Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 1
2002 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VIÐTAL VIÐ MAGNÚS GYLFASON, ÞJÁLFARA ÍBV / B2, B3
JÓHANNES Karl Guðjónsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
segir mjög líklegt að hann yf-
irgefi herbúðir spænska 1. deild-
arliðsins Real Betis þegar leik-
mannamarkaðurinn verður
opnaður á nýjan leik í janúar.
Real Betis keypti Jóhannes frá
hollenska liðinu Waalwijk fyrir
rúmu ári fyrir 350 milljónir
króna. Hann fékk að spreyta sig
töluvert með liðinu á sínu fyrsta
ári en eftir að nýr þjálfari tók við
liðinu fyrir tímabilið hefur hann
ekkert komið við sögu á yfir-
standandi tímabili.
„Ég bjóst alveg við því að það
yrði hörð barátta að komast að en
mér finnst ég ekki njóta sann-
girni hjá þjálfaranum. Þetta væri
í lagi ef ég væri svona lélegur en
að mínu mati þá er ég það ekki
og finnst að ég eigi að fá að
spreyta mig. Ég er búinn að sýna
þjálfaranum allt sem ég get. Ég
hef æft mjög vel og lagt mig 100
prósent fram en það er greinilegt
að hann er búinn að bíta það í sig
að gefa mér enga möguleika. Ég
hef verið í hópnum í síðustu fjór-
um leikjum en hef ekki fengið að
koma inná í eina einustu mínútu
og ég sé það ekki breytast í nán-
ustu framtíð,“ sagði Jóhannes við
Morgunblaðið í gær.
Jóhannes segist verða að horf-
ast í augu við veruleikann. „Eins
og málin horfa í dag þá tel ég lík-
legt að ég hverfi á braut þegar
leikmannamarkaðurinn opnar.
Það eru komnir upp á borðið
möguleikar á að fara til Englands
eða Þýskalands og ég mun skoða
þessi mál á næstu vikum. Ég er á
þeim aldri að ég verð að fá að
spila og ég tel miklar líkur á að
ég verði kominn til annars félags
í janúar.“
Jóhannes vill fara frá Betis
ALFREÐ Gíslason, þjálfari Magde-
burg í Þýskalandi, er á fullri ferð að
leita að arftaka Ólafs Stefánssonar
sem gengur til liðs við Ciudad Real
á Spáni á næsta sumri. Eftir því
sem frá er greint í Expressen í gær
þá bendir margt til þess að Alfreð
hafi fundið arftaka Ólafs í Svíanum
Kim Andersson, sem fór á kostum í
leik Svía og Júgóslava um 5. sætið á
heimsbikarmótinu í fjarveru Staff-
ans Olssons. Andersson skoraði tíu
mörk í leiknum og var hreint
óstöðvandi.
Andersson er 20 ára gamall, leik-
ur með IK Sävehof, og er örvhentur
eins og Ólafur. Hann hefur vakið
mikla athygli í Svíþjóð á leiktíðinni
og segja Svíar að nú hafi þeir loks
eignast arftaka Olssons sem kominn
er nærri fertugu og hefur leikið með
landsliðinu í nærri tvo áratugi.
Andersson staðfestir í samtali við
Expressen að Alfreð hafi sýnt sér
áhuga og hyggist gera sér tilboð. Þá
segir blaðið ennfremur að Alfreð
ætli ekki að láta þar við standa held-
ur einnig tryggja sér Jonas Lar-
holm félaga Anderssons hjá IK
Sävehof.
„Ég er þolinmóðir og get vel beð-
ið eftir að þeir verði tilbúnir að
flytja til Þýskalands. En þegar að
því kemur þá vil ég gjarnan að þeir
velji Magdeburg,“ segir Alfreð í Ex-
pressen en hann fylgdist með leikj-
um heimsbikarmótsins í Svíþjóð.
Alfreð
hefur
fundið
arftaka
Ólafs
Morgunblaðið/Gísli Hjaltason
Aron Kristjánsson sækir að marki Egypta á heimsbikarmótinu í Svíþjóð. Allt um árangur Íslands,
væntingar og það sem þarf að skerpa á fyrir HM í Portúgal 2003 á B6, B7, B8, B9 og B10.
BRANN og Sandefjord skildu jöfn á
laugardag í markalausum leik um
laust sæti í úrvalsdeild á næstu leik-
tíð en Brann endaði í þriðja neðsta
sæti úrvalsdeildarinnar í haust en
Sandafjord í þriðja sæti 1. deildar.
Fyrri leikur liðanna fór fram á
heimavelli Sandefjord og var Ár-
mann Smári Björnsson á vara-
mannabekk Brann að þessu sinni,
en kom inn í liðið á 51. mínútu.
Brann-liðið var heppið að fá ekki á
sig mörk í leiknum og slapp með
skrekkinn að þessu sinni. Teitur
Þórðarson er sem kunnugt þjálfari
Brann og ríkir gríðarleg spenna í
heimabæ liðsins fyrir síðari leik lið-
anna sem fer fram í Bergen á morg-
un.
Teitur segir í viðtali við Verdens
Gang að honum þyki ekki ólíklegt að
einhverjir krefjist þess að hann fari
frá liðinu ef það falli í 1. deild, en
hins vegar verði hann ekki sá sem
muni segja af sér að fyrra bragði.
Orðrómur er á lofti þess efnis að
Benny Lennartsson, þjálfari Viking,
bíði eftir að starfið losni í Bergen.
„Ég mun halda mig við þann
samning sem gerður var á sínum
tíma og samkvæmt honum er ég
þjálfari liðsins út keppnistímabilið
2004. Í þessu starfi getur maður átt
von á hverju sem er. Félagið hefur
farið í gegnum erfiða tíma fjárhags-
lega, flestir af bestu leikmönnum
liðsins eru farnir og þetta er sá
raunveruleiki sem liðið býr við,“
sagði Teitur en verði honum sagt
upp störfum þarf Brann að greiða
honum laun næstu tvö árin, alls 33
milljónir ísl. kr.
Teitur valtur í sessi hjá Brann
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS