Morgunblaðið - 12.03.2002, Page 12
FÓLK
BJÖRN Viðar Ásbjörnsson skor-
aði tvö mörk fyrir Fylki sem vann
Val, 3:0, í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu á sunnudaginn. Theó-
dór Óskarsson gerði fyrsta mark
Árbæinga en báðir markaskorararn-
ir komu inn á sem varamenn.
ÞORVALDUR Guðmundsson
gerði þrennu fyrir hið nýja 1. deild-
arlið Aftureldingar sem vann KFS
frá Vestmannaeyjum, 7:2, í fyrsta
leik neðri deildar í deildabikarkeppni
KSÍ í Reykjaneshöll á laugardaginn.
JÓHANN B. Guðmundsson skor-
aði síðara mark norska liðsins Lyn
sem sigraði Elfsborg frá Svíþjóð,
2:0, á La Manga á Spáni í gær. Helgi
Sigurðsson lék ekki með Lyn.
TRYGGVI Guðmundsson skoraði
eitt marka Stabæk sem vann Lille-
ström, 3:1, í viðureign norsku félag-
anna. Marel Baldvinsson lék ekki
með Stabæk vegna meiðsla í hné en
Indriði Sigurðsson og Gylfi Einars-
son voru í byrjunarliði Lilleström.
ANNA María Sveinsdóttir, körfu-
knattleikskonan reynda, lék sinn
400. leik með Keflavík þegar liðið
vann KFÍ, 81:56, í lokaumferð 1.
deildar kvenna á laugardaginn.
Leikur liðanna fór fram á Flateyri og
er það fyrsti leikurinn í efstu deild í
flokkaíþrótt sem háður er þar í bæ.
ÞRÖSTUR Stefánsson, fyrrver-
andi fyrirliði knattspyrnuliðs ÍA, var
fyrsti Siglfirðingurinn til að leika
landsleik í knattspyrnu. Nafn hans
datt út þegar rifjað var upp fyrir
helgi, hvaða Siglfirðingar hafa leikið
landsleik í knattspyrnu.
TVEIR bræður Þrastar voru einn-
ig landsliðsmenn í íþróttum – Frið-
leifur í frjálsíþróttum og badminton,
og Hjálmar á skíðum. Árni, sonur
Friðleifs, var landsliðsmaður í hand-
knattleik.
HILMAR Þórlindsson skoraði 9
mörk þegar lið hans Modena vann
Pan D’Este Rovigo, 33:25, á heima-
velli í ítölsku 1. deildinni í handknatt-
leik um helgina.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson og
samherjar í Papillon Conversano
töpuðu á útivelli, 29:24, fyrir Coop
Essepiu’ Trieste. Guðmundur stóð
að vanda í marki Papillon sem er í
fjórða sæti ítölsku 1. deildarinnar.
Hilmar og Modena eru í 8. sæti.
GUÐFINNUR Kristmannsson,
fyrirliði sænska 1. deildarliðsins
Wasaiterna, lá veikur á sunnudaginn
þegar hans menn unnu Irsta/Väst-
erås, 30:25. Þetta var áttundi sigur
Wasaiterna í röð.
KRISTJÁN Yngvason var endur-
kjörinn formaður Glímusambands
Íslands á ársþingi glímumanna.
ÞÁ var Guðmundur Ágúst Ingv-
arsson einnig endurkjörinn formað-
ur Handknattleikssambands Íslands
um helgina.
Forráðamenn Ciduad gerðu Ólafifyrst tilboð undir lok Evrópu-
keppninnar í Svíþjóð í byrjun febr-
úar og síðan hefur
málið verið í gerjun
að sögn Ólafs. Hann
varð markahæsti
leikmaður Evrópu-
keppninnar, átti hvað flestar stoð-
sendingar og þótti af mörgum vera
besti leikmaður Evrópumótsins þótt
öðrum hafi reyndar hlotnast það
hnoss að leikslokum. En tilboð Spán-
verjanna var hagstætt og Ólafur
ákvað að slá til. Þýski vefmiðillinn
Sport1 segir að hér sé á ferðinni
samningur upp á milljónir þýskra
marka. Hvað sem því líður þá er víst
að Ólafur er á meðal fremstu hand-
knattleiksmanna heims og ekki síst á
meðal þeirra eftirsóttustu. Daniel
Constantini, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari Frakka, sagði við Morgun-
blaðið á meðan Evópukeppnin fór
fram í Svíþjóð, að Ólafur gengi inn í
hvaða landslið sem er í keppninni.
Spánverjarnir vilja fá Ólaf í vor
Ólafur segist ekki reikna með öðru
en að verða áfram í herbúðum þýsku
meistaranna Magdeburg það ár sem
hann á eftir af samningi sínum við fé-
lagið. „Spánverjarnir eru eitthvað að
reyna að kaupa mig eftir núverandi
keppnistímabil, en ég held að það
gangi ekki. Takist þeim það hins
vegar, mun ég að sjálfsögðu taka því,
en eins og staðan er nú þá ætla ég að
leggja mig allan fram við að spila fyr-
ir Magdeburg. Það er það eina sem
skiptir máli núna,“ segir Ólafur og
bætir því við að hann hafi rætt þetta
mál ítarlega við Alfreð Gíslason,
þjálfara Magdeburg. „Alfreð er sátt-
ur við þessar málalyktir, það er að ég
fari til Spánar vorið 2003.
Forráðamenn Magdeburg reyndu
ekki að neinu ráði að bjóða mér sam-
bærilegan samning, þeir vöknuðu
aðeins upp á lokasprettinum, en það
var ekkert að ráði. Enda breytti það
ekki miklu þar sem mín ætlan var
ætíð sú að breyta til þegar samning-
ur minn við Magdeburg rynni út,“
segir Ólafur og viðurkennur að það
sé vissulega ekki alvanalegt að gera
samning við annað félag með svo
löngum fyrirvara. „Það er líka já-
kvætt að fara frá einum stað til ann-
ars án þess að þurfa að láta sparka í
rassinn á sér. Lífið er alltaf að taka
breytingum, ekkert stendur að ei-
lífu. Um leið og ég fer til Spánar
tekst ég á við nýja áskorun á mínum
ferli og vonandi gerir það mig betri.“
Real Madrid vill kaupa Ciudad
Ciudad Real er borg í Castilla la
Mancha, rúmlega 200 km beint suð-
ur af Madríd, . Þar búa rúmlega
60.000 manns. „Þetta virðist vera ró-
legur og góður bær í nágrenni Madr-
ídar og það er stutt í fjörið ef maður
hefur áhuga á því á annað borð.“
Uppi hafa verið vangaveltur um að
knattspyrnufélagið Real Madrid hafi
í hyggju að kaupa Ciudad Real, inn-
lima það í stórveldi sitt og koma sér
þannig upp sterku handknattleiks-
liði jafnframt því að eiga eitt allra
besta knattspyrnu- og körfuknatt-
leiksfélag Evrópu. Ólafur segist hafa
heyrt af áhuga Real Madrid á Ciud-
ad, en hann telur að það sé a.m.k.
biðstaða í því máli nú um stundir, all-
tént reiknar hann ekki með því að
hann keppi undir merki Real Madrid
þegar hann flyst til Spánar. „Þessi
kaupum eða sameiningu hefur eitt-
hvað seinkað eða eru þá dottin upp
fyrir, að minnsta kosti var ekkert um
það rætt þegar ég var þarna í heim-
sókn um helgina,“ sagði Ólafur.
Sterkt félag,
góðir leikmenn
Ólafur sagði að sér litist ákaflega
vel á allar aðstæður hjá Ciudad og
þar hefði stefnan verið sett á að kom-
ast í allra fremstu röð, bæði á Spáni
og í Evrópu. Þegar við bættist
einkar hægstætt tilboð þá hefði ekki
verið hægt annað en ganga til samn-
inga. Liðið væri auk þess skipað góð-
um leikmönnum s.s. Talant Dusch-
ebajev, markverðinum Henning
Wiechers, Dönunum Christian
Hjermind, Ian-Marco Fog og Rúss-
anum Sergej Pogorelov. Auk þess
hefði það á að skipa spænskum
landsliðsmönnum. „Félagið er í und-
anúrslitum Evrópukeppni bikarhafa
og stefnir að sæti í Meistaradeild
Evrópu þannig að menn stefna hátt á
þessum bæ. Eini gallinn er að það er
reykt í keppnishöllinni, en þannig er
þetta á Spáni, því miður,“ sagði Ólaf-
ur sem segir það lengi hafa verið
draum sinn að leika með sterku
spænsku félagi í framhaldi af ferli
sínum í Þýskalandi. Þar hefur hann
leikið í sex ár, fyrst í tvö ár hjá
Wuppertal og síðastliðin fjögur ár
hjá Magdeburg.
Spænsk menning heillar
Ólafur segist lengi hafa alið með
sér þann draum að leika á Spáni og
nú sjái hann fram á að draumurinn
rætist. En hvað er það sem dregur
hann til Spánar?
„Aðallega er það menningin sem
heillar mig. Eins hef ég heyrt það hjá
Alfreð að á Spáni sé allt mun af-
slappaðra en í Þýskalandi. Um leið
er gaman að kynnast einhverju nýju,
læra að slaka á og lifa lífinu.“
Gott að
hreinsa loftið
Ólafur segir mikið vera eftir af nú-
verandi leiktíð hjá Magdeburg. Fé-
lagið sé víða í eldlínunni, m.a. komið í
undanúrslit í Meistaradeild Evrópu,
í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar
auk þess sem menn hafi ekki gefið
upp alla von um að verja þýska
meistaratitilinn sem félagið vann sl.
vor í fyrsta sinn eftir sameiningu
þýsku ríkjanna. „Vegna þessa alls er
mikilvægt að vera búinn að hreinsa
andrúmsloftið þannig að maður geti
einbeitt sér að því að leika með
Magdeburg þann tíma sem eftir er af
samningnum, þurfa ekki að vera að
velta sér upp úr því hvað tekur við að
loknum ferlinum hér í Magdeburg,“
segir Ólafur Stefánsson handknatt-
leiksmaður.
Ólafur Stefánsson gerir samning við Ciudad Real til ársins 2007
Morgunblaðið/Jens Wolf
Ólafur Stefánsson og félagar hafa sett stefnuna á Evrópumeistaratitilinn.
„ÞETTA er mjög góður samn-
ingur og til fjögurra ára þannig
að ég ákvað að slá til,“ sagði
Ólafur Stefánsson, landsliðs-
maður í handknattleik, en hann
skrifaði á laugardaginn undir
fjögurra ára samning við
spænska félagið Ciudad Real.
Samningurinn tekur gildi sum-
arið 2003 og er til loka leiktíð-
arinnar vorið 2007. „Þetta er
auk þess gott félag sem er nú í
öðru sæti í spænsku deildinni
og stefnir hærra þannig að
þetta er allt saman mjög lof-
andi,“ sagði Ólafur, sem sótti
félagið heim um helgina og inn-
siglaði samninginn. Um leið sá
hann liðið vinna Valencia,
32:23.
Menning-
in á Spáni
heillar mig
Eftir
Ívar
Benediktsson
VALDIMAR Grímsson og
stjórn handknattleiksdeildar
HK hafa komist að sam-
komulagi um að Valdimar
hætti að þjálfa meistara-
flokk félagsins. Árni Stef-
ánsson, aðstoðarmaður
Valdimars, tekur við liðinu
og stjórnaði sinni fyrstu æf-
ingu í gærkvöldi. Samkvæmt
upplýsingum frá félaginu
mun Valdimar hafa ákveðið
að hætta þjálfun í vor vegna
vinnu sinnar en vegna slæms
gengis liðsins varð úr að
hann hætti strax.
Valdimar
hættur
með HK