Morgunblaðið - 13.10.2002, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 2002 B 7
ferðalög
Aðventuferð til Trier
Úrvals-bændaferðir bjóða í lok nóv-
ember til aðventuferðar um Mósel-
dalinn og Trier í Þýskalandi.
Trier er elsta borg Þýskalands og
þar bera hæst minjar frá dögum
Rómverja en þeir settust þar að og
stofnuðu borgina um Kristsburð.
Gamli miðaldabærinn er vel varð-
veittur. Á göngugötum eru lítil kaffi-
hús og jafnframt helstu versl-
unarkeðjur Þýskalands. Löng hefð er
einnig fyrir jólamarkaði í Trier. Hót-
elið er í göngufæri frá gamla kjarn-
anum.
Innifalið í ferðinni er meðal annars
skoðunarferð til Bernkastel og
Enkirch sem endar hjá vínbónda
með tilheyrandi vínsmökkun og
kvöldmat, sannkölluð veisla.
Aðventuferðin kostar 79.000 krónur
í tvíbýli og er þá innifalið flug, flug-
vallaskattur og akstur, ásamt leið-
sögn íslensks fararstjóra, gistingu á
fjögurra stjörnu lúxushóteli með
morgunverðarhlaðborði. Þar að auki
eru fjórir kvöldverðir með fararstjóra
á sérvöldum veitingastöðum inni-
faldir í verðinu, skoðunarferð um
gamla bæinn svo og vínsmökk-
unarferðin sem er hápunktur ferð-
arinnar með veisluborði.
Fararstjóri er Friðrik G. Friðriksson
sem er einhver reyndasti fararstjóri
Úrvals-Útsýnar á þessu svæði.
ÍT-ferðir með einkaumboð
fyrir Bobby Charlton-
skólann
Ferðaskrifstofan ÍT-ferðir sem sér-
hæfir sig í hópferðum, ekki síst fyrir
íþróttahópa og íþróttaáhugamenn,
hefur fengið einkaumboð á Íslandi
fyrir knattspyrnuskóla Bobby Charlt-
ons í Englandi.
Samvinnuferðir-Landsýn höfðu um
árabil umboð fyrir skólann og sendu
árlega 100–200 íslensk ungmenni í
skólann, sem í ár flutti höfuðstöðvar
sínar til heimavistarskóla í útjaðri
Blackpool.
Knattspyrnuskóli Bobby Charltons
er bæði fyrir lið og einstaklinga,
stráka og stelpur á aldrinum 13–16
ára. Ferðir í skólann verða næsta
sumar einkum á tímabilinu frá lok
júlí til 15. ágúst. Íslenskir fararstjórar
verða með krökkunum allan tímann.
Upplýsingabæklingur
fyrir ferðamenn
Netið – information for tourists, sem
rekið er af Netinu – markaðs- og
rekstrarráðgjöf, gaf í sumar út upp-
lýsingabækling 2002.
Bæklingurinn er prentaður í vasa-
stærð og er hugsaður fyrir erlenda
ferðamenn sem dvelja í Reykjavík í
lengri eða skemmri tíma. Honum er
dreift án endurgjalds á öll hótel,
upplýsingaþjónustustöðvar á höf-
uðborgarsvæðinu auk fjölda gisti-
heimila. Upplýsingabæklingnum er
einnig dreift á landsbyggðinni og er-
lendis. Í fréttatilkynningu frá Netinu
kemur fram að í bæklingnum séu
m.a. upplýsingar um íslenska hesta,
hvali, fugla, mat, áfangastaði á
landsbyggðinni, íslensk mannanöfn,
myndlist og fleira.
Þá er þar að finna upplýsingar um
veitingastaði, verslanir, ferðir og alla
sundstaði í Reykjavík, þ.e. aðstöðu í
hverri laug, verð, opnunartíma og
staðsetningu á korti. Í bæklingnum
eru einnig upplýsingar um afþrey-
ingu, menningarviðburði, veðurfar,
fjölda erlendra ferðamanna og upp-
lýsingar um verðlag, svo og mat-
aruppskriftir, upplýsingar um kaffi-
hús, næturlíf í Reykjavík, helstu
strætisvagnaleiðir, tölfræði og fleira.
Í bæklingnum eru tvö kort af
Reykjavík, eitt miðbæjarkort og
annað af Reykjavík í heild. Einnig er
kort af gönguleiðum í Reykjavík þar
sem merktir eru inn áhugaverðir
staðir, listasöfn og hönnuðir. Fjórða
kortið er af Laugardal þar sem
merktir eru inn þeir afþreying-
armöguleikar sem dalurinn hefur
upp á að bjóða.
Upplýsingar um ferðir í
Knattspyrnuskóla Bobby
Charltons eru á vefsíðu ÍT-
ferða, www.ittravel.is, og einnig
á skrifstofu ÍT-ferða í Íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal, sími
588 9900.
Allar nánari upplýsingar og
pantanir í bændaferðina eru
veittar hjá Úrval-Útsýn í Smár-
anum, Hlíðarsmára 15, Kópa-
vogi, sími 585 4100.
HÓTELIÐ í Kangerlussuaq á Græn-
landi er svo sannarlega öðruvísi hótel
en fólk á að venjast því það er byggt
úr ís.
Hótelið er opið frá 15. desember og
fram í apríl. Hitastigið inni er um tíu
gráður en það getur farið í 35 stiga
frost fyrir utan. Svefnpokarnir eiga á
hinn bóginn að halda hita á gestum
því þeir þola allt að 40 stiga frost.
Kveikt er á kertum á kvöldin og þá
skapast sérstök stemmning innan-
dyra. Borðin eru úr ís og það þarf ekki
ísmola í glösin því drykkjarmálin eru
einnig búin til úr ís.
Langi fólk til að skoða hótelið en
ekki gista þar þá er boðið upp á skoð-
unarferðir þangað yfir hádaginn, boð-
ið upp á ískaldan drykk og fyrirlestur
um ísinn.
Íshótelið opnað í desember
Jafnvel borð og glös úr ís
Íshótelið samanstendur af fimm
litlum húsum sem rúma tvo hvert.
Nánari upplýsingar fást hjá
Hótel Igloo Village
Tölvupóstfang: kang-
book@glv.gl
Sími 00299 841180
Fax: 00299841284
Vefslóð: www.greenland.com/
igloo
A
B
X
/
S
ÍA
-1
00
5-
90
21
44
8-