Morgunblaðið - 22.10.2002, Blaðsíða 9
fengu 2 vítaskot með mínútu milli-
bili en Lukresija Bokan í marki
Hauka gerði sér hins vegar lítið
fyrir og varði þau bæði frá Hörpu
Vífilsdóttur. Hanna G. Stefánsdótt-
ir innsiglaði svo sigur heimamanna
með marki úr hraðaupphlaupi
hálfri mínútu fyrir leikslok. Það
hitnaði vel í kolunum í restina og
voru heimamenn mjög óánægðir
með dómara leiksins og fékk þjálf-
ari Hauka, Gústaf Adolf Björnsson,
að líta rauða spjaldið fyrir að mót-
mæla dómgæslunni.
Hanna G. Stefánsdóttir átti
framúrskarandi leik og raðaði inn
mörkunum og Lucresija Bokan átti
fínan leik í markinu fyrir Haukana
en hjá gestunum átti Dröfn góðan
leik auk þess sem Kristín Guðjóns-
dóttir varði vel á kafla í síðari hálf-
leik.
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 B 9
Við lékum bara mjög illa og þáeinkum framan af leiknum. Við
misstum þá átta mörk fram úr okk-
ur en áttum síðan góða möguleika á
að minnka muninn í eitt mark í
seinni hálfleiknum. Þetta var langlé-
legasti leikur okkar á tímabilinu
enda allir töluvert frá sínu besta.
Einar Örn átti mjög góðan leik og
hann hefur svo sannarlega staðið sig
vel með Massenheim,“ sagði Sigfús í
samtali við Morgunblaðið. Það var
skarð fyrir skildi að í lið Magdeburg
vantaði fyrirliðann Steffen Stiebler
og Stefan Kretzschmar gat ekkert
verið með vegna lasleika. Ósigurinn
hjá Magdeburg var sá annar í níu
leikjum. Magdeburg er í þriðja sæti
með 14 stig en Lemgo er með fullt
hús stiga, 16 stig og á leik til góða.
„Lemgo heldur þetta ekkert út.
Þeir eiga eftir að tapa stigum.
Lemgo er með mjög gott lið en
breiddin er ekki ýkja mikil hjá þeim
og það á eftir að segja til sín þegar á
mótið líður. Ég tel að baráttan um
titilinn komi til með að standa á milli
Magdeburg, Lemgo, Flensburg og
Essen og hver veit nema að Kiel
blandi sér í þá baráttu þó svo að
meistararnir hafi byrjað illa,“ sagði
Sigfús en Magdeburg mætir Nord-
horn á heimavelli annað kvöld.
Átta mörk Gústafs
dugðu skammt
Íslensku landsliðsmennirnir voru
atkvæðamiklir í leik Minden og Ess-
en þar sem Minden tapaði á heima-
velli, 31:27. Gústaf Bjarnason var
markahæstur í liði Minden með 8
mörk. Patrekur Jóhannesson skor-
aði 6 af mörkum Essen og Guðjón
Valur Sigurðsson 4.
Gylfi Gylfason skoraði 3 mörk fyr-
ir nýliða Wilhelmshavener sem
burstuðu Hamburg, 30:19.
Sigurður Bjarnason er byrjaður
að spila á nýjan leik eftir meiðsli á
olnboga, töluvert fyrr en áætlað var.
Sigurður og félagar hans í Wetzlar
áttu litla möguleika á móti Nord-
horn og töpuðu, 31:21. Sigurður
skoraði 5 mörk og Róbert Sighvats-
son 3.
Meistarar Kiel virðst vera að
rétta úr kútnum en Kiel vann sinn
annan sigur í röð þegar liðið lagði
Göppingen, 22:20. Endurkoma Dan-
ans Nikolaj Jacobsen hefur komið
Kiel á sigurbraut á nýjan leik en
þessi snjalli hornamaður skoraði 10
mörk í leiknum.
Lemgo hefur unnið alla átta leiki
sína. Liðið gerði góða ferð til
Gummersbach og sigraði, 35:28.
Christian Schwarzer, leikmaður
ársins, var í miklum ham í liði
Lemgo og skoraði 11 mörk.
Einar Örn
lék vel
EINAR Örn Jónsson átti mjög
góðan leik með Wallau Massen-
heim sem gerði sér lítið fyrir og
sigraði Magdeburg, 28:25, í
þýsku 1. deildarkeppninni í
handknattleik um helgina. Einar
Örn skoraði 6 mörk og var einn
besti maður Massenheim í
leiknum. Sigfús Sigurðsson
skoraði 3 mörk fyrir Magdeburg
en Ólafur Stefánsson komst
ekki á blað.
KR-INGAR léku án fjögurra
sterkra leikmanna á sunnudaginn.
Herbert Arnarsson er meiddur og
óvíst hvenær hann getur byrjað að
leika á ný. Arnar Kárason er nýbyrj-
aður að æfa eftir meiðsl, Baldur
Ólafsson er ekki kominn með leik-
heimild frá Spáni og Óðinn Ásgeirs-
son er ekki orðinn löglegur.
KR-HÚSIÐ mun næstu árin vera
nefnd DHL-höllin enda var undirrit-
aður fimm ára samstarfssamningur
DHL og körfuknattleiksdeildar KR í
leikhléi á sunnudaginn. Þetta er
stærsti samningur sem deildin hefur
gert en upplýsingar um verðmæti
hans fengust ekki.
BÓNUSLEIKUR fór fram á milli
þriðja og fjórða leikhluta í DHL-höll-
inni á sunnudag. Tveir áhorfendur
voru fengnir til að skjóta einu skoti
hvor úr Bónus-grísnum, sem er um
tvo metra utan við þriggja stiga lín-
una. Sá sem hittir fær 20.000 króna
úttekt hjá Bónus.
DÓMARAR leiks KR og Vals áttu
góðan dag. Einn áhorfenda, stuðn-
ingsmaður KR, gat þó ekki á sér set-
ið þegar honum fannst þeir dæma
innkast á rangan hátt og kallaði til
þeirra. „Er ykkur Fylkismönnum
illa við okkur?!“ Þess skal getið að
dómarar í körfuknattleik eru komnir
í nýjar treyjur sem eru eins litar og
búningur Fylkis.
BRÆÐUR börðust í Smáranum á
sunnudaginn þegar Breiðablik fékk
Hamar í heimsókn. Pétur Ingvars-
son leikur með og þjálfar Hamar en
Jón Arnar bróðir hans leikur með og
þjálfar Breiðablik.
FÓLK
Það áttu flestir von á auðveldumsigri heimastúlkna þegar ÍS
kom í heimsókn á laugardag. Önnur
varð raunin og sýndu
gestirnir mikla
baráttu en heima-
stúlkur í Grindavík
náðu að hafa sigur í
lokin 60:53.
Í byrjun leiks var fátt sem benti til
annars en auðvelds sigurs heima-
stúlkna en gestirnir úr ÍS voru alls
ekki á því að gefa stigin tvö sem í
boði voru og með mikilli baráttu
gestanna og fádæma klaufagangi hjá
heimastúlkum höfðu gestirnir for-
ustu í hálfleik sem var verðskulduð.
Lítið breyttist í þriðja leikhluta og
það var ekki fyrr en í blálokin að
heimastúlkur náðu að klára leikinn.
„Þetta var sennilega slakasti leikur-
inn hjá okkur til þessa við vorum
ekki tilbúnar en þær voru það. Við
héldum þó haus í lokin og höfðum
sigur. Það má segja að svæðisvörnin
hafi reddað okkur í lokin því þær
réðu illa við hana,“ sagði Eyjólfur
Guðlaugsson, þjálfari Grindavíkur-
stúlkna. Bestar í liði gestanna voru
þær Cecilia Larson, Þórunn Bjarna-
dóttir og Jófríður Halldórsdóttir en
hjá heimastúlkum var það Sigríður
A. Ólafsdóttir sem átti bestan leik í
annars mistæku liði heimastúlkna.
Grindavík í
basli með ÍS
Garðar P.
Vignisson
skrifar
Blikar náðu strax undirtökunumþegar skot þeirra rötuðu oft-
ast rétta leið á meðan hittnin brást
gestunum en þegar
Hvergerðingurinn
Robert O. Kelly tók
við sér tókst þeim
að saxa á forskotið
uns þeir jafna 31:31 snemma í öðr-
um leikhluta. Það varð hinsvegar
aðeins til að Blikarnir Pálmi Freyr
Sigurgeirsson og Friðrik Heimis-
son tóku duglega við sér, en það
skilaði Kópavogsliðinu aftur í ágætt
forskot en Svavar Birgisson sáu til
að þess að halda forskotinu ekki of
miklu með 11 síðustu stigum Ham-
ars fyrir hálfleik. Fljótlega eftir hlé
hrökk svo Blikinn Kenny Tate í
gang og um miðjan þriðja leikhluta
var staðan 79:61, Breiðabliki í vil.
Hamarsmenn reyndu að bregðast
við því með bættri vörn en Blikar
stóðust álagið og juku forskotið
jafnt og þétt.
„Ég átti von á sigri en ekki að
við myndum skora svona mikið af
stigum – held að Breiðablik hafi
ekki skorað svona mikið í úrvals-
deild,“ sagði Pálmi Freyr, sem
skoraði 34 stig, þar af úr 5 af sjö
þriggja stiga skotum auk þess að
eiga góðan leik. „Við spiluðum lé-
lega vörn í síðasta leik og ætluðum
að bæta það en nú blómstraði sókn-
arleikurinn. Það var ekki mikið um
vörn en það var í lagi útaf góðri
sókn okkar. Við verðum samt að
bæta varnarleikinn því svona dugar
skammt gegn stóru liðunum.“
Pétur Ingvarsson leikmaður og
þjálfari Hamars sagðist einnig
þurfa að bæta varnarleikinn. „Ég
held að óhætt sé að segja að lélegra
liðið hafi tapað. Blikar hittu vel og
við náðum ekkert að stöðva þá en
ég er viss um að við getum spilað
betri vörn og það er eitthvað, sem
við verðum að vinna í. Veturinn
verður erfiður en við æfum sex
sinnum í viku og getum reynt að
bæta okkur,“ sagði Pétur eftir leik-
inn.
Flake frábær
Darrell Flake, erlendur leikmað-ur KR í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, átti sannkallaðan
stórleik á sunnudag-
inn þegar KR lagði
Val 90:66. Flake
gerði 35 stig og tók
auk þess 27 fráköst.
Leikurinn lofaði ekki góðu fram-
an af og svo virtist sem körfurnar í
KR-húsinu, eða DHL-höllinni, eins
og KR-ingar nefna húsið nú, væru
hreinlega bilaðar. Gestirnir náðu að
koma boltanum rétta leið á undan
en það var ekki fyrr en eftir 115
sekúndna leik. Þegar leikurinn
hafði staðið í fimm mínútur og
fimmtán sekúndum betur var stað-
an 5:8 fyrir gestina og KR-ingar
tóku leikhlé. Eftir það komst leik-
urinn á eðlilegt ról. KR var 19:18
yfir eftir fyrsta leikhluta.
Heimamenn voru mun sterkari í
næsta leikhluta, unnu hann 24:10
og gerði Laverne Smith Jr. öll tíu
stig Valsmanna í þeim hluta. Gest-
irnir komu ákveðnir til leiks eftir
hlé, og miklu munaði um að Bjarki
Gústafsson hrökk í gang og Vals-
menn unnu leikhlutann 26:16 og
gerðu meðal annars 12 síðustu stig-
in. Munurinn aðeins fimm stig og
það sem virtist ætla að verða auð-
veldur sigur KR var nú orðinn
spenandi leikur – eða hvað? KR átti
síðasta leikhlutann eins og hann
lagði sig og fóru leikmenn liðsins
hreinlega á kostum á köflum, gerðu
31 stig á móti 12 stigum Vals og
unnu öruggan sigur þó svo það hafi
tekið sinn tíma að hrista Valsmenn
af sér.
KR-ingar eru með heilsteypt lið,
en það verður að leika betur en það
gerði á sunnudaginn ætli það sér
stóra hluti í vetur. Raunar léku
heimamenn ágætlega á köflum og
stundum frábærlega, en þess á
milli leyfðu þeir sér að taka lífinu
af fullmikilli ró. Flake var gríð-
arlega sterkur, Magni Hafsteinsson
átti fínan leik og Skarphéðinn
Ingason einnig og fellur hann vel
að leik KR. Steinar Kaldal átti
einnig ágætan leik í vörn en mætti
hafa sig meira í frammi í sókninni,
verður að vera meira ógnandi.
Valsmenn eiga erfiðan vetur
framundan. Liðið lék raunar vel
helminginn af leiknum, sérstaklega
í þriðja leikhluta en meira þarf til
ef krækja á í einhver stig.
Lýður hetja Snæfells
Leik Skallagríms og Snæfellslyktaði með naumum sigri
Snæfells, 65:63, í Íþróttahúsinu í
Borgarnesi á sunnu-
dagskvöldið. Þetta
var sannkannaður
„derby“-leikur þess-
ara tveggja liða á
Vesturlandi. Snæfellingar byrjuðu
mun betur, voru yfirvegaðri í öllum
sóknaraðgerðum sínum, hirtu flest
fráköst og nýttu allar eyður vel á
meðan heimamenn töpuðu boltum
og fengu dæmd á sig skref. Greini-
legt var að heimamenn voru undir
miklu álagi enda mikið í húfi. Í öðr-
um leikhluta náðu Skallagríms-
menn að laga stöðuna með mikilli
baráttu þar sem Pétur Sigurðsson
fór á kostum og skoraði 14 stig þar
af 4 þriggja stiga körfur. En greini-
legt var að Skallagrímsmenn þurftu
meira að hafa fyrir hlutunum en
Snæfellingar. Þegar lokasprettur-
inn hófst var jafnt með báðum lið-
um 50:50. Skallagrímsmenn náðu
tveimur þriggja stiga körfum án
þess að Snæfellingar svöruðu og
virtust ætla að landa sigri en Snæ-
fellingar neituðu að gefast upp.
Lýður Vignisson náði einni af sinni
fjórum þriggja stiga körfum og
tryggði sínum mönnum sigurinn,
65:63.
Jafnbesti leikmaður leiksins var
Clifton Bush, þarna er greinilega
mjög góður alhliða leikmaður á ferð
sem vinnur vel fyrir liðið. Hlynur
Bæringsson sem spilaði gegn sínum
gömlu félögum óx í leik sínum eftir
því sem á leið. Hjá heimamönnum
var Pétur Sigurðsson bestur,
Bandaríkjamaðurinn í liði Skalla-
gríms Isaac Hawkins tók mikið af
varnarfráköstum en vantar meira
áræði og hörku til að skipta sköp-
um fyrir leik Skallagríms. Leik-
urinn einkenndist af baráttu, mis-
tökum og taugastríði, og sigurinn
gat endað hvorum megin sem var,
bara spurning um heppni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kenneth Tate, Breiðabliki, sækir hér að körfu Hamarsmanna.
STIGUNUM rigndi í Smáranum á
sunnudaginn þegar Hamar sótti
Breiðablik heim – alls voru skor-
uð 224 stig Blikar höfðu þó bet-
ur 125:99. Eins og stigafjöldinn
gefur til kynna var oft lítið um
varnir en það verður heldur ekki
tekið af leikmönnum að þeim
tókst mjög vel upp með skotin.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Guðrún Vala
Elísdóttir
skrifar
224 stig
skoruð í
Smáranu