Morgunblaðið - 20.01.2003, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.01.2003, Qupperneq 12
HENNING Fritz, markvörður þýska landsliðsins og Kiel, tel- ur að Ólafur Stefánsson, fyrr- um félagi sinn hjá Magdeburg, sé einn af líklegustu marka- kóngum heimsmeistarakeppn- innar í Portúgal. Hann spáir þó að Lars Christiansen, hinn eldfljóti hornamaður Dana, verði sá markahæsti. Fritz sagði við netmiðilinn Sport1 að Ólafur væri sérlega hættulegur leikmaður með fjölbreytta skottækni og væri öllum markvörðum afar erf- iður. Auk Ólafs og Christian- sens veðjar Fritz á Svíann Stefan Lövgren, Túnisbúann Sioud Sobhi og Frakkann Jackson Richardson sem lík- lega til að verða í hópi marka- hæstu leikmanna keppninnar. Fritz telur Ólaf líklegan FÓLK  TALANT Dushebajev, hinn snjalli leikstjórnandi Spánverja, sem oft hefur verið útnefndur besti handknattleiksmaður heims, spáir Þjóðverjum heimsmeistaratitlin- um. Hann segir að þýska liðið sé í mjög góðri æfingu og það eigi eftir að vega þungt að kjarni leikmanna liðsins skuli koma frá sama fé- lagsliðinu, Lemgo, og þar með sé samæfingin mjög góð.  DUSHEBAJEV segir að þar á eftir komi Svíar, Rússar, Frakkar og Danir. Markmið spænska liðs- ins sé fyrst og fremst að vera í hópi sjö efstu og komast á Ólymp- íuleikana í Aþenu. Spánverjar eru á meðal mögulegra mótherja Ís- lands í milliriðli á HM í Portúgal.  RENATE Götschl frá Austurríki sigraði í bruni kvenna sem fram fór í Cortina á Ítalíu á laugardag og var þetta annar sigur hennar á jafnmörgum dögum. Kristen Clark frá Bandaríkjunum varð önnur og Michaela Dormeister frá Austur- ríki þriðja. Götschl var hálfri sek- úndu á undan Clark í bruninu. Clark deilir nú efsta sætinu í stiga- keppninni í bruni með frönsku stúlkunni Carole Montillet, sem varð fjórða að þessu sinni. Janica Kostelic frá Króatíu varð áttunda en er sem fyrr efst í samanlagðri stigakeppni heimsbikarsins.  BRUNO Kernen frá Sviss sigraði í bruni karla í Wengen í Sviss á laugardaginn. Þetta var fyrsti sig- ur hans í heimsbikarmóti í sex ár. Hann er fyrsti Svisslendingurinn sem vinnur brun í Wengen síðan William Bess gerði það 1994. Aust- urríkismaðurinn Michael Walch- hofer varð annar og landi hans, Stephan Eberharter, þriðji. Her- mann Maier hafnaði í sjöunda sæti. Þetta var fyrsta brunmót hans í meira en eitt og hálft ár eða frá því hann slasaðist í mótorhjólaslysi.  FORRÁÐAMENN Barcelona staðfestu um helgina að þeir ættu í viðræðum við Chelsea um kaup á hollenska framherjanum Jimmy Floyd Hasselbaink frá Lundúnalið- inu. Talið er að Barcelona sé tilbú- ið að reiða fram um jafnvirði 7 millj. punda, um 900 millj. króna, fyrir Hasselbaink en hvort sú upp- hæð dugir skal ósagt látið. Chelsea keypti kappann fyrir tæpum þrem- ur árum fyrir rúmlega tvöfalda þá upphæð frá Atletico Madrid. Hass- elbaink hefur skorað 65 mörk í 115 leikjum fyrir Chelsea. Íslenska landsliðið kom til Viseu ígær að lokinni ferð frá Kaup- mannahöfn en við komuna til Portúgal reyndist þrautin þyngri að frá æfingahúsnæði þrátt fyrir að eftir því hefði verið óskað með góðum fyrirvara. Varð endirinn sá að íslenska landsliðið æfði í göml- um hermannabragga og minntu aðstæður helst á Hálogaland, hið þekkta íþróttahús Reykvíkinga um miðja síðustu öld. „Við fengum ekki að æfa í keppnishöllinni í gær [laugardag] af einhverjum óþekktum ástæðum. Eftir nokkurn barning fengum við loksins sal sem því miður var ekki upp á marga fiska. Það var óein- angruð skemma í gamalli herstöð, þar var kalt og mikill saggi enda skemman óupphituð. Vegna þessa var ákveðið að hafa aðeins stutta æfingu og í raun má segja að hún hafi haft takmarkað gildi,“ segir Einar og bætti við að úrhellisrign- ing í Viseu í gær hefði ekki bætt úr skák. Í gærmorgun var gerð önnur til- raun til þess að fá inni í keppn- ishöllinni og þegar að henni var komið var vísuðu verðir íslenska landsliðinu frá og sögðu að það yrði að róa á önnur mið til þess að fá æfingahúsnæði. „Við þurftum að gera allt vitlaust, meðal annars að hóta því að kæra framkomu heimamanna til mótsstjórnar. Eft- ir nokkurt stapp og fjölmörg sím- töl fengum við loks með semingi að komst inn í keppnishöllinni og æfðum þar í eina klukkustund,“ sagði Einar og bætti því við að all- ar aðstæður í væntanlegri keppn- ishöll væru eins og best yrði á kos- ið. Sögur voru á kreiki í gær þess efnis að myndatökumenn frá þýskri sjónvarpsstöð hafi reynt að taka upp æfingu íslenska lands- liðsins í gærmorgun. Einar vildi ekkert gefa út á það, sagði ein- ungis að búið væri að stilla upp öllum tækjum í keppnishúsinu til þess að taka upp leikina sem þar færu fram. „Það voru einhverjar vélar í gangi um tíma á meðan æf- ingin okkar fór fram en ég veit ekki hversu alvarlegt það var,“ sagði Einar og vildi ekkert gera úr vangaveltum um að þarna hefðu verið á ferð upptökumenn á vegum þýska landsliðsins. Síðdegis í gær æfði íslenska landsliðið í enn einu íþróttahúsinu og þar voru aðstæður allþokkaleg- ar að sögn Einars og æfingin gekk áfallalaust og tóku allir leikmenn íslenska landsliðsins þátt í henni. Einar sagði íslenska liðið ekki hafa neinar upplýsingar um ástr- alska liðið nema nafnalista leik- manna, en von var á Áströlunum til Viseu síðdegis í gær. „Menn renna almennt blint í sjóinn hvað varðar ástralska liðið. Það veit enginn fyrir víst um getu þess. Af þeim sökum ætlum við okkur að fara inn í leikinn af fullum krafti og með okkar sterkasta lið. Það þýðir ekkert annað,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, og bætti því við að spenna og eftirvænting ríkti í íslenska lands- liðinu og menn hlakkaði til að hefja keppni. Íslenska landsliðið er tilbúið í HM-baráttuna í Viseu í Portúgal Æft í hermannabragga Ljósmynd/NF Aron Kristjánsson í leik gegn Egyptalandi á æfingamóti í Danmörku á dögunum. „ÞETTA hefur allt byrjað á frek- ar skrautlegan hátt en ég held að nú sé allt að færast til betri vegar,“ sagði Einar Þorvarð- arson, framkvæmdastjóri HSÍ og aðstoðarlandsliðsþjálfari í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi eftir síðari æfingu íslenska lands- liðsins í Viseu í Portúgal. Fyrsti leikur Íslands á heimsmeist- aramótinu fer fram í dag kl. 17 gegn Ástralíu. HEINER Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja, þekkir ekki of mikið til mótherja sinna, Katarbúa, sem þeir mæta í fyrstu umferðinni á HM í Portúgal í dag. Hann hefur séð myndband af einum leik með liði Katar, umdeildum leik í undan- úrslitum Asíukeppninnar þar sem Katar burstaði lið Suður-Kóreu mjög óvænt, 38:23. Þess má geta að dómarar leiksins þóttu Kat- armönnum afar hliðhollir og voru dæmdir í tveggja ára bann að keppninni lokinni. Það var kóreska stórskyttan Yoon, leikmaður Gummersbach, sem útvegaði Brand myndbandið. Brand sagði að leikmaður númer 19 hjá Katar væri mjög öflug skytta, en kvaðst ekki vita hvað hann héti. Stefan Kretzschmar lék með Magdeburg gegn Al Saad frá Katar í heimsmeistarakeppni félagsliða sem fór fram í Katar síðasta sumar, en Evrópumeistararnir biðu þar lægri hlut. Brand sagði að það væri ekki marktækt, Magdeburg lék án margra sterkra leikmanna, m.a. Ólafs Stefánssonar, og í liði Al Saad voru margir útlendingar, þar á meðal Róbert Julian Duranona. Katar, frá samnefndum skaga við Persaflóann, mætti Kúveit í úrslita- leik Asíukeppninnar en beið þar lægri hlut, 19:15. Liðið tekur nú í fyrsta skipti þátt í lokakeppni HM. Úrslitin í undankeppninni í Asíu komu mjög á óvart, sérstaklega vegna þess að Suður-Kórea hafnaði í fjórða sæti eftir ósigur gegn Sádi- Arabíu í úrslitaleik um HM-sæti, 38:33, og Japan endaði í sjötta sæti af sjö liðum. Brand veit lítið um lið KatarREIKNAÐ er með að allt að 100 Grænlendingar fylgi landsliði sínu til Portúgals til þess að styðja við bakið á því á meðan heimsmeist- arakeppnin í handknattleik stend- ur yfir þótt ekki sé reiknað með að lið þeirra blandi sér í keppni um verðlaun á mótinu. Talið er að hver þeirra þurfi að leggja út rúmlega 200.000 krónur fyrir flugið, en dýrt er að fljúga frá Grænlandi til Evr- ópu. Grænlendingar eru bjartsýnir og gera sér vonir um að vinna tvo leiki í riðlakeppninni, gegn Ástr- alíu og Katar, og komast þannig í 16-liða úrslit. Hins vegar telja þeir sig ekki eiga möguleika gegn hin- um þjóðum riðilsins, Þjóðverjum, Íslendingum og Portúgal. Takist Grænlendingum að vinna tvo leiki þá bæta þeir árangur sinn frá síð- ustu keppni umtalsvert því þá höfðu þeir aðeins betur í einum leik, gegn Bandaríkjunum. Draum- ur leikmenna liðsins er að vinna Evrópuþjóð en þeir reikna ekki með að það takist að þessu sinni. Aðeins þrír leikmenn græn- lenska liðsins eru atvinnumenn í íþróttinni. Hinir annaðhvort stunda vinnu eða nám með hand- knattleiknum. Talið er að hver leikmaður grænlenska liðsins tapi um 160.000 króna á því að leika með landsliðinu í keppninni vegna vinnutaps. Grænlenska landsliðið hefur ver- ið saman við æfingar í um 30 daga fyrir keppnina, lengst af í Álaborg í Danmörku. Lokasprettur und- irbúningsins fór hins vegar fram í Suður-Frakklandi þar sem liðið lék m.a. við tvö frönsk efstudeildarlið. Í millitíðinni urðu flestir leikmanna liðsins að taka sér hlé frá æfingum til þess að stunda nám eða vinnu. Grænlendingar mæta heima- mönnum í fyrsta leiknum á HM í dag. Grænlendingar stefna á 4. sætið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.