Morgunblaðið - 15.10.2002, Page 12
Goran
endurráð-
inn hjá HK
GORAN Kristófer Micic
skrifaði um helgina undir
nýjan samning til tveggja
ára við 1. deildarlið HK í
knattspyrnu. Goran tók
við liði HK í 3. deild fyrir
tímabilið 2001 og það hef-
ur sigrað í bæði 3. og 2.
deild undir hans stjórn.
Ennfremur gekk mark-
vörðurinn Gunnleifur
Gunnleifsson frá nýjum
samningi við HK um
helgina.
„Með þessu ætlum við
að stíga næsta skref í
uppbyggingunni, sem er
að festa HK í sessi í 1.
deildinni á næstu tveimur
árum. Flestir eða allir
okkar leikmenn verða
áfram hjá félaginu og við
munum byggja á þeim
grunni sem við höfum í
dag og þeim efnilegu leik-
mönnum sem eru á leið
inn í hópinn,“ sagði Haf-
þór Hafliðason, formaður
meistaraflokksráðs karla
hjá HK, í samtali við
Morgunblaðið.
RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þjóð-
verja í knattspyrnu, hefur miklar
áhyggjur af því hve lítið leikmenn
hans leggja sig fram í vináttulands-
leikjum. Þjóðverjar gerðu jafntefli
við Bosníumenn í vináttuleik í
Sarajevo á föstudagskvöldið, 1:1,
og þóttu sýna lítinn baráttuanda.
Reyndar léku hvorki Michael Ball-
ack né Dietmar Hamann með í
leiknum, Ballack var með flensu og
Hamann er tæpur vegna ökkla-
meiðsla, en Völler segir að hvorki
það né slæmur völlurinn í Sarajevo
afsaki frammistöðu liðsins.
„Það er ekki lengur hægt að
vinna nokkra þjóð án þess að leggja
sig 100 prósent fram. Það er lær-
dómurinn sem við drögum af leikn-
um í Bosníu. Ég hef miklar áhyggj-
ur af undirbúningi okkar fyrir HM
2006 því þá þurfum við ekki að taka
þátt í undankeppninni og leikum
aðeins vináttulandsleiki í tvö ár.
„Ég hugsa með hryllingi til þess
sem bíður okkar eftir Evrópu-
keppnina 2004,“ sagði Völler.
Þjóðverjar taka á móti Fær-
eyingum annað kvöld í 5. riðlinum,
riðli Íslands. Undirbúningur þeirra
raskaðist vegna óveðurs í Bosníu en
ekki var flugfært þaðan fyrr en síð-
degis á laugardaginn.
Ef við hefðum haldið jöfnu íleiknum liti staðan þannig út
að við værum búnir að tapa tveim-
ur stigum en Skotar
fjórum og ég held
að það hefði verið
viðunandi staða. Ég
held að íslenska lið-
ið hafi farið með jákvæðu hugarfari
inn í leikinn og ég skynjaði ekki
annað en að allir leikmenn ætluðu
að gera sitt besta. Við verðum hins
vegar að meta leik Skotanna þegar
við förum til leiks við þá. Í hverju
eru þeir góðir? Þeir eru líkamlega
sterkir, þeir spila einfalt, þeir
vinna boltann á miðjunni, draga
hann út á kantana og gefa fyrir
markið. Hvernig er best að stöðva
svona lið? Þessu verða menn að
svara áður en þeir fara í leikinn.
Það er ekki bara hægt að vona að
hlutirnir gangi heldur verðum við
að búa okkur undir þessi verkefni.
Í dag virtist mér að íslenska liðið
væri ekki klárt á leikaðferð Skot-
anna og leikur þeirra kom okkar
liði á óvart,“ sagði Guðjón við
Morgunblaðið.
Guðjón segir að undanfarnir leik-
ir hjá íslenska landsliðinu hafi vald-
ið mörgum vonbrigðum.
„Ég sá ekki leikinn við Ungverja
en mér skilst að sá leikur hafi verið
mjög slakur af hálfu liðsins og And-
orra-leikurinn var ekki marktækur.
Ef við skoðum leikina þar á undan
þá getum við ekki gleymt leiknum
við Dani ytra og við N-Írland. Ég
sá frábæran leik við Tékka á Laug-
ardalsvellinum en síðan þá hefur
leiðin legið niður á við hjá liðinu.
Menn verða að skoða þetta í sam-
hengi og það verða allir að reyna að
draga í sömu átt. Landslið Íslands
er ekki einkamál nokkurra manna.
Þetta er landslið þjóðarinnar og
það skiptir máli hvernig því er
stjórnað og hvernig er staðið að
því. Við Íslendingar eigum kröfu á
því að það sé eins vel að málum
staðið og nokkur kostur er.“
Hvernig fannst þér leikaðferð ís-
lenska liðsins og val á mönnum í
liðið?
„Einfalt svar við þessari spurn-
ingu er að ég hefði gert þetta öðru-
vísi.“
Viltu útlista það eitthvað nánar?
„Nei, landsliðsþjálfarinn er á
launum við þetta og ég á nóg með
mitt.“
Atli þarf góðan stuðning
Þú þekkir það vel að stýra lands-
liðinu. Metur þú hlutina þannig að
Atli Eðvaldsson sé kominn í erfiða
stöðu?
„Það er alveg ljóst að hann er í
mjög erfiðri stöðu og því er mjög
mikilvægt að hann fái góðan stuðn-
ing fyrir leikinn við Litháa. Riðill-
inn er alls ekki búinn fyrir okkur
þó að leikurinn við Skota hafi tap-
ast. Það eina sem við verðum að
gera í staðinn er að vinna Skotana
úti. Það er alveg hægt en vissulega
gáfum við Skotunum sjálfstraust.
Það er mjög mikilvægt að vel takist
til í leiknum við Litháen en til þess
að svo verði verður töluvert að
breytast. Það er ekki hægt að fara í
leikinn við Litháa með sama hætti
og var gert hér í dag.“
Ert þú sammála því að leikur ís-
lenska liðsins hafi verið tilviljunar-
kenndur og ómarkviss?
„Ég get ekki dæmt um það
hvernig hlutirnir voru lagðir upp,
hvernig æfingarnar voru fyrir leik-
inn og til hvers var ætlast af mönn-
um. Það virtist vera þannig að
spilmunstrið væri ekki á hreinu. Ef
við ætlum að spila 4-4-2 á móti 3-
5-2 þá er styrkur fyrrnefnda kerf-
isins að reyna að tvöfalda og ná að
mynda stöðu tveir á móti einum úti
á kanti og gefa fyrir markið. Þetta
sáum við aldrei gerast í dag. Ef
Atli og strákarnir setjast niður og
skoða þetta af einlægni þá tel ég að
þessa hluti verði hægt að laga fyrir
leikinn á móti Litháum.“
Fannst þér einhverjir í íslenska
liðinu spila vel?
„Heilt yfir sköruðu ekki margir
fram úr. Framan af fannst mér
Eiður mjög skemmtilegur og það
var mikið ólán að honum tókst ekki
að skora þegar hann skaut í slána.
Það var frábær sprettur hjá hon-
um. Rétt á eftir var hann í góðu
færi þannig að það skorti aðeins
herslumuninn til að okkur tækist
að jafna. Það hefði verið mjög
skemmtilegt að sjá hvernig Skot-
arnir hefðu brugðist við ef það
hefði gerst.“
Vanda undirbúninginn
Nú er stutt í næsta leik. Á að
þínu mati að gera miklar breyt-
ingar á liðinu?
„Atli verður að leggjast yfir leik-
inn og skoða hann vel og best væri
fyrir hann að skoða leikinn með
leikmönnum. Þeir verða að meta
stöðuna af einlægni því ef þeir gera
það ekki þá lenda þeir í bölvuðu
basli með Litháana. Þeir koma
hingað til að sækja eitt stig og
verða sáttir við það og við verðum
að vanda undirbúninginn að þeim
leik og ná að toppa til að sækja
þrjú stig.“
Það hlýtur að vera áhyggjuefni
fyrir landsliðið að annan leikinn í
röð er púað á leikmenn þess þegar
það gengur að velli.
„Það er eins og það vanti herslu-
muninn til að kveikja þennan neista
sem gleður fólk. Ég hef oft sagt
það að það er ekki sama hvernig
maður tapar. Það skiptir máli
hvernig leikir tapast og við þurfum
að setja stolt í leik okkar. Við þurf-
um ekki að gera ráð fyrir því að
vinna alla leiki hér heima en það er
ekki sama hvernig liðið tapar.“
Ýjað hefur verið að því að ef illa
fer í leiknum við Litháa, þá sé Atli
orðinn valtur í sessi. Ef til þín yrði
leitað um að taka við stjórn lands-
liðsins á nýjan leik, hverju mundir
þú svara?
„Þeir hafa ekki efni á að ráða
mig,“ sagði Guðjón og brosti í
kampinn.
Guðjón Þórðarson – fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands
Landslið er ekki einka-
mál nokkurra manna
GUÐJÓN Þórðarson, sem gegndi landsliðsþjálfarastöðunni á undan
Atla Eðvaldssyni, var frekar brúnaþungur þegar Morgunblaðið hitti
hann í heiðursstúkunni fáeinum mínútum eftir að franski dómarinn
flautaði til loka leiks Íslendinga og Skota. Guðjón, sem stýrði lands-
liðinu með góðum árangri í fjögur ár, var ekki ánægður með leik
landsliðsins og hann sagði að leikmenn og þjálfari yrðu að skoða
leikinn vel og meta stöðuna af einlægni – ef ekki þá gæti leikurinn
við Litháa á morgun orðið mikið basl.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hermann Hreiðarsson á hér í höggi við Steve Thompson, leik-
mann Dundee United, á Laugardalsvellinum.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Völler hefur áhyggjur
FÓLK
HARALDUR Freyr Guðmunds-
son var útnefndur leikmaður ársins
hjá úrvalsdeildarliði Keflavíkur í
knattspyrnu á lokahófi á laugar-
dagskvöldið. Hörður Sveinsson var
valinn efnilegasti leikmaður liðsins.
GUÐFINNUR Kristmannsson og
lærisveinar hans í Wasaiterna sigr-
uðu Djurgården, 24:21, í sænsku úr-
valsdeildinni í handknattleik í gær.
Guðfinnur var ekki á meðal marka-
skorara en með sigrinum fór Wasai-
terna úr botnsætinu upp í það ní-
unda og hefur 4 stig úr sex leikjum.
ÞÝSKI kylfingurinn Alex Cejka
sigraði í fyrsta sinn í sjö ár á móti á
evrópsku mótaröðinni en Cejka
vann Lancome-mótið sem fram fór í
París í Frakklandi. Hann lék sam-
tals á 12 höggum undir pari St Nom
La Breteche-vallarins en næstur í
röðinni var Carlos Rodiles á tíu
höggum undir pari. Jean-Francois
Lucquin og Angel Cabrera voru
jafnir í þriðja sæti, höggi á eftir
Rodiles. Cejka fékk rúmlega 30
milljónir ísl. kr. fyrir sigurinn.
PHIL Tataurangi, atvinnukylf-
ingur frá Nýja-Sjálandi, sigraði á
fyrsta móti sínu í gær er hann lék á
tíu undir pari á lokadegi „maraþon-
mótsins“ Invensys Classic sem fram
fór í Las Vegas í Bandaríkjunum. Á
þessu móti eru leiknar 90 holur eða
fimm hringir en venjulega eru leikn-
ar 72 holur eða fjórir hringir.
TATAURANGI lék á 62 höggum á
lokdeginum og var því einu höggi
betri en Bandaríkjamaðurinn David
Duval, er upp var staðið. Duval var
með fimm högg í farteskinu á Tat-
aurangi fyrir lokadaginn. Tataur-
angi fékk um 78 milljónir ísl. kr. í
sinnn hlut fyrir sigurinn.
NBA-leikmaðurinn Charles Oakl-
ey gerði á dögunum samning við
körfuknattleiksliðið Washington
Wizards til eins árs. Oakley er 38
ára gamall og hittir fyrir hjá liðinu
fyrrum félaga sína hjá Chicago
Bulls og New York Knicks, þá Mich-
ael Jordan sem leikur með liðinu og
Patrick Ewing sem er einn af að-
stoðarþjálfurum liðsins. Oakley hef-
ur leikið 18 tímabil í NBA-deildinni.