Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 4
4 C MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ÖNNUR kynslóð hins vinsæla jeppa
Land Cruiser 90 er nú komin á mark-
að, mikið breytt og mun betur búin en
áður. GX og VX-gerðirnar eru líka 8
cm lengri og 15 cm breiðari en fyrri
gerðir en lægri og taka því á sig minni
vind en áður. Sem fyrr er Land Cruis-
er jeppi í besta skilningi þess orðs.
Hann er grindarbyggður og með hátt
og lágt drif og mikla drifgetu. Það
sem einkum hefur breyst milli kyn-
slóðanna er aukin hæfni bílsins í þjóð-
vegaakstri þar sem hann er stöðugri
og hljóðlátari en fyrr. Það má ekki
síst rekja til breytinga á fjöðrunar-
kerfi bílsins. Önnur stór breyting er
jafnframt sú að betur búnu gerðirnar,
GX og VX, eru nú með afturdekkið
undir bílnum en LX, sem einkum
mun verða notaður til breytinga fyrir
stærri dekk, er ennþá með varadekk-
ið á afturhleranum.
Betur búinn og dýrari
Auk þess að stækka, breytast og
bæta við sig í búnaði hækkar bíllinn
umtalsvert í verði. Þannig hækkar
ódýrasta gerðin, LX, um nærri hálfa
milljón króna á milli kynslóða. Rétt-
læta má hins vegar verðbreytingarn-
ar með meiri og betur búnum bíl sem
nú er farinn að gera sér mikið dælt
við lúxusflokkinn.
Eins og fyrr kemur bíllinn í þrem-
ur búnaðarútfærslum, þ.e. LX, GX og
VX, og í útliti er LX, sem er ódýrasta
gerð bílsins, lítilsháttar öðruvísi því,
eins og áður segir, er varadekk hans
fest á afturhlerann en er komið undir
bílinn í GX og VX-útgáfum. Eins og
fyrr er bíllinn með fjögurra strokka
dísilsamrásarvélinni og verður enn-
fremur boðinn í vor með nýrri V6-
bensínvél, 250 hestafla.
Bylting að innanverðu
Prófaður var á dögunum Land
Cruiser 90 í VX-útfærslu. Það fyrsta
sem grípur augað er nýtt krómgrill
og ný margspegla aðalljós sem ná
hátt upp á bretti og vélarhlíf. Sömu-
leiðis eru brettin mótaðri og útstæð-
ari en áður og auk þess kominn nýr
aftursvipur með laglegum afturlugt-
um.
Sömuleiðis er bylting á bílnum inn-
anverðum þar sem sæti, stýri og
hurðarspjöld eru klædd mjúku leðri
og mælaborð og hurðir skreyttar með
viðarlistum og álkenndu efni. Þetta er
mikil breyting frá forveranum sem
var allur mun hrárri að innan. Milli
framsæta er komin stór hirsla með
loki sem að auki er færanleg og því
gott að stilla hana í þægilega stöðu
fyrir hægri hönd bílstjórans. Fram-
sætin eru með rafstillingum, glugga-
rúður eru allar rafknúnar og sjálfvirk
og tvívirk loftræsting og sex diska
geislaspilari með níu hátölurum er
staðalbúnaður auk skriðstillingar.
Frágangur er allur hinn vandaðasti
og er óhætt að segja að breytingarnar
á Land Cruiser 90 eru allar á þann
veg að færa bílinn upp í öllum sam-
anburði.
Stærri að innan
Annað, sem ekki sést við fyrstu
sýn, en finnst þeim mun betur þegar
farið er að nota bílinn, er aukið inn-
anrými. Þar munar fimm sentimetr-
um á breiddina. Olnbogarýmið er
meira og sömuleiðis er góð lofthæð í
bílnum þrátt fyrir rafknúna sóllúg-
una, sem er aukabúnaður í VX. Að
aftan er gott rými fyrir þrjá fullorðna
og drifstokkur er smávaxinn og ekki
að þvælast fyrir fótum farþega. Auka-
sæti eru fáanleg í allar gerðir í þriðju
sætaröð. Þau eru felld upp að hliðum
bílsins þegar þau eru ekki notkun.
Aðgengi að sætunum er ágætt því
einfalt er að fella fram miðjusæti og
velta því upp að framsætisbaki. Hins
vegar er þriðja sætaröðin vart boðleg
fullvöxnum en hentar vel fyrir smá-
vaxnari farþega. Bíllinn er reyndar
skráður átta manna með þriðju sæta-
röðinni. Ókostur er að afturhlerinn
opnast til hliðar, sem gerir mönnum
síður kleift að ráða við hann í miklu
roki en ef hann opnaðist upp. Mörg-
um þykir einnig ókostur að hafa vara-
dekkið undir bílnum því þegar þarf að
grípa til þess er gefið mál að það er
löðrandi í óhreinindum. Með því að
hafa það inni í bílnum hefði þó líklega
þurft að ganga of mikið á farangurs-
rýmið.
TEMS-fjöðrun
Eins og fyrr segir er bíllinn áfram
með nýlegri fjögurra strokka samrás-
ardísilvélinni sem er með forþjöppu
og millikæli. Vélin skilar að hámarki
163 hestöflum og hún er togmikil á
breiðum vélarsnúningi, eða 343 Nm
strax við 1.600 snúninga á mínútu upp
í 3.200 snúninga. Það sem þó hefur
breyst er að bíllinn er mun betur
hljóðeinangraður en áður og heyrist
vart vélarhljóð inni í bílnum. En bíll-
inn hefur þyngst með auknum búnaði
og nýju lagi og eyðslan er nú í sjálf-
skipta bílnum 10,4 lítrar í blönduðum
akstri og 8,7 lítrar innanbæjar. Sjálf-
skiptingin er einn af mörgum kostum
Land Cruiser 90. Hún er sérlega
næm og skiptingin sjálf er lungamjúk
svo lítið verður vart við þrep í henni.
VX-útfærslan er hlaðin ýmsum
nytsamlegum búnaði, ekki síst raf-
eindabúnaði. Sítengt aldrif er til stað-
ar sem fyrr og hátt og lágt drif og
breytileg tregðulæsing er fyrir aftur-
og framöxul. Við erfiðar aðstæður
beinir læsingin afli til þeirra hjóla
sem hafa meira grip. Sömuleiðis er
hægt að læsa mismunadrifinu þannig
að afldreifingin til fram- og afturhjóla
verði jöfn. VX-gerðin er að auki með
svonefndu DAC- og HAC-kerfi. Hið
fyrrnefnda stýrir hraða bílsins þegar
farið er niður bratta brekku án þess
að stigið sé á bremsunar og hið síð-
arnefnda kemur í veg fyrir að bíllinn
renni aftur á bak þegar stöðvað er í
brattri brekku. Þá er VX fáanlegur
með spólvörn og stöðugleikastýringu.
Fjöðrunarkerfið í VX-gerðinni er
nýtt af nálinni og afar fullkomið. Það
byggist á gormafjöðrun að framan og
loftpúðafjöðrun að aftan ásamt tölvu-
stýrðum dempurum, TEMS. Hægt er
að stýra virkni höggdeyfanna og velja
á milli fjögurra stillinga, allt frá
mjúkri til stífrar fjöðrunar. Þessi
búnaður er jafnframt sjálfvirkur og
stýrir virkni höggdeyfanna eftir að-
stæðum hverju sinni. Búnaðurinn
þrælvirkar og gerir bílinn mun stöð-
ugri og þægilegri í þjóðvegaakstri en
áður. Auk þess að veita mjúka fjöðrun
hefur loftpúðafjöðrunin þann kost að
virka sem hleðslujafnari. Auk þess er
hægt að hækka yfirbygginguna um
allt að 30 mm og lækka niður um 30
mm.
Land Cruiser 90 hefur fengið á sig
gott orð fyrir mikla getu utan vega en
það sem breytist mest með nýju kyn-
slóðinni eru aksturseiginleikarnir á
malbikinu. Þar er bíllinn kominn í
flokk með þeim jeppum sem mesta
fólksbílaeiginleika hafa og má þar
ekki síst þakka meira hjólhafi og frá-
bæru fjöðrunarkerfi.
Eins og vænta mátti hefur bíllinn
hækkað talsvert í verði. Grunngerðin,
LX, kostar núna beinskiptur
3.990.000 kr. en flaggskipið, VX sjálf-
skiptur, kostar 5.290.000 kr. Hann er
því farinn að slaga í lúxusjeppaverð
en búnaður, frágangur og eiginleikar
virðast réttlæta verðið.
Hljóðlátari
og betri á
þjóðvegum
Land Cruiser 90 er stærri, betur búinn og dýrari.
Morgunblaðið/Jim Smart
Varadekkið er farið af hleranum og undir bílinn.
!
" !
#!"
"!
$
%
&
'
!
(
!"
")'
" " ' "
"
*'
+% "
*' & +
"
,+
,)%'
- "
."- ",' ) "
%'
% $
/'
01
.
21
3 4
(
+
)
5
# $#
7
8
5
*2
# $#
7
8
9
# $#
:
gugu@mbl.is
Þriðja sætaröðin er valbúnaður.
Frágangur og efnisval er fyrsta
flokks.
REYNSLUAKSTUR
Land Cruiser 90 VX
Guðjón Guðmundsson
Til sölu NÝR
Chrysler p/t cruiser Limited
Vel búinn og mjög fallegur bíll. Sjón er sögu ríkari.
Til sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur, sími 587 8888