Morgunblaðið - 04.12.2002, Blaðsíða 1
SÉRRIT MORGUNBLAÐSINS UM BÆKUR miðvikudagur 4.desember2002
Að vera trúr sagnalistinni
Heiða
Jóhannsdóttir
ræðir við
Guðrúnu
Evu
Mínervudóttur.
Sókn og vörn – kristin
viðhorf kynnt og skýrð
er eftir dr. Sigurbjörn
Einarsson biskup.
Hér beinir Sig-
urbjörn sjónum sínum
m.a. að kirkjunni og
vísindunum, skoðar
eðli lífsins og tilgang.
Hann fjallar um upp-
eldis- og skólamál og
fer fyrir kristnum gild-
um og viðhorfum. Hugsunin er hvöss og
skýr, stíllinn leiftrandi og kröftugur. Dr.
Sigurbjörn er síungur í anda og orð
hans eiga erindi til samtímans nú sem
fyrr.
Sumar greinanna eru úr afmælisriti
hans Coram Deo frá 1981 og hirðisbréfi
hans sem bar heitið Ljós yfir land en
hvort tveggja hefur lengi verið ófáan-
legt.
Útgefandi er Skálholtsútgáfan – út-
gáfufélag þjóðkirkjunnar. Bókin er 368
bls., prentuð í Odda. Verð: 3.990 kr.
Sókn og vörn
Sigurbjörn
Einarsson
Nafnlausir vegir heitir
skáldsaga Einars Más
Guðmundssonar þar
sem haldið er áfram að
rekja sögu hinnar lit-
ríku fjölskyldu sem les-
endur þekkja úr bók-
unum Fótspor á
himnum og Draumar á
jörðu.
Sögusviðið er Ísland
á áratugum hernáms
og kjarabaráttu. Úr hinum stóra systk-
inahópi eru þeir fyrirferðarmestir Ívar,
náttúrulækningafrömuður, sem auðgast
og verður sjálfstæð lánastofnun, og svo
baráttumaðurinn Ragnar, kommúnisti
og Spánarfari. Sem fyrr fléttar Einar
Már saman sögu einstaklinga og sam-
félags.
Útgefandi er Mál og menning. Bókin
er 214 bls. og prentuð í Odda hf. Kápu
hannaði Margrét E. Laxness. Verð: 4.690
kr.
Nafnlausir vegir
Einar Már
Guðmundsson Á SÍÐUSTU árum hefur það
færst í vöxt að rita ævisögur
merkra íslenskra skálda. Upp í
hugann koma ágætar ævisögur
Einars Benediktssonar, Steins
Steinarr, Jónasar Hallgrímsson-
ar og nú hefur Viðar Hreinsson
sent frá sér fyrra bindi ævisögu
Stephans G. Stephanssonar. Les-
andanum verður fljótlega ljóst að
hér er ekki um neitt flýtisverk að
ræða enda kemur fram í eftir-
mála að Viðar hefur unnið að
þessu verki undanfarin fimm ár.
Ekkert hefur verið til
sparað að gera ævi-
sögu Stephans sem
best úr garði. Allar
tiltækar heimildir
hafa verið kannaðar
samviskusamlega og
þeirra getið í neðan-
málsgreinum sem
prentaðar eru aftan
við meginmálið. Verk-
ið stenst þannig ítr-
ustu kröfur um vís-
indaleg vinnubrögð og
er jafnframt fróðleiks-
náma þeim sem vilja
kynna sér nánar bak-
svið verksins.
Saga Stephans G. eða Stefáns
Guðmundssonar er áhugaverð
fyrir margra hluta sakir. Hún er
saga einstaklings sem er góðum
gáfum gæddur en býr við fátækt
og þarf lengstum að vinna hörð-
um höndum til að komast af. En
um leið er saga Stefáns þjóð-
arsaga, það voru mörg þús-
und Íslendingar sem kusu að
freista gæfunnar í Vestur-
heimi á síðasta fjórðungi 19.
aldar. Foreldrar Stefáns, þau
Guðmundur Stefánsson og
Guðbjörg Hannesdóttir, náðu
aldrei að efnast almennilega
og verða „sjálfstætt fólk“.
Þau höfðu því engu að tapa
þegar þau ákváðu að taka sig
upp ásamt Jóni bónda í Mjóa-
dal og fjölskyldu hans og
flytja vestur um haf. Stefán
stóð á tvítugu og Sigurlaug
systir hans var þrettán ára
þegar lagt var í haf í ágúst-
mánuði árið 1873. Með í för
var einnig Helga Sigríður, dóttir
Jóns í Mjóadal og Sigurbjargar
Stefánsdóttur (föðursystur Stef-
áns) sem síðar varð lífsförunaut-
Frá Kirkjuhóli til Klettafjalla
ÆVISÖGUR
Landneminn mikli – ævisaga
Stephans G. Stephanssonar
Fyrra bindi
VIÐAR HREINSSON
463 bls. Kápa: Gunnar Karlsson. Prent-
un Oddi. Bjartur 2002
Stephan G. Stephansson Viðar Hreinsson
BÆ UR
„Táldreginn frá fyrstu sí›u“
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
19
59
7
1
2/
20
02
„Hundra› dyr í golunni ratar beinustu lei› til sinna. Í henni tekur
Steinunn upp flrá› frá flví í Ástum fiskanna og Tímafljófnum: Lesandi er
táldreginn frá fyrstu sí›u, af sta› inn í fagra en um lei› brá›feiga leit
manneskjunnar a› ást og samruna.“
Birna Bjarnadóttir, Ví›sjá
Steinunn
Sigur›ardóttir
„Hundra› dyr í golunni er enn eitt tilbrig›i vi› ástina sem Steinunn
Sigur›ardóttir er snillingur í a› fjalla um ... Bók sem stillir sér sjálfkrafa
upp vi› hli› bestu verka Steinunnar.“
Sigrí›ur Albertsdóttir, DV