Morgunblaðið - 15.10.2002, Page 3

Morgunblaðið - 15.10.2002, Page 3
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 B 3 Björklund fylgdist með Hauki Inga KALLE Björklund, þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Molde, var á Laugardalsvellinum á laugardaginn til að fylgj- ast með Keflvíkingnum Hauki Inga Guðnasyni í landsleik Ís- lands og Skotlands. Molde hefur mikinn áhuga á að fá Hauk Inga til liðs við sig og hefur boðið honum til Noregs eftir landsleikinn við Litháen. Norska félagið vildi einnig fá Hauk Inga í fyrra en þá neitaði Keflavík tilboði um leigusamning. Molde er í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar og berst við Rosenborg um meistaratitilinn í tveimur síðustu umferðunum. Haukur Ingi hefur í fleiri horn að líta því Kärnten í Aust- urríki og Gautaborg í Svíþjóð vilja bæði fá hann til sín til reynslu á næstunni. Þegar Willum Þór var spurður um,hvort það hafi ekki verið ljóst að Skotarnir hafi verið búnir að kort- leggja íslenska liðið vel og vandlega, sagði hann: „Jú, það var ekki annað að sjá því þeir höfðu öll ráð okkar í hendi sér. Við völdum jafnan erfiðustu leiðina með háum sending- um fram völlinn þar sem þriggja manna varnarlína Skotanna vann alla skallabolta og Skotarnir voru undan- tekningalaust á undan í seinni bolt- ann. Leiðin á svona 3:5:2 vörn er að nýta bakverðina og spila boltanum helst í gegnum Rúnar áður en leitað er inn í hornin. Því miður var þessi leið ekki valin og þar með áttum við erfitt uppdráttar. Mér fannst áber- andi hvað okkar leikmenn voru langt frá Barry Ferguson. Skosku leik- mennirnir áttu auðvelt með að finna hann og því var yfirvegun í spili þeirra. Ég hefði viljað sjá Brynjar Björn taka Ferguson hreinlega úr umferð til að brjóta upp spil þeirra.“ Setja þessi úrslit ekki strik í reikn- inginn um markmiðið sem er annað sætið í riðlinum? „Jú, það gerir það eitthvað en hinu má þó ekki gleyma að Skotarnir töp- uðu tveimur stigum á móti Færeying- um svo það er allt opið ennþá enda keppnin rétt að byrja. Það sem strák- arnir verða hreinlega að gera núna er að rífa sig upp og einblína á leikinn við Litháen.“ Heiðar og Bjarna í byrjunarliðið Mundir þú gera róttækar breyt- ingar á liðinu fyrir þann leik? „Ég er ekki viss um að ég mundi gera róttækar breytingar. Það er hins vegar úr stórum hópi að velja og ég tel að leikmaður eins og Heiðar Helguson sé vænlegur kostur í byrj- unarliðið og hugsanlega Bjarni Guð- jónsson sem ég hefði viljað sjá koma inn í hálfleik eins og Heiðar. Mér fannst Lárus Orri og Rúnar þeir einu sem voru kannski að spila af eðlilegri getu. Eiður Smári byrjaði vel en dal- aði mjög þegar á leið. Ef við ætlum að vinna Litháana þá verður meginþorri leikmanna að ná góðum leik.“ Hlutverk Atla Eðvaldssonar hlýtur fyrst og fremst liggja í því að rífa mannskapinn upp andlega? „Hann verður að blása baráttu- anda í leikmenn enda er búið að slá liðið hressilega í jörðina. Við höfum yfirleitt verið sterkastir þegar vænt- ingarnar eru litlar og við erum með báðar fætur á jörðinni. Ég held að menn hafi verið allt of uppteknir við að verja íslenska liðið eftir leikinn við Ungverja. Það er engum hollt að breiða yfir vandamál og það er sú gryfja sem við megum alls ekki falla í núna. Við verðum að horfast í augu við mjög slaka frammistöðu í þessum leik við Skota og byrja að brýna menn fyrir leikinn við Litháa. Það er bara barátta sem skilar íslenska landslið- inu stigum. Við eigum mjög fram- bærilega fótboltamenn en kostir okk- ar leikmanna og geta nýtast ekki neitt ef engin er baráttan. Við sáum vel að barátta Skotanna í leiknum í dag skilaði þeim opnum svæðum inni á vellinum og það sem við verðum að berja inn í okkar lið er stákarnir byrji á því að berjast og að þeir fari hrein- lega í skotgrafirnar. Ef þessir hlutir nást fram þá fer geta leikmanna eins og Eiðs Smára að skila sér fyrir liðið.“ Leikurinn við Litháa verður ekki auðvelt verkefni. „Litháarnir spila mjög ólíkt því sem Skotarnir spila. Þeir koma til með að spila hratt og stutt á milli sín og ég held að það geti hentað okkur ágætlega ef við drögum okkur saman og tökum fast á þeim. Við verðum að nýta föst leikatriði til hins ýtrasta og sækja hratt þegar kostur gefst. Upp á sjálftraustið að gera og mögu- leikann á því að gera einhverjar rósir í riðlinum er lífsnauðsynlegt að sigra Litháana,“ sagði Willum Þór. Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara KR Engum hollt að breiða yfir vanda- málið „AÐ mínu mati lék íslenska landsliðið illa í dag og það sem kom mér mest á óvart var hversu snemma við létum Skotana koma okkur úr jafnvægi. Það var vitað mál að Skotarnir myndu pressa okkur þegar þeir töpuðu boltanum og einhverra hluta vegna þá sló það íslenska liðið út af laginu,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeist- ara KR, við Morgunblaðið á Laugardalsvellinum skömmu eftir sigur Skota á Íslendingum. Guðmundur Hilmarsson skrifar an ég tók við því, ég verð bara að læra að lifa með henni. Því hef ég fyr- ir löngu gert mér grein fyrir. En auð- vitað er erfitt að eiga sífellt undir högg að sækja. Það er alveg sama hvað ég geri, allt er gagnrýnt og eins og ég hef áður sagt að ef ég gæti gengið á vatni þá myndu menn að- eins segja að ég gerði það vegna þess að ég kynni ekki að synda, svo einfalt er það. Reyndi að draga úr spennunni Ég get ekki verið sár út í strákana þótt illa gangi á leikvellinum, þeir eru líka vonsviknir yfir frammistöðunni. Meðal þeirra ríkti einnig mikil spenna fyrir leikinn. Ég reyndi eins og mögulegt er að draga úr vænt- ingum þeirra og lækka spennustigið. Á sama tíma er umræðan í kringum okkur á hinn veginn. Mitt hlutverk var því að reyna að þræða hinn gullna meðalveg. Leikmenn ætluðu sér að sýna betri leik en raun varð á en hlutirnir féllu bara ekki fyrir þá. Skotarnir skoruðu fyrsta markið og þar með breyttist landslagið eins hendi væri veifað. Allt hefði verið með öðrum blæ ef fyrsta mark leiksins hefði fallið okkur í skaut eða þá að okkur hefði lánast að jafna fljótlega eftir skoska markið eins og möguleiki var á. En vegna þess að Skotar urðu fyrri til að skora þá kom upp þeirra óskastaða, þeir færðu sig aftar á völlinn, vörðust vel, voru sterkir í návígjum og skallaein- vígjum; voru hreint út sagt með allt annað lið en það sem lék við Fær- eyinga á dögunum,“ segir Atli og á greinilega erfitt með að sætta sig við úrslitin enda þekktur baráttumaður sem gefur ekki sinn hlut svo auðveld- lega. Síðustu 20 mínútur leiksins fannst manni eins og beðið væri eftir því að leikurinn yrði flautaður af, voru menn búnir að missa vonina? „Eðlilega voru menn búnir að missa svolítið af voninni, enda kannski ekkert skrýtið. Strákarnir voru búnir að reyna og reyna og ekk- ert gekk. Þá er ekkert óeðlilegt að vonin minnki.“ Þú sagðir á blaðamannafundi áðan að allt of mikið hefði borið á slæmum sendingum hjá leikmönnum íslenska liðsins í leiknum og það hefði meðal annars haft sitt að segja í sóknar- leiknum og við uppbyggingu sókna. Fannst þér bera meira á þessum veikleika nú en í öðrum leikjum upp á síðkastið? „Þetta hefur á stundum verið vandamál. En að þessu sinni verður það ekki af leikmönnum tekið að þeir reyndu að leggja sig fram og hafa þetta atriði í lagi, því miður tókst það ekki á tíðum betur en raun ber vitni. Verst fannst mér þegar menn töpuðu boltanum án þess að vera undir pressu eða að þeim væri sótt. Það má ekki eiga sér stað og í raun má segja að þetta atriði hafi verið alltof mikið áberandi í leiknum og komið í veg fyrir að hægt væri að reka smiðs- höggið á nokkrar sóknir.“ Ærið verk framundan Atli segir að eðlilega hafi verið mjög þungt yfir leikmönnum sínum inni í búningsklefa strax eftir leikinn, vonbrigðin hafi skinið úr andliti manna. Framundan væri ærið verk við að rífa menn upp úr þessari stöðu, læra af þessum leik og mæta tvíefldir gegn Litháen á morgun. Atli sagði enga ástæðu til annars en menn yrðu búnir að jafna sig þegar á hólminn væri komið. Liðið ætlaði sér að læra af Skotaleiknum og sýna hvað í því byggi gegn Litháum. „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að það takist að fá leikmenn til þess að einbeita sér fullkomlega að leiknum við Litháa. Því má alls ekki gleyma að ef við vinnum þá höfum við aðeins tapað einu stigi meira en Skot- ar, þannig að staðan verður ef til vill ekki eins vonlaus og margir telja og sex viðureignir eftir,“ segir Atli og leggur þunga áherslu á að ekki komi til greina að láta hug falla, keppnin sé rétt að hefjast og ekki komi til greina að láta fyrstu hrösun í riðlakeppninni slá sig gersamlega út af laginu. Hann viðurkennir þó að mikið verk sé framundan fram að næsta leik og það verði ekki létt verk að rífa menn upp en það skuli takast. „Framundan er erfið vinna.“ Voru leikmenn þínir orðnir vissir um sigur, trúðu þeir því sem Skot- arnir sögðu að íslenska liðið væri betra? „Skotarnir báðu um að pressan yrði sett á íslenska liðið, það var eng- in tilviljun. Skoskir fjölmiðlar lögðust á eitt í því efni og uppskáru eins og til var sáð. Íslenskir fjölmiðlar tóku það upp og þetta síaðist inn að við værum betri og skoska liði væri komið hing- að til þess að fá eitt stig í besta falli.“ Reyni að gera mitt besta Er ekki þetta starf farið að taka sinn toll af þér? „Þetta er erfitt og það er slæmt að fá harða gagnrýni og verða jafnvel fyrir skítkasti. Það er engin miskunn í þessu starfi. Undanfarnir dagar hafa verið erfiðir og þeir næstu verða það ekkert síður. Sumir virðast á tíð- um gleyma því að ég er að reyna mitt besta, þótt árangurinn sé vissulega ekki alltaf í samræmi við þá vinnu sem í hann er lagður. “ Í hverju felst starf þitt fram að næsta leik? „Staðreyndin er sú að í okkur hef- ur verið sparkað. Það var einnig gert við Skota í Færeyjum fyrr í þessari riðlakeppni. Þeir risu upp, stóðu saman og komu tvíefldir til næsta leiks. Nú er það okkar að leika það eftir. Við þurfum að fá frið til þess að laga það sem miður fór og safna kröftum á nýjan leik. Síðan skulum við spyrja að leikslokum eftir viður- eignina við Litháa hvernig til hefur tekist. Í þann leik förum við til þess að ná í stig.“ Hvernig ætlar þú að „reisa liðið við“ eins þú kallar það? „Við ræðum saman og gerum ým- islegt fleira til þess að koma skútunni af stað á ný,“ segir Atli og vill greini- lega lítt út í þá sálma fara, telur það vera sitt og liðsins að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin í friði á þeim skamma tíma sem til stefnu er fram að leiknum við Litháen á morgun. „Ég teysti því og trúi að leikmenn sýni hvaða persónuleika þeir hafa að geyma. Það er 21 stig eftir í pott- inum. Möguleikinn á að ná góðum ár- angri í riðlinum er svo sannarlega ekki úr sögunni.“ Hef ýmislegt fram að færa Er engan bilbug á þér að finna? „Nei, en auðvitað er þetta ekkert skemmtilegt, það er erfitt að vera grýttur. Það er heldur ekkert gaman fyrir skyldmenni mín að sitja í stúk- unni og heyra það sem mikill minni- hluti manna en hávær eigi að síður hefur um mig og störf mín að segja á stundum sem þessum. En það má ekki láta draga úr sér kjark. Mér finnst ég enn hafa mikið fram að færa í þessu starfi og því er engan bilbug á mér að finna. Því ætla ég að halda áfram og byggja liðið upp fyrir næstu orrustu á miðvikudaginn. Takist mér að koma liðinu á rétt braut í þeim leik þá fullnægir það þeim kröfum sem ég geri til sjálfs mín í þessu starfi,“ segir Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu. , segir engan bilbug á sér að finna Morgunblaðið/Brynjar Gauti Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari Íslands, hrópar skipanir til sinna manna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.