Morgunblaðið - 15.10.2002, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 15.10.2002, Qupperneq 9
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 B 9 FÓLK  BALDVIN Þorsteinsson, KA- maður, tefldi djarft þegar hann tók Vilhjálm Halldórsson Stjörnumann úr umferð eitt sinn. Baldvin beygði sig niður og leysti skóþveng Vil- hjálms og hefði þetta prakkarastrik getað orðið honum dýrkeypt því Baldvin var með tvær brottvísanir á bakinu þegar hann greip til þessa óvenjulega ráðs.  VILHJÁLMUR fór á kostum í leiknum og skoraði 14 mörk. Þegar tvær mínútur voru eftir hneig hann niður en skömmu áður hafði hann fengið höfuðhögg eftir samstuð við Jónatan Magnússon. Mönnum leist ekki á blikuna og var óskað eftir lækni. Vilhjálmur var loks studdur út af en honum héldu engin bönd og hann tók þátt í leiknum síðustu 45 sekúndurnar, jafnvel þótt hann væri reikull í spori.  LEIKURINN hófst stundvíslega kl. 16.30 en honum var ekki lokið fyrr en um kl. 18.15 eða ríflega það eftir mikinn flautukonsert, gaura- gang og minni háttar óhöpp. Þetta er sennilega með lengri handbolta- leikjum.  FLEIRA var óvenjulegt við leik- inn. Í þrígang voru KA-menn 2 leik- mönnum færri á vellinum vegna brottvísana. Þá fóru alls 7 vítaskot í súginn. Egidijus Petkevicius varði 4, Árni Þorvarðarson og Guð- mundur Geirsson 1 hvor og eitt fór yfir mark KA-manna.  GUÐMUNDUR Geirsson í marki Stjörnunnar fékk boltann í höfuðið tvisvar með skömmu millibili í seinni hálfleik. Fyrst braust Ing- ólfur Axelsson gegnum vörn Stjörnunnar, stökk inn af línunni og þrumaði í höfuð Guðmundar. Fáeinum mínútum síðar fór Hilmar Stefánsson inn úr horninu og skaut beint í andlit hins óheppna mark- varðar, sem reyndar stóð sig vel í seinni hálfleik.  HLYNUR Jóhannesson og fé- lagar í norska úrvalsdeildarliðinu Stord voru óvænt slegnir út úr Evr- ópukeppni bikarhafa á sunnudag- inn af Strovolos Nicosia frá Kýpur. Stord vann heimaleikinn 27:18 en tapaði síðan með 10 mörkum, 32:22, á Kýpur og skoruðu heimamenn úr- slitamarkið 3 sekúndum fyrir leiks- lok.  GUNNAR Berg Viktorsson náði ekki að skora fyrir Paris SG sem féll út úr Áskorendabikarnum í handknattleik þrátt fyrir sigur á Sävehof frá Svíþjóð, 29:27. Svíarnir unnu fyrri leikinn, 30:27, og halda áfram keppni.  RÓBERT Gunnarsson skoraði 2 mörk og Tjörvi Ólafsson eitt þegar lið þeirra, Århus GF, gerði jafntefli við Kolding á útivelli, 31:31, í dönsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik. Liðin eru jöfn og efst á toppn- um með 9 stig og Helsinge er með sama stigafjölda. GOG er stigi á eftir en á tvo leiki til góða.  HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 2 mörk fyrir Tvis/Hol- stebro sem tapaði fyrir Horsens, 36:18, í úrvalsdeild kvenna í Dan- mörku. Tvis/Holstebro hefur tapað öllum sex leikjum sínum á tíma- bilinu.  HEIÐMAR Felixson skoraði 2 mörk fyrir Bidasoa sem gerði jafn- tefli, 24:24, við Teucro í spænsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Bidasoa er í 12. sæti af 16 liðum með 3 stig eftir sex umferðir.  RÚNAR Sigtryggsson náði ekki að skora fyrir Ciudad Real sem vann Valladolid, 28:25. Ciudad Real er í öðru sæti með 10 stig, jafnmörg og Barcelona og Altea sem eru í 3. og 4. sæti. Ademar Leon hefur hins vegar unnið alla sína leiki og er með 12 stig.  LJUBOMIR Vranjes og Andreas Larsson, sænsku landsliðsmennirn- ir í handknattleik, meiddust báðir í leik með Nordhorn gegn Flensburg í þýsku 1. deildinni um helgina. Þeir verða báðir frá keppni í sex vikur Michael Schumacher hefur ekkisest í keppnisbíl öðru vísi en að setja met af einhverju tagi og engin undantekning var þar á í Suzuka í Japan á sunnudag þar sem hann ók til öruggs sigurs og var aldrei ógnað. Aldrei var um neinn kappakstur að ræða í Suzuka, slíkir voru tæknilegir og taktískir yfir- burðir Ferrari og hinna traustu bíla þeirra. „Þetta voru draumaúrslit á draumavertíð, við gátum ekki beðið um meira. Við höfum uppskorið vel, 15 sigrar, níu sinnum eigum við tvo fyrstu bíla á mark. Michael vinnur þriðja titilinn í röð með Ferrari, eft- ir aðeins 11 mót, og Ferrari vinnur bílsmiðatignina fjórða árið í röð, eft- ir aðeins 13 mót. Rubens [Barri- chello] verður annar í keppni öku- þóra og við höfum hlotið 221 stig eða jafnmörg og öll hin liðin samanlagt. Betra getur það ekki verið og þetta er árangur af erfiði frábærs mann- skaps,“ sagði íþróttastjóri Ferrari, Jean Todt. „Mér vefst tunga um tönn,“ sagði Schumacher hæversk- lega er hann hugðist lýsa vertíðinni. „Árangurinn talar sínu máli. Að ljúka öllum mótunum á verðlauna- palli er kraftbirting gæðavinnu alls liðsins. Það er ótrúlegt hvað mann- skapurinn hefur afrekað,“ sagði hann. Og þrátt fyrir velgengnina er engan bilbug á honum að finna. Sagðist ætla njóta stundarinnar en undirbúningur næstu vertíðar hæf- ist strax daginn eftir. Sagði hann velgengni vera fíkn sem hann væri ekki búinn að fá nóg af. Því ætlaði hann sér að keppa um ókomin ár. Maður mótsins á sunnudag var Japaninn Takuma Sato hjá Jordan og féll glæsilegur árangur Schu- machers sumpart í skuggann. Vann hann sín fyrstu keppnisstig og vart er hægt að biðja um betri endi á jómfrúarári sínu á heimavelli. Yljaði Japaninn skælbrosandi öllum með frammistöðu sinni en í stúkunum hvöttu áhorfendur hann vel og dyggilega alla leið. Höfðu þeir ástæðu til að fagna því japanskur ökuþór hefur ekki unnið stig á heimamvelli í Formúlu-1 frá því Ag- uri Suzuki varð þriðji árið 1990 á Lola-bíl en í sama móti varð Satoru Nakajima sjötti á Tyrrell-bíl. Er Sato fyrsti Japaninn til að vinna stig frá því Shinji Nakano varð sjötti á Prost-bíl í ungverska kappakstrin- um 1997. Stórt bros færðist yfir andlit liðs- stjórans Eddie Jordan er Sato ók á mark og síðan tárfelldi hann af gleði en með þessari glæsilegu frammi- stöðu Sato í lokamóti ársins skaust Jordan-liðið upp fyrir bæði Jagúar og BAR í keppni bílsmiða og hafnaði þar í sjötta sæti. Fyrir vikið fær Jordan miklu meira verðlaunafé en ella sem ekki veitir af því knappt mun vera um rekstrarfé hjá Silver- stoneliðinu. Verra er að svo kann að vera að þetta hafi verið síðasta mót Sato í Formúlu-1, a.m.k. í bili. Neyð- ist Jordan hugsanlega til að verða við þrýstingi bresks tóbaksfyrir- tækis um að ráða breskan ökuþór. Í því sambandi er rætt um að Eddie Irvine, elsti og þreyttasti ökuþór Formúlu-1, taki við starfi hins líf- lega, litla en svipmikla Japana. Finninn Kimi Räikkönen hjá McLaren lauk árinu eins og hann hóf það, með þriðja sæti, en í milli- tíðinni hefur hann átt afar misjafnt uppdráttar. Jenson Button varð sjötti og kveður því Renault-liðið með því að gulltryggja fjórða sætið í keppni bílsmiða. Draumavertíð hjá Ferrari VERTÍÐ þeirrar tegundar í Formúlu-1, sem lauk um helgina, hafa unnendur íþróttarinnar aldrei áður upplifað og vonast sennilega til að endurtaki sig ekki. Ross Brawn, tæknistjóri Ferrari, fjarstýrði liði sínu af sjúkrabeði í Englandi til enn eins yfirburðasigurs en yf- irburðir Ferrari hafa orðið til þess að sjónvarpsáhorfendur hafa margir notað sína fjarstýringu til að slökkva á tækjum sínum eða skipta um rás. Ágúst Ásgeirsson skrifar Við funduðum um morguninn ogræddum að við hefðum staðið of lengi í vörninni í fyrri leiknum og spilað of stuttar sóknir ásamt óþarfa mistökum, sem við ætluðum okkur að bæta í seinni leiknum,“ sagði Viggó Sig- urðsson þjálfari Hauka eftir leik- inn á laugardaginn. „Við vissum ekkert um þetta lið en ætluðum okkur lengra í keppninni. Okkur hefur gengið brösulega í haust, það eru of miklar sveiflur í leik okkar og við ætluðum að nota þessa leiki til að reyna að koma liðinu á skrið, sem ég held að hafi tekist vel í síðari leiknum. Við fengum samt mest út úr fé- lagsþættinum. Kýpurliðið hefur ekkert að gera í Evrópukeppni og nánast skylda að ljúka þessum leikjum en ég er spenntur fyrir drættinum í næstu umferð og við höfum mikinn metnað til að standa okkur vel. Ég vona að við fáum ekki of sterkt lið en samt gott svo að fullt af áhorfendum komi því það er líf í kringum þá leiki.“ Sem fyrr segir fengu Hafnfirðingarnir tækifæri til að leika sér og gerðu það, allir leikmenn á leikskýrslu – nema tveir af þremur markvörðum liðsins – skoruðu en Vignir Svav- arsson var markahæstur með 9 mörk og hafði gaman af. „Það skiptir mestu að fara í þessa leiki til að hafa gaman af og það tókst í kvöld en ekki eins vel í fyrri leikn- um. Ég vona að andinn verði góð- ur í liðinu eftir þessa sigra því það léttir yfir mönnum að eiga góða og skemmtilega leiki auk þess að við náum að fara í gegnum leikkerfi okkar,“ sagði Vignir eftir leikinn. „Við getum verið sáttir við úr- slitin úr fyrri leiknum því við erum með ungt lið og marga nýja leik- menn,“ sagði Michalis Mavrides þjálfari Kýpurliðsins og var ekki ósáttur við úrslitin enda gerir hann ráð fyrir að Haukar fari alla leið í úrslit. „Við þekkjum hvernig handknattleik Íslendingar spila en vissum ekki neitt um einmitt þetta lið en það spilaði eins og við áttum von á og við sáum strax að það var betra en okkar. Ég á von á að Haukar fari alla leið í úrslitin.“ Strovolos hafnaði í þriðja sæti deildarinnar í Kýpur og komst í bikarúrslit. Haukar fengu að leika sér ÞRÁTT fyrir mikla yfirburði tókst Haukum að ná upp leikgleði og stemmningu þegar þeir léku síðari leikinn við Strovolos frá Kýpur í Evrópukeppni bikarhafa að Ásvöllum á laugardaginn og sýndu sínar bestu hliðar, oft með tilþrifum og sirkusmörkum, í 43:16 sigri. Í dag, þriðjudag, verður síðan dregið í næstu umferð og þá verður leiðin eflaust ekki eins greið en Haukar geta samt ornað sér um stund við góðan sigur þegar flestar þeirra leikfléttur gengu upp. Stefán Stefánsson skrifar Mótherjarnir frá Kýpur voru auðveld bráð á Ásvöllum Tuttugu mörk Guðjóns Vals GUÐJÓN Valur Sigurðsson skoraði 20 mörk fyrir Essen í tveimur auðveldum sigrum á Berchem frá Lúxemborg í EHF-bikarnum í handknatt- leik um helgina. Fyrst léku liðin í Lúxemborg og þá skoraði Guðjón Valur 12 unum, bikarleik gegn 3. deildarliði, gerði hann 15 mörk. Patrekur Jóhannesson, fyr- irliði Essen, skoraði eitt mark í fyrri leiknum gegn Berchem og x mörk í þeim síðari. mörk í 35:21 sigri Essen. Síð- an mættust þau í Þýskalandi og þá skoraði íslenski lands- liðsmaðurinn 8 mörk en loka- tölur urðu 39:22. Guðjón Val- ur hefur heldur betur verið á flugi síðustu daga því í næsta leik á undan Evrópuleikj- ALFREÐ Gíslason, þjálfari Magde- burg, sagði að sínir menn hefðu verið heppnir að sigra meistara Kiel, 30:29, í þýsku 1. deildinni í handknattleik á laugardaginn. Kiel hefur enn ekki unnið leik á tíma- bilinu og situr óvænt á botni deild- arinnar, en Uwe Schwenker, þjálf- ari Kiel, sagði að sigurinn hefði verið svikinn af sínum mönnum og kenndi dómurum leiksins alfarið um úrslitin. Kiel var yfir, 28:26, rétt fyrir leikslok en Pólverjinn Gregorz Tkaczyk skoraði sigurmark Magde- burg með glæsilegu langskoti í blá- lokin. Sigfús Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Magdeburg í leiknum og Ólafur Stefánsson 2 en markahæst- ir Joel Abati með 9 mörk og Tkacz- yk með 6. Lemgo og Magdeburg eru jöfn og efst í deildinni með 14 stig en Lemgo á leik til góða og hefur ekki tapað stigi til þessa á tímabilinu. Lið burstaði Pfullingen, 41:26, á laugardaginn. Gylfi Gylfason skoraði 2 mörk, bæði úr vítaköstum, þegar lið hans, Wilhelmshavener, tapaði fyrir N- Lübbecke, 32:24, í nýliðaslag. Wallau-Massenheim vann ótrú- legan útisigur á Wetzlar, 31:15, og kom sér úr hópi neðstu liða. Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Wallau en Róbert Sighvatsson var markahæstur hjá Wetzlar með 4 mörk. Sigurður Bjarnason lék ekki með Wetzlar vegna meiðsla. Magdeburg slapp fyrir horn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.