Morgunblaðið - 20.01.2003, Side 8
ÍÞRÓTTIR
8 B MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKA lands-
liðið í badminton
hafnaði í sjötta
sæti á Evrópumóti
B-þjóða sem lauk í
Portúgal í gær. Ís-
land tapaði 3:0 í
leik við Belga um
fimmta sætið eftir
að hafa lagt Sviss
á laugardaginn,
3:2.
Á móti Belgum
tapaði Tómas Vi-
borg í einliðaleik í
tveimur lotum,
17:16 og 15:11.
Ragna Ingólfs-
dóttir náði sér ekki á strik og
tapaði einnig í tveimur lotum,
11:1 og 11:0. Helgi Jóhannesson
og Drífa Harðardóttir urðu einn-
ig að sætta sig við að tapa í
tvenndarleik, 11:7 og 11:7. Þar
með var ljóst að íslenska liðið átti
ekki möguleika á
að jafna metin þar
sem aðeins tvær
viðureignir voru
eftir, tvíliðaleikur
karla og kvenna,
og því voru þær
felldar niður.
Ísland vann
Sviss, 3:2, á laug-
ardag og vann sér
þar með rétt til
þess að mæta Belg-
um í fyrrgreindum
leik. Þá vann Tóm-
as sinn andstæðing
í einliðaleik í
tveimur lotum og
Ragna vann sinn leik í þremur
lotum. Njörður Ludvigsson og
Helgi höfðu betur í tvíliðaleik,
Drífa og Sara Jónsdóttir máttu
lúta í lægra haldi í tvíliðaleik
kvenna og sama hlutskipti beið
Helga og Drífu í tvenndarleik.
Badmintonmenn
í 6. sæti í Portúgal
Eins og svo oft áður í vetur byrj-uðu Keflvíkingar vel og stór-
skyttan Guðjón Skúlason hitaði
áhorfendur upp með
tveimur þriggja
skota körfum en þeg-
ar þeir voru komnir
með nokkurra stiga forskot leyfðu
þeir sér að slaka aðeins á. Slíkt létu
gestirnir úr Breiðholti ekki bjóða sér
tvisvar og tókst með góðri vörn að ná
verðskuldaðri en naumri forystu. Þá
hrökk Damon Johnson í gang og
kom Keflavík aftur í forystu en aftur
misstu heimamenn einbeitinguna og
ÍR hafði einu stigi betur í leikhléi.
Eftir hlé var svipað uppi á ten-
ingnum en í fjórða leikhluta tókst
Keflvíkingum að halda haus á meðan
allt gekk á afturfótunum hjá gest-
unum.
Keflvíkingar hafa svo sem ekki
riðið feitum hesti úr síðustu leikjum í
deildinni en því betur hefur þeim
vegnað í bikarkeppni. Á laugardag-
inn var lengi tvísýnt hvort þeim tæk-
ist að ná góðum kafla í lokin en það
gekk eftir, fimm af tólf þriggja stiga
skotum fóru þá rétta leið og þungu
fargi var létt af Sigurði Ingimund-
arsyni þjálfari liðsins. „Við spiluðum
ekkert sérstaklega vel og varnarleik-
ur ÍR-inga var tiltölulega góður, þeir
tóku mörg sóknarfráköst hjá okkur.
Við spiluðum sóknarleik okkar vel á
köflum en þegar við svo spiluðum
vörnina vel í fjórða leikhluta unnum
við. Við ætluðum að fara meira undir
körfuna hjá ÍR og spila hörkugóða
vörn allan leikinn,“ sagði Sigurður
eftir leikinn. Hann getur vel við
stöðu liðsins unað því þótt gengið
gæti verið betra í deildinni þar sem
það er í þriðja sæti hafa Keflvíkingar
þegar unnið eina bikarkeppni og eru
í úrslitum í annarri. „Við getum ekki
kvartað yfir gengi liðsins, þvert á
móti, en mér finnst þó að við eigum
að geta spilað betur,“ bætti þjálfar-
inn við. Sem fyrr var Damon John-
son atkvæðamestur Keflvíkinga með
flest stig, níu fráköst og 7 stoðsend-
ingar. Edmund Saunders tók 15 af
40 fráköstum liðsins og átti 6 stoð-
sendingar. Sverrir Þór Sverrisson
var óþreytandi og þriggja stiga
skytturnar Guðjón Skúlason og
Magnús Gunnarsson skoruðu sam-
tals 7 af 12 þriggja stiga körfum liðs-
ins.
„Við lékum vel á löngum köflum en
svo klikkaði of mikið í fjórða leik-
hluta, það var léleg hreyfing í vörn-
inni svo að Keflvíkingar fengu of
mikið af þriggja stiga körfum einmitt
þegar maður vill að skotin klikki,“
sagði Eggert Garðarsson þjálfari ÍR
eftir leikinn. „Það fór með leikinn en
við létum líka dómara fara í skapið á
okkur, það gengur ekki og þegar við
fengum að okkar mati lélegan dóm
bættum við um betur með slæmum
ákvörðunum í næstu sókn á eftir ein-
mitt þegar við áttum að halda haus
og gera eitthvað af viti. Við ætluðum
að vinna Keflavík með sama her-
bragði og við beittum þegar við unn-
um þá í Breiðholti. Við ætluðum að
vera snöggir í vörninni og loka á
skyttur þeirra en það gekk ekki eftir.
Á móti kemur að við tókum mikið af
sóknarfráköstum sem við höfum
ekkert gert of mikið af og fengum því
mikið af nokkrum tækifærum í einni
sókn. Við brotnuðum ekki saman við
að keyra til Keflavíkur og mér fannst
við leika mjög vel, menn komu vel
stemmdir því fyrir okkur var þetta
bikarúrslitaleikur og við settum leik-
inn upp þannig. Hugsanlega var
þetta einn af okkar betri leikjum í
vetur.“ Eugene Christopher var
stigahæstur hjá ÍR og tók níu frá-
köst en undir lokin sást minna til
hans. Ómar Sævarsson tók 13 frá-
köst, Fannar Helgason átta og Sig-
urður Þorvaldsson sjö. Það verður
ekki frá ÍR-ingum tekið að þeir stóðu
sig við fráköstin og vörnin var sterk
fram eftir leiknum en það tók mikinn
toll að elta þriggja stiga skyttur mót-
herjanna og vörnin brást í lokin.
FÁTT virðist geta stöðvað Keflvíkinga í að hrósa aftur sigri í bik-
arkeppni – þeir hafa þegar sigrað í Kjörísbikarkeppninni og eftir
95:81 sigur á ÍR í Keflavík á laugardaginn eru þeir komnir í úr-
slit Doritos-bikarkeppninnar. Það var samt ekki fyrr en í fjórða
leikhluta að Keflvíkingar náðu að síga framúr og geta þakkað
það þriggja stiga skyttum sínum.
Hamarsmenn mættu ákveðnir tilleiks, góð stemmning var í lið-
inu og hafði það frumkvæðið allan
fyrsta fjórðunginn.
Leikmenn Snæfells
voru nokkuð lengi að
finna sinn rétta takt í
leiknum, varnarleikurinn slakur en
hleyptu þó gestunum aldrei meira
enn átta stigum fram úr. Gestirnir
léku svæðisvörn nánast allan tímann
og gekk þeim þannig að láta sókn-
arleik Snæfells hiksta. Hamarsmenn
héldu áfram góðum leik framanaf
öðrum fjórðungi, varnarleikurinn
sterkur með Svavar Pálsson sem öfl-
ugasta mann. Um miðjan leikhlutann
komst Snæfell aftur yfir, 33:31, frá
því staðan var 4:2 í upphafi. Þegar
þrjár mínútur voru eftir af leikhlut-
anum skiptu Hólmararnir yfir í
sterka svæðisvörn, juku um leið
hraðann og náðu átta stiga forskoti.
Í seinni hálfleik léku bæði liðin
svæðisvörn sem gerði það að verkum
að leikurinn varð allur hægari. Þriðji
fjórðungurinn var eign Snæfells með
Lýð Vignisson í fararbroddi og fór
munurinn mest í fjórtán stig um
miðjan fjórðunginn og svo aftur í lok-
in. Á þessum tíma leit út fyrir að
Hólmararnir ætluðu sér að kafsigla
Hvergerðingana. En gestirnir neit-
uðu að gefast upp og byrjuðu að „éta“
niður forskot Snæfells í fjórða fjórð-
ungi. Heimamenn skoruðu ekki stig
fyrstu fjórar mínúturnar í leikhlut-
anum en það varð þeim til happs að
gestirnir hittu ekki heldur mjög vel.
Þegar þrjár mínútur voru eftir var
munurinn 12 stig Snæfelli í vil, fékk
Helgi Reynir Guðmundsson, leik-
stjórnandi Snæfells, sína fimmtu
villu. Við þetta riðlaðist leikur heima-
manna en á sama tíma hófu gestirnir
að pressa stíft upp allan völl og náðu
að minnka muninn í tvö stig, 78:76,
þegar 40 sekúndur voru eftir. Á þess-
um sekúndum sem eftir lifðu gerði
Snæfell samtals fjögur stig, öll úr vít-
um.
Í liði Snæfells lék Lýður Vignisson
mjög vel, sennilega sinn besta leik í
vetur, kröftugur í vörninni og nú
duttu þriggja stiga skotin niður en
hann skoraði alls úr sex slíkum. Sig-
urbjörn Þórðarson var einnig að
leika einn sinn besta leik, batt svæð-
isvörnina vel saman og skoraði tíu
stig. Hlynur Bæringsson stóð vel fyr-
ir sínu að vanda, mikill baráttumaður
þar á ferð. Clifton Bush lék vel fyrir
liðið og tók alls 16 fráköst. Helgi
Reynir Guðmundsson hefur oft leikið
betur en er liðinu mjög mikilvægur.
Hjá Hamri stóð Svavar Pálsson
upp úr, duglegur í vörninni, skoraði
16 stig og tók ellefu fráköst. Svavar
Birgisson komst vel frá leiknum eins
og Lárus Jónsson sem stjórnaði
sóknarleiknum vel. Keith Vassel
skoraði 18 stig og tók 14 fráköst í sín-
um fyrsta leik með Hamri, en dálítið
virðist vanta upp á æfinguna hjá hon-
um. Lítið bar á þjálfaranum Pétri
Ingvarssyni fyrr en í lokafjórðungn-
um en þá var loksins kraftur í honum.
Tíu ára bið á enda
Ríkharður
Hrafnkelsson
skrifar
SNÆFELL sigraði Hamar í undanúrslitum í bikarkeppni KKÍ og Dor-
itos í körfuknattleik í Stykkishólmi í gær með sex stiga mun, 82
stigum gegn 76. Við lokaflautið brutust út mikil fagnaðarlæti í
íþróttahúsinu þegar það var orðið ljóst að Snæfell var komið í sjálf-
an úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni 8. febrúar. En það eru tíu ár
síðan Snæfell náði þangað í fyrsta skiptið, nú eins og þá var mót-
herjinn Keflavík sem vann þann úrslitaleik með miklum mun.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Keflvíkingurinn Damon Johnson sækir að körfu ÍR-inga í bikarleiknum í Keflavík.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Skytturnar
sterkar á loka-
sprettinum
Ragna Ingólfsdóttir