Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 C 7
Morgunblaðið/Kristinn
Besti leikmaður Aftureldingar í leiknum við Fram, Atli Rún-
ar Steinþórsson, var ekki tekinn neinum vettlingatökum af
Hjálmari Vilhjálmssyni í vörn Fram. Hjálmar var fastur fyrir
og fékk í gær í tvígang tveggja mínútna kælingu fyrir að fara
óblíðum höndum um andstæðinga sína.
r
t
Haukastúlkur áttu í miklumvandræðum með að finna leið-
ina að marki Stjörnunnar og voru
margar sóknir
þeirra lítt sannfær-
andi, mest reynt að
keyra inn í vörn
gestanna og vona
hið besta. Þær skoruðu fyrstu tvö
mörkin með skotum utan teigs og
hraðaupphlaupin brugðust.
Garðbæingar byrjuðu betur með
tveimur mörkum Svanhildar Þeng-
ilsdóttur og áttu góðan kafla strax
eftir hlé en síðan var eins og leik-
mönnum þætti nóg komið með 11:9-
forskot og beina brautin framundan.
Þeir brenndu sig laglega á því því
Haukar unnu upp forskotið, komust
yfir og eru ólíklegastir allra liða til
að hleypa þeim inn í leikinn á ný.
„Við vitum að okkar styrkleikur
er að skora mörk en þeirra að fá
ekki á sig mörk svo að við reyndum
að keyra upp hraðann en þær náðu
eiginlega að halda leiknum á sínum
hraða,“ sagði Inga Fríða Tryggva-
dóttir, sem átti góðan leik á línunni
hjá Haukum. „Þetta hafðist en var
mjög erfitt. Það var ekki skorað
mikið fyrir hlé en svo kom þetta hjá
okkur í síðari hálfleik. Það bætti
upp að Bryndís kom inn á með
glæsibrag og þannig hófst þetta.“
Bryndís markvörður átti stórleik
með þrjú varin vítaskot, Brynja
Steinsen hélt spilinu oft gangandi
auk þess sem Inga Fríða, Tinna og
Harpa Melsteð voru ágætar.
„Við lögðum upp með að stöðva
hraðaupphlaup og loka fyrir send-
ingar inn á línuna á Ingu Fríðu, sem
þær gefa mikið á, enda fórum við
þess vegna í flata vörn en við gáfum
svo leikinn frá okkur eftir hlé,“
sagði Margrét Vilhjálmsdóttir eftir
leikinn. Jelen Jovanovic markvörð-
ur stóð fyrir sínu, Svanhildur Þeng-
ilsdóttir kom sterk inn á línuna eins
og Margrét. Amela Hegic átti einnig
góðan leik, vinnur vel en stundum
eru félagar hennar ekki samstiga.
Haukastúlkur sigu fram úr í lokin
Eins og oftast þegar Haukar og Stjarnan eigast við er taugaspenna
mikil enda var lengi vel öll áhersla á varnarleikinn þegar liðin mætt-
ust á Ásvöllum í gærkvöldi. Það var ekki fyrr en á lokamínútunum
að Haukastúlkur sigu fram úr og sigruðu 18:16 eftir að átta sóknir
Stjörnustúlkna fóru forgörðum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
GUÐFINNUR Kristmannsson
skoraði 6 mörk fyrir Wasaiterna
sem gerði jafntefli, 28:28, við
Warta í sænsku 1. deildinni í hand-
knattleik á laugardaginn. Þetta var
fyrsta stig Wasaiterna í fjórum
leikjum í síðari hluta deildakeppn-
innar þar sem neðstu lið úrvals-
deildarinnar leika ásamt efstu lið-
um 1. deildar frá fyrri hlutanum.
RÓBERT Gunnarsson skoraði
tvö mörk og Tjörvi Ólafsson eitt
þegar lið þeirra, Århus GF, vann
góðan sigur á GOG, 32:30, í dönsku
úrvalsdeildinni í handknattleik í
gærkvöld. Århus GF er í fimmta
sæti með 19 stig, jafnmörg og Aal-
borg HSH sem er í fjórða sætinu.
Kolding er efst með 27 stig en
GOG og Skjern koma næst með 22
stig hvort.
MICHAL Tonar, fyrrverandi
landsliðsmaður Tékklands og leik-
maður með HK á árum áður, er
markahæsti leikmaður þýsku 2.
deildarinnar í handknattleik. Hann
hefur skorað 171 mark fyrir Aue.
Tonar sagði við Handball-World
um helgina að ekki væru lengur
not fyrir sig í tékkneska landslið-
inu. Rüdiger Jurke, þjálfari Aue,
er hins vegar hæstánægður og
segir Tonar besta sóknarmann 2.
deildar.
GYLFI Gylfason skoraði 3 mörk
fyrir Wilhelmshavener sem tapaði
fyrir Gummersbach í Þýskalandi,
35:30. Kyung-Shin Yoon skoraði
13 mörk fyrir Gummersbach í
leiknum.
CHRISTIAN Schwarzer stóð
undir nafni sem besti leikmaður
HM í Portúgal þegar Lemgo sótti
Minden heim í grannaslag.
Schwarzer var illviðráðanlegur á
línunni og skoraði 8 mörk í sigri
Lemgo, 30:22. Gústaf Bjarnason
leikur sem kunnugt er ekki meira
með Minden vegna meiðsla.
EINAR Örn Jónsson skoraði eitt
mark fyrir Wallau-Massenheim
sem tapaði á heimavelli, 25:28, fyr-
ir HSV Hamburg.
DÖNSKU leikmennirnir voru í
aðalhlutverkum hjá Flensburg sem
vann Göppingen auðveldlega á úti-
velli, 35:26. Sören Stryger skoraði
7 mörk og þeir Lars Krogh-Jeppe-
sen og Joachim Boldsen 6 hvor.
JAN Filip, tékkneski hornamað-
urinn, var markahæsti leikmaður
helgarinnar í þýsku 1. deildinni í
handknattleik. Hann skoraði 15
mörk fyrir Nordhorn sem sigraði
N-Lübbecke, 38:29, í gær.
JÓN Andri Finnsson lék ekki
með Aftureldingu gegn Fram í
gær vegna meiðsla. Þá var Har-
aldur Þorvarðarson, línumaður
Fram-liðsins, heldur ekki með fé-
lögum sínum.
BJARKI Sigurðsson, þjálfari
Aftureldingar, lék ekki með læri-
sveinum sínum í gær. Lét hann
nægja að stjórna þeim af festu frá
hliðarlínunni.
FÓLK
Hafnfirðingar byrjuðu á að reynaað keyra upp hraðann og
gerðu tvö mörk á fyrstu mínútun-
um en fylgdu því
ekki eftir og
Garðbæingum, sem
voru einbeittir í
byrjun, tókst gott
betur en að standa í þeim og náðu
10:9-forystu eftir 19 mínútur. Þá
var gestunum tvívegis vísað út af
fyrir litlar ef einhverjar sakir og
það virtist slá þá nokkuð út af lag-
inu. Það er nokkuð sem Haukar
gerþekkja og á meðan Garðbæingar
voru að jafna sig komu sex hafn-
firsk mörk í röð. Hlutskipti
Stjörnumanna var því að reyna að
vinna upp slíkt forskot og þeir
reyndu til að byrja með en réttan
baráttuanda skorti. Snemma í síðari
hálfleik leystist leikurinn síðan end-
anlega upp og mildi að menn fóru
ekki að brjóta hömlulaust af sér því
dómarar héldu sínu striki og menn
vissu oft ekki hverju þeir áttu von á
þegar blásið var í flautuna.
Haukar sýndu góða seiglu, vissu
sem var að með þolinmæði og með
því að halda uppi hröðum leik
myndu mótherjar þeirra fyrr eða
síðar misstíga sig. Það gerðist og
Garðbæingum var um leið refsað
rækilega með nokkrum mörkum í
röð, og Haukar juku forskot sitt
jafnt og þétt. Pétur Magnússon
sýndi oft skemmtileg tilþrif og góð-
an samleik með línumanninum
Vigni Svavarssyni. Jón Karl
Björnsson stal þó senunni þegar
hann kom inn á eftir hlé og skoraði
átta mörk. „Við ætluðum að keyra
upp hraðann eins og gerðist eftir
hlé og reyna að rúlla þannig yfir þá.
Við fengum mikið af hraðaupp-
hlaupum og þá fer svona,“ sagði
Jón Karl.
Stjarnan byrjaði vel en náði ekki
að halda út. „Við byrjum vel með
góða einbeitingu og náðum forystu
en þá gerðist það sem mátti ekki
gerast,“ sagði Sigurður Gunnars-
son, þjálfari Stjörnunnar. „Þegar
við hættum að spila agað er okkur
refsað og það getum við ekki leyft
okkur. Við ætluðum að stöðva
Pauzuolis, spila agaðan sóknarleik
og stilla vel upp í leikkerfin. Það
gekk vel og vörnin var í lagi en þá
skoruðu þeir úr hraðaupphlaupum,
sem við ætluðum að forðast. Svo
þegar við fórum illa með sóknir
okkar, þar á meðal hraðaupphlaup,
og þeir komust í sókn til að skora
náðu þeir umtalsverðri forystu og
slepptu ekki takinu.“
Framan af voru Þórólfur Nielsen
og Agnar Agnarsson lykilmenn í
sókn Stjörnunnar auk þess sem
Árni Þorvarðarson varði vel en
David Kekelia kom til eftir hlé. Vil-
hjálmur Halldórsson stóð vörnina
en tók þátt í sókninni í lokin og
skoraði fjögur mörk.
Skrápur
Hauka
þykkari
DÓMARARNIR voru í aðalhlutverkum í leik Hauka og Stjörnunnar á
Ásvöllum í gærkvöldi. Með tilviljunarkenndum brottrekstrum og
ósamræmi í störfum sínum hvarf einbeiting leikmanna beggja liða
jafnt sem stuðningsmanna út í veður og vind svo að botninn var
dottinn úr leiknum áður en blásið var til leikhlés. Vængbrotið lið
Stjörnunnar mátti síður við því en skrápur þrautreyndra Hauka
reyndist nægilega þykkur til að sigra 37:26.
Stefán
Stefánsson
skrifar
RÚNAR Sigtryggsson og félagar í Ciudad Real
unnu góðan útisigur á Portland, 26:22, í toppslag
í spænska handknattleiknum í gær. Liðin voru
jöfn að stigum en Ciudad Real er nú eitt í öðru
sætinu með 30 stig eftir 17 umferðir, stigi á eftir
Barcelona sem vann Teucro, 33:25. Portland er
með 28 stig og Ademar Leon 27.
Rúnar var ekki á meðal markaskorara Ciudad
Real en flest marka liðsins gerði spænski lands-
liðsmaðurinn Alberto Entrerríos, sjö talsins. Ciu-
dad náði sjö marka forskoti í byrjun, 9:2, og Port-
land tókst aldrei að jafna metin.
Heiðmar Felixson skoraði 2 mörk fyrir Bidasoa
sem gerði jafntefli við Baracaldo á heimavelli,
27:27. Heiðmar kom Bidasoa yfir mínútu fyrir
leikslok en gestirnir náðu að jafna. Bidasona er í
11. sæti af 16 liðum í 1. deildinni með 12 stig.
Góður sigur
Ciudad Real
Rúnar Sigtryggsson
CONVERSANO, lið Guðmundar
Hrafnkelssonar, varð í gær ítalsk-
ur bikarmeistari í handknattleik
með því að vinna Prato í úrslita-
leik, 24:19. Guðmundur lék ekki
með en eins og oft áður komst
hann ekki að vegna fjölda erlendra
leikmanna í liðinu. Júgóslavneska
stórskyttan Blazo Lisicic var í að-
alhlutverki hjá Conversano og
skoraði 7 mörk í leiknum.
Lino Cervar, þjálfari Convers-
ano, heldur því sigurgöngunni
áfram en hann leiddi Króata til
heimsmeistaratignar í Portúgal á
dögunum.
Convers-
ano vann
bikarinn
nn
da
s.
HANDKNATTLEIKUR