Morgunblaðið - 02.02.2003, Qupperneq 12
MJÖG vaxandi þörf er nú fyrir
leikskólapláss á Austur-Héraði og
hefur verið gerður samningur milli
sveitarfélagsins og Fellahrepps um
afnot af annarri af tveimur deildum
leikskólans Hádegishöfða í Fella-
bæ, en deildin hefur verið fáliðuð
fram til þessa. Verða þannig til
átta ný heilsdagspláss fyrir börn
frá Austur-Héraði og mun þurfa að
bæta við starfsfólki í kjölfarið.
Lengi hefur verið í umræðunni
að byggja þurfi nýjan leikskóla á
Austur-Héraði, en deild yngstu
barnanna er höfð í kjallara Foss-
hótels Valaskjálfar. Þar sem útlit
er fyrir að fleiri flytjist í sveitarfé-
lagið á komandi mánuðum og árum
vegna fyrirliggjandi virkjana- og
stóriðjuframkvæmda, má teljast
víst að samningurinn sé þannig að-
eins bráðabirgðalausn og að finna
þurfi varanlega lausn á leikskóla-
málum Austur-Héraðs..
Þá stendur fyrir dyrum að út-
vega húsnæði undir nýja fé-
lagsmiðstöð fólks á aldrinum sex-
tán til tuttugu og fimm ára. Stefnt
er að því að hún taki til starfa
næstkomandi haust og hefur
vinnuhópur, sem skipaður er þrem-
ur ungmennum, fulltrúa fræðslu-
og menningarráðs Austur-Héraðs
og fulltrúa foreldra hafið undirbún-
ingsstarf að verkefninu. Markmið
félagsmiðstöðvarinnar verður að
efla menningarstarf og afþreyingu
fyrir þennan aldurshóp og vinna að
atvinnuskapandi hugmyndum
þannig að ungmennin geti sjálf
stuðlað að markvissri þróun at-
vinnulífs í sinni heimabyggð.
Komið til móts
við þarfir barna
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
12 C SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKI SUMAR- OG ORLOFSHÚS
Óska eftir að gerast með-
eigandi að fasteignasölu
Er heiðarlegur, metnaðargjarn og fjár-
sterkur aðili með reynslu af rekstri fyr-
irtækja, sölu-, markaðs- og fjármálum.
Óska eftir að gerast meðeigandi að
fasteignasölu sem hefur á sér gott orð.
Áhugasamir sendi nafn og símanúmer
til auglýsingadeildar Mbl. merkt:
„Framtíð 2003” fyrir föstud. 7. feb.
Verslunin Værð og voðir er til
sölu af sérstökum ástæðum
Mjög gott verð.
Áhugasamir hafi samband við Jón
í s. 695 5520.
Skrifstofuherbergi/Leiga
Til leigu rúmgóð glæsileg skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
Heilsurækt
Sjúkraþjálfari sem vinnur með óhefðbundnum
aðferðum leitar eftir aðstöðu ca 30-70 fm, helst
í tenglsum við jogastöð, líkamsrækt eða aðra
sambærilega starfssemi. Vinsaml. hafið samb.
í síma 898 0562 eða netf. grave@islandia.is
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu 150 m² skrifstofuhúsnæði á 1. hæð
við Dalveg 16D, við sömu götu og sýslumanns-
skrifstofan í Kópavogi. Húsnæðið er sem nýtt
og laust 1. apríl nk.
Upplýsingar í síma 893 1090.
Til leigu
120 fm bjart og snyrtilegt atvinnuhúsnæði í
Akralind, Kópavogi. Góð lofthæð og stórar inn-
keyrsludyr. Skrifstofa og snyrtiaðstaða.
Upplýsingar í síma 892 2051.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
DULSPEKI
Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Skyggnilýsingarfundur
María Sigurðardóttir, miðill,
verður með skyggnilýsingarfund
í húsi félagsins á Víkurbraut 13 í
Keflavík sunnudaginn 2. febrúar
kl. 20.30. Húsið verður opnað kl.
20.00. Aðgangseyrir við inngang-
inn. Allir velkomnir.
Stjórnin.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík
Laugardaginn 8. febrúar kl.
14.00 mun Þóra Kristín Art-
húrsdóttir, nuddari með meiru,
halda fyrirlestur í húsnæði fé-
lagsins í Garðastræti 8. Fyrirlest-
urinn nefnist Kínverska spekin
sem nálastungur byggja á.
Aðgangseyrir er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn, kr. 500 fyrir aðra.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
SRFÍ.
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir og Garðar Björgvins-
son michael-miðill starfa hjá
félaginu og bjóða félagsmönn-
um og öðrum upp á einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—
18. Utan þess tíma er einnig
hægt að skilja eftir skilaboð á
símsvara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík
Huglæknarnir Hafsteinn Guð-
björnsson, Kristín Karlsdóttir,
miðlarnir Birgitta Hreiðarsdótt-
ir, Guðrún Hjörleifsdóttir, Laufey
Egilsdóttir, Lára Halla Snæfells,
María Sigurðardóttir, Oddbjörg
Sigfúsdóttir, Rósa Ólafsdóttir,
Skúli Lórenzson og Þórunn
Maggý Guðmundsdóttir starfa
hjá félaginu og bjóða upp á
einkatíma.
Upplýsingar og bókanir eru í
síma 551 8130. Breyttur opn-
unartími á skrifstofu í Garða-
stræti 8. Opið mánudaga, þriðju-
daga og miðvikudaga frá kl. 9—
13, fimmtudaga frá kl. 12—16,
lokað á föstudögum. Heimasíða:
www.salarrannsoknarfelagid.is .
Netfang:
srfi@salarrannsoknarfelagid.is .
SRFÍ.
KENNSLA
Námskeið í baknuddi
helgina 8. og 9. febrúar, frá
kl. 12—16. Ilmolíu- og þrýsti-
punktanudd. Yfir 15 ára reynsla.
Upplýsingar og skráning í s.
562 4745, 896 9653 og 552 1850.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 183238 I
I.O.O.F. 3 183238 Ma. GIMLI 6003020319 II
HEKLA 6003020319 IV/V MÍMIR 6003020319 III
Þorrafundur
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í dag kl. 14.00.
Félag austfirskra kvenna
heldur þorrablót í safnaðarheim-
ili Grensáskirkju mánudaginn 3.
febrúar kl. 20.00.
Stjórnin.
Félagsfundur
Lífssýnar
er þriðjudagskvöldið 4. febrúar
nk. kl. 20:30 í Bolholti 4, 4. hæð.
Fyrirlesari er Hilmar Örn Hilm-
arsson. Fundirnir eru opnir öll-
um og er heitt kaffi á könnunni.
Aðgangseyrir 500 kr.
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11.00. Heilög kvöldmáltíð.
Samkoma kl. 20.00. Mikil lof-
gjörð og fyrirbænir.
Upphafsorð: Unnar Erlingsson.
Friðrik Schram predikar.
Allir velkomnir. www.kristur.is
Í kvöld kl. 19.30 Bænastund.
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Majór Inger Dahl stjórnar.
Brigader Ingibjörg Jónsdóttir
talar.
Mánudagur 3. febrúar kl. 15.00
Heimilasamband.
Sigríður Jóhannsdóttir talar.
Kl. 17.30 Barnakór.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkoma kl. 16:30. Högni Vals-
son predíkar. Lofgjörð, fyrirbæn-
ir og brauðsbrotning. Ungbarna-
kirkja og í Krakkakirkjunni verð-
ur mikið fjör í dag. Lubba og
Láki koma í heimsókn og einnig
verður brúðuleikhús.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sameiginleg samkoma með
Charles Ndifon í Fíladelfíu kl.
16.30 í dag.
Lækningasamkomur með Charl-
es Ndifon í Vetrargarðinum 3., 4.
og 5. feb. í Smáralindinni kl.
19.00 öll kvöldin.
Þriðjudagur: Námskeið „Konur
með takmark“ kl. 10.00. Nám-
skeiðsgjald er kr. 1200. Innifalið
hádegismatur og kaffi.
Fimmtudagur: Konunglegu her-
sveitirnar kl. 17.30.
Laugard.: Samkoma kl. 20.30.
Sunnudagur: Bæna- og fjöl-
skyldudagur kl. 10.00 sem
endar með léttum málsverði kl.
15.00. Samkoma kl. 16.30.
Brauðsbrotning kl. 11:00.
Ræðumaður Vörður L. Trausta-
son.
Lækningasamkoma kl. 16:30.
Charles Ndifon þjónustar og bið-
ur fyrir sjúkum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Mánud., þriðjud. og miðviku-
dag verða lækningasamkomur í
Vetrargarðinum, Smáralind, kl.
19:00 þar sem Charles Ndifon
mun þjónusta.
Mið. Mömmumorgnar kl. 10:00.
Fjölskyldusamv. kl. 18:00.
Lau: Bænastund kl. 20:00.
Bænastundir alla virka morgna
kl. 6:00.
filadelfia@gospel.is
mbl.is
VEÐUR
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
SVÖLURNAR, félag fyrrverandi
og núverandi flugfreyja, færði
Miðstöð heilsuverndar barna
stafræna myndavél og upp-
tökuvél auk tölvu og hugbúnaðar
til myndrænnar úrvinnslu og
gagnavinnslu að gjöf 23. janúar
sl.
Gyða Haraldsdóttir, sviðstjóri
greiningarteymis Miðstöðvar
heilsuverndar barna, tók við
gjöfinni úr hendi Þórdísar Jóns-
dóttur, formanns Svalnanna.
Gyða sagði tækin nýtast á
margvíslegan hátt eins og við
greiningu á þroskafrávikum og
öðrum vandamálum barna. Einn-
ig við gerð fræðsluefnis og rann-
sóknir og þróunarvinnu sem
tengist starfinu. Hún sagði þetta
því kærkomna gjöf. Andvirði
hennar nemur tæpri hálfri milljón
króna.
Miðstöð heilsuverndar barna hef-
ur það hlutverk að vera miðstöð
heilsuverndarstarfs á landsvísu fyr-
ir börn.
Gáfu stafrænar
myndavélar og tölvu
Gyða Haraldsdóttir, sviðstjóri á MHB,
og Þórdís Jónsdóttir, formaður Svaln-
anna, þegar gjafirnar voru afhentar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
TRÚNAÐARMENN Norðuráls á
Grundartanga hafa sent frá sér
ályktun þar sem fram kemur m.a. að
stjórnvöld verði að svara óskum
Norðuráls um orku til stækkunar ál-
versins úr 90 þúsund tonnum í 180
þúsund tonna framleiðslu á ári.
Í ályktuninni er bent á að fjöl-
margir aðrir kostir séu í stöðunni
fyrir stjórnvöld en Norðlingaöldu-
veita. Er þar minnst á Skaftárveitu,
Búðarhálsvirkjun, virkjanir í neðri
hluta Þjórsár og gufuaflsvirkjanir á
hálendinu, Reykjanesi og Hellis-
heiði. „Hægt er að tryggja áfram-
haldandi uppbyggingu og draga
verulega úr því atvinnuleysi sem nú
ríkir og allt bendir til að muni
aukast,“ segir í ályktuninni sem
komið var á framfæri af Rafiðnaðar-
sambandi Íslands.
Stjórnvöld svari
óskum um orku
fyrir stækkun
Trúnaðarmenn
Norðuráls