Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.11.2002, Blaðsíða 7
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 B 7  JÚGÓSLAVAR tryggðu sér rétt til að leika um fimmta sætið þegar þeir lögðu Egypta í gríðarlega spennandi leik þar sem úrslitin réð- ust ekki fyrr en í vítakastskeppni. Staðan var 28:28 eftir klukkustund- arleik og þá var farið beint í víta- keppnina þar sem Júgóslavar höfðu betur, 4:2 en hinn stórkostlegi mark- vörður Júgóslava, Danijel Saric kór- ónaði frábæran leik sinn með því að verja tvö vítaköst. Lokastaðan 32:30.  SARIC var maður leiksins því í leiknum sjálfum varði hann 29 skot og þar af fóru aðeins átta aftur til mótherja. Hann hreinlega lokaði markinu á löngum köflum og mark- varsla hans réð úrslitum. Eftir fyrri hálfleik, þar sem Júgóslavar höfðu frumkvæðið, var staðan 15:13 fyrir Egypta en þeir gerðu fimm mörk í röð í lok hálfleiksins. Síðari hálfleik- ur var í járnum alveg þar til flautað var til leiksloka en Saric varði síðan tvö vítaköst og tryggði liði sínu sig- ur.  FRAKKAR lögðu Rússa í leik um að komast í úrslitaleikinn, 25:23 eftir að hafa verið undir nær allan tímann. Rússar fengu óskabyrjun, komust í 3:0 en Frakkar náðu að jafna 10:10 þegar fjórar mínútur voru til leik- hlés. Frakkar minnkuðu muninn í eitt mark, 16:15 og jöfnuðu síðan 18:18 en komust yfir í fyrsta sinn þegar hálfleikurinn var nákvæmlega hálfnaður, 20:19. Rússar náðu að jafna 22:22 en Frakkar gerðu tvö næstu mörk og með tveggja marka forystu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka tókst þeim að sigra.  FRAKKAR leika hraðan hand- knattleik og sóknin er mjög frjálsleg. Rússum tókst vel að verjast þessu framan af en þolinmæðin þrautir vinnur allar og Frakkar héldu áfram sínum frjálsa leik þrátt fyrir nokkra erfiðleika á stundum. Vörn þeirra er mjög framarlega en engu að síður voru það skyttur Rússa sem voru atkvæðamestar og skoruðu þeir Rastvortsev og Egorov 12 mörk með langskotum.  MEISTARAR síðustu heimsbikar- keppni, Þjóðverjar, urðu að játa sig sigraða þegar þeir mættu eldfjörug- um Dönum í undanúrslitunum, Dan- ir sigruðu 32:30 eftir vítakasts- keppni en staðan var jöfn, 28:28, eftir að leikið hafði verið í klukkustund, en ekki er framlengt í þessu móti heldur farið beint í vítakastskeppni. Danski markvörðurinn, Kasper Hvidt varði tvö vítaköst og tryggði liði sínu sigur.  ÞJÓÐVERJAR voru bara yfir á fyrstu mínútum leiksins, eftir það voru Danir með frumkvæðið og höfðu þriggja marka forystu í leik- hléi 15:11. Þjóðverjar náðu að jafna í leikslok og varð að grípa til víta- kastskeppni þar sem Danir höfðu betur. FÓLK Patrekur sagði leikinn viðRússa, sem var fyrsti leikur íslenska liðsins, hafa verið hálfgert sjokk en Rússar unnu með ellefu marka mun. „Leik- urinn við Þjóðverja var aðeins betri en á móti Rússum, svo unnum við Júgó- slavíu og lékum mjög vel þar. Síðan voru það Svíar og Egyptar. Í rauninni má segja að við gerðum allt of mikið af tækni- legum mistökum, líka í leiknum á móti Júgóslavíu og í heildina náð- um við ekki að leika vel í einn heil- an leik. Það virðist vanta breiddina hjá okkur og þegar við erum komnir í svona sterk mót þar sem keyrt er á sömu leikmönnum meira og minna í öllum leikjum þá verður þetta svona. Samt má ekki gleyma því að menn komu sterkir inn þrátt fyrir að spila lítið, sjáðu til dæmis Snorra Stein í leiknum í dag, hann átti fínan dag. Við spilum á of fáum mönnum og þegar líður á mótið þá er þreytan farin að segja ærlega til sín. Aðrar þjóðir hafa fleiri sterka leikmenn, sjáðu Danina til dæmis, þeir skipta miskunnarlaust inn á og það geng- ur fínt hjá þeim. Við verðum að at- huga þetta, að nota fleiri menn og búa til sterkari liðsheild. Á EM í Svíþjóð var leikið á fáum mönnum og það er einhvern veginn miklu auðveldara þegar vel gengur, þá er eins og menn finni ekki eins fyrir þreytunni. Ef hins vegar hlutirnir ganga ekki upp eins og hérna á þessu móti þá verða að vera menn sem geta komið inn og þá er ekki verra að viðkomandi hafi aðeins farið í gegnum leikkerfin,“ sagði Patrekur. En höfum við mannskap til þess að skipta út eins og önnur lið gera og geta leyft sér? „Já, já. Þetta er íslenska lands- liðið og við erum flestir atvinnu- menn. Þetta er ekki skemmtileg staða fyrir nýja menn að koma bara inn á í nokkrar mínútur hing- að og þangað í leikjum. Menn verða að fá að gera sín mistök og læra af þeim. Ég fann það sjálfur þegar ég fékk tækifæri sem átján ára gutti með landsliðinu. Ég lék vörnina og stóð mig ekkert alltaf mjög vel, en ég fékk tækifæri til að gera mistök og ná að spila mig inn í leik liðsins. Við verðum að gefa mönnum tækifæri því þegar á al- vörumót er komið og eitthvað kem- ur fyrir hjá lykilmönnum okkar þá verða að vera einhverjir sem geta tekið við. Það er ekki hægt að henda lítt reyndum manni inn á þá og segja honum að standa sig. Vandinn er hins vegar sá að landsleikir í handbolta eru meira og minna í sterkum mótum og því gefst ef til vill ekki tími til að gefa mönnum tækifæri sem skyldi. Þetta mót sem við vorum að taka þátt í er fyrst og síðast æfingamót fyrir HM, gríðarlega sterkt æf- ingamót raunar, og það eru svona mót sem við verðum að nýta til að skóla unga og óreyndari leik- menn,“ sagði Patrekur. láta sig dreyma um verðlaun á leikunum því Svíar hafi enn ekki tryggt sér farseð- ilinn til Aþenu. „Til þess verðum við að lenda í einu af sjö efstu sætunum á HM í Portúgal eftir áramótin. Það verður okk- ar takmark á HM, það er að lenda í einu af sjö efstu sætunum og tryggja okkur keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Aþenu,“ segir Johansson. Johansson segir ennfremur í viðtalinu að enginn handknattleiksmaður utan Sví- þjóðar heilli sig svo mikið að hann vilji hafa hann í landsliði sínu væri þess kost- ur. „Kannski Frakkinn Jackson Rich- ardsson, hann getur verið frábær þegar hann nær sér á strik.“ n hættir a 2004 FRAKKAR lögðu Dani 28:24 í úrslitaleik heimsbikarmótsins í mjög skemmtilegum leik þar sem allt var í járnum í fyrri hálfleik en Frakkar þó með undirtökin er leið á og héldu þeim allan leikinn. Vörn þeirra var góð og Bruno Martini datt í gang í síðari hálfleik og lokaði markinu. Vörn Dana var ekki nægilega sterk og þrátt fyrir frábæran leik Kaspers Hvidt í marki Dana dugði það einfaldlega ekki til. Lasse Boesen fór mik- inn í sókn hjá Dönum og Lars Christiansen átti fínan leik í horninu en hinum megin voru það Jeome Fernandes og Joel Abati sem voru skæðastir. Frakkar nýir meist- arar ÚRVALSLIÐ heimsbikarkeppninnar var valið að henni lokinni á sunnudagskvöldið og þar eiga Danir tvo leikmenn, Frakkar einnig en hin- ir þrír eru frá Svíþjóð, Rússlandi og Þýskalandi. Kasper Hvidt er í mark úrvalsliðsins en hann er frá Danmörku. Aðrir leikmenn úrvalsliðsins eru Frakkarnir Cédric Burdet í skyttuhlutverki hægra megin og Jackson Richardson á miðjunni, Daninn Lars Christiansen er í vinstra horninu, Christian Schwarzer frá Þýskalandi á línunni, Johan Pett- erson frá Svíþjóð í hægra horninu og Alexei Rastvortsev frá Rússlandi skytta vinstra megin. Tveir Danir í úrvals- liðinu Danski leikmaðurinn Lasse Boesen stöðvar hér Frakkann Jackson Richardson. AP reyt- m? ð sé dan í ð er- óðra il að amt sem með egir tum erið ð og ldur aðið ikil- efur vel etra En Við Mats ð fá ekki úgal gal í hann r þá toð- liðs- ur á um í klár- agði „Lærum í Svíþjóð“ „VIÐ lærum mikið á mótinu hér í Svíþjóð og tekst vonandi að nýta okkur það til góðs á heimsmeistaramótinu í Portúgal,“ sagði Pat- rekur Jóhannesson, fyrirliði íslenska liðsins á heimsbikarmótinu í Svíþjóð, þegar hann fór yfir mótið í heild að loknum síðasta leik þess á sunnudaginn. „Fyrir mótið þá hugsaði maður sem svo að það þyrfti allt að ganga upp hjá okkur ætluðum við okkur að ná góðum árangri. Það gerðist hins vegar ekki,“ sagði Patrekur. Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Svíþjóð Morgunblaðið/Gísli Hjaltason ð- ð- 2+5,*503 . 2+503 .5'3! 2+5'3! 2+5,* 2+5,*5'3! 2+5'3!5)*  2+5,%6*  '3!5)*  2+57 #  ,%6* 57 #  ,*5'3!57 #  2+5,*57 #  2+57 # 51 ( '3!5,%6*  ,%6* 51 ( 2+5,  2+5, 5,%6*  , 50  , 5031#" , 5,%6*  2+503 . ,%6* 503 . 1 %*  89:$% . . . . . . . . . . . . . . . . . . .  .  . .              !   " !          "        #           $ % $        &     '$ 2+0 % ,*,* 03 !"  '3!'3 )* 2+ ,%6* 2+ 7 # &; + 1 (+ , <#  0 2+ 031#"         ( %    !) = /> $ %  +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.