Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 B 3
FIMLEIKAFÉLAGIÐ Björk
keppti í dag í úrslitum
Evrópumeistaramóts fé-
lagsliða í hópfimleikum í
Chalons í Frakklandi og
endaði liðið í 8. og neðsta
sæti í úrslitunum. Alls var
61 lið skráð til leiks í und-
ankeppninni. Bjarkirnar
fengu samtals 24,90 stig.
Þær fengu 8,8 í gólfæfing-
um sínumn, 8,3 á dýnu og
7,8 á trampólíni. Danir urðu
Evrópumeistarar, Svíar í
öðru sæti og Norðmenn í
þriðja og fjórða sæti. Fim-
leikafélagið Stjarnan úr
Garðabæ keppti einnig á
þessu móti en komst ekki í
úrslit.
Bjarkirnar
í áttunda
sæti á EM
„Nei, ég get ekki sagt það. Auð-
vitað geri ég mér grein fyrir því að
ég er að taka að mér krefjandi starf
en það er enginn beygur í mér þó
svo að þetta sé nýtt fyrir mér. Ég er
fyrst og fremst mjög spenntur og
ætla að leggja mig allan fram í verk-
efnið. Þjálfarastarf er alltaf áhættu-
söm vinna en ég á ekki allt mitt und-
ir þjálfuninni eins og sumir aðrir
þjálfarar. Metnaðurinn er mikill í
Eyjum og væntingarnar miklar og
það eru allir ákveðnir í að standa sig
vel næsta sumar. Sjálfur er ég afar
metnaðarfullur svo ég held að ef all-
ir leggjast á eitt eigi tímabilið eftir
að verða mjög skemmtilegt. Við er-
um að vinna í leikmannamálunum
og vonandi getum við styrkt hópinn
eitthvað á næstunni.“
Hvernig hyggst þú samræma
starf þitt og þjálfunina?
„Ég mun starfa hér við fyrirtæki
mitt alveg óbreytt fram undir apríl-
lok en þá flyt ég alfarið út til Eyja.
Ég get tekið vinnuna með mér til
Eyja því stærsti hluti af starfi mínu
fer í gegnum síma, faxtæki og tölvu
og ég mun sinna því alveg eins og ég
get úti í Eyjum.“
Hætti með
U-17 ára liðið
Getur þú haldið áfram að þjálfa
U-17 ára liðið nú þegar þú ert búinn
að taka að þér þjálfun ÍBV-liðsins?
„Ég er búinn að segja upp U-17
ára landsliðsstarfinu og hætti því
starfi nú um áramótin en ég verð
áfram aðstoðarmaður Ólafs með
U-21 árs liðið. Það kom aldrei til
greina að gegna bæði þjálfun U-17
ára liðsins og ÍBV. Ég skil mjög
sáttur við 17 ára liðið og sérstaklega
þar sem okkur tókst að vinna Norð-
urlandameistaratitilinn. Ég lít á
þann titil sem mjög góðan árangur
og það var gaman að geta klárað
verkið á svona góðum nótum.“
Magnús verður yngsti þjálfarinn í
úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en
sjálfur segist hann hafa mikla og
góða reynslu.
„Ég er búinn að vera mjög lengi í
þjálfun og umgangast þetta um-
hverfi ansi lengi. Ég lít samt ekki á
mig sem neinn reynslubolta í þjálf-
un og ég er enn að læra eitthvað
nýtt.“
Hvað finnst þér almennt um ís-
lenska knattspyrnu. Finnst þér hún
vera í framför og hvaða tilfinningar
hefur þú gangvart íslenska landslið-
inu?
„Ég mundi skipta þessu í tvennt.
Mér hefur fundist ég sjá ákveðnar
framfarir í yngri flokkunum og til
dæmis eru þessir strákar í U-17 ára
liðinu með meiri tækni en áður en
persónulega fannst mér knatt-
spyrnan í meistaraflokki frekar slök
í ár. Ég sé fyrir mér að landsliðið
verði á þessu róli sem það er núna.
Við getum af og til náð fram hag-
stæðum úrslitum en ég sé ekki að
Ísland verði með lið á stórmótunum
í nánustu framtíð. Við eigum ein-
faldlega ekki nógu marga góða leik-
menn en ef við höldum okkur í
þriðja styrkleikaflokki er ég nokkuð
sáttur.“
ari karlaliðs Eyjamanna í knattspyrnu
Morgunblaðið/Þorkell
!"
#!
$# %
!"
&#
'(#
&#)*
+
&#)*
+
,
!"
,
!"
,
!"
-#'. !
/)
/)
00
$#!
$#%
1
(23
$
++
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
4#
Nær vel til
leikmanna
ÁSTRÁÐUR Gunnarsson, formaður
unglinganefndar KSÍ, þekkir vel til
starfa Magnúsar Gylfasonar en Ást-
ráður, sem á árum áður lék sem bak-
vörður með Keflvíkingum, hefur verið
í unglinganefndinni þau ár sem Magn-
ús hefur þjálfað 17 ára landsliðið.
„Maggi er mjög góður í að ná út
úr leikmönnum því sem til þarf og
hann á mjög gott með að skapa góða
stemningu innan liðsins í undirbún-
ingi fyrir leik. Ég hef kannski ekki
beint kynnst þjálfuninni hjá honum en
það sem ég hef séð til hans hefur mér
líkað vel. Hann er mjög heiðarlegur
og geðgóður maður og einn hans
helsti styrkur er að hann nær mjög
vel til leikmannanna og nær góðu
sambandi við þá. KSÍ hefur verið
mjög ánægt með störf hans og við get-
um ekki kvartað undan árangri hans
en liðið var sem kunnugt er Norð-
urlandameistari í sumar,“ sagði Ást-
ráður við Morgunblaðið þegar hann
var beðinn að segja frá kynnum sínum
af Magnúsi.
„Ég hef vitað það í nokkur ár að
Magnús hefur stefnt leynt og ljóst að
því að komast í úrvalsdeildarþjálfun
og ég vona bara að honum gangi vel
þó svo að ég hefði alveg viljað halda
honum áfram með 17 ára liðið. Maggi
er mjög jákvæður gagnvart ungum
leikmönnum og ungir leikmenn í Eyj-
um ættu að eiga möguleika á að fá að
spreyta sig. Ég á alveg von á því að
honum farnist vel. Hann er að fara í
geysilega kröfuhart umhverfi og ég
vona bara að fólkið í Eyjum standi
með honum. “
Magnús Gylfason á vinnustað sínum í Hafnarfirði – fiskvinnslufyrirtækinu Svalþúfunni.
ÞÓRÐUR Guðjónsson
skoraði þriðja mark
Bochum í 3:0 sigri
liðsins á Herthu
Berlin en liðin
áttust við á heima-
velli Bochum á
sunnudaginn.
Þórður skoraði
markið á lokamínútu
leiksins sem var hans annað á tíma-
bilinu. Þórður fékk góða dóma fyrir
frammistöðu sína í þýskum fjöl-
miðlum og til að mynda fékk hann 3
í einkunn hjá Kicker. Eyjólfur
Sverrisson var í byrjunarliði Berl-
ínarliðsins en var skipt út af á 62.
mínútu leiksins. Hann fékk 4 í
einkunn hjá Kicker.
„Þetta var hörkuleikur en eftir
að við skoruðum fyrsta markið
þurfti Hertha að færa sig framar á
völlinn og við það náðum við góðum
skyndisóknum sem við færðum okk-
ur vel í nyt. Markið mitt kom eftir
vel útfærða skyndisókn og það var
gaman að ná að innsigla þennan
góða sigur. Sigurinn var rosalegar
mikilvægur og ef við vinnum leikinn
sem við eigum til góða förum við
upp í þriðja sætið,“ sagði Þórður við
Morgunblaðið en lék í stöðu aftasta
varnarmanns á miðjunni. Aðspurður
hvernig Eyjólfur hefði staðið sig
sagði Þórður; „Jolli var feikilega
sterkur og tapaði varla návígi. Þeg-
ar Hertha lenti undir gerði þjálfari
liðsins taktískar breytingar. Hann
fórnaði Eyjólfi og setti sóknarmann
inn á í staðinn.“
Bayern München, í sárum eftir
fallið í Meistaradeildinni – töpuðu
sínum öðrum leik í deildinni á leik-
tíðinni, nú fyrir Werder Bremen, 2:0.
Þórður
Guðjónsson Þórður innsiglaði
sigur Bochum