Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 B 7 Morgunblaðið/Hanna Súkkulaðikökur eru dásamlega þungar og safaríkar. Það er því upp- lagt að „létta“ á þeim með því að bera fram með þeim ávexti (bakaða, syk- urhjúpaða eða rauðvíns- sykursoðna). Epli og per- ur passa t.d. sérstaklega vel með súkkulaði. Fersk jarðarber og/eða bláber eru einnig klassísk. „LÉTT“ MEÐ SÚKKULAÐIKÖKUNNI VÍN vikunnar eru öll evr-ópsk að þessu sinni ogkoma frá Ítalíu, Frakk-landi og Spáni auk þesssem fjallað verður um rúmenskt vín í fyrsta skipti. Vie di Romans Ítalir eru mun þekktari fyrir rauð- vín en hvítvín og er það ekki að ástæðulausu. Þótt finna megi afburða rauðvín af flestum svæð- um eru ítölsku hvítvínin hins vegar oftast létt, einföld og jafn- vel óspennandi. Á því eru þó verulegar undantekningar. Til dæmis geta hvítvínin frá Friuli, héraði í norðausturhorni Ítalíu, keppt við bestu hvítvín hvaða lands sem er. Það eru ekki mörg Friuli-vín fáanleg hér en þó einhver, t.d. hin mögnuðu vín framleiðandans Vie di Romans. Vie di Romans Vieris Sauvignon sýnir hvað í Friuli býr. Gífurlega öfl- ugt og ávöxtur mjög djúpur og þrosk- aður (áfengismagnið hvorki meira né minna en 15% sem gerir vínið allt að því yfirþyrmandi). Skörp angan af grasi, nýbökuðu gerbrauði og brenni- netlum. Mikið og ferskt í munni með beiskum ávexti. Kostar 2.310 krónur. Santa Cecilia Syðsta víngerðarsvæði Ítalíu er Sikiley og þar hafa rauðvínin ávallt ráðið ríkjum (þótt upp á síðkastið hafi komið fram verulega spennandi hvít- vín frá eldfjallaeyjunni). Planeta Santa Cecilia 1999 er hins veg- ar eitt af nýju rauðvínunum, sem eru að koma Sikiley á kort vínunnenda um allan heim. Þetta er dökkt, feitt og þykkt vín, allt að því sæt sulta, þar sem kennir ýmissa grasa. Þurrkuð kirsuber, blýantur, áfengi, vanilla og suðrænn hiti. Mikið súkkulaði í munni í bland við ávöxt og tannín. Stórt og mikið vín. Kostar 2.520 krón- ur. Louis Bernard Cotes du Rhone Cotes du Rhone-vínin eru jafn mis- jöfn og þau eru mörg. Stundum lit- laus og karakterlaus, stundum mögn- uð og spennandi. Louis Bernard Cotes du Rhone Villlages er eitt af þessum mögnuðu. Það er mjög dökkt og massíft, villt ber og krydd má finna í djúpum ilm þess og bragði. Massívt vín sem gengur með flestum mat. Það eru til léttir Cotes du Rhone og síðan alvöru vín sem þessi. Frá- bær kaup á einungis 1.210 krónur. Palacio de la Vega Chardonnay Navarra er athyglisvert víngerð- arhérað á Spáni, sem oft fellur í skuggann af nágrönnum sínum í Rioja. Palacio de la Vega Chard- onnay er hvítvín sem sýnir að vel er þess virði að gefa vínunum þaðan gaum. Þetta er Chardonnay í al- þjóðegum stíl,ferskur sítrus, hreinn, ávöxtur tær og feitur, vínið í góðu jafnvægi. Góð kaup á 1.390 krónur. Red Paradox Það hefur ekki farið mikið fyrir rúmenskum vínum hér á landi til þessa. Raunar man ég ekki eftir að hafa séð vín þaðan í sölu til þessa. Nú hefur hins vegar verið ráðin bót á því og í reynslusölu er vínið Villa Zorilor Red Paradox Merlot 2000. Það er löng vínhefð í Rúmeníu, rétt eins og í öðrum Balkanskagaríkjum. Hún drabbaðist hins vegar niður á tímum kommúnismans og framleiðendur hafa ekki enn náð sér á strik á út- flutningsmörkuðum. Þetta vín mun hins vegar vera ítalskt- rúmenskt sam- starfsverkefni og sýnir að það eru góðir möguleikar í Rúmeníu. Þétt- ur, dökkur ávöxtur, sæt sulta. Tannískt en samt þægilegt í munni með beisk- um möndlum í lokin. Hið ágætasta vín sem vel er þess virði að prófa. Það fer kannski ekki mikið fyrir hinu „rúmenska“ víninu en það er kannski ekkert verra...Kostar 1.390 krónur. Vín S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.