Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 14
14 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
HÁKOTSVÖR Vorum að fá í sölu 190 fm ein-býlishús með 67 fm bílskúr á fallegum útsýn-
isstað. Stórt eldhús með eikarinnréttingu, góð stofa
og sólstofa. Gólfefni er parket, dúkur og flísar. Góð
eign á góðu verði. V. 19,8 m. 1352
TUNGUÁS Gott 208 fm einbýlishús með tvö-földum bílskúr í Garðabæ. Forstofa með flís-
um. Rúmgóð stofa og borðstofa, hátt til lofts. Þrjú
rúmgóð herbergi með skápum. Góð eign. V. 23,9
m. 1265
SKAFTAHLÍÐ Erum með í sölu fimm herbergjasérhæð á frábærum stað með bílskúr. Íbúðin
er hugguleg með parketi á gólfum og góðum skáp-
um. Ágætar innréttingar í eldhúsi með borðkrók.
Þrjú svefnherbergi með skápum og tvær stofur. V.
16,8 m. 1082
FUNALIND Virkilega glæsileg 151 fm íbúð átveimur hæðum, í litlu fjölbýli. Vandaðar
mahóní-innréttingar og parket. Rúmgóðar stofur,
tvennar svalir. Tvö baðherbergi, flísalagt í hólf og
gólf. 3-4 svefnherbergi. Skipti möguleg á sérbýli í
Rvík, t.d. hæð eða raðhúsi. Tilboð óskast. Áhv. 9,1
m. Ekkert greiðslumat. V. 17,9 m. 1093
LYKKJA Vorum að fá í einkasölu bóndabæ áKjalarnesi nálægt byggðarkjarna. Húsið er um
200 fm, mjög mikið endurnýjað á fallegan og
skemmtilegan máta. Hlaða 180 fm sem verið er að
endurbyggja. Á jörðinni, sem er 1,5 ha, er aðstaða
er fyrir hesta í húsi. Draumaeign. V. 27 m. 1273
LITLABÆJARVÖR - ÁLFTANESI Mjög gotteinbýlishús á einni hæð með stórum bílskúr.
Húsið er með 4 svefnherbergjum, mjög falleg kirsu-
berjainnrétting í eldhúsi. Gólfefni eru parket og flís-
ar á flest öllum herbergjum. Frábær staðsetning
rétt við sjóinn. Teikningar og nánari upplýsingar á
skrifstofu. FRÁBÆRT ÚTÝNI. V. 21,9 m. 1066
ESJUGRUND Erum með í sölu 113 fm enda-raðhús með byggingarrétti fyrir 29 fm bílskúr.
Húsið er rúmgott með þremur svefnherbergjum,
teppi og dúkur á gólfum, gengið er út í garð úr
stofu, eldhús er með fallegri ljósri eldhúsinnrétt-
ingu. Áhv. 7,6 m. V. 14.0 m. 1040
ENGJASEL - RVÍK Erum með í sölu mjögglæsilega 4-5 herbergja íbúð í vinsælu hverfi.
Flest allt nýtt inni í íbúðinni. Glæsileg eign með
upphituðu bílskýli. V. 14,7 m. 1169
VEGHÚS Mjög góð 93,2 fm íbúð með góðumbílskúr. Stórar suðursvalir, flísar og parket á
gólfum. Efri hæð með sérinngangi, stórt herb.,
gætu verið tvö og snyrting gæti hentað til útleigu.
Hús og lóð í góðu standi. 1354
GRETTISGATA Góð 117 fm íbúð á fyrstuhæð, góðar stofur með svölum í suðvestur.
Gott eldhús með góðum borðkrók. Tvær stofur og
þrjú svefnherbergi. Tvær snyrtingar. Áhv. 9 m. V.
12,8 m. 1331
ÁSVALLAGATA Vorum að fá í sölu 3ja herb.íbúð í vesturbænum. Eldhús er með hvítri inn-
réttingu með nýlegum tækjum. Parket og dúkur er
á gólfum. Rúmgott 15 fm sérherbergi er í kjallara
ásamt þvottahúsi, þurrkherbergi og geymslu. Húsið
allt nýtekið í gegn. V. 11,2 m. 1350
KIRKJUSANDUR Glæsileg 3ja herbergja 90fm íbúð á einum eftirsóttasta stað bæjarins.
Íbúðin er innréttuð með glæsilegum innréttingum.
Sjón er sögu ríkari. Áhv. 4,8 m. V. 13,7 m. 1342
REYRENGI Stórskemmtileg 82,2 fm 3ja her-bergja íbúð með sérinng. Íbúðin er björt með
fallegum innréttingum. Íbúðin er laus fljótlega. Ekk-
ert áhvílandi. V. 11,3 m. 1330
KLUKKURIMI Vorum að fá í einkasölu 86 fm3ja herbergja íbúð í fjórbýlishúsi í þessu vin-
sæla hverfi. Tvö góð svefnh., stór og rúmgóð stofa,
gangur og stofa með parketi. V. 11,7 m. 1343
LEIRUBAKKI Falleg 90 fm 3ja herbergja íbúðmeð sérinngangi á jarðhæð. Mjög huggulegt
eldhús með nýlegum innréttingum, stórt hjónaher-
bergi, parket á gólfum en flísar á baði. FALLEG
EIGN. V. 12,8 m. 1294
BARÐAVOGUR Mjög góð miðhæð í þríbýliásamt bílskúr. Hæðin skiptist í eldhús, tvær
stofur, önnur notuð sem herb. í dag, tvö herb.,
sameiginlegt þvottahús, litla geymslu og 28 fm bíl-
skúr. Suðvestursvalir. Parket og flísar á gólfum. V.
13,2 m. 1072
VALLARÁS Mjög góð einstaklingsíbúð á 4.hæð með miklu útsýni. Gott anddyri með
skáp. Gott baðherb. með baðkari, innréttingu og
tengi fyrir þvottav. Stofa með útgengi á svalir.
Svefnkrókur m. skápum. Dúkur á gólfum. Sér-
geymsla. Sameign í góðu standi. Húsið er klætt að
utan. 1396
BARÓNSSTÍGUR Mjög notaleg 44 fm íbúð.Forstofa, stofa og herb. m. spónaparketi, eld-
hús m. dúk og góðri innréttingu. Sameiginl.
geymsla, sérbílastæði. V. 6,1 m. 1398
BERGSTAÐASTRÆTI Tvær tveggja herbergjaíbúðir á besta stað í miðbænum. Íbúðirnar eru
nýinnréttaðar og eru mjög góðar til að leigja eða
búa í annarri og leigja hina. Leigutekjur eru nú um
120 þús. á mánuði. Áhv. 7,5 m. V. 10 m. 1157
KAPLASKJÓLSVEGUR Vorum að fá í einka-sölu góða 2ja herbergja íbúð á einum besta
stað bæjarins. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð.
Ekkert áhvílandi. V. 8,4 m. 1399
ÁLFTAMÝRI Vorum að fá í sölu fallega 2jaherbergja íbúð. Parket á gólfum og góðar inn-
réttingar. Íbúð í góðu fjölbýlishúsi sem tekið var í
gegn fyrir ári. Góð eign sem selst fljótt. Áhv. 3,4
m. V. 8,3 m. 1329
HVERFISGATA Erum með til sölu 50 fm íbúð ísteinhúsi í gamla miðbænum - var klætt að
utan fyrir 3 árum. Parket á gólfum og ágætar inn-
réttingar. Áhvílandi 2,4 m. V. 6,9 m. 1222
SNORRABRAUT Stórglæsilegt atvinnuhús-næði undir verslunarrekstur. Stórir gluggar á
verslun. Skrifstofa og klósett. Allt nýmálað og park-
et á gólfum. Öryggiskerfi m. myndavél. Frábær
staðsetning. Ekkert áhvílandi. V. 7,2 m. 1268
AUSTURSTRÆTI Erum með í sölu 5 hæða húsvið Austurstræti. Húsið er nýtekið í gegn. Er til
sölu eða leigu. 1162
Laufás fasteignasala í 27 ár
Sæbólsbraut
Fallegt 198 fm raðhús á einumbesta stað í Kópavogi. Mjög
fallega innréttað hús á tveimur
hæðum. 4 svefnherbergi á efri
hæð, sjónvarpsstofa og baðher-
bergi. Stofur, eldhús, þvottahús
og bílskúr á neðri hæð. Allt húsið
er með parketi nema baðher-
bergi og gangar. Glæsileg eign
sem vert er að skoða. V. 20,9
m. 1403
sími 533 1111 fax 533 1115 Kringlan 4-12 - Stóri turn - 9. hæð
Magnús Axelsson
lögg. fasteignasali
Einar Harðarson
sölustjóri
Björn Garðarsson
sölumaður
Sæunn Sylvía Magnús-
dóttir skjalavarsla
Óskalisti Laufáss
• Vantar stórt einbýlishús eða raðhús í Grafarvogi, Mosfellsbæ,
103, 104 eða 108, helst með möguleika á tveim íbúðum.
• 40-50 fm íbúð vestan Snorrabrautar, allt að 7 m.
• 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir fyrir fjölda kaupenda.
KRINGLAN Vorum að fá í sölu um 300 fm„penthouse“-skrifstofur á 10. hæð á einum
virtasta stað borgarinnar. Stórkostlegt skrifstofu-
húsnæði fyrir framúrskarandi starfsemi. V. 60 m.
1284
HVALEYRARBRAUT Erum með í sölu 138 fmatv.húsnæði sem hentar vel til matvælavinnslu.
Er með frysti og kæligeymslu. V. 12,0 m. 1135
NAGLAVERKSMIÐJA Erum með í sölu nagla-verksmiðju sem er vélasamstæða. Auðvelt að
flytja hvert sem er út á land. V. 3,7 m. 1235
SÓLBAÐSSTOFUR Höfum til sölu nokkrar afbestu sólbaðsstofum bæjarins. V. 6-20 m.
1277
MARBAKKABRAUT Vorum að fá í sölu 132fm parhús á þessum frábæra stað. Húsið er
með anddyri, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stóra
stofu sem gefur möguleika á að skipta í herbergi og
stofu og geymslu á neðri hæð. Á efri hæð eru þrjú
svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol. Húsið
afhendist fokhelt. V. 14,2 m. 1353
BLÁSALIR Erum með í sölu vandaðar ogglæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í
12 hæða blokk. Útsýni er vægast sagt stórkostlegt
úr öllum íbúðum yfir Suðurnes, Reykjavík og víðar.
Íbúðunum er skilað fullbúnum en án gólfefna, í öll-
um herbergjum eru sjónvarps- og símatenglar og
sérhljóðeinangrun. Öll sameign verður fullbúin og
lóð fullbúin með tveimur leiksvæðum. Upphitað bíl-
skýli er í kjallara sem selst sér. HAGSTÆÐIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR. V. 12,5-19,3 m. 1228
KÓRSALIR - LYFTUBLOKK Erum með tilsölu glæsilegar stórar 4ra herbergja íbúðir á
besta útsýnisstað í Salahverfi Kópavogs. Íbúðirnar
skilast fullbúnar en án gólfefna ásamt stæði í bíla-
geymslu. Byggingaraðili lánar allt að 85% af verði
eignar. V. 15,9-17,5 m. 1115
ÍKJÓS Sumarbústaður í Eilífsdal í Kjós. Snyrtileg-ur og vandaður bústaður með stórri verönd.
Mjög smekklegar innréttingar. Rafmagn og raf-
magnsofnar, einnig kamína. Rennandi vatn er í bú-
staðnum. V. 3,5 m. 1067
SYÐRI-REYKIR Sumarbústaður í Biskups-tungum. Er ekki fullkláraður. Er á glæsilegum
stað í fallegu umhverfi og veiðiréttur er í lítilli á rétt
hjá. Verðtilboð. 1296
Vegna mikillar sölu vantar allar tegundir
eigna á skrá í öllum hverfum
Allir viðskiptavinir
Laufáss, þ.e. þeir sem
kaupa, selja eða skrá
eign hjá Laufási fyrir
15. ágúst, fara í pott sem
dregið verður úr um ferð
fyrir tvo til Portúgals á
vegum Úrvals Útsýnar
Seljendur
Sölusamningur – Áður en fast-
eignasala er heimilt að bjóða eign til
sölu, ber honum að ganga frá sölu-
samningi við eiganda hennar um
þjónustu fasteignasala á þar til gerðu
samningseyðublaði. Eigandi eignar
og fasteignasali staðfesta ákvæði
sölusamningsins með undirritun
sinni. Allar breytingar á sölusamningi
skulu vera skriflegar. Í sölusamningi
skal eftirfarandi koma fram:
Tilhögun sölu – Koma skal fram,
hvort eignin er í einkasölu eða al-
mennri sölu, svo og hver söluþóknun
er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbind-
ur eigandi eignarinnar sig til þess að
bjóða eignina aðeins til sölu hjá ein-
um fasteignasala og á hann rétt til
umsaminnar söluþóknunar úr hendi
seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld
annars staðar. Einkasala á einnig við,
þegar eignin er boðin fram í maka-
skiptum. – Sé eign í almennri sölu má
bjóða hana til sölu hjá fleiri fast-
eignasölum en einum. Söluþóknun
greiðist þeim fasteignasala, sem sel-
ur eignina.
Auglýsingar – Aðilar skulu semja
um, hvort og hvernig eign sé auglýst,
þ. e. á venjulegan hátt í eindálki eða
með sérauglýsingu. Auglýs-
ingakostnaður skal síðan greiddur
mánaðarlega samkv. gjaldskrá dag-
blaðs. Öll þjónusta fasteignasala þ.
m. t. auglýsingar er virðisaukaskatt-
skyld.
Gildistími – Sölusamningurinn er
uppsegjanlegur af beggja hálfu með
fyrirvara (hámark 30 dagar) og gera
þarf það skriflega. Ef einkasölusamn-
ingi er breytt í almennan sölusamn-
ing þarf einnig að gera það með
skriflegum hætti. Sömu reglur gilda
þar um uppsögn.
Öflun gagna/söluyfirlit – Áður en
eignin er boðin til sölu, verður að út-
búa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal
leggja fram upplýsingar um eignina,
en í mörgum tilvikum getur fast-
eignasali veitt aðstoð við útvegun
þeirra skjala sem nauðsynleg eru.
Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjalanna. Í
þessum tilgangi þarf eftirfarandi
skjöl:
Veðbókarvottorð – Þau kosta nú
900 kr. og fást hjá sýslumannsemb-
ættum. Opnunartíminn er yfirleitt
milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbók-
arvottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða þing-
lýstar kvaðir eru á henni.
Greiðslur – Hér er átt við kvittanir
allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem
eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem
á að aflýsa.
Fasteignamat – Hér er um að
ræða matsseðil, sem Fasteignamat
ríkisins sendir öllum fasteignaeig-
endum í upphafi árs og menn nota
m.a. við gerð skattframtals. Fast-
eignamat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími 5155300.
Fasteignagjöld – Sveitarfélög eða
gjaldheimtur senda seðil með álagn-
ingu fasteignagjalda í upphafi árs og
er hann yfirleitt jafnframt greiðslu-
seðill fyrir fyrsta gjalddaga fast-
eignagjalda ár hvert. Kvittanir þarf
vegna greiðslu fasteignagjaldanna.
Brunabótamatsvottorð – Vott-
orðin fást hjá því tryggingafélagi,
sem eignin er brunatryggð hjá. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnig þarf kvitt-
anir um greiðslu brunaiðgjalda. Ef fá
þarf nýtt brunabótamat á fasteign,
þarf að snúa sér til Fasteignamats
ríksins og biðja um nýtt brunabóta-
mat.
Hússjóður – Hér er um að ræða
yfirlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýs-
ingu húsfélags um væntanlegar eða
yfirstandandi framkvæmdir. Formað-
ur eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að
útfylla sérstakt eyðublað Félags fast-
eignasala í þessu skyni.
Afsal – Afsal fyrir eign þarf að
liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er
hægt að fá ljósrit af því hjá viðkom-
andi sýslumannsembætti og kostar
það nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheimildin
fyrir fasteigninni og þar kemur fram
lýsing á henni.
Kaupsamningur – Ef lagt er fram
ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að
leggja fram ljósrit kaupsamnings.
Það er því aðeins nauðsynlegt í þeim
tilvikum, að ekki hafi fengist afsal frá
fyrri eiganda eða því ekki enn verið
þinglýst.
Eignaskiptasamningur – Eigna-
skiptasamningur er nauðsynlegur,
því að í honum eiga að koma fram
eignarhlutdeild í húsi og lóð og
hvernig afnotum af sameign og lóð
er háttað.
Umboð – Ef eigandi annast ekki
sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðs-
maður að leggja fram umboð, þar
sem eigandi veitir honum umboð til
þess fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
Yfirlýsingar – Ef sérstakar kvaðir
eru á eigninni s. s. forkaupsréttur,
umferðarréttur, viðbyggingarréttur
o. fl. þarf að leggja fram skjöl þar að
lútandi. Ljósrit af slíkum skjölum fást
yfirleitt hjá viðkomandi fógetaemb-
ætti.
Teikningar – Leggja þarf fram
samþykktar teikningar af eigninni.
Hér er um að ræða svokallaðar bygg-
ingarnefndarteikningar. Vanti þær
má fá ljósrit af þeim hjá bygging-
arfulltrúa.
Kaupendur
Þinglýsing – Nauðsynlegt er að
þinglýsa kaupsamningi strax hjá við-
komandi sýslumannsembætti. Það er
mikilvægt öryggisatriði. Á kaup-
samninga v/eigna í Hafnarfirði þarf
áritun bæjaryfirvalda áður en þeim
er þinglýst.
Greiðslustaður kaupverðs – Al-
gengast er að kaupandi greiði af-
borganir skv. kaupsamningi inn á
bankareikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
Greiðslur – Inna skal allar
greiðslur af hendi á gjalddaga. Selj-
anda er heimilt að reikna drátt-
arvexti strax frá gjalddaga. Hér gildir
ekki 15 daga greiðslufrestur.
Lánayfirtaka – Tilkynna ber lán-
veitendum um yfirtöku lána.
Lántökur– Skynsamlegt er að gefa
sér góðan tíma fyrir lántökur. Það
getur verið tímafrekt að afla tilskil-
inna gagna s. s. veðbókarvottorðs,
brunabótsmats og veðleyfa.
Afsal – Ef skjöl, sem þinglýsa á,
hafa verið undirrituð samkvæmt um-
boði, verður umboðið einnig að fylgja
með til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingarsam-
vinnufélög, þarf áritun bygging-
Minnisblað