Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 9 og Eiríks sögu rauða í raun ekki á. Þarna er augljóslega verið að lýsa Vínlandi, sem Leifur heppni vissi ekki af þegar hann kom þar að með mönnum sínum. Hins vegar er engin lýsing á Hellulandi og Marklandi. Hér er vert að gaumgæfa, að í Ei- ríks sögu rauða segir af siglingu Þorfinns karlsefnis, í kjölfar Leifs heppna, á ellefu blaðsíðum í hinu „klassíska“ broti og leturstærð Ís- lendingasagna. Söguritari er hins vegar einkennilega fáorður um sigl- ingu Leifs heppna sem vissulega var stórmerkilegur atburður, með fundi Vínlands hins góða. Þessar þrjár setningar hér að ofan eru það eina sem stendur um siglingu Leifs heppna til Vínlands í Eiríks sögu, og er Vínland ekki einu sinni nefnt á nafn. Á móti var greint nákvæmlega frá þeim atburðum á sex blaðsíðum í Grænlendinga sögu. Í Eiríks sögu er málið því afgreitt mjög stuttaralega og augljóslega hlaupið yfir mörg mikilvæg atriði í frásögninni. Sama vissa um tilvist þeirra Ef sú staðreynd að Bjarni er ekki nefndur í Eiríks sögu gerir tilvist hans vafasama, verður jafnvel að beita sömu reglu um flest það sem við teljum okkur vita um siglingu Leifs heppna, en mest af því, sem við teljum okkur vita um hann er að finna í Grænlendinga sögu. Eins má nefna að sá atburður þegar Hellu- landi og Marklandi var gefið nafn er eignaður Þorfinni karlsefni í Eiríks sögu, en ekki Leifi heppna. Hvað Bjarna varðar má taka fram að fjallað er um Herjólf föður hans og siglingu hans með Eiríki rauða til Grænlands, í Landnámabók, og er frásögnin þar svipuð og í Grænlend- inga sögu. Þetta endurspeglar að Ís- lendinga sögur eru ekki hárnákvæm sagnfræði heldur sögur sem gengu mann fram af manni. Þær voru ekki skráðar fyrr en löngu eftir að at- burðir höfðu átt sér stað. Vegna þessa er það skoðun höf- undar, að vissa okkar um tilvist Bjarna Herjólfssonar og siglingu hans fyrir rúmum 1.000 árum sé lík- lega ekki síðri en sú vissa sem við teljum okkur hafa um tilvist og at- hafnir Leifs heppna og t.d. Þorfinns karlsefnis. Því er varla ástæða til að tortryggja sérstaklega eina persónu úr fornsögunum, Bjarna Herjólfs- son farmann, en halda nafni annarra á lofti um leið. En hver fann Ameríku? Af fram- ansögðu má draga þá ályktun að Bjarni Herjólfsson og hásetar hans hafi fyrstir manna af evrópskum uppruna litið augum meginland Am- eríku. Þeir fundu Ameríku, þótt þeir hafi að vísu verið að leita annars. Það var hins vegar Leifur heppni sem hélt af stað til að kanna löndin, hann fann Vínland og nam land fyrstur manna af evrópskum upp- runa á meginlandi Norður-Ameríku. Báðir atburðir voru stórmerkir, en Leifur heppni hefði ef til vill ekki siglt ef ekki hefði verið fyrir frásögn Bjarna Herjólfssonar og þá stað- reynd, að Bjarni seldi honum skipið sem hann sigldi á. Fregnir berast víða Í Grænlendinga sögu segir einnig af því þegar Þorfinnur karlsefni fór ásamt konu sinni Guðríði og um sex- tíu mönnum og fimm konum til Vín- lands, en þurfti loks frá að hverfa eftir harkalega árekstra við frum- byggja. Á Íslandi, að Þorfinni látn- um, gerðist Guðríður nunna og fór í pílagrímsför til Rómar. Varla þarf að efast um hvaða sögu hún hafði að segja prelátum þar á bæ. Árið 1075 lauk þýski söguritarinn Adam frá Brimum við að rita sögu erkibiskupsdæmisins Hamborgar og Bremen, sem bar nafnið „Gesta Hammaburgensis Ecclesiae Ponti- ficum“. Í sérstökum hluta ritsins sem nefnist „Descriptio Insularum Aquilonis“, lýsir Adam löndum í norðri, en norðurlönd ásamt þeim löndum sem þeim tengdust heyrðu undir erkibiskupsdæmið. Auk Ís- lands og Grænlands segir hann með- al annars frá nálægu landi, Vínlandi, þar sem vínber vaxi villt og gefi af sér hin bestu vín, og að hveiti vaxi í miklu magni án þess að því hafi verið sáð. Þessar upplýsingar fékk hann beint frá konungi Dana, Svend II Estridsen. Þetta er elsta lýsing á Ameríku í evrópskum ritum, mun eldri en íslensku fornritin. Paschal II páfi og Eiríkur biskup Smám saman urðu þessar fregnir heyrinkunnar og viðurkenndar á æðstu stöðum. Árið 1112 gekk ís- lenskur klerkur, Eiríkur Gnúpsson „upsi“, á fund Paschals II páfa í Róm. Á fundi þeirra varð Eiríkur biskup biskup yfir „Grænlandi og Vínlandi in partibus infidelium“. Á öðrum stað í heimildum er talað um biskup yfir Grænlandi og hinum ystu svæðum, á latínu „Episcopus Groenlandiae regionumque finitar- ium“. Hér getur ekki verið um að ræða rugling við Ísland, enda var Gissur Ísleifsson þar biskup fyrir. Þetta er merkilegt mál. Að senda prest á staðinn er eitt, en allt annað að sjálfur páfinn samþykki nýja stöðu biskups sem er mjög há staða innan kirkjunnar, á svæði sem m.a. tilheyrir meginlandi Ameríku. Þetta er rækileg sönnun fyrir því að vissan um landafundi Íslendinga var traust í Evrópu þegar í byrjun 12. aldar. Hins vegar virðist sem þeir hafi að miklu leyti gleymst á þeim öldum sem í hönd fóru. Íslenskur biskup siglir til Vínlands Árið 1121 er fært í sex íslenska annála að Eiríkur hafi siglt í vestur og hafi Vínland verið áfangastaður. „Eirik Grænlendinga biskup leitade Vínlands,“ sagði m.a. í Gottskálks annál þetta ár, en annálar voru gjarnan mjög stuttorðir. Var ný- lenda norrænna manna á Vínlandi, sem biskupinn sjálfur hugðist heim- sækja? Kaþólska kirkjan var vel skipulögð á þeim tíma, og ávallt opin fyrir möguleikum á að útbreiða kristindóminn. Skjöl í safni Vatík- ansins sýna, að í páfagarði létu menn sér annt um andlega velferð íbúa á Grænlandi, en kirkjan innheimti þar sóknargjöld í sextán kirkjum á tíma- bili. Jafnframt mun á mörgum stöð- um í skjölunum vera minnst á heið- ingja sem búi í löndum vestan Grænlands, og staðfastan áhuga kirkjunnar á að flytja fagnaðarer- indið til þeirra. Á einum stað í heim- ildum segir að ein slík viljayfirlýsing komi fram í skjali frá sama ári og Kólumbus sigldi yfir hafið, eða árið 1492. Í dag kynni mörgum að finnast það byltingarkenndar upplýsingar að íslenskur biskup hafi verið á sigl- ingu til Ameríku í erindagjörðum páfans í Róm, 371 ári fyrir siglingu Kólumbusar! Tilvist þessa merki- lega biskups virðist vera gleymd flestum hér, og mætti gjarnan minn- ast hans betur og hinnar einstöku stöðu hans í veraldarsögunni. Timbur sótt til Labrador Þó að ekki sé miklar fregnir að hafa af tilraun Eiríks biskups til að finna Vínland voru menn af íslensk- um uppruna ekki hættir að sigla til austurstrandar Norður-Ameríku. Íbúar á Grænlandi virðast gegnum aldirnar hafa siglt til Marklands (Labrador á austurströnd Kanada) að sækja timbur, sem erfitt var að fá á Grænlandi. Síðast var getið um slíka ferð í annálum, þar sem skip með 17 manna áhöfn, flæktist til Ís- lands. „Þa kom ok skip af Grænlandi minna at vexti enn sma Islandz för. Þat kom i Straum fiörð inn ytra. Þat var akkeris laust. Þar voru á .xvij. menn ok höfðu farit til Marklandz enn siðan vordit hingat hafreka.“ Þetta var fært í Skálholts annál árið 1347, með fornum rithætti þess tíma. Hér er líklega átt við Straum- fjörð á Mýrum, sem var verslunar- staður og verstöð frá miðöldum. Kristófer Kólumbus á Íslandi Í febrúarmánuði árið 1477, fimm- tán árum fyrir sögufræga siglingu árið 1492, kom ítalskur sæfari að nafni Kristófer Kólumbus til Ís- lands. Frá þessu segir í ævisögu Kólumbusar, sem á frummáli heitir Historia del Almirante Don Cristób- al Colón. Ævisagan var skrifuð af syni hans Ferdinand Kólumbus að honum látnum. Söguna skrifaði hann m.a. sem andsvar við tilraun- um spánsku krúnunnar til að gera lítið úr hlut Kólumbusar í landa- fundunum miklu. Sú rimma snerist, eins og svo margar aðrar, um tilkall til valda og auðæfa. Leiðangur Kól- umbusar var farinn með fulltingi Ísabellu drottningar af Spáni gegn samkomulagi um verulega upphefð Kólumbusi til handa ef leiðangurinn bæri árangur. Afkomendur hans höfðu hins vegar verið þvingaðir til að afsala sér þeim forréttindum að miklu leyti. Það er athyglisvert að ein af rökum spánsku krúnunnar í því máli voru að Kólumbus hefði fengið hugmyndina að leiðangri sín- um hjá öðrum, sem vekur spurning- ar um hvort slíkur orðrómur hafi verið á kreiki á þeim tíma? Í stuttri frásögninni lýsir Kólumb- us Íslandi sem eyju jafn stórri og Englandi, og gefur upp sínar mæl- ingar á staðarhnitum. Hann segir að Englendingar sigli þangað með vörur sínar, einkanlega frá Bristol. Hann segir að hafið við landið hafi ekki verið frosið þegar hann var þar, en sjávarföll hafi verið mjög mikil. Kólumbus skrifaði þennan stutta texta, ásamt fleiri svipuðum, til að sýna að hann hefði víða farið og væri fær um að leiða leiðangurinn yfir Atlantshafið til að leita Indía. Ýmsir telja í dag að Kólumbus hafi komið að Rifi á Snæfellsnesi eða til Grindavíkur með enskum kaup- mönnum frá Bristol. Hann var þá 26 ára að aldri. Álit Tavianis Hvaða áhrif hafði heimsókn Kól- umbusar á fyrirætlanir hans um að sigla yfir Atlantshafið til Indía? Ítal- inn Paolo Emilio Taviani er talinn fremsti fræðimaður Ítala á sviði þess sem lýtur að Kólumbusi og sigl- ingum hans. Að sögn Tavianis leikur enginn vafi á því að Kólumbus hafi fengið upplýsingar um landafundi þeirra Bjarna, Leifs og annarra Ís- lendinga. Einnig sé vel hugsanlegt að sjálf hugmyndin um að Asíu væri að finna handan við hafið hafi fæðst meðan hann dvaldi á Íslandi. Kól- umbus hafi í það minnsta aldrei hug- leitt að sigla yfir Atlantshafið eða að reyna að komast til austurlanda fjær, áður en hann kom til Íslands. Hins vegar má merkja af heimildum að hann hafi byrjað að vinna þeirri hugmynd brautargengi þegar árið 1478, einu ári eftir að hann kom frá Íslandi. Taviani telur því að á Íslandi hafi fyrsti þáttur í fyrirætlunum Kólumbusar hafist. Önnur atriði virðast hafa styrkt hann í trúnni. Á Írlandi kom Kól- umbus auga á fólk sem honum þótti torkennilegt útlits. „Fólk frá Cathay kom austur eftir. Við sáum mörg undur og sérstaklega í Galway á Ír- landi; mann og konu með einkenni- legt útlit.“ Cathay er öðru nafni Kína. Líklega hefur Kólumbus þarna rekist á Inúíta frá Grænlandi og haldið þá vera frá austurlöndum, frá Kína. Kólumbus taldi að ummál jarðar væri nálægt 30.000 kílómetrar. Þar var hann á öðru máli en gríski spek- ingurinn Eratosþenes, sem á þriðja árhundraði f.Kr. reiknaði út að um- mál jarðar væri 36.690 kílómetrar. Fyrir utan það að gríski spekingur- inn skyldi átta sig á því að jörðin væri hnöttur er merkilegt hve hann var nærri réttu lagi, en ummál jarð- ar er um 40.000 kílómetrar. Þessi skekkja leiddi til þess að Kólumbus taldi að Austur-Asía, með Kína og Japan, væru í viðráðanlegri fjarlægð handan við Atlantshafið. Íslenskir sæfarar höfðu hins vegar ekki kom- ist til Kína fimm öldum fyrr, heldur til heimsálfu sem enginn í Evrópu eða Asíu vissi enn að væri til. Þar munaði um 10.000 kílómetra af um- máli jarðar. Ef álit Tavianis er rétt má ljóst vera, að siglingar Leifs heppna, Bjarna Herjólfssonar og annarra ís- lenskra sæfara eru settar í allt ann- að og stærra samhengi en margir hafa hingað til gert sér í hugarlund. Í ævisögu Kólumbusar getur Ferdinand um nokkra þætti sem sannfærðu Kólumbus um að halda í leiðangurinn yfir hafið. Meðal þeirra voru fullyrðingar lærðra manna í fornöld um að sigla mætti frá Spáni eða Afríku til vesturs, og ná til Indía á aðeins nokkrum dögum. Þetta kom fram í ritum gríska spekingsins Aristótelesar (384–322 f.Kr.) og Rómverjans Lucius Annaeus Seneca (ca. 4 f.Kr.–65 e.Kr.). Seneca var leiðandi hugsuður í Róm, höfundur leikverka og einkakennari Nerós Rómarkeisara um tíma. Eftir hann liggja m.a. leikverkin Ödipus og Agamemnon, Trójukonur og Medea. Stýrimaðurinn Tiphys Ferdinand Kólumbus tiltekur einnig sérstaklega spásögn sem kemur fram í leikverki Senecas, Medeu, og gaman er að velta fyrir sér á léttum nótum. Segir hann að talið sé fullvíst að spásögn þessi hafi ræst í föður sínum, aðmírálnum Kristófer Kólumbusi, en í þá daga trúðu menn gjarnan á slíkt með öðru. Í spásögninni segir: „Sá tími mun koma á síðari árum, að höfin munu losna úr þeim böndum sem þau hafa verið fjötruð í, þegar að gríðarstór lönd verða uppgötvuð og Tiphys mun afhjúpa nýjan heim, og ultima Thule verður ekki lengur hið fjarlægasta af öllum löndum.“ Tiphys er persóna úr leikverkinu Medeu, og var stýrimað- ur Argónautanna sem héldu af stað að leita hins gullna reyfis. Í ensku máli þýðir argonaut einnig einstak- lingur sem leitar einhvers sem felur í sér hættu, en getur jafnframt verið afar ábatasamt. Ultima Thule hefur í raun merk- inguna „hið ysta land“. Það nafn var gjarnan notað yfir Ísland fyrr á öld- um, og síðar Grænland. Í efnisorða- lista í ævisögu Kólumbusar er Thule raunar þýtt sem Ísland. Hér er gam- an að leika sér með ímyndunaraflið. Það á í raun ekki síður við að setja þá Bjarna Herjólfsson og síðar Leif Eiríksson í hlutverk persónunnar Tiphys, sem losa höfin úr böndum, afhjúpa nýjan heim með uppgötvun gríðarstórra landa, sigla beinlínis frá Ultima Thule og gera að verkum að það land er ekki lengur það fjar- lægasta af öllum löndum! Frá Eyrum til Ameríku Það er í raun kostulegt hvað ferðir Bjarna og Leifs heppna falla vel að hinni fornu rómversku spásögn. Kannski væri hægt að nota hana sem hluta þeirrar viðleitni að efla hér menningartengda ferðaþjón- ustu? Íslendingar hafa nú þegar gef- ið tóninn varðandi þátt sinn í sögu landafunda, og án efa mun sá hluti þjóðararfsins bjóða upp á áfram- haldandi möguleika: Bjarni Herj- ólfsson, sem sigldi frá Eyrum til að leita Grænlands en kom upp að ströndum meginlands Norður-Am- eríku fyrstur Evrópumanna. Og Leifur heppni sem kannaði löndin í kjölfarið, og nam fyrstur manna af evrópskum uppruna land á megin- landi Norður-Ameríku. Minjar um hann eða þá sem á eftir komu eru í dag áþreifanlega sýnilegar í fornleif- unum á L’anse aux Meadows á Ný- fundnalandi. Þær eru til vitnis um þann þátt sem norrænir sæfarar af íslenskum uppruna eiga í sögu landafunda. Helstu heimildir Grænlendinga saga. Eiríks saga rauða. Landnáma. Íslendingabók Ara fróða. Skál- holts annáll. Ring of Seasons, höf. Terry G. Lacy, Háskólaútgáfan, 1998. Modern Sagas. The Story of the Icelanders in North America, höf. Thorstina Walters, North Dakota Institute for Regional Studies, 1953. The life of the Admiral Christopher Columbus, by his son Ferdin- and, höf. F. Kólumbus, Rutgers University Press, 1992. Leif Eiriksson Discoverer of America AD 1003, höf. E. Gray, Oxford University Press, 1972. The Frozen Echo – Greenland and the Exploration of North America, höf. K. Seaver, Stanford Univers- ity Press, 1996. Explorations in America before Columbus, höf. Hjalmar R. Holland, Twayne Publishers, 1962. The finding of Vinland the Good, höf. A.M. Reeves, Lond- on, 1890. Christopher Columbus, The Grand Design, höf. Paolo Emilio Taviani, útg. Istituto Geografico de Agostini, 1985. Et skjebnemöte vest for havet, höf. Thor Heyerdahl, Gyldendal Norsk Forlag, 1992. The Catholic Encyclopedia, Volume I. og aðrar alfræðiorðabækur. Dansk National- museums Marinarkæologisk Forsknings- center, bréfasamskipti. Höfundur er viðskiptafræðingur og starfar hjá Sveitarfélaginu Árborg. Paschal II páfi, sitjandi til vinstri, ásamt Philip I Frakklandskonungi. Mynd- skreyting úr frönsku miðaldahandriti. Knörrinn sem Bjarni Herjólfsson og síðar Leifur heppni sigldu á til Am- eríku hefur verið svipaður útlits og sést hér á teikningu listamanns, en hugsanlega ívið stærri. Grænlandsknerrir voru allt að 25 metra langir. Mynd/Bibliothéque nationale de France Mynd/ Sune Villum-Nielsen, Vikingeskibsmuseet i Roskilde

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.