í Cuiabá. Hér er markvörðurinn Ólafur Þór Gunnarsson umkringdur ungum brasilískum stúlkum fyrir utan dval- arstað landsliðsins en allar vildu þær fá Ólaf til að rita nafn sitt. Grétar Rafn Steinsson varð fyrsti Íslendingurinn til að skora gegn fjórföldum heimsmeisturum Brasilíu. Hér er Grétar kominn í búning miðjumannsins snjalla Kaká eftir leikinn og gefur til kynna hver skoraði eina mark Íslendinga í leiknum. ri: Ólafur Þór Gunnarsson, Guð- orvaldur Makan Sigbjörnsson. Nokkrar ungar brasilískar blómarósir taka hér létt sambaspor á götu úti í miðborg Cuiabá en þar voru þær að hita upp fyrir landsleik sinna manna á móti Íslendingum. gummih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.