Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 B 3 VEL gekk hjá Íslendingaliðunum í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. Eyjólfur Sverrisson kom inn í lið Herthu Berlin á nýjan leik eftir meiðsl og átti góðan leik í vörn liðsins sem sigraði Energie Cottbus á útivelli, 2:0. Brasilíumennirnir sáu um að afgreiða botnliðið en þeir Marcelinho og Alex Alves skoruðu mörk Berlínarliðsins í fyrri hálf- leik. Herthu-liðinu hefur gengið vel upp á síðkastið og er í fjórða sæti deildarinnar. Þórður Guðjónsson kom inná sem varamaður á 20. mínútu þegar Bochum vann góðan sigur á Wolfs- burg, 4:2. Bochum er í sjötta sæti með 14 stig. Bayern München virð- ist vera að stinga af en eftir 1:0 sig- ur á Hansa Rostock er forysta Bæj- ara fimm stig. Brasilíumaðurinn Ze Roberto sá um að tryggja Bayern öll stigin þegar hann skoraði sig- urmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok. „Fram undan eru átta leikir á skömmum tíma og við stefnum að því að vinna þá alla,“ sagði Oliver Kahn markvörður Bæjara. „Við höfum valdið stuðningsmönnum okkar vonbrigðum í Meistaradeild- inni og vonandi er góður árangur okkar í deildinni sárabót fyrir þá,“ sagði Kahn. ÞÝSKA KNATTSPYRNAN Eyjólfur og Þórður í sigurliðum við fyrir tímabilið og 3. flokk karla. En er Vigdís eitthvað farin að huga að því að leggja skóna á hill- una? „Ég hugsa núna bara um að taka eitt tímabil í einu. Ég var eiginlega alveg ákveðin í að hætta eftir síðasta tímabil. Ég var ósátt að við skyldum ekki ná lengra á Íslandsmótinu því við ætluðum okkur miklu meira. En eftir langa umhugsun í sumar ákvað ég að taka allavega eitt ár til við- bótar. Þetta var erfitt í fyrra þegar Erlingur var að þjálfa okkur en núna æfum við ekki á sama tíma og það auðveldar heimilislífið. Það er gam- an að vera í þessu þegar vel gengur. Ég hef verið mjög sátt við eigin frammistöðu og ég held að maður verði hreinlega betri með aldrinum. Ég er heppinn að hafa mjög góða vörn fyrir framan mig og fyrir vikið er ég kannski að fá á mig auðveldar skot en ella.“ Hvað með landsliðið. Hefur þú ekki metnað fyrir því að komast í það? „Ég á nokkra landsleiki að baki og hingað til hef ég haft metnað til að komast í það. Ég bjóst við því að verða fyrir valinu í sumar en það varð ekki og ég verð að viðurkenna að ég var töluvert svekkt. Ég fékk svo hringingu fyrir skömmu þar sem ég var spurð að því hvort ég væri klár í verkefni fram undan en ég ákvað að gefa ekki kost á mér, bæði þar sem tíminn sem fer í þetta er mikill og svo það að ég gerði mér grein fyrir því að ég væri ekki að berjast um að komast að sem mark- vörður númer eitt.“ í góðu gengi kvennaliðs ÍBV í handknattleik að undanförnu Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson Vigdís með dótturina Söndru sem er fjögurra ára og fer oft með mömmu og pabba í íþróttahúsið í Eyjum. KRISTJÁN Örn Sigurðsson varn- armaðurinn stórefnilegi sem leikið hefur með KA undanfarin ár mun leika með Íslandsmeisturum KR á næsta keppnistímabili. Kristján Örn var samningsbundinn Stoke um tíma fyrir tveimur árum. „Ég hef ákveðið að fara í KR og í rauninni kom ekkert annað lið til greina en KR að fara í. Ég reikna með að gengið verði frá samningi á næstu dögum,“ sagði Kristján við Morgunblaðið í gær en hann er fluttur til Reykjavíkur þar sem hann leggur stund á nám. Fleiri lið úr úrvalsdeildinni voru á hött- unum eftir Kristjáni en samn- ingur hans við KA rann út eftir tímabilið. Kristján, sem er 21 árs gamall og yngri bróðir Lárusar Orra Sig- urðssonar landsliðsmanns hjá WBA, lék 17 af átján leikjum KA í úrvalsdeildinni í sumar, skoraði eitt mark og var í hópi bestu varn- armanna deildarinnar. Hann hef- ur leikið fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands. TIL REYKJAVÍKUR KR fyrir valinu hjá Kristjáni Kristján Örn  GUNNAR Berg Viktorsson var markahæstur í liði Paris SG er það vann ACBB í frönsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Gunnar skoraði 5 mörk. Paris er nú í 9. sæti af 14 liðum í deildinni.  RÚNAR Sigtryggsson og sam- herjar hans í Ciudad Real unnu stór- sigur á At. Alcobendas á útivelli, 32:20, í spænsku 1. deildinni.  HEIÐMAR Felixson skoraði eitt mark fyrir Bidasoa er liðið tapaði 27:20 fyrir Barcelona. Bidasoa er í 14. sæti deildarinnar af 16 liðum með 3 stig. Lið Rúnars, Ciudad, er hins vegar í 2. sæti með 12 stig þegar sjö umferðir eru að baki.  GUÐMUNDUR Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknatt- leik, og samherjar í ítalska liðinu Converasno unnu Al.Pi. Prato, 27:24, á heimavelli og eru í öðru sæti 1. deildar þegar fimm umfeðrir eru búnar.  GUÐFINNUR Kristmannsson skoraði 2 mörk fyrir Wasaiterna sem sigraði GUIF, 27:23, í sænsku 1. deildinni. Þetta var annar sigur Was- aiterna í röð og er liðið í 9. sæti af tólf liðum með 6 stig.  HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 4 mörk fyrir Tvis Holstebro sem tapaði fyrir Randers, 31:21, í dönsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik. Holstebro er neðst í deildinni án stiga eftir átta leiki.  HAFDÍS Hinriksdóttir skoraði 1 mark fyrir GOG sem sigraði Ikast á útivelli, 29:28. GOG er í toppsætinu með 12 stig eftir sjö leiki.  BJÖRN Birgisson, KFR, og Dagný Edda Þórisdóttir, úr sama félagi, urðu um helgina Reykjavík- urmeistarar í keilu. Í keppni með forgjöf varð Snæbjörn Þormóðsson úr ÍR meistari. Björn vann Arnar Ólafsson, ÍR, í úrslitum 202:198 en Arnar varð einnig í öðru sæti í for- gjafarflokknum á eftir Snæbirni. Þriðji í karlaflokki varð Björn Sig- urðsson, KR. Dagný Edda vann Jónu Gunnarsdóttur, KFR, í úrslita- viðureign í kvennaflokki, 181:158. Þriðja varð Ágústa Þorsteinsdóttir, KFR.  JÓN Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir Trier sem tapaði á heima- velli fyrir Alba Berlin, 97:78, í þýsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudaginn.  LOGI Gunnarsson átti stórleik fyrir Ulm í norðurriðli þýsku 2. deildarinnar í körfuknattsleik. Logi skoraði 25 stig og var stigahæstur þegar Ulm lagði Jena á útivelli, 81:70. FÓLK                      ! ! "## "##   "## "### "### "###"## "###"## "### "##"##" "##"##" "##"##" "## "##" "##" "##" "##" $%& '( ) (*+* ,-.* // 0  -  )2-3 0 $.) 0 -- ) )   )'/ 4(  5(6 5  -62  00  0/ )) / -40 0 18 0 ,, ((                      ! !    "    #  #  ÍBV hefur ekki farið varhluta af þeim gríðarlega kostnaði sem fylgir því að fara í útileikina og til að reyna að halda þeim kostnaði eins langt niðri og mögu- legt er flýgur ÍBV-liðið á Bakka og keyr- ir þaðan á leikina. „Við höfum að öllu jöfnu reynt að fara með flugi og þá alla leið en nú er svo komið að við fljúgum á Bakka og keyrum þaðan í bæinn og við ætlum gera það líka þegar við förum norður á Akureyri. Flugkostnaðurinn hefur hækkað upp úr öllu valdi og við sáum okkur ekki annað fært en að fara þessa leið. Þá kemur fyr- ir að við förum með Herjólfi eins og gert var um helgina,“ sagði Þorvarður Þor- valdsson formaður kvennaráðs ÍBV í samtali við Morgunblaðið. Flogið á Bakka og keyrt þaðan á leikina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.