Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 C 7
bílar
KEPPNI er hafin fyrir alvöru í hinni
miklu eldraun sem rallið frá París til
Dakar er, en það fer nú fram í 25.
sinn. Reyndar hófst hin sögufræga
keppni ekki í París að þessu sinni,
heldur í frönsku Miðjarðarhafsborg-
inni Marseille og leiðin liggur heldur
ekki til Dakar því þolrauninni lýkur í
egypska baðstrandarbænum Sharm
El Sheikh við Rauðahaf 19. janúar.
Þegar þetta er skrifað hafa verið
eknar fimm sérleiðir af 17, þar af 285
kílómetra maraþonsérleið um eyði-
mörk Túnis, milli bæjanna Tozeur og
El-Borma, en ökuþórum ber saman
um að þá hafi keppnin hafist fyrir al-
vöru. Japaninn Hiroshi Masuoka ók
sérlega vel, setti langbesta tímann
og tók í fyrsta sinn forystuna í rall-
inu á Mitsubishi-bíl sínum en hann
vann rallið í fyrra.
Masuoka naut sín vel í sandhólum
eyðimerkurinnar og náði forystunni
af franska ökuþórnum Stephane
Peterhansel sem unnið hefur mótor-
hjólaflokk rallsins sex sinnum en
ætlar nú að freista þess að vinna
bílaflokkinn einnig og er þetta
fimmta tilraun hans til þess. Ekur
hann einnig á Mitsubishi-bíl og hafði
forystu eftir keppnina á fyrstu þrem-
ur leiðunum í Evrópu og þeirri
fyrstu í Afríku, á sunnudag.
Eftir fljúgandi gengi við undir-
búning og æfingar í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum í vetur
telur Peterhansel að Pajero-jeppinn
sé betur til sigurs fallinn en áður.
„Nýi bíllinn er eins og orrustuþota,
við mætum vel undirbúnir til leiks en
að komast yfir sandhólana í eyði-
mörkinni verður öllum erfitt,“ sagði
hann við upphaf keppni.
Tók sér frí frá þingstörfum
Í þriðja sæti eftir keppni mánu-
dagsins var annar Japani, Kenjiro
Shinozuka, sem vann rallið 1997, en
hann keppir fyrir Nissan. Fyrir það
lið keppir og Finninn Ari Vatanen,
sem tók sér frí frá þingstörfum á
Evrópuþinginu, en hann hefur marg-
sinnis orðið heimsmeistari í ralli, og
freistar þess nú að vinna París-Dak-
ar-rallið fimmta sinni. Gekk honum
illa í fyrradag, tapaði 25 mínútum á
forystusauðina og hrapaði niður í 11.
sæti í heildina. Mátti Vatanen reynd-
ar þakka fyrir að komast alla leið því
þrisvar sprakk hjá honum dekk.
Hörðustu unnendum finnst ef til vill
súrt í broti að horfið var frá því að
hafa upphaf og endi rallsins með
hefðbundnum hætti en nafnið er þó
látið halda sér og keppnin verður
jafnerfið fyrir keppendur en þeir eru
184 á mótorhjólum, 133 á bílum og 51
á trukkum. Munu þeir á leiðinni frá
Marseille til Sharm El Sheikh leggja
að baki 8.552 kílómetra en leiðin
liggur um bæði Túnis og Líbýu áður
en til Egyptalands kemur. Á leiðinni
fylgja rúmlega 200 þjónustubílar
keppendum.
Lengsta sérleið keppninnar verð-
ur jafnframt sú síðasta, eða á milli
egypsku bæjanna Abu Rish og
Sharm El Sheikh en hún er alls 828
kílómetrar. Mun þá verulega reyna á
andlegan styrk ökuþóranna og eins
gott að keppnisviljinn sé mikill.
Lokaleggurinn gæti boðið upp á
mikla dramatík og breytingar á end-
anlegri röð haldi keppendur ekki
dampi og bresti keppnistól þeirra út-
hald.
Búast má við að sigurvegarar und-
anfarinna ára muni mikið láta að sér
kveða. Hiroshi Masuoka hefur mikla
reynslu úr rallinu og mun eflaust fá
keppni frá fyrrverandi liðsfélögum
hjá Mitsubishi, þýsku konunni Jutta
Kleinschmidt, sem varð önnur í fyrra
en fyrst í hitteðfyrra, og landa sínum
Kenjiro Shinozuka sem varð þriðji í
fyrra og vann rallið 1997.
Kleinschmidt hefur skipt yfir á
Volkswagen og Shinozuka á Nissan,
sem tefla jeppa fram í fyrsta sinn í
rallinu. Sá síðarnefndi var í þriðja
sæti í fyrradag en Kleinschmidt
gekk illa á fyrstu fjórum sérleiðun-
um og gekk fyrst sæmilega í fyrra-
dag er hún tók fram úr 17 bílum og
náði 10. besta tímanum og klifraði
upp í 12. sæti í heildina en var á
fyrstu leiðunum ekki meðal 50 bestu.
AP
París-Dakar-rallið
Hiroshi Masuoka
tekur forystu