Morgunblaðið - 30.01.2003, Qupperneq 1
2003 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ALFREÐ GÍSLASON SEGIR ÁLIT SITT Á MÖGULEIKUM ÍSLANDS Á HM/B4
EFTIR úrslit leikja á HM í Portúgal í gær-
kvöld er orðið líklegast að Íslendingar mæti
annaðhvort Króötum eða Rússum í undan-
úrslitum um sæti á laugardaginn. Það ræðst
af leiknum við Spánverja í kvöld hvort það
verður í keppninni um fjögur efstu sætin eða
um sæti fimm til átta. Ísland leikur gegn liði
úr milliriðli 3 og þar standa nú Danir höllum
fæti í baráttu við Króata og Rússa um tvö
efstu sætin. Reyndar er sá riðill galopinn
ennþá og meira að segja Egyptar eiga mjög
veika von um að ná öðru sætinu í riðlinum
þrátt fyrir að þeir hafi tapað báðum leikjum
sínum til þessa.
Mætum
Rússum eða
Króötum?
aði að menn væru að berjast með
hjartanu eins og oft hefur verið
sagt. Liðið var flatt og það skorti
neistann sem þarf til þess að vinna
svona leiki.“
Guðmundur var ekki sáttur við
varnarleikinn í fyrri hálfleik. „Hann
var ekki ásættanlegur. Menn voru
staðir, sátu eftir og náðu ekki að
stöðva pólsku skytturnar. En það
var eins og nýtt lið hefði mætt inná
leikvöllinn í síðari hálfleik.“
Gekk mikið á í hálfleik hjá ykkur?
„Ég ætla ekki að hafa það eftir
sem sagt var á þeim stutta tíma. Þar
sagði ég mína skoðun, leikmenn liðs-
Mótið er sérstakt að mörgu leyti.Það er langt og það skiptast á
leikir þar sem við lékum gegn slök-
um liðum og sterkum liðum. Ég
verð að játa það að
sl. þrír dagar hafa
verið sérkennilegir
og í raun bara bið
eftir stóru stundinni.
Einn ferðadagur, einn æfingadagur
og síðan bið fram á kvöld eftir leikn-
um gegn Pólverjum. Það var greini-
legt að við vorum ekki tilbúnir í
verkefnið í upphafi leiks. Mér fannst
vanta grimmdina sem hefur ein-
kennt íslenska landsliðið. Það vant-
ins fengu tækifæri til þess að segja
sína, bæði um eigið framlag og ann-
arra. Eftir þessa skorpu var ákveðið
að nú skyldi látið sverfa til stáls.
Annað var ekki hægt að gera þar
sem við vorum komnir í stöðu sem
var síður en svo vænleg fyrir okkur.
Ég er ánægður með hvernig menn
brugðust við áreitinu í síðari hálf-
leik.“
Þjálfarinn var ánægður með hve
margir leikmenn íslenska liðsins
hafa náð sér á strik til þessa á HM.
„Það kemur maður í manns stað
og ég gerði ákveðnar áherslubreyt-
ingar í vörn sem sókn í þessum leik.
Það gekk upp og við getum verið
ánægðir með síðari hálfleikinn.
Vörnina, sóknina, hraðaupphlaupin
og markvörsluna. Þetta hafðist og
það er það sem skiptir máli.“
Aðspurður um þátt Dags Sigurðs-
sonar sagði Guðmundur að hann
hefði átt gagnlegt samtal við fyr-
irliðann deginum áður. „Það var
gott og uppbyggilegt fyrir mig, liðið
og Dag að við skyldum ræða vel
saman í gær. Hann er sterkur per-
sónuleiki sem vildi geta lagt meira
af mörkum fyrir liðið. Hann átti frá-
bæran leik að þessu sinni sem er
gríðarlega mikilvægt fyrir okkur
sem liðsheild. Dagur hefur átt við
meiðsli að stríða í undirbúningi liðs-
ins en hann er hlekkur í okkar liði.“
Guðmundur játti því að hann væri
búinn að kortleggja lið Spánverja
töluvert og nokkurt efni væri til í
tölvutæku formi nú þegar. „Við hefj-
um undirbúning okkar fyrir leikinn
gegn Spánverjum nú þegar. Það
verður fundur nú strax eftir leikinn
þar sem menn fá heildaryfirsýn yfir
næstu mótherja. Síðan tekur við
sama ferlið og fyrir alla aðra leiki.“
Markmið íslenska liðsins fyrir
HM að þessu sinni var í fyrstu að ná
einu af sjö efstu sætum keppninnar
en núna er kominn glampi í augu
hins skipulagða þjálfara þegar hann
er inntur eftir næsta takmarki liðs-
ins. „Það er einfalt. Við ætlum að
leggja allt í sölurnar til þess að við
munum leika til undanúrslita í
Lissabon um næstu helgi,“ sagði
Guðmundur.
Morgunblaðið /RAX
Guðmundur Þ. Guðmundsson í hita leiksins. Við hlið hans eru Patrekur Jóhannesson, Rúnar Sigtryggsson og Sigurður Bjarnason.
Stefnum á undan-
úrslit í Lissabon
GUÐMUNDUR Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, var að vonum kátur með sigur íslenska liðsins gegn Pólverjum
á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gærkvöldi – í fyrri leik liðs-
ins í milliriðlinum í Caminha, 33:29. Hann sagði það ljóst að liðið
hefði tekið stórt skref í átt að áfangamarkmiði liðsins í þessum leik,
en nú biði liðsins „stóri leikurinn“ gegn Spánverjum, þar sem liðið
gæti tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar í fyrsta sinn.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar frá
Caminha
Pólverjum
hrósað
heima
PÓLVERJAR fengu hrós
á heimaslóðum fyrir
frammistöðu sína gegn
Íslendingum í gærkvöld,
þrátt fyrir fjögurra
marka ósigur, 33:29. Í
fréttatíma pólska rík-
issjónvarpsins var sagt að
þrátt fyrir ósigurinn
hefði pólska liðið sýnt
hvað í því bjó í hörku-
spennandi leik gegn mjög
góðu íslensku liði.
Pólverjum var hrósað
sérstaklega fyrir fyrri
hálfleikinn, en þar hefði
leikur liðsins byggst á
góðri vörn. Íslenska liðið
hefði hins vegar refsað
því pólska fyrir mistök
sín í síðari hálfleiknum
og draumurinn um að
komast á Ólympíuleikana
í Aþenu væri því úti.