Morgunblaðið - 12.03.2002, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 12.03.2002, Qupperneq 9
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 B 9 Missið ekki af páskaferð til Manchester 29.-31. mars Útvegum miða á alla leiki í enska boltanum! Verð aðeins kr. 46.600 + skattar, þjónustugjald og miði á leik ÍT ferðir, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sími 588 9900, e-Mail: info@ittravel.is Fótboltaferðir til Englands með ÍT ferðum skipulagðar af Luka Kostic Bókaðu strax! Laugardagskvöld: Guðni Bergsson heiðraður og hylltur! • Leeds - Man. Utd. • Bolton - Aston Villa • Liverpool - Charlton Laugard. 30. mars - veljið milli: Bandarískir dómarar á Seltjarnarnesi TVEIR bandarískir dómarar blésu í flautuna á leik Gróttu/ KR og Vals á sunnudaginn en þeir verða hér á landi í um vikutíma og munu dæma nokkra leiki í efstu deild karla og kvenna. Þeir eru hingað komnir fyrir tilstilli Alþjóða- handknattleikssambandsins, sem sendi erindi til íslenska handknattleiksdómarafélags- ins um að leyfa þeim að spreyta sig hér. Að sögn dóm- ara eru þeir félagar, Tugom- ar Anusic og Thomas Bojsen, taldir vera 10. til 11. besta dómarapar í heimi enda hafa þeir dæmt á mörgum Ólymp- íuleikum og öðrum stórmót- um. Þess má reyndar geta að Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson eru sagðir fimmtu á þeim lista. Í leiknum voru þeir dugleg- ir við að sýna gula spjaldið til að byrja með en slíkt dugar oft til að stilla leikmenn og sýna hver ræður. Einnig virt- ust þeir nokkuð strangir. „Þeir voru ágætir þó að sumir dómar orki tvímælis og jafn- vel þessir brottrekstrar í síð- ari hálfleik en mér fannst þeir vera á svipaðri línu og ís- lensku pörin,“ sagði Ólafur Lárusson, þjálfari Gróttu/KR, eftir leikinn. Það eru ákveðin vonbrigði að hafaekki unnið,“ sagði Atli Hilmars- son, þjálfari KA, í leikslok. „Einkum vegna þess að við vorum komnir með vænlega stöðu í fyrri hálfleik, fimm marka forskot. Það átti að nægja okkur til þess að gera út um leikinn, en leikir þessara liða á síð- ustu árum hafa einkennst af sveiflum og þessi var engin undantekning þar á. Undir lok leiksins vorum við komn- ir þremur mörkum undir en tókst að jafna og komast yfir svo það má segja að maður geti nokkuð vel við unað að fá eitt stig á þessum erfiða velli. En auðvitað stefndum við að sigri, við þurftum á honum að halda til þess að færast nær því marki okkar að vinna sæti í úrslitakeppninni,“ sagði Atli ennfremur. KA-menn voru sterkari lengst af fyrri hálfleiks og höfðu ævinlega frumkvæðið. Eftir 13 mínútna leik tóku heimamenn leikhlé er þeir voru 7:4 undir. Sóknarleikur þeirra gekk illa og vörnin var ekki eins öflug og t.d. gegn ÍR í síðasta heimaleik. Leikhlé þeirra Mosfellinga hafði lítið að segja. KA-menn héldu sínu striki. Sterk 6/0 vörn þeirra hélt sóknar- mönnum Aftureldingar niðri og skil- aði dýrmætum hraðaupphlaupum sem voru vel nýtt. Þegar sjö mínútur voru til hálfleiks var forskot KA- manna fimm mörk, 13:8. Sem hendi væri veifað urðu ótrúleg umskipti á leiknum, flöt vörn heimamanna hrökk í gang og sóknarleikurinn um leið. KA-mönnum virtist falla allur ketill í eld fram að hálfleik, sex síð- ustu sóknir þeirra fóru í súginn á sama tíma og leikmenn Aftureldingar skoruðu fimm mörk úr sex upphlaup- um. Jöfnuðu þeir metin, 13:13, og þannig stóðu leikar í hálfleik. Í síðari hálfleik var gríðarleg bar- átta í leiknum og sjaldan munaði meira en einu mark á fylkingunum. KA-menn voru fyrri til að skora framan af. Bjarki Sigurðsson skoraði átjánda mark Aftureldingar á 41. mínútu og kom sínum mönnum í fyrsta sinn yfir í leiknum, 18:17. Þar með skiptu leikmenn KA úr 6/0 vörn yfir í framliggjandi 3:2:1 vörn. Til að byrja með virtist breytingin ekki ætla að skila árangri, þvert á móti leit út fyrir að leikmenn Aftureldingar ætl- uðu að gera út um leikinn. Þeir náðu þriggja marka forskoti, 22:19 þegar 13 mínútur voru eftir. En þrjóskan og seiglan er sem fyrr fyrir hendi í liði KA-manna. Þeir skoruðu fjögur mörk í röð og komust yfir á ný, 23:22. Eftir það var gríðarleg spenna í leiknum. KA var áfram yfir, 24:23. Þegar 2,20 mínútur voru eftir var Jónatani Magnússyni vikið af leikvelli í tvær mínútur og þótti mörgum tími vera kominn til. Aðeins fimmtán sek- úndum síðar fór félagi hans, Heimir Örn Árnason, sömu leið fyrir heldur léttbærar sakir. KA var því tveimur færri svo að segja þann tíma sem eftir var. Bjarki jafnaði metin, 24:24, þeg- ar tvær mínútur voru eftir og einni mínútu síðar kom Andrius Stemokas KA yfir á ný með marki úr horninu. Heimamenn geystust upp og unnu vítakast. Egidius Petkevicius, mark- vörður KA, varði vítakastið, Bjarki náði frákastinu og reyndi markskot en var hindraður, annað vítakast var dæmt. Að þessi sinni urðu Bjarka ekki á nein mistök, hann jafnaði met- in. Fjórir KA-menn fóru í sókn, sem varð býsna tafsöm, en þeim tókst að teygja lopann allt þar til brotið var á Arnóri Atlasyni undir lokin. Ekki í fyrsta sinn í viðureignum þessara liða var aukakastið tekið á vitlausum stað. Það kom þó ekki að sök þar sem skot Arnórs fór yfir markið, jafntefli var því niðurstaðan, 25:25. Reynir Þór Reynisson var jafn- besti leikmaður Aftureldingar að þessu sinni. Hann fór á tíðum á kost- um í markinu og varði alls 22 skot, mörg úr opnum færum. Bjarki lék mjög vel í síðari hálfleik og bar leik sinna manna á tíðum uppi. Sverrir var góður í sókninni í fyrri hálfleik en náði sér ekki á strik í þeim síðari þeg- ar leikmenn KA færðu sig framar í vörninni. Valgarð Thoroddsen var einnig ágætur svo og Magnús Már Þórðarson. Petkevicius, markvörður KA, var einnig fremstur meðal jafningja í sínu liði. Stelmokas var og sterkur. Einnig er ekki annað hægt en hrífast með þegar Arnór Atlason er annars veg- ar. Þar er á ferð hreint frábær skytta og skemmtilegur leikmaður sem er aðeins 17 ára, en leikur og skýtur á markið eins og sá sem valdið hefur. Pilturinn hans Atla þjálfara er einn hreinasti gullmolinn sem komið hefur fram í íslenskum handknattleik. Algjört burst Þór sigraði ÍBV á sunnudaginnfyrir norðan í leik sem hafði mikla þýðingu fyrir bæði lið. Það var þó ekki að sjá á gest- unum sem voru á hælunum allan leik- inn og Þórsarar þurftu engan stórleik til að innbyrða ellefu marka sigur, 35:24. Með þessum sigri jafnaðist enn staðan í deildinni. Þór kom sér upp að hlið ÍBV og KA og eru því erkifjend- urnir með jafnmörg stig fyrir leik lið- anna sem fram fer á Akureyri í kvöld. Fyrri hálfleikur var fremur bragð- daufur en Þórsarar voru mun betri. Eftir rúmar 4 mínútur komst Þór í 3:1 en þá tók Sigbjörn Óskarsson, þjálfari ÍBV, leikhlé og las hressilega yfir sínum mönnum. Skipti það ósköp litlu því Hafþór Einarsson, mark- vörður Þórs, varði hvert skotið af öðru en eftir 10 mínútur var hann bú- inn að verja 8 skot Eyjamanna. Þórs- arar héldu góðu forskoti allt fram í miðjan hálfleikinn en þá náðu Eyja- menn að minnka muninn í eitt mark. Markvörður þeirra, Hörður Flóki Ólafsson, var þá búinn að verja sex skot á skömmum tíma. Þórsarar spýttu í lófana á ný og héldu til bún- ingsherbergja með fimm marka for- skot, 15:10. Seinni hálfleikur bauð fyrst og fremst upp á mikla markasúpu. Sóknir voru í styttra lagi og markveð- irnir sem báðir höfðu varið mjög vel í þeim fyrri duttu alveg úr stuði. Fyrstu mínúturnar hélst óbreyttur munur en þegar Eyjamenn misstu sinn besta mann útaf með rautt spjald, var eins og þeir gæfust upp. Þórsarar tóku fljótlega öll völd á vell- inum og jókst munurinn jafnt og þétt. Smám saman fóru óreyndari leik- menn að tínast útaf er Eyjamenn ját- uðu ósigur sinn. Þórsliðið spilaði sterka vörn og lagði hún grunninn að sigri þeirra. Þorvaldur Þorvaldsson var þar sem klettur og Hafþór varði vel í fyrri hálfleik. Aigars Lazdins var öflugur í sókninni og gaman var að sjá tilþrifin hjá Þorvaldi Sigurðssyni og Páli Gíslasyni. Eyjamenn vilja eflaust gleyma leiknum sem fyrst og þeir einu sem eitthvað gátu voru Hörður Flóki, Petras Rauperas og Mindaugas Andriuskas en hann var sérlega óheppinn með vafasama brottrekstra og þurfti að lokum að yfirgefa sam- kvæmið. Halldór með stórleik á Selfossi Haukar unnu Selfyssinga meðfjögurra marka mun á Selfossi á sunnudagskvöldið 32:28. Haukar voru yfir nær allan tímann en undir lokin var leikurinn jafnari en lokatölur hans gefa til kynna. Halldór Ingólfsson átti stórleik og skoraði 10 mörk Hauka en Jón Karl var þó ekki langt undan en hann var verulega at- kvæðamikill og skoraði 9 mörk. Framan af var leikur Selfoss og Hauka jafn en það var ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiksins sem Hauk- ar náði afgerandi forystu. Í hálfleik var staðan 14:18. Selfoss minnkaði muninn strax í eitt mark í upphafi seinni hálfleiks en þá kom Bjarni Frostason inn á í markið og átti hann ekki minnstan þáttinn í að Haukar kæmu sér aftur upp fjögurra marka forskoti. Selfyssingar eiga líka ágætis markverði en Jóhanni Inga var skipt í markið fyrir bróður sinn um miðjan hálfleikinn í stöðunni 23:25. Á tímabili lokaði Jóhann markinu algerlega og komust heimamenn einu marki yfir, 26:25, þegar 11 mínútur voru eftir. Haukarnir sýndu það og sönnuðu hins vegar á lokasprettinum að þeir hafa eitt besta handknattleikslið landsins í dag. Halldór Ingólfsson átti stórleik með Haukum, skoraði hann 10 mörk, þar af þrjú úr vítum. Þá sýndi Jón Karl Björnsson hvað í honum bjó og Rúnar Sigtryggsson var sem klettur í vörninni. Aron Kristjánsson lenti snemma í því að vera tvisvar sinnum rekinn út af og átti erfitt með að beita sér í vörninni en fór aftur á móti mik- inn í sókninni. Hjá Selfyssingum voru þeir Robertas Pauzuoilis og Ram- únas Mikalonis atkvæðamestir með sjö mörk hvor. Þá átti Þórir Ólafsson ágæta spretti í seinni hálfleiknum. Skyldusigur FH-inga á Víkingum Það voru engin vettlingatök notuðhjá heimamönnum í Kaplakrika á sunnudag þegar FH tók á móti botnliði Víkings í 1. deild karla í hand- knattleik. FH-ingar keyrðu upp hraðann í leiknum og kaffærðu Víkinga strax í fyrri hálfleik, en þá skoruðu þeir 19 mörk gegn 13 mörk- um Víkinga og lögðu grunninn að góðum sigri, 36:27. Sóknarnýting FH-inga í fyrri hálf- leik var afburðagóð, 19 mörk í 24 sóknum. Víkingar voru ekki eins nýtnir en gátu huggað sig við það að þeir náðu að ljúka flestum sóknum sínum með skoti, sem er jú forsenda þess að skora mörk. Síðari hálfleikurinn var ekki ósvip- aður hinum fyrri, FH-ingar juku for- skotið hægt og bítandi en það hlýtur að vera þeim áhyggjuefni hversu illa gekk í varnarleiknum. Björgvin Rún- arsson, besti leikmaður FH, var sam- mála því mati blaðamanns í leikslok. „Þetta var skyldusigur, en staða okk- ar í deildinni sýnir okkur að við get- um ekki leyft okkur slíkan munað að vanmeta Víkingana,“ sagði Björgvin. „Við stöndum vörnina mjög illa og ég held að við höfum ekki staðið al- mennilega vörn síðan í leiknum gegn Gróttu/KR í fyrri umferðinni og í seinni hálfleiknum gegn Val núna um daginn. Svona er boltinn, við eigum að vera það þroskaðir í þessu að við eigum að geta notað svona leiki til að laga eitt og annað. Við megum aldeilis bretta upp ermarnar ef við ætlum okkur í úrslitakeppnina,“ sagði Björgvin. Hann og Sigurgeir Árni Ægisson fóru mikinn í leiknum og skoruðu samtals 21 mark. FH-ingar mega vel við una með sigurinn í leikn- um, þeir eru nú í 8. sæti deildarinnar og eru þar með síðasta lið inn í úrslit- in, en það er hart að þeim sótt af Eyjamönnum og Frömurum og Hafnfirðingar verða að gera betur varnarlega en þeir gerðu í þessum leik ætli þeir sér í úrslitin. Víkingar sitja sem fyrr í botnsæti deildarinnar. Þrátt fyrir 9 marka tap geta þeir ágætlega við unað eftir þennan leik. Á köflum sáust virkilega góðir taktar hjá liðinu, sérstaklega sóknarlega og ef þeim tekst að loka vörninni þá geta Víkingar orðið ör- lagavaldar annarra liða í deildinni á lokasprettinum. Morgunblaðið/Ásdís Valsmenn réðu ekkert við Aleksandr Peterson, sem skoraði 14 mörk fyrir Gróttu/KR. Það sem koma skal VIÐUREIGN Aftureldingar og KA að Varmá á laugardaginn var vænt- anlega forsmekkurinn að því sem koma skal þegar og ef liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Þetta var alvöru baráttuleikur sem bauð upp á talsverða skemmtun, spennu, sveiflur og síðast en ekki síst baráttu fram á síðustu sekúndu. KA-menn voru nær því að tryggja sér sinn fyrsta sigur undir stjórn Atla Hilmarssonar í Mos- fellsbænum, en heimamenn að vinna bæði stigin. Niðurstaðan var „stórmeistarajafntefli“ sem hvorugt liðanna var sátt við, bæði vildu þau sigur í harðri baráttu sinni um sæti í úrslitakeppninni. Ívar Benediktsson skrifar Einar Sigtryggsson skrifar Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Helgi Valberg skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.