Morgunblaðið - 17.02.2003, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 C MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RÚNAR Kristinsson, landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu, skrifaði undir nýjan tveggja
ára samning við belgíska 1. deildarfélagið
Lokeren um helgina. Hann leikur því með fé-
laginu til vorsins 2005 en hann hefur verið í
herbúðum Lokeren frá því í nóvember árið
2000. Rúnar hefur átt mjög gott tímabil í vet-
ur, í stöðu afturliggjandi sóknarmanns en á
dögunum sagði hann í viðtali í Morgun-
blaðinu að það væri sannkölluð draumastaða
fyrir sig.
„Ég er mjög bjartsýnn á gengi liðsins
næstu ár og það er gaman að vera í góðu liði.
Ég er mjög ánægður með að þetta skuli vera
komið á hreint og vona að samkomulag náist
sem fyrst við Arnar Þór Viðarsson fyrirliða,
þannig að við verðum áfram fjórir, Íslending-
arnir hjá félaginu,“ sagði Rúnar við Morg-
unblaðið eftir undirskriftina. Hann hefur
skorað 6 mörk í 16 deildaleikjum með Lok-
eren í vetur.
Arnar Grétarsson samdi í síðustu viku við
Lokeren til ársins 2006 og Marel Baldvinsson
er nýkominn til félagsins.
Rúnar samdi við
Lokeren til 2005
Rúnar Kristinsson
LÁNIÐ lék ekki við lið Íslending-
anna hjá Lokeren um helgina. Loke-
ren tapaði fyrsta leik sínum á þessu
tímabili á heimavelli og það á móti
erkióvinunum í Beveren, 1:2. Arnar
Grétarsson sat uppi í stúku þar sem
hann var í eins leiks banni en þeir
Rúnar Kristinsson, Marel Baldvins-
son og Arnar Þór Viðarsson fyrirliði
léku allan leikinn. Lokeren byrjaði
vel. Rúnar var nálægt því að skora
þegar var felldur rétt fyrir utan
vítateig er hann var að fara framhjá
tveimur varnarmönum Beveren.
Rúnar tók spyrnuna sjálfur en
heppnin var ekki með honum, gott
skot en boltinn glumdi í stönginni.
Kiper náði að skora fyrir Beveren
á 33. mínútu. Aftur var Rúnar á ferð
er hann gaf á Kimoto sem skaut í
stöngina. Í seinni hálfleik bakkaði
Beveren og Lokeren komst lítið
áleiðis. Leikmenn Beveren brutu
mikið á Marel og leikmenn Lokeren
voru seinir að gefa á hann og var
hann því nokkrum sinnum dæmdur
rangstæður. Arnar Þór tók auka-
spyrnu, gaf á Bangoura sem skall-
aði yfir úr dauðafæri. Heimamönn-
um tókst þó loks að jafna á 88.
mínútu en heilladísinar voru ekki
með Lokeren því gestirnir gerðu
sigurmarkið rétt um það bil sem
dómarinn flautaði til leiksloka,
klaufalegt mark þar sem markvöð-
ur Lokeren misreiknaði fyrirgjöf
frá gestunum og boltinn datt yfir
hann og í markið.
Paul Put, þjálfari Lokeren, sagði
að sárlega hefði vantað Arnar Grét-
arsson til að dreifa spilinu hratt á
miðjunni. „Það vantaði að láta bolt-
an ganga hraðar á miðjunni og
vantaði okkur tilfinnanlega Arnar
Grétarsson til þess. Eins er ég sam-
færður um að Arnar Þór Viðarsson
fyrirliði hefur verið að hugsa of
mikið um nýjan samning í vikunni
og fannst mér vanta meiri einbeit-
ingu í leik hans.“
Lánleysi er Lokeren tap-
aði fyrsta heimaleiknum
ÞAÐ er nokkuð ljóst að vin-
áttulandsleikir sem fara fram þegar
keppni stendur sem hæst í Evrópu
er tímaskekkja, eins og kom fram í
síðustu viku. Þá fóru fram fjöl-
margir landsleikir og sumir þeirra
sköpuðu ekkert nema leiðindi.
Leikur Englands og Ástralíu í sl.
viku var vægast sagt skrípaleikur
og kom í ljós að margir leikmenn í
byrjunarliði Englands höfðu engan
áhuga. Stemmningin var ein-
kennileg á leiknum, sem sást best á
því að þegar þulurinn á leiknum til-
kynnir að öllu byrjunarliðinu hafi
verið skipt útaf í hálfleik, stóðu
áhorfendur upp og fögnuðu!
Stór hópur leikmanna liðanna
voru með hugann á öðrum stað –
bikarleikjunum, sem fóru fram um
helgina, aðeins tveimur og hálfum
sólarhring eftir landsleikinn.
Síðastliðið sumar urðu þó nokkar
umræður um vináttuleiki íslenska
landsliðsins, en það kom fram að
áhuginn var ekki mikill hjá lands-
liðsmönnum Íslands í leikjum gegn
Andorra og Ungverjalandi. Vin-
áttuleikir eru oft notaðir til tilrauna
og allir leikmenn fá að spreyta sig –
sumir þó ekki nema tvær síðustu
mín. leiksins, eins og gerðist gegn
Ungverjum. Ótímabærar skipt-
ingar í vináttuleik gegn Eistlandi í
Tallinn varð til þess að Ísland tap-
aði. Leikið var við aðstæður sem
voru ekki bjóðandi – í snjókomu á
hálum velli.
Það hafa margir gagnrýnt stöð-
ugar skiptingar á leikmönnum í vin-
áttuleikjum og er Berti Vogts,
landsliðsþjálfari Skotlands, einn af
þeim. Hann var ekki hrifinn af
þeirri taktík sem Sven Göran Er-
iksson, landsliðsþjálfari Englands,
beitti gegn Ástralíu – að skipta út
öllu byrjunarliðinu sínu í hálfleik og
leyfa yngri leikmönnum að spreyta
sig. „Ég hef aldrei og mun aldrei
gera slíkt og tel að stuðningsmenn
liðsins eigi ekki annað skilið en að
sjá þá bestu frá upphafi til enda.
Það er ekki sanngjarnt fyrir áhorf-
endur að fá aðeins að sjá þá bestu í
fyrri hálfleik. Þeir ættu í raun að-
eins að greiða hálft verð fyrir að-
göngumiðann í slíkum tilvikum,“
segir Vogts. Baulað var á leikmenn
Englands þegar þeir gengu af leik-
velli eftir fyrri hálfleikinn og það
var einnig baulað á leikmenn
Frakka í leik þeirra gegn Tékkum í
París, sem þeir töpuðu. Hér á landi
hefur þetta einnig gerst og sendi
þáverandi landsliðsþjálfari, Guðjón
Þórðarson, þá áhorfendum tóninn.
Jacques Santini, landsliðsþjálfari
Frakka, dró ekki í efa rétt áhorf-
enda til þess að láta óánægju sína í
ljós. „Menn verða að sætta sig við að
það er baulað á þá þegar þeir
standa sig illa. Fólk kom til þess að
sjá Frakka vinna. Frakkar töpuðu
og þjóðin er óánægð, ég hef fullan
skilning á því,“ sagði Santini.
Já, það er misjafn metnaðurinn
hjá knattspyrnumönnum, þegar
þeir leika fyrir land sitt og þjóð.
Landslið er ekki einkamál nokk-
urra manna. Það er öllum frjálst að
hafa skoðun á landsliði – á því
hverjir eru valdir til að leika og
hvernig liðið leikur.
Það kom mörgum á óvart sem
hlustuðu á setningarræðu Eggerts
Magnússonar, formanns Knatt-
spyrnusambands Íslands, á ársþingi
sambandsins á dögunum, er hann
sagði að landsliðsmenn hefðu ekki
ánægju af að leika fyrir hönd Ís-
lands. Eggert sagði í ræðu sinni:
„Það er alvarlegt mál fyrir ís-
lenska knattspyrnu þegar sumir af
okkar bestu landsliðsmönnum eru
hættir að hafa ánægju af því að
koma í landsleiki vegna þeirrar sí-
felldu neikvæðu umræðu sem
ákveðinn hluti íþróttapressunnar
heldur gangandi um þessar mund-
ir.“
Já, það er orðið alvarlegt mál,
þegar menn þora ekki að leika fyrir
hönd Íslands vegna þess að menn
leyfa sér að hafa skoðanir á lands-
liðinu.
Svo er það spurningin hvort þeir
sem þola ekki pressuna eigi yfir
höfuð að leika með landsliðinu? Ég
er þeirrar skoðunar að þeir íþrótta-
menn sem eru byrjaðir að ræða um
það að þeir hafi ekki ánægju af því
sem þeir eru að gera, eigi ekki að
leika fyrir hönd Íslands.
Sigmundur Ó. Steinarsson
Berti Vogts Eggert Sven Göran
Vináttulandsleikir
eru tímaskekkja
Úrvalsdeildarliðið var sterkara ígær en heimamenn léku þó
ágætlega. „Við lékum ágætlega á
köflum en áttum í nokkrum erf-
iðleikum með að skapa okkur
marktækifæri. Leikmenn Chelsea
eru mjög góðir og eftir að Grön-
kjær kom inná jókst sóknarþungi
þeirra enda er hann eldfljótur.
Við fengum bæði mörkin á okk-
ur eftir að tapa boltanum illa og
Chelsea sækir hratt á okkur.
Svona gerist þetta oft hjá sterkum
liðum. Þeir voru betri en við, það
er ekki spurning, en við vorum alls
ekki yfirspilaðir,“ sagði Brynjar
Björn, sem lék allan leikinn rétt
eins og Eiður Smári. Bjarni Guð-
jónsson og Pétur Marteinsson
komu hins vegar inn á hjá Stoke í
síðari hálfleik.
Brynjar Björn sagði að nú væri
ekkert eftir hjá Stoke nema ein-
beita sér að deildinni og ekki veitti
af. „Mér sýnist að við verðum að
eiga mjög góðan endasprett ef við
ætlum að ná að halda okkur í
deildinni. Nú er allt annað búið hjá
okkur og því getum við einbeitt
okkur að því að halda okkur uppi,“
sagði Brynjar Björn. Hann bætti
við að um 200 Íslendingar hefðu
verið á vellinum. „Það er alltaf
gaman að vita af landanum í stúk-
unni en maður varð ekkert var við
fólkið innan um hin 26.000,“ sagði
Brynjar Björn.
Það má eiginlega segja að nokk-
urt jafnræði hafi verið framan af
leik með úrvalsdeildarliðinu og
Stoke, sem er í fallbaráttu í næstu
deild fyrir neðan. Jimmy Floyd
Hasselbaink kom heimamönnum
yfir í síðari hálfleik og Jesper
Grönkjær bætti síðara markinu við
seint í leiknum eftir góða stungu-
sendingu frá Eiði Smára.
„Þetta var erfiður leikur eins og
við vissum fyrir. Við þurftum
virkilega að hafa fyrir hlutunum
og gerðum það svo sannarlega.
Stokarar börðust allan tímann og
við vissum að við yrðum að gera
slíkt hið sama ef vel ætti að fara,“
sagði Graeme Le Saux, leikmaður
Chelsea eftir leikinn.
„Við fengum ekki mörg tækifæri
í fyrri hálfleik. Stoke er með gott
lið og leikmenn þess gerðu okkur
lífið leitt. Við fengum færi í síðari
hálfleik og sem betur fer tókst
mér að skora og brjóta ísinn, en
þar sem við hefðum alls ekki gert
okkur jafntefli að góðu héldum við
áfram að sækja,“ sagði Jimmy
Floyd Hasselbaink. Hann sagðist
aðeins óska eftir heimaleik í næstu
umferð. „Ég vil bara fá heimaleik,
Reuters
Jesper Gronkjær lék vel í gær og skoraði síðara mark Chelsea
eftir glæsisendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen.
Íslendingarnir létu lítið fyrir sér fara í Íslend
Chelsea
of sterkt
fyrir Stoke
„MENN hér á bæ eru tiltölulega sáttir við frammistöðuna í bikarnum
þó svo maður sé aldrei sáttur við að tapa,“ sagði Brynjar Björn
Gunnarsson, leikmaður Stoke, eftir að hann og félagar hans féllu úr
bikarkeppninni ensku við að tapa 2:0 á heimavelli fyrir Eiði Smára
Guðjohnsen og félögum í Chelsea.