Morgunblaðið - 05.11.2002, Page 9
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2002 B 9
Guðmundur Þ. Guðmundssonlandsliðsþjálfari lét marga af
þeim sem lítið sem ekkert hafa
leikið, spila mikið
gegn Egyptum.
Snorri Steinn Guð-
jónsson hóf leikinn
á miðjunni og þakk-
aði traustið með því að skora eftir
aðeins 27 sekúndur. Í næstu sókn
átti hann þrumuskot í þverslána
og niður á marklínuna, skellti sér
síðan inn á línuna í einu leikkerf-
inu í næstu sókn og skoraði þaðan.
Sannarlega góð byrjun hjá ung-
um og óreyndum leikmanni sem
lítið hefur fengið að reyna sig með
landsliðinu.
Birkir Ívar Guðmundsson byrj-
aði í markinu og byrjunin hjá hon-
um var ekki eins góð og hjá
Snorra Steini því hann varði sitt
fyrsta skot eftir tæpar tólf mín-
útur og var það vítakast. Það
kveikti í honum og stóð hann sig
ágætlega það sem eftir var leiks.
Heiðmar Felixsson skipti fljót-
lega við Ólaf Stefánsson á hægri
vængnum, Aron Kristjánsson kom
inn á og Sigurður Bjarnason einn-
ig. Í hornunum voru Einar Örn
Jónsson og Gústaf Bjarnason sem
átti fínan leik en Einar fékk hins
vegar varla boltann í hægra horn-
inu, en hann hafði átt fína leiki í
mótinu.
Egyptar létu einnig minni spá-
mennina reyna sig og virtust Ís-
lendingar hafa betur þegar þannig
liðum var stillt upp. Staðan 14:12 í
hálfleik en hinn júgóslavneski
þjálfari Egypta setti stórskotalið
sitt inn á í síðari hálfleiknum og
þeir náðu fljótlega undirtökunum,
gerðu sex mörk á móti tveimur og
staðan var 18:16 fyrir Egypta.
Hinn stórskemmtilegi leikmaður
Hussein Zaki, sem kom inn á í síð-
ari hálfleik gerði átta mörk í öllum
regnbogans litum, sérlega fjölhæf
skytta og hann mataði einnig fé-
laga sinn á línunni, sem einnig
hvíldi í fyrri hálfleiknum og fyr-
irliðinn, Ashraf Mabrouk kom
einnig inn á. Þessir þrír gerðu 16
af 20 mörkum Egypta í síðari hálf-
leik.
Guðmundur hélt hins vegar sínu
striki, skipti samt Ólafi og Patreki
inn á þegar staðan var 18:22 en
það breytti engu því Egyptar voru
komnir á bragðið og hraðinn síð-
ustu mínúturnar var þvílíkur að
þeir sem sáu um að skrá niður
mörkin misstu af einu marki Ís-
lendinga, fallegu marki sem Einar
Örn gerði úr horninu. Það breytti
engu um úrslit leiksins en Einar
Örn hefði örugglega viljað fá það
mark skráð.
Á lokakaflanum gerðu íslensku
leikmennirnir mikið af mistökum
og það vantaði að halda haus eins
og stundum er sagt. Þeir létu
Egypta leiða sig áfram og í stað
þess að róa leikinn spiluðu þeir
með á of miklum hraða, hraða sem
þeir réðu ekki nægilega vel við.
Bestu menn Íslands í leiknum
voru Gústaf og Snorri Steinn og
eins átti Róbert ágætan dag á lín-
unni.
Neðsta
sætið í
Svíþjóð
LÍKT og í öllum fjórum leikjunum sem íslenska landsliði hafði leikið
þegar kom að síðasta leiknum á móti Egyptum á sunnudaginn,
gerði liðið sig sekt um allt of mikið af mistökum, klaufalegum mis-
tökum með óþarfa áhættu í bland og það sýndi sig enn einu sinni að
slíkt gengur ekki þegar verið er í keppni með allra bestu handknatt-
leiksþjóðum heims. Egyptar sigruðu 32:26 eftir að Ísland hafði ver-
ið 14:12 yfir í leikhléi.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
frá Svíþjóð
Íslendingar byrjuðu vel, gerðufyrstu tvö mörk leiksins og voru
síðan 5:2 yfir en Svíar náðu að jafna
9:9 og í kjölfarið
fylgdi slæmur kafli
hjá íslenska liðinu.
Svíar gerðu sjö
mörk í næstu sókn-
um á meðan íslenska liðið náði aðeins
að skora tvívegis í tíu sóknum, staðan
orðin 14:11 fyrir heimamenn og ljóst
að róðurinn yrði erfiður eins og hann
er jafnan þegar við mætum Svíum. Á
þessum tíma gekk ekkert að koma
almennilegu skoti á mark Svía, en
Ólafur Stefánsson náði þó að skora
þessi tvö mörk með langskotum.
Talsverð tilraunastarfsemi var hjá
íslenska liðinu. Hlynur Jóhannesson
lék allan tímann í markinu utan hvað
Birkir Ívar reyndi einu sinni að verja
vítakast. Róbert Sighvatsson kom
snemma leiks inn á línuna fyrir Sig-
fús Sigurðsson og Snorri Steinn Guð-
jónsson kom inn á í sóknina ásamt
Sigurði Bjarnasyni þegar átta mín-
útur voru eftir af fyrri hálfleiknum
og staðan 14:11 og Íslendingar ein-
um leikmanni færri. Hann fór síðan í
vinstra hornið um tíma.
Í síðari hálfleik sá maður nokkrum
sinnum uppstillingu sem ekki er al-
vanaleg hjá íslenska liðinu. Fyrir ut-
an voru um tíma Sigurður, Aron
Kristjánsson og Ólafur og síðan Pat-
rekur, Sigurður og Ólafur og Sigurð-
ur þá á miðjunni. Patrekur hafði sig
mjög lítið í frammi í þessum leik, átti
aðeins þrjú skot að marki og munar
um minna. Vörn Svía var raunar fín
lengstum, flöt vörn nokkuð framar-
lega, alveg fram undir punktalínu og
því hefði mátt búast við að línan yrði
nýtt betur en raun varð á.
Sigur Svía var tæpari en tölurnar
gefa til kynna. Staðan var 27:25 og
Íslendingar í fínni sókn einum fleiri
en misheppnuð sending í vinstra
hornið kostaði hraðaupphlaup hjá
Svíum og vítakast í kjölfarið, 28:25.
Þarna var kjörið tækifæri til að
setja smápressu á Svía en það tókst
ekki og þegar Íslendingar reyndu
allt hvað þeir gátu að jafna síðustu
tvær mínúturnar gerðu Svíar síðustu
þrjú mörkin, tvö þau síðustu úr
hraðaupphlaupum.
Ólafur Stefánsson lék sinn besta
leik til þessa á mótinu og Einar Örn
Jónsson átti fínan leik einnig ásamt
Róberti á línunni. Hjá Svíum var
Magnus Wislander ótrúlegur og
nafni hans Andersson átti einnig fín-
an dag. Annars vakti ungur leikmað-
ur, Sebastian Seifert mikla athygli
en hann sá um tíma um að stjórna
sókn Svía og gerði það vel, hraðinn
jókst til muna og sóknirnar urðu
markvissari. Ekki má gleyma Johan
Pettersson sem var öryggið uppmál-
að á vítalínunni og nýtti einnig vel
þau færi sem hann fékk í horninu.
Morgunblaðið/Gísli Hjaltason
Einar Örn Jónsson skorar gegn Svíum – sendir knöttinn framhjá Tomas Svensson, eftir að hafa
leikið á Staffan Olsson. Rúnar Sigtryggsson fylgist með Einari Erni.
Svíar alltaf
jafnerfiðir
ÞAÐ ætlar að reynast Íslendingum erfitt að leggja Svía í landsleik í
handknattleik. Svíar, sem hafa ekki leikið eins vel og þeir hafa oft-
ast gert á stórmótum undanfarinna ára, náðu engu að síður að rétta
úr kútnum þegar þeir tóku á móti Íslendingum á laugardaginn og
sigruðu 31:26, gerðu reyndar síðustu þrjú mörk leiksins þannig að
munurinn jókst óþarflega mikið á síðustu tveimur mínútunum þeg-
ar Íslendingar lögðu allt í að jafna.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
frá Svíþjóð
=
%#
27#
0
88"
8
0 =$
?$#
@
@
<."
."
&
6
+ )38#
+