Alþýðublaðið - 30.03.1922, Side 4

Alþýðublaðið - 30.03.1922, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐÍÐ — Samk æœt upplýsingura frá rússacsku verziusuarscndineíiidíani í Lundúnum hafa Bolsivikar keypí í Eaglandí vörur Syrir 4 346,705 sterlitsgspund á timabilmu irá i. jan tii 31 október i íyrra Ásama tíma hafa þeir seit Esglendingum vörur fyrir 763,894 steilicgspund. — Til Petrogiad komu á tíma bilinu frá 27 maí til 2. desemb, 282 útlenzk skip með 377,200 soialestir af vörum, aðallega mat væli, kol, koks og j irnbrsutacfni. — t desetnber byrjaði útkorna vandaðs tímarits i Petrograd á grundveíli „Clarté* félsgsakaparias (félagsskapir skáida, iistamanna og vfsindamanna, til stuðnings komrcúaismanum), Tímaritið á að ræða stjórnmal og bókmentir. — J,<panar höfðu það sem á tyllu til þess að hafa her i Atnúr iandinu í Austur Sibeiíu, &ð þeir þyrftu að vernda Japana er þar væru. Efttr japönskum skýrslum eru 4,361 Japani i Vladivostok, en 529 Japanar eru í öðrum hér uðum og borgum iándsins Jap anar haida þvi 10 þús. hermenn i Siberlu tii þess að vemda tæpa 5 þús. landa sina, sem auðvitað þurfa engrar verndunar við. — í Rússlandi voru 1 júlí 852 ' I ' i' '.. ' '..<"■'........... rafmagnsstöðvar. Af þeim hafa 277 veiið býgðár eftir að Bohr vikar komust tií valda. — Sveiíavérkairiannafél rúss neska telur nú i,ico 000 meðlimi — Tékkosiovakia tekur 606 börn úr Voigabéruðunuru, þar sem huagtrsneyðin er í Rússkndi, til fósturs. — Ný vísindastofnun fyrir húð og kynsjúkdótna var opúuð í Moskva ii, desemb. af Sémasko þjóðíulitrúa heiibrigöísmalanna — Foistöðumaður stofnunarinnar er Bobrov próíessor. Við stofauniaa starfa 40 sérfræðingar, og útiærð r læknar geta haidið áfrasn sétnámi við hana. Fermingukjöll tii sölu á Bergþórugótu 45 B. Reiðhjól gljábiend og viðgerð í Fðlkanum. Ait er nikk.eiex>að og koparhúðað i Fáikanum. Aiþbl. kostar i kr. á mánuði. Bílstjórar. Við feöfum fýrirliggjantíi ýmsar stærðir af Willard rafgeymum i bíla. — Við hiöðum og gerum við geyma. — Höíura sýrur. Hf. Rafmf. Hiti & Ljós Laugav. 20 B. S‘mi 830 Aðal« umboðsm. fyrir Willard Storage Battary Co Cievdand U S A. jjyitiBgis i Rðsslanði, ágæt alþýðubók. Odýrasta bókin sem komið hefir út á árinu. — Kostar aðeins 5 kr. Kanpið A iþýönbla ðið ! áðþbi. or blað allrar alþýðu. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafar Friðriksson. Prentsmiðjan Gutenberg. Edgar Rict Burroughs. Tarzan^ áð losna við skeggbroddana, sem hann var hræddur um að segðu til um apablóðið í æðum hans. Þegar Tarzan var alveg jafngóður af viðureigninni við Terkox, lagði hann af stað til þorps Monga. Hann gekk aldrei þessu vanur í hægðum sinum eftir hlykkj- óttri skógargötu, unz hann skyndilega stóð auglíti til auglitis við svartan hermann. Undrunársvipurinn sem skéiri út úr svertingjanum var nærri þvi hlægilegur, og áður en Tarzan hafði náð til boga síns, var svertinginn flúinn og æpti viðvörun- aróp, eins og fteiri væiu á undan honum. Tarzan hóf sig upp í tré og elti hann, og sá innan skamms að svertingjarnir voru þrír, sem flýðu í oíboði. Tarzan dró fljótt á þá og náði þeim, án þess þeir yrðu varir við hann. Hann fór fram fyrir þá og sat fyrir þeim í stóru tré. Hann hleypti tveimur fram hjá, en þegar sá þriðji kom, féll snaran um háls hans. Með rykk hertist að henni. Veslingurinn rak upp ógurlegt öskur; félagar hans Iitu við og sáu hann hefjast á loft og hverfa inri í lauf- þykni trjánna. Þeir snéru sér undan öskrandi og flýðu alt hvað af tók. Tarzan gerði skjótlega út af-við fangann; hann tók af honum vopnin og skartgripina, og — það sem skemtilegast var af öllu — mittisskýlu úr skinni, sem hann í snatri batt um mitti sitt. Nú var hann þó klæddur eins og maður. Enginn gat nú efast um uppruna hans. Það væri þó gaman að heimsækja flokkinn og sýna honum skraut sitt. Hann tók skrokkinn á herðar sér og fór nú hægar í gégnum skóginn í áttina til þorpsins, því hann vantaði aftur örvar. Þegar hann uálgaðist, sá hann þorpsbúa safnast saman í kringum fióttamennina, sem voru svo móðir og skelk- aðir, að þeir gátu varla sagt, hvað borið hafði fyrir þá. Mirando, sögðu þeir, sem verið hafði dálítið á uridan þeim, hafði alt í einu komið æpandi til þeirra og sagði að hræðilegur hvítur og nakinn hermaður væri á hæl- um þeim. Þeir hefðu svö allir tekið til fótanna og flúið til þorpsins. Aftur litu þeir við, er þeir heyrðu neyðaróp Mirarido, og þá sáu þeir hina hræðilegustu sjón — félagi þeirra flaug í loft upp og hvarf í trén baðandi út öllum öng- um og með lafandi tungu. Þeir heyrðu ekki frekar til hans, og ekki sáu þeir neitt dýr nálægt horium. Þorpsbúar voru svo skelfdir, að þeim lá við tryllingi, en Monga gamli var ekki af baki dottinn, hann leit á söguna frá annari hlið. „Þið segið okkur þessa sögu“, sagði hann, „vegna þess þið þorið ekki að segja sannleikann. Þið þorið ekki að segja, að þegar ljónið stökk á Mirando, flúðuð þið og skilduð hann eftir. Þið eruð bleyður". Varla hafði Monga lokið máli sínu, þegar skrjáf mikið í trjánum kom svertingjunum til þess að líta upp. Jafn- vel Monga nötraði við þá sýn ér birtist þeim; því kom ekki lfkið af Mirando fljúgandi gegnum loftið og small til jarðar við fætur þeirra! Sem einn maður flýðu svertingjarnir; og ekki námu þeir staðar fyr en þeir voru allir horfnir í skóginn. Tarzan kom nú niður úr trénu, og fekk sér birgðir af örvum, og át matinn, sem svertingjarnir höfðu fært honum sem fórn. Áður en hann fór bar hann líkið af Mirando út að garðshliðinu, og reisti það þannig upp við skíðgarðinn, að andlítið gægðist eftir götunni, er lá út í skóginn. i

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.