Morgunblaðið - 23.07.2002, Page 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
N
Ú er til kynningar hjá
Hafnarfjarðarbæ tillaga
að nýju deiliskipulagi
fyrir miðsvæði Valla,
sem er nýtt og stórt byggingar-
svæði í framhaldi af Áslandinu.
Svæðið liggur fyrir ofan Reykja-
nesbraut, rétt hjá íþróttahúsi
Hauka.
Fyrstu íbúðarhúsalóðunum á
Völlum var úthlutað í vor og nú er
gatnagerð senn að ljúka, en lóð-
irnar verða afhentar í ágúst. Mið-
hverfið á Völlum á að rísa þar fyrir
vestan. Þetta er fyrsti áfangi að
nýju athafnasvæði í Hafnarfirði og
gert ráð fyrir, að þar rísi 40.000–
50.000 ferm. af skrifstofu- og þjón-
ustubyggingum.
Allt land á miðsvæði Valla er í
eigu Hafnarfjarðarbæjar, en svæð-
ið er um 26 hektarar og liggur
meðfram Reykjanesbraut, milli
hennar og Ásbrautar. Þetta svæði
liggur því vel við samgöngum. Að-
koma er frá Ásbraut en hún teng-
ist Reykjanesbraut um mislæg
gatnamót til norðnorðausturs og
fyrirhugaðan nýjan Krýsuvíkurveg
til suðvesturs.
Í greinargerð með skipulagstil-
lögunni kemur fram lýsing á svæð-
inu. Það er í um 20–25 metra hæð
yfir sjávarmáli og er að mestu gró-
ið hraun, sem einkennist af til-
tölulega jafnsléttri mosagróinni
hraunhellu, en í henni eru samt
nokkrar áberandi gjótur og hrygg-
ir á stöku stað.
Arkitektastofan Studio Granda
hefur hannað deiliskipulagið, en
Hafdís Hafliðadóttir, skipulags-
stjóri Hafnarfjarðar hefur haft um-
sjón með skipulagsvinnunni fyrir
hönd bæjarins.
Deiliskipulagstillagan er til sýnis
í afgreiðslu umhverfis- og tækni-
sviðs að Strandgötu 8 fram til 19.
júlí nk., en athugasemdum við til-
löguna þarf að skila eigi síðar en 2.
ágúst nk. Haldinn verður kynning-
arfundur um skipulagstillöguna í
Haukahúsinu fimmtudaginn 25. júlí
nk. kl. 16,30.
Þétt byggð með
skýrum götumyndum
Markmiðið er að móta heil-
steypta, formfasta og þétta byggð
með skýrum götumyndum og skjól-
góðum bæjarrýmum, sem stuðli að
góðri nýtingu landsins, segir í
greinargerðinni með skipulagstil-
lögunni. Meginhluti svæðisins verð-
ur því þétt, blönduð byggð skrif-
stofu- og þjónustubygginga, sem
eru frá tveimur og upp í sex hæðir.
Ætlunin er, að húsagerðir verði
tiltölulega frjálsar en hús sem eru
á sömu lóð eða samtengd skulu
teiknuð af sama hönnuði og lögð
fyrir byggingarfulltrúa sem ein
heild. Þar sem hús eru samtengd
skal samræma lit, þakform og efn-
isval.
Byggingarnar eiga að rísa næst
Ásbrautinni en síðan kemur stórt
bílastæði, sem virkar sem hljóð-
vörn gagnvart Reykjanesbrautinni.
Auk þess verður gróðursett mikið
af trjám á bílastæðinu til þess að
draga úr áhrifum bílastæðaflæm-
isins og draga enn frekar úr um-
ferðarhávaða frá Reykjanesbraut-
inni.
Umferðarkerfið um svæðið á að
verða auðratað. Göngu- og hjóla-
stígatengsl við aðliggjandi svæði og
aðalstígakerfi bæjarins verður um
tvenn undirgöng, undir Reykjanes-
braut og gangbraut yfir Ásbraut að
íþróttasvæði Hauka og þaðan um
stíga að nýjum íbúðahverfum Ás-
lands og fyrirhuguðu íbúðasvæði
Valla, að Ástjörn og upp í hlíðar
Ásfjalls að Hvaleyrarvatni.
Gengið verður þannig frá að
hægt verður að hafa gangstéttar á
svæðinu upphitaðar, en við það
verða þær auðveldar yfirferðar að
vetrarlagi og snjómokstur sparast.
Við gömlu grjótnámuna vestan við
skipulagssvæðið er gert ráð fyrir
útivistarsvæði, sem tengist göngu-
leiðinni frá Hvaleyrarhrauni að
Völlum.
Leitazt er við að hafa sjálfbæra
þróun að leiðarljósi við úrvinnslu á
skipulaginu. Með því er átt við að
svæðið verði nýtt til fulls. Það er
gert með því að leggja áherzlu á
þéttari byggð, markvisst gatna-
kerfi, samþjöppun bílastæða og
styttra lagna- og vegakerfi.
Byggingar skulu að jafnaði
standa við gangstétt og mynda
þannig skýrt afmarkað göturými.
Innan svæðisins liggja gönguleiðir
að öllu jöfnu meðfram götu.
Stórar byggingar
Að sögn skipulagshönnuðanna
verður miðsvæði Valla annars kon-
ar athafnasvæði en gamli miðbær-
inn í Hafnarfirði. „Það er ekki gert
ráð fyrir verzlun og þjónustu sam-
bærilegri þeirri, sem hægt er að
koma fyrir í gamla miðbænum,“
segja þeir.
„Mörg verzlunarfyrirtæki þurfa
mikið rými, t.d. húsgagnaverzlanir
og bílaumboð, sem þurfa mikið
sýningarpláss. Miðsvæði Valla gæti
t.d. verið hentugt aðsetur fyrir höf-
uðstöðvar stærri fyrirtækja. Marg-
ar opinberar stofnanir kalla líka á
stórt húsnæði með fjölda bíla-
stæða.“
Markmiðið er samt að fá fólk til
að skynja þetta nýja hverfi sem
eðlilegt framhald af gamla bænum
í Hafnarfirði, en skrifstofu- og
þjónustubyggingarnar á Völlum
munu blasa við á hægri hönd, þeg-
ar fólk kemur akandi eftir Ás-
brautinni.
Að mati skipulagshönnuðanna er
þetta svæði mjög gott byggingar-
land. „Svæðið er allt þakið hrauni
Miðsvæði Valla í Hafnar-
firði er ætlað fyrir
skrifstofur og þjónustu
Á meginhluta svæðisins á
að rísa þétt, blönduð
byggð skrifstofu- og
þjónustubygginga, frá
tveimur og upp í sex
hæðir. Magnús
Sigurðsson kynnti sér
nýtt skipulagssvæði rétt
fyrir ofan Reykjanesbraut
í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Jim Smart
Miðsvæði Valla er ílangt svæði, sem
liggur á milli Reykjanesbrautar og
Ásbrautar. Fyrir ofan Ásbraut blasir
Haukahúsið við.
Hafdís Hafliðadóttir, skipulagsstjóri Hafnarfjarðar, og arkitektarnir Steinþór
Kári Kárason og Steve Christer frá Studio Granda, sem hannaði deiliskipu-
lagið. Myndin er tekin á skipulagssvæðinu.
Afstöðumynd af skipulagssvæðinu, sem liggur meðfram Reykjanesbraut, en aðkoma verður frá Ásbraut. Rauða byggingin er Haukahúsið.