Morgunblaðið - 15.10.2002, Page 6
KNATTSPYRNA
6 B ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skotar mættu ákveðnir til leiksog ætluðu sér greinilega að
gefa allt sem þeir áttu í leikinn –
og þeir gerðu það.
Það tók þá aðeins
rúmar sex mín. að
slá Íslendinga út af
laginu, er þeir
fengu óvænt mark á silfurfati, 1:0.
Ekki munaði þó miklu að Eiður
Smári Guðjohnsen næði að svara
fyrir Ísland á 18 mín. leiksins –
átti skot, þar sem knötturinn hafn-
aði í þverslá og síðan skot yfir.
Annars var leikur íslenska liðs-
ins afar hugmyndasnauður. Aft-
asta varnarlínan átti í erfiðleikum
með að koma knettinum skamm-
laust frá sér, miðjumenn voru alls
ekki skapandi og sóknarleikmenn
hlupu oft um án þess að vita hvað
væri um að vera. Eiður Smári átti
ágæta spretti með knöttinn, en
týndist þess á milli, sem og Rúnar
Kristinsson.
Greinilegt er að Hermann
Hreiðarsson hefur ekki náð sér
eftir bakmeiðsli og náði hann sér
alls ekki á strik í stöðu miðvarðar,
frekar en Lárus Orri Sigurðsson.
Ég sagði í grein á laugardaginn
að ákveðin viðvörunarbjalla væri
byrjuð að hringja – er ég skynjaði,
að landsliðsmenn og aðrir töldu að
þeir væru að fara til leiks sem
„stóri maðurinn“. Það er greinilegt
að bjölluhljómurinn hefur ekki náð
til íslensku landsliðsmannanna.
Skotar, sem eru þekktir sem
miklir baráttumenn, mættu til
leiks eins og grenjandi ljón og
hreinlega ýttu landsliðsmönnum
Íslands til hliðar og sögðu – hér
erum við, þetta er okkar dagur!
Það kom í ljós í leiknum, að ís-
lenskir knattspyrnumenn eru
hreinlega ekki nægilega góðir til
að geta leyft sér að setja sig á há-
an hest. Bestu úrslit sem Íslend-
ingar hafa náð í gegnum árin hafa
verið þegar þeir hafa leikið það
hlutverk sem þeir þekkja best –
sem Davíð í rimmunni við Golíat.
Rúnar sagði að um misskilninghefði verið að ræða. „Ég var
búinn að biðja um skiptingu en Atli
misskildi það. Þegar Bjarni var að
koma inn á henti ég fyrirliðaband-
inu í Hermann og hljóp af stað. Þá
sá ég að númerið hans Hauks Inga
kom upp og var hissa en hugsaði
með mér að þeir myndu taka mig
af velli eftir 2–3 mínútur. Síðan
áttaði ég mig á því að þetta var
þriðja skipting og því miður varð
ég að haltra áfram inni á vellinum í
15 mínútur, mjög slæmur í nár-
anum,“ sagði Rúnar við Morgun-
blaðið.
Hann hefur lengi verið slæmur í
nára en sagði að það hefði ekki háð
sér fyrir leikinn. „Ég var skorinn
upp vegna þessara meiðsla fyrir
tveimur árum og hef síðan haldið
þeim í skefjum. Ég vissi af þeim
fyrir leikinn en vanalega hverfur
verkurinn í upphitun og ég spila
heilu leikina án þess að það hafi
áhrif á mig. Í fyrri hálfleiknum
vissi ég ekki af þessu en eftir að
hafa runnið til á blautum vellinum
fór verkurinn að ágerast í seinni
hálfleik. Þegar ég hætti að geta
gefið allt í leikinn ætlaði ég að fá
að fara af velli en því miður gekk
það ekki.“
Rúnar sagði að tíminn yrði að
leiða í ljós hvort hann yrði leikfær
á miðvikudag. „Sjúkraþjálfarinn
sagði að það væri möguleiki að ég
gæti spilað og við reynum allt til
þess,“ sagði Rúnar Kristinsson,
sem lék sinn 96. landsleik á laug-
ardag og bætti enn leikjamet sitt.
Við erum búnir að tapa þremurstigum en Skotar hafa tapað
tveimur. Nú er komið að því að fara
að vinna stig, við
verðum að standa
uppréttir og einbeita
okkur að næsta
verkefni. Fyrst eru
það Litháarnir og þar verðum við að
sigra. Ef það tekst ekki, verður nán-
ast útilokað fyrir okkur að komast
áfram úr riðlinum. Síðan þurfum við
að fara til Skotlands og ná í stig þar.
Markmið okkar eru óbreytt þrátt
fyrir þessi úrslit. Það fyrsta er að
halda okkur í þriðja styrkleikahópn-
um sem við höfum ekki áður verið í,
og stóra markmiðið er síðan að kom-
ast uppfyrir Skotana og ná öðru sæt-
inu í riðlinum. Við stefnum ótrauðir
að því þrátt fyrir þetta áfall.“
Hvaða áhrif hafði það á ykkur að
Skotarnir skyldu ná forystunni
svona snemma í leiknum?
„Það var virkilega slæmt. Við vit-
um að bresk lið eru sterk í föstum
leikatriðum, við brugðumst einu
sinni og þeir nýttu sér það. En Skot-
arnir voru vængbrotnir þegar þeir
komu til leiks og ef við hefðum skor-
að á undan er ég viss um að þeir
hefðu gefið eftir. En þeir fengu
sjálfstraust við það að skora þetta
mark og fóru strax í að reyna að róa
leikinn niður með því að taka sér
góðan tíma í öll innköst, hornspyrn-
ur og aukaspyrnur. Eftir markið
fengu þeir eitt dauðafæri í byrjun
seinni hálfleiks, þar sem okkar varn-
armenn vildu reyndar fá rangstöðu,
náðu þessu eina skoti eftir það og
skoruðu, en að öðru leyti ógnuðu þeir
okkur ekki mikið. Við vorum meira
og minna með boltann en sköpuðum
okkur ekki mörg marktækifæri.“
Þið hófuð leikinn með leikað-
ferðina 4-3-3 í staðinn fyrir 4-4-2 sem
ávallt hefur verið notuð síðan Atli
tók við liðinu. Hver var ástæðan fyrir
þessari breytingu?
„Við vissum að Eiður Smári yrði í
strangri gæslu og því vildi Atli setja
hann út á vinstri kantinn til að byrja
með og sjá hvernig leikurinn myndi
þróast. Þar með leit þetta út sem 4-
3-3 eða jafnvel 4-5-1. Ég var fyrir
framan hina miðjumennina og hug-
myndin var sú að þegar á liði færi ég
meira út til vinstri og Eiður Smári
fram og aðferðin færi aftur yfir í 4-
4-2. Við ætluðum að leika okkur að-
eins með þetta og reyna að rugla
Skotana í ríminu. Okkur tókst það
kannski að einhverju leyti en ekki
nóg, og allavega náðum við ekki að
nýta okkur þetta. Það er erfitt að
segja til um hvort aðferðin sem slík
mistókst eða ekki. Það reyndist erf-
itt að spila boltanum í gegnum miðj-
una og við þurftum því að beita
löngum sendingum. Skotar voru
mjög sterkir fyrir í vörninni og þar
var stór leikmaður sem skallaði bolt-
ann í burtu í gríð og erg. Völlurinn
var erfiður á miðsvæðinu og sem
slíkur bauð hann ekki upp á að auð-
velt væri að spila upp miðjuna. Þeg-
ar við pressuðum Skotana þar, gáfu
þeir boltann til baka á varnarmenn-
ina sem kýldu hann upp í hornin.
Þetta var ekki áferðarfalleg knatt-
spyrna en stundum þurfa menn að
laga leikinn að aðstæðum.“
Kom skoska liðið þér á óvart að
einhverju leyti?
„Nei, alls ekki. Mér fannst lið
þeirra gott þó Skotar hafi kannski
oft verið með sterkara landslið. En
þessir strákar spila allir í efstu deild-
unum í Englandi og Skotlandi, hafa
verið atvinnumenn í mörg ár og vita
nákvæmlega hvað þeir eiga að gera.
Þeir eru vanir að spila svona, með
tvo menn frammi, og eru allir með
mikinn leikskilning,“ sagði Rúnar
Kristinsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þeir voru ekki upplitsdjarfir íslensku landsliðsmennirnir í
knattspyrnu eftir leikinn gegn Skotum – Rúnar Kristinsson,
fyrirliði liðsins, Bjarni Guðjónsson og Heiðar Helguson.
! "
# !
$
# %
#
%
&
'
(
&
) *+
#%
%
! ,, -%$
%
#
! " #
$ $ #
% &#
'( )* ++,-
.* /
01 2
,
$ /
#
'
#% 34,-
$ " #
'$ # $ +,-
5# "
#
6) 5(7 4, #
8 .)
)*9
. /0 !0110
#:# )
# ! /1
2$
#
; ) 3145
% 6 7
!4
##)% 8
*
+
7 "
$ 09#
3 <
+
4=
0>
" * ?
@ ( A 0 8
? > BA (A '
*) 4,-
'0 ) <C,-
" * D
'"A " * <3,-
" * E; ) *+9(
:!0;
+"<
9' :!;; (
#=9(
:!>/
? @# 9(
:!30
9)
0 # 9) &
FG 93:
F= 94;:
'-
GG
'-
„Möguleikarnir engan
veginn úr sögunni“
„ÞESSI ósigur gegn Skotum er gífurlegt áfall, við hefðum sætt okk-
ur við eitt stig en tapið er mjög slæmt. Við sáum hinsvegar að við
eigum í fullu tré við Skotana og eigum að geta unnið þá með því að
skapa okkur fleiri færi og nýta þau, ásamt því að stoppa í litlu götin í
vörninni. Okkar möguleikar í riðlinum eru engan veginn úr sögunni
og ef okkur tekst að sigra Litháen er allt galopið,“ sagði Rúnar
Kristinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, við Morgunblaðið eftir
ósigurinn gegn Skotum á laugardaginn.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Vonbrigði
ÞAÐ væri að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að fara að
rifja upp gang mála í viðureign Íslendinga og Skota á Laug-
ardalsvellinum sl. laugardag. Leikur Íslendinga olli miklum von-
brigðum og allir vilja gleyma honum sem fyrst – svo lélegur var
hann. Landsliðsmenn Íslands geta þó ekki leyft sér að gleyma
honum. Þeir verða að fara yfir hann aftur og aftur til að læra af
mistökunum, sem voru mörg – og dýrkeypt. Skotar skoruðu tvö
ódýr mörk og það nægði til að þeir fögnuðu sínum fyrsta sigri í
viðurkenndum landsleik í rúmt ár, eða frá 6. október 2001.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Haltraði um í korter
RÚNAR Kristinsson, fyrirliði Íslands, meiddist í nára í leiknum gegn
Skotum á laugardag og ekki er ljóst hvort hann verður með gegn
Litháum á morgun. Rúnar bað um skiptingu og ætlaði af velli korteri
fyrir leikslok þegar Bjarni Guðjónsson kom inn á, en sneri við þegar
hann sá að Haukur Ingi Guðnason var kallaður af velli í staðinn. Fyr-
ir vikið þurfti Rúnar að spila síðustu 15 mínúturnar án þess að geta
beitt sér að ráði og dró sig aftarlega á völlinn.
A
kn
ef
um
in
fa
up
an
þj
þr
ur
sí
m
m
„s
og
an
le
„á
ið
he
þa
rí
að
m
in
vi
fj
se
ha
Þ
st
la
á
fr
sp
ek
in