Morgunblaðið - 20.01.2003, Blaðsíða 9
Stúdínur mæta Keflvíkingum
í úrslitaleik í Laugardalshöll
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 B 9
LOGI Gunnarsson átti stór-
leik með Ulm í þýsku 2.
deildinni í körfuknattleik á
laugardaginn. Hann var
stigahæsti leikmaður liðsins
með 27 stig þegar það sigr-
aði Freiburg örugglega,
105:88. Ulm, Karlsruhe og
Jena eru jöfn og efst í suð-
urriðli deildarinnar, öll með
28 stig eftir 16 leiki. Logi er
stigahæsti leikmaður Ulm á
tímabilinu, hefur skorað 277
stig í deildinni, eða rúm 17
stig að meðaltali í leik.
Jón Arnór Stefánsson
skoraði 15 stig fyrir Trier
sem tapaði á heimavelli fyrir
Skyliners Frankfurt, 91:71,
og situr áfram á botni 1.
deildar með 4 stig eftir 14
leiki.
Stórleikur
hjá
Loga
SAMTÖK sænskra úrvals-
deildarfélaga í handknattleik
ákváðu um helgina að leggja
fram tillögu um að breyta
deildakeppninni í landinu fyr-
ir næsta tímabil. Svíar hafa
undanfarin ár leikið flókið og
þétt tímabil, þar sem liðin
færast milli deilda á miðju
tímabili og spila samtals 36
leiki áður en kemur að úr-
slitakeppni um sjálfan sænska
meistaratitilinn. Sænsku fé-
lögin vilja fækka leikjum og
leggja til að tekin verði upp
hefðbundin deildakeppni með
14 liðum í úrvalsdeild, 26
leikjum á lið, og síðan verði
leikið til úrslita eins og áður.
Tillagan verður lögð fyrir
þing handknattleikssambands-
ins sænska í lok mars.
Svíar
vilja færri
leiki
Kaupverðið á Orra var ekki gef-ið upp á sínum tíma en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var það á bilinu 8–9 milljónir króna.
Orri lék fjóra leiki með Tromsö í
norsku 1. deildinni síðasta haust, en
veiktist síðan. Annað lungað féll
saman og síðan endurtók það sig í
byrjun janúar, daginn áður en hann
hugðist halda til Noregs á ný til
æfinga með Tromsö sem vann sér
sæti í úrvalsdeildinni eftir árs fjar-
veru. „Það er nokkuð ljóst að ég fer
ekki aftur til norska félagsins, þó
að það sé ekki fullfrágengið ennþá.
Ég á langt í land með að komast í
æfingu eftir veikindin, ég er reynd-
ar rétt byrjaður að hreyfa mig aft-
ur en það tekur mig eflaust tvo
mánuði að ná mér aftur á strik.
Síðan eru það peningamálin sem
setja stórt strik í reikninginn,“
sagði Orri.
Hann sagði að framtíðin hjá sér
væri óljós. „Ég er samningslaus
gagnvart Þór og óvíst hvað ég geri.
Það freistar að fara suður og spila í
úrvalsdeildinni en ég hef ekkert
ákveðið ennþá.“
Orri Freyr er 22 ára sóknarmað-
ur og hefur alla tíð leikið með Þór,
þar til í haust. Hann skoraði 4
mörk í 12 leikjum í úrvalsdeildinni
síðasta sumar og var mjög at-
kvæðamikilli næstu tvö ár á undan
þegar Þór klifraði upp um tvær
deildir. Orri varð markakóngur 2.
deildar árið 2000 með 20 mörk og
skoraði síðan 16 mörk fyrir Þórsara
í 1. deildinni árið 2001. Hann á að
baki 6 leiki með 21-árs landsliði Ís-
lands.
Orri Freyr á förum frá Tromsö
ORRI Freyr Hjaltalín, knattspyrnumaður frá Akureyri, er að öllum
líkindum hættur hjá norska félaginu Tromsö. Tvennt kemur til, ann-
arsvegar slæm veikindi hans í vetur og hinsvegar fjárhagsvanda-
mál hjá Tromsö sem hefur ekki enn greitt Þór krónu fyrir Orra þrátt
fyrir að hafa keypt hann frá Akureyrarfélaginu í ágúst á síðasta ári.
Orri Freyr Hjaltalín.
Leikur liðanna fór hægt af stað ogliðin skoruðu aðeins 52 stig
samanlagt í fyrri hálfleik. En í síðari
hálfleik spýttu leik-
menn beggja liða í
lófana og úr varð hin
ágætasta skemmt-
un. Alda Leif Jóns-
dóttir fyrirliði og Meadow Over-
street náðu einstaklega vel saman í
liði ÍS. Þær skoruðu 48 af 77 stigum
ÍS og ef eitthvað er að marka þenn-
an leik er ljóst að Keflvíkingar þurfa
að gæta þeirra vel í úrslitaleiknum.
Þá lék Cecilia Larsson einnig ágæt-
lega í liði ÍS sem tefldi fram hinni
tæplega 39 ára gömlu kempu Haf-
dísi E. Helgadóttur og verður hún
og reynsla hennar liðinu án efa mik-
ill styrkur í úrslitaleiknum.
Helena Sverrisdóttir, sem er að-
eins 14 ára gömul, var sem fyrr best
í liði Hauka, en hún skoraði 30 stig
en frammistaða hinnar bandarísku
Katrinu Crenshaw olli nokkrum
vonbrigðum. Hún skoraði engu að
síður 19 stig í leiknum.
„Það var dálítið stress í byrjun
leiks en við náðum okkur á strik í
seinni hálfleik,“ sagði Alda Leif
Jónsdóttir, fyrirliði ÍS, í leikslok.
„Það hefur háð okkur í vetur hvað
við slökum mikið á þegar við höfum
náð forystu og hleypum mótherjum
okkar inn í leikinn og þetta þurfum
við að laga. Meadow Overstreet hef-
ur komið sterk inn í liðið og mér
finnst sjálfstraustið í liðinu vaxa með
hverjum leik. Ég held að liðið eigi
mikið inni. Nú einbeitum við okkur
að úrslitaleiknum og þótt Keflavík
sé sterkara lið á pappírnum þá för-
um við í Höllina til að gera okkar
besta. Það getur allt gerst í bikarúr-
slitaleik og ef við gefum okkur 100%
í leikinn þá getum við alveg unnið
þær. Það er ekkert lið ósigrandi og
ef við náum að spila góða vörn, eins
og við höfum gert gegn þeim í vetur,
og náum sóknarleiknum í lag þá eig-
um við góða möguleika,“ sagði Alda
Leif og hún var ánægð með að fá
Hafdísi Helgadóttur til liðs við ÍS að
nýju. „Það er mjög traust að fá Haf-
dísi inn í liðið aftur og þótt hún sé að
verða 39 ára þá leikur hún eins og
hún sé 19 ára,“ sagði Alda Leif Jóns-
dóttir, fyrirliði ÍS.
Morgunblaðið/Kristinn
Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliði ÍS, í bikarleiknum gegn Haukum á laugardaginn.
STÚDÍNUR mæta Keflavík í úrslitum bikarkeppni KKÍ í kvennaflokki
en úrslitaleikurinn fer fram 8. febrúar í Laugardalshöll. ÍS sigraði
Hauka í undanúrslitum í íþróttahúsi KHÍ á laugardag, 77:71, í jöfn-
um og skemmtilegum leik.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
„Það er
ekkert lið
ósigrandi“