Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 15
meta myndina og nýtur hennar. Ég sagði gjarnan við okkar fólk, þegar við vorum í tökum og áttum í erf- iðleikum, að myndin væri í rauninni þegar orðin til og við værum einfald- lega að grafa hana upp úr jörðinni. Ef við fyndum hana ekki á einum stað fyndum við hana á öðrum. Myndin kæmi til með að verða eins og hún vildi sjálf verða. Ég leit því aldrei á vandamál eða mistök sem nauðsyn til að gera málamiðlanir, heldur sem þá stefnu sem myndin tæki sjálf. Þetta var heimspekin á bakvið gerð Salts og boðið frá Berlín hefur nú staðfest að hún var rétt.“ 100 klukkutímar af myndefni! Brad Gray segist hafa viljað að bæði leikurinn og umhverfið væru eins raunveruleg og unnt var; Salt hafi því yfir sér blæ heimildarmynd- ar. „Leikararnir þekktu til dæmis ekki handritið í heild sinni, heldur að- eins inntak hvers atriðis fyrir sig og vissu því ekki hvert senan og sagan stefndu. Þeir, eða öllu heldur persón- urnar sem þeir leika, urðu því að bregðast við óvæntum vendingum og máttu breyta leiktextanum eftir þeim. Sagan er í grundvallaratriðum afar einföld en það sem kveikir líf í henni er þessi „spontant“ leikur. Ég er mjög ánægður með þá útkomu.“ Þegar tökum lauk tók við langt eft- irvinnsluferli sem enn hefur ekki verið til lykta leitt. „Við höfðum ekki efni á að greiða klippurum laun svo ég vann sjálfur að klippingunni heima hjá mér. Ég var með hundrað klukkustundir af myndefni, sem er mjög mikið; þar af voru 80% það sem við tókum og 20% það sem leikararn- ir tóku. Ég reyndi að afmarka mynd- efni hvers atriðis, en möguleikarnir voru margir. Í raun eru atriðin eins og augnablik í lífi persónanna frekar en miðlun upplýsinga í tímaröð, þannig að við litum á þau sem tilfinn- ingar frekar en rökræna atburðarás. Mér tókst á heilu ári að skera mynd- efnið niður í fjóra klukkutíma. Þá varð mér ljóst að verkið þyrfti á ut- anaðkomandi augum að halda. Ég hafði kynnst Valdísi Óskarsdóttur og hún kynnti mig fyrir Elísabetu Ron- aldsdóttur og svo hitti ég Sigvalda Kárason og þau hafa bæði verið mér ómetanlegar hjálparhellur frá því í október sl. við að koma myndinni nið- ur í þann einn og hálfa tíma sem Berlínarhátíðin fékk.“ En hvers vegna heitir myndin Salt? „Upphaflegi titillinn var Salt and Snow (Salt og snjór). Sú samsetning fannst mér heillandi vegna þess að salt og snjór líta eins út en annað efn- ið eyðir hinu. Það tengist því umfjöll- unarefni myndarinnar sem er mann- leg samskipti. Hildur er að uppgötva sjálfa sig sem um leið rýfur samband hennar við bestu vini sína. Ég stytti titilinn í Salt af því að af þessu orði er rétt bragð fyrir tilfinningu myndar- innar.“ ath@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 B 15 bíó ENSKA ER OKKAR MÁL Ný námskeið á nýju ári  Talnámskeið: 7 vikur, tvisvar í viku, 15./16. jan.-3./4. mars  Kennt á mismunandi stigum, frá grunni til framhaldsstigs  Sérnámskeið í viðskiptaensku og skriflegri ensku, einnig barnanámskeið  Námskeiðin metin hjá flestum stéttarfélögum Af hverju ekki að strengja áramótarheit og læra ensku? Julie Ingham Sandra Eaton John O’ Neill Laura Guerra John Boyce Sue Gollifer Hringdu í síma 588 0303 FAXAFENI 8 www.enskuskolinn.is enskuskolinn@isholf.is  MINNISLEYSI er að verða tísku- fyrirbrigði í bandarískum bíó- myndum. Nú er Val Kilmerað leika minnislausan mann sem reynir að vara lög- reglustjóra smá- bæjar við morð- tilræði við forseta Bandaríkjanna í kvikmyndinni Blind Horizon. Meðal annarra leikara eru Neve Campbell, Faye Dunaway, Sam Shepard og Amy Smart, en meðal framleiðenda er Tom Cruise. Leik- stjórinn heitir Michael Haussmann. Kilmer missir minnið Val Kilmer: Gleyminn.  SPÆNSKI leik- stjórinn Pedro Almodóvar, sem stendur nú á há- tindi ferilsins eftir afburða viðtökur nýjustu mynd- arinnar Hable con Ella eða Talaðu við hana, er nú loksins kominn á skrið með næsta verkefni, La Mala Education eða Hin illa menntun. Gerð myndarinnar átti að hefjast fyrir tveimur árum en var frestað vegna vandamála varðandi leikararáðningar. Almodóvar mun nú tilbúinn með nýja útgáfu handritsins, sem er sjálfs- ævisögulegra en aðrar myndir hans og segir frá tveimur vinum á sjöunda áratugnum sem ungir að aldri ganga í skóla hjá munkum, rétt eins og leik- stjórinn gerði, og hefur sú skólaganga afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf þeirra. Tökur eiga að hefjast í apríl, en ekki hefur enn verið tilkynnt um leikhópinn. Almodóvar í startholunum Pedro Almodóv- ar: Æskureynsl- an á tjaldið.  FJÓRTÁN árum eftir að Jean- Jacques Annaud gerði myndina Björninn eða The Bear er þessi gamalreyndi franski leikstjóri aftur kominn í dýraríkið. Hann er nú við tökur á mynd sem fjallar um tvo tígrisdýrsbræður, sem komast undir mannahendur, annað dýrið er stórhættulegt, hitt verður þjálfað sirk- usdýr. Myndin heitir Two Brothers og í hópi leikara af mannkyni eru Guy Pearce, Jean-Claude Dreyfus og Phillipine Leroy-Beaulieu, en hand- ritið skrifa Annaud og Alain Godard, sem einnig vann að síðustu mynd leikstjórans, Enemy At the Gates. Annaud aftur í dýraríkinu Í ÞESSARI framhaldsmynd vinsældasmellsins Analyze This (1999) snýr mafíósinn taugaveiklaði Paul Vitti (Robert De Niro) aftur úr fangelsi, þar sem hann virðist gersamlega genginn af göflunum, og er geðlækni hans, Dr. Ben Sobol (Billy Crystal), fal- in umsjá með honum og hefur það auðvitað svakalegar afleiðingar fyrir lækninn og konu hans (Lisa Kudrow). Fyrri myndin um samskipti þessa furðulega taugasjúklings og læknis hans var býsna skemmtileg á köflum og naut þar kunnuglegs en kostulegs ofleiks De Niros, fínlegri gríntúlkunar Crystals, en ekki síst næms auga og eyra Harolds Ramis fyrir því sem skop- legt er í karakterum og kring- umstæðum. Sjálfur segir Harold Ramis að kímni- gáfa sín hafi þróast og þroskast frá því honum fannst í fínu lagi að gera grín að öllu og öllum. „Það höfðar ekki lengur til mín að hæðast að þján- ingum fólks. Ég hlæ ekki að óförum annarra,“ segir hann í samtali við vikublaðið Las Vegas Weekly. En hann bætir við að ekki sé þar með sagt að eitthvað fyndið geti ekki gerst í hræðilegum aðstæðum og nefnir sem dæmi ítölsku myndina Líf- ið er dásamlegt eftir Roberto Benigni; þar gerist spaugilegir atburðir í miðjum hörmungum gyðingaofsókna þótt gyðingaofsóknirnar séu sjálfar fjarri því að vera spaugilegar. Ramis kveður kímnigáfuna mótaða af lífssýn hvers og eins. „Mín hverfð- ist um sjónarhorn fáránleikans, fyrir einhverjar tilviljanir og fyrir tilstilli fjölskyldu minnar og að einhverju leyti á grunni vitsmunalegrar nið- urstöðu.“ Ramis, sem nú er 58 ára að aldri, ólst upp í Chicago en gekk í Wash- ington-háskóla í St. Louis. Fyrsta starf hans að námi loknu var sem sjúkraliði á geðdeild. Þar uppgötvaði (1978) og var í senn gróf og ósmekk- leg, bráðfyndin og uppáfyndingasöm innsýn í háskólalíf á heljarþröm. Nú var Harold Ramis orðinn „heitur“ og árið eftir, 1979, kom úr handrits- smiðju hans önnur grínmynd í svip- um dúr og Animal House en flutti ruddagrínið úr háskólagarði yfir í sumarbúðir. Þetta var Meatballs. Enn hélt hann áfram á svipuðum nót- um og leikstýrði í fyrsta sinn eigin handriti, að þessu sinni um hrakfalla- sögur af golfvellinum, Caddyshack (1980), þar sem hann vann með gam- alreyndum bandarískum grínista, hinum mæðulega Rodney Dangerfield, sem hann samdi síðar fyrir heila mynd, Back to School (1986). Þegar Ramis flutti svo grínformúluna úr An- imal House yfir á herbúðalíf í Stripes (1981) var verulega farið að slá í hana. Hann samdi ekki heldur leik- stýrði aðeins næstu mynd, National Lampoon’s Summer Vacation (1983), og hún var mun betur heppnuð; hrak- fallasaga heimilisföðurins Chevy Chase á ferðalagi með fjölskyldunni er enn þann dag í dag í flokki þeirra hlægi- legustu af þessari tegund. Sem handritshöfundur datt Ramis í djúpan lukkupott með blöndu af tæknibrelluhrolli og gríni, þar sem er Ghostbusters, og lék að auki einn draugabananna ásamt Murray, Aykroyd og Ernie Hudson. Úr henni var mjólkuð mun slakari framhaldsmynd árið 1989. Félagi Ramis, hinn hæfi- leikasnauðari Ivan Reitman, leikstýrði. Á 9. áratugnum fór Ramis að leika aukahlutverk í auknum mæli, í mynd- um á borð við Baby Boom (1987), þar sem hann lék sambýlismann Diane Keaton, og enn dramatískara hlutverk í Stealing Home (1988). En mesti sig- ur hans á kvikmyndasviðinu er óhjá- kvæmilega Groundhog Day (1993), sem hann samdi, leikstýrði og fram- leiddi. Þessa kostulegu sögu af geð- vondum veðurfréttamanni (Bill Murray) sem endurlifir sama daginn aftur og aftur og vaknar við I Got You Babe með Sonny og Cher eins og martröð eftir martröð, uns hann nær að breyta rétt, vantar aðeins herslu- mun til að verða sannkölluð grín- klassík. Síðan hefur Harold Ramis átt mis- jafna daga. Með betri verkum hans eru klónunarkómedían Multiplicity (1996) með Michael Keaton, sem vann brokkgengt úr snjallri hugmynd, og Analyze This, sem fyrr er getið. Í Groundhog Day, Multiplicity og jafn- vel Analyze This leynast frækorn að frjósamri kómískri alvöru, sem von- andi á eftir að blómstra í frekari at- hugunum á siðferðislegum og tilvist- arlegum viðbrögðum manneskjunnar við klikkuðum nútíma. Slíkt gæti gerst ef Ramis hættir að hugsa um markaðsformúlur og ræktar í staðinn eigin skoplegu lífssýn. hann á sjö mánaða starfstíma að „all- ir þeir sem taldir eru geðveikir eru það ekki og að sumir þeirra sem höfðu lyklavöldin á spítalanum voru geðveikari en þeir sem læstir voru inni…Þetta var mikil reynsla,“ segir hann og bætir við hlæjandi „og virki- legur undirbúningur fyrir vinnu með leikurum.“ Nokkur bið varð á að Harold Ramis fengi að byggja á þessari reynslu og undirbúningi. Næst fékk hann vinnu við að halda úti svonefndri Party Jokes-brandarasíðu í tímaritinu Playboy. Sú reynsla var svo góður undirbúningur fyrir næsta starfssvið þegar hann gekk til liðs við Second City-grínhópinn í Chicago og síðar samnefndan hóp í Kanada. Í fram- haldi af því varð hann hluti af Broad- way-revíunni National Lampoon’s Lemmings, þangað sem fjöldinn allur af fyrstu kynslóð Saturday Night Live-sjónvarpsflokksins var síðan sóttur, verðandi spaugstjörnur á borð við John Belushi, Dan Aykroyd, Gilda Radner og Bill Murray. Árið var 1975 og Lorne Michaels, stjórnandi SNL og ör- lagavaldur flestra bandarískra grín- ista síðan, valdi Harold Ramis ekki til að slást í þennan hóp, sem kallaður var The Not Ready For Prime Time Players. Ramis lét það ekkert á sig fá og hófst handa við handrit að gam- anmynd, sem átti eftir að verða tímamótasmellur í amerísku and- ófsgríni fyrir yngri kynslóðir og gerði suma af fyrrgreindum félögum hans að stjörnum; hún ber eiginlega ábyrgð á greddugríninu sem tröllrið- ið hefur vestrænum unglingamynd- um allar götur síðan. Myndin hét National Lampoon’s Animal House Í geggjuðum nútíma Með sinn krulluhaus og kringlóttu gler- augu er Harold Ramis rakinn fyrir hlut- verk prófessora og vísindamanna. Hann var hið fyrrnefnda þegar við sáum hann síðast á hvíta tjaldinu í þeirri fínu og gamansömu þroskasögu Orange County; hann lék þar geðugan háskólakennara á leið í frí áður en söguhetjurnar grípa inn í og gera hann rammskakkan og ósjálf- bjarga. Hann var hið síðarnefnda í vin- sælasta hlutverki sínu sem einn af draugabönunum í grínsmellinum Ghost- busters. Mestum árangri hefur Harold Ramis hins vegar náð bak við tökuvélina, sem handritshöfundur og leikstjóri og í þeim hlutverkum stendur hann nú að baki gamanmyndinni Analyze That sem frum- sýnd er hérlendis um helgina. Árni Þórarinsson SVIPMYND segist leikstýra leikurum með því að reyna að skapa sam- starfsgrundvöll um hugmyndir sínar. Hann kveðst hafa sagt við Michael Keaton við gerð Multi- plicity: „Ef ég get ekki sann- fært þig um að ég hafi rétt fyrir mér ætlast ég ekki til að þú ger- ir það sem ég segi.“ Harold Ramis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.