Morgunblaðið - 23.07.2002, Page 28

Morgunblaðið - 23.07.2002, Page 28
28 C ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Hönnuðu þekktar byggingar Síðar stofnaði hann arkitekta-stofuna, VSBA, með konunnisinni, Denise Scott Brown og hafa þau saman hannað byggingar eins og viðbygginguna við National Gallery í London. Í samtímahúsagerð hefur Vanna Venturi-húsið margsinnis verið notað til skírskotunar sem sést best í því að heimildaskrá þess hefur að geyma á annan tug þúsunda heimilda. Þær lýsa húsinu sem kveikju heitrar um- ræðu um uppsprettu húsagerðar í lok síðustu aldar. Í tengslum við greinaflokkinn um Sögur húsanna, settum við okkur í samband við Robert Venturi til þess að grafast fyrir um tengsl arkitekts- ins við húsbyggjandann, í hans tilfelli tengsl hans við móður sína meðan á hönnun hússins stóð. Skömmu síðar barst okkur tölvu- póstur frá Almannatengslum arki- tektastofunnar þess efnis að Venturi kynni að meta þá leið sem Sögur húsanna kjósa að fara til að nálgast viðfangsefnið og að hann væri að skrifa texta tileinkaðan greinaflokkn- um. Innihaldsríkt bréf Rausnarlegt framlag hans end-urspeglaði viðhorf hans tilhúsagerðarinnar þar sem Venturi hefur ávallt verið þeirrar skoðunar að íhuga þurfi smekk manna og reynslu til jafns við skipu- lag innra rýmis hússins. Innihalds- og tilfinningaríkt bréf hans er birt hér að neðan. Robert Venturi: „Vanna Venturi- húsið“ Bréf skrifað fyrir Sögur húsanna, 6. janúar 2002, yfirfarið 11.01.2002 og 13.01.2002. „Móðir mín var einstök manneskja sem ólst upp í fátækri innflytjenda- fjölskyldu í Fíladelfíu og gat ekki lok- ið gagnfræðaskólanum vegna þess að fjölskylda hennar hafði ekki efni á að kaupa vetrarkápu á hana. En hún hafði yndislegan kennara sem hét Miss Caroll sem dáði hana, hélt áfram að kenna henni og var móður minni lærimeistari og fyrirmynd. Móðir mín vann fyrir fjórum doll- urum á viku við John Wanamaker stórverslunina en síðar fyrir innan- hússhönnuð þar sem áhugi hennar á listum og húsagerðarlist gat vaxið og þroskast. Sem ung kona varð hún jafnaðarflokksmanneskja – kaus allt- af Norman Thomas þegar hann bauð sig fram sem forsetaframbjóðandi – og varð að lokum sérfræðingur í verkum Bernard Shaw og í sam- tökum enskra sósíalista (Fabian Society). Þegar ég var ungur sáum við oft leikrit eftir Bernard Shaw sem voru hluti breytilegrar dagskrár bæj- arleikhússins í Hedgerow. Hún var friðarsinni og varð meðlimur kvek- arasamtakanna (Society of Friends), þ.e. gerðist kvekari – ásamt föður mínum. Bæði hún og faðir minn nutu bygg- ingarlistar og vöktu áhuga minn á húsagerð þegar ég var ungur að ár- um – og heimili okkar var klætt fal- legum húsgögnum sem mér er enn mjög annt um - og hafði að geyma margar bækur um byggingarlist, bókmenntir, mannkynssögu og heimsspeki. (Faðir minn, sem var ávaxta- kaupmaður, gat heldur ekki lokið gagnfræðaskólanum vegna fátæktar í fjölskyldunni en hann átti marga vini sem voru arkitektar - einn þeirra hannaði verslun fyrir hann og annar vöruskemmu – báðir voru frægir á sínum tíma). Hús móður minnar var hannað fyrir ekkju sem komin var á efri ár- in, með svefnherbergi hennar á jarðhæð, með engan bílskúr vegna þess að hún keyrði ekki og fyrir þjónustustúlku og möguleika á að hafa hjúkrunarkonu – og það átti líka að vera vel sæmandi fallegu húsgögnunum hennar sem ég ólst upp við. Fyrir utan þessi atriði gerði hún engar kröfur til arkitektsins, sonar síns, varðandi skipulag hússins eða fegurð þess – hún sýndi yndislegt traust. Ég hef skrifað um húsið sem nútímalegt en líka sem hús haft til skírskotunar/er táknrænt – sem hús kennt við hið almenna/helgimyndir – sem keppist ekki við að vera frum- leg húsagerð, heldur góð. Margbrotið eðli Það tengist hugmyndum mín-um frá þessum tíma varð-andi margbrotið eðli og mót- sagnir, um aðlögun sína að sérstökum staðháttum Chestnut Hill-úthverfisins, um fagurfræðlega legu hlutanna sem ég lærði frá Villa Savoye, um lögun gaflhlaðsþríhyrn- ingsþaks þess sem átti rætur sínar að rekja til Low House í Bristol á Rhode Island, um klofinn gafl- hlaðsþríhyrninginn sem mátti rekja til efri gaflhlaðsþríhyrnings Blen- heim-hallarinnar og tvískiptingar- uppbygginuna sem sótt var í Gira- sole-húsið í Róm og sem varðaði ákveðin hagnýt atriði notuð til skrauts. En þetta er nútímalegt hús; móðir mín naut þess að búa í því og líka að taka á móti þeim fjölmörgu ungu arkitektum sem heimsóttu það!“ Vanna Venturi-húsið í Fíla- delfíu eftir Robert Venturi Stofuna prýddu falleg húsgögn móður Venturis jafnframt því sem stiginn og arinninn keppast um hver segi til um miðju hússins. (Ljósmyndari: Rollin LaFrance.) Frú Vanna Venturi fyrir framan húsið sitt sem virðist hefðbundið við fyrstu sýn. (Ljósmyndari: Rollin LaFrance.) Rýmið innanhúss, eins og það kemur fram á grunnmyndunum, er flókið og af- myndað í lögun og í tengslum sín á milli. Þrátt fyrir að húsið hafi verið notað sem dæmi í bók Venturis, Margbrotið eðli og mótsagnir (1966), lagði núverandi eig- andi áherslu á það við okkur að ljósið byggi yfir einstökum eiginleikum fyrir rýmið þegar það brytist í gegnum snjóalögin við gluggann á efri hæðinni og niður í stofuna. (Ljósmyndari: Rollin LaFrance.) Robert Venturi (f. 1925) arki- tekt. (Ljósmyndari: J.T.Miller.) Dr. Halldóra Arnardóttir, listfræðingur [sanchezarnardottir@arquired.es] Árið 1962 bað frú Vanna Venturi son sinn, Robert Venturi, þá ungan og upp- rennandi arkitekt, að hanna fyrir sig hús í Chestnut Hill- hverfinu í Fíladelfíu í Banda- ríkjunum. Húsið var ein af fyrstu byggingum Venturis en það skaut honum fljótt upp á stjörnuhimininn og veitti honum alþjóðlega við- urkenningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.