Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 1
2002 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ALLT UM LANDSLEIKINN GEGN SKOTUM/ B2–B7, B12
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
MILAN Stefán Jankovic var um
helgina ráðinn þjálfari knatt-
spyrnuliðs Keflvíkinga og stjórnar
því í 1. deildinni á næsta tímabili.
Milan Stefán, sem er 42 ára, hefur
verið í röðum Grindvíkinga frá
árinu 1992, lengi sem leikmaður en
síðan sem þjálfari í þrjú ár, frá 1999
til 2001. Á nýliðnu tímabili þjálfaði
hann yngri flokka í Grindavík. Mil-
an Stefán tekur við af Kjartani Más-
syni sem lét af störfum í haust en
Keflvíkingar misstu sæti sitt í úr-
valsdeildinni á óhagstæðri marka-
tölu.
„Við handsöluðum tveggja ára
samning við Milan Stefán á laug-
ardag og göngum formlega frá
málunum þegar hann kemur aftur
heim úr fríi eftir mánaðamótin. Ég
á von á nær óbreyttum leikmanna-
hópi hjá okkur, reyndar er óvissa
með Hauk Inga Guðnason í augna-
blikinu og þá eru þeir Guðmundur
Steinarsson og Adolf Sveinsson í
Danmörku í vetur og framhaldið
hjá þeim liggur ekki endanlega fyr-
ir. En okkar markmið er á hreinu,
við ætlum strax aftur upp í úrvals-
deildina og miðum allar okkar áætl-
anir við það,“ sagði Rúnar Arnar-
son, formaður knattspyrnudeildar
Keflavíkur, við Morgunblaðið í
gær.
Milan Stefán
þjálfar
Keflvíkinga
NORSKI meistaratitillinn í knatt-
spyrnu blasir við Katrínu Jóns-
dóttur og stöllum hennar í Kol-
botn eftir 3:0 útisigur á Sandviken
á laugardaginn. Katrín skoraði
annað mark Kolbotn í leiknum
þegar hún fylgdi eftir skoti sem
markvörður heimaliðsins varði.
Með þessum úrslitum hefur Kol-
botn náð fimm stiga forystu þegar
tvær umferðir eru eftir. Takist lið-
inu að vinna Team Strömmen á
heimavelli í næstsíðustu umferð-
inni á laugardaginn kemur verður
félagið meistari í fyrsta skipti.
Team Strömmen er um miðja
deild og ekki líklegt til að standa í
vegi fyrir Kolbotn sem hefur unn-
ið 14 af 16 leikjum sínum á tíma-
bilinu.
Kolbotn er með 43 stig, Asker
er með 38 og fráfarandi meistarar
Trondheims-Örn eru með 34. Ask-
er vann Trondheims-Örn 5:0 á úti-
velli um helgina.
Katrín skoraði
og titillinn blasir
við Kolbotn
Morgunblaðið/Einar Falur
Knötturinn á leið fram hjá íslenska liðinu, eftir aukaspyrnu – í
varnarvegg Íslendinga eru Arnar Þór Viðarsson, Brynjar Björn
Gunnarsson, Helgi Sigurðsson og Rúnar Kristinsson – og fram
hjá marki. Landsliðið mætir liði Litháen á morgun.
ENSKA knattspyrnufélagið Sund-
erland hefur sent frá sér yfirlýsingu
um að það sé reiðubúið til að greiða
Stoke 165 þúsund pund, eða 22,4
milljónir íslenskra króna, í skaða-
bætur vegna brotthvarfs knatt-
spyrnustjórans Steves Cotterills í
síðustu viku.
Í yfirlýsingunni segir að Cotterill
hafi haft klásúlu í samningi sínum
um að það væri sú upphæð sem
greiða þyrfti í slíku tilfelli. Þar með
þurfi ekki að láta dómstóla skera úr
um greiðsluna, hún liggi þegar fyrir.
Gunnar Gíslason, stjórnarformað-
ur Stoke, sagði við The Sentinel að
vissulega væri þessi klásúla í samn-
ingnum, en hún segði ekkert um
hvað greiða skyldi ef rætt væri við
Cotterill án leyfis, eins og gert var í
þessu tilfelli.
Áður hefur komið fram að Stoke
City muni fara fram á eina milljón
punda, eða 136 milljónir króna, í
skaðabætur frá Sunderland. Það er
sú upphæð sem Preston fékk frá
Everton á síðasta tímabili þegar
Everton „lokkaði“ David Moyes til
sín.
Tony Pulis til Stoke?
Ekki hefur verið ráðinn knatt-
spyrnustjóri til Stoke í stað Cotter-
ills en nýtt nafn kom inn í umræðuna
um helgina. Það er Tony Pulis, sem
hætti hjá Portsmouth fyrir hálfu
öðru ári, en hann hefur áður stýrt
Bristol City, Gillingham og Bourne-
mouth. Pulis var einn þeirra sem
stjórnarmenn Stoke ræddu við þeg-
ar þeir leituðu að arftaka Guðjóns
Þórðarsonar í vor.
Vill aðeins greiða
22,4 milljónir
Lárus Orri
dró sig út
úr hópnum
LÁRUS Orri Sigurðs-
son, landsliðsmaður í
knattspyrnu, leikur ekki
með íslenska liðinu
gegn Litháen annað
kvöld. Lárus Orri sendi í
gær frá sér eftirfarandi
tilkynningu:
„Ég hef ákveðið að
draga mig úr landsliðs-
hópnum fyrir leikinn
gegn Litháen eftir að
hafa brotið reglur hóps-
ins. Ég harma þessi mis-
tök og vona að liðið og
þjálfarinn fái frið til
þess að undirbúa sig
fyrir mikilvægan leik á
miðvikudag.“
Atli Eðvaldsson hefur
kallað á Ólaf Örn
Bjarnason, Grindavík,
fyrir Lárus Orra Sig-
urðsson. Ólafur Örn á
11 landsleiki að baki og
lék fyrstu fjóra leiki árs-
ins, síðast gegn Norð-
mönnum í Bodö í maí.