Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 12
BJÖRGVIN Björgvinsson, skíðamaður frá Dalvík, hafn- aði í 34. sæti í svigi á heims- meistaramótinu í St. Moritz í Sviss í gær. Hann fékk sam- anlagðan tíma 1.47,49 mín. og varð 6,83 sek. á eftir heims- meistaranum Ivica Kostelic frá Króatíu. Alls komust 64 keppendur í báðar umferð- irnar. Björgvin fór fyrri ferð- ina á 54,31 sekúndu og varð í 44. sæti, en tókst að feta sig upp um tíu sæti í síðari ferð- inni. Björgvin fékk 38,68 fis- stig fyrir árangur sinn. Björgvin í 34. sæti í St. Moritz FÓLK  GUÐMUNDUR Gunnarsson, kylfingur og skipstjóri, varð fyrstur Íslendinga til að fara holu í höggi á þessu ári eftir því sem best er vitað. Draumahöggið sló hann á 12. braut á Burapha-vellinum á Pattaya í Taílandi en þar er hann í golfferð með Úrvali/Útsýn ásamt 50 öðrum Íslendingum. Guðmundur varð sex- tugur í vikunni og því má segja að þetta hafi verið skemmtileg afmæl- isgjöf sem hann gaf sjálfum sér.  TRYGGVI Guðmundsson var maðurinn á bak við sigur Stabæk á Vålerenga, 2:0, í æfingaleik norsku úrvalsdeildarliðanna í knattspyrnu á laugardaginn. Tryggvi skoraði bæði mörk Stabæk í síðari hálfleik, það fyrra með skalla og það síðara eftir að hafa komist einn gegn markverði Vålerenga.  VIKTOR B. Arnarsson lék síð- asta hálftímann með TOP Oss sem vann Dordrecht á útivelli, 2:1, í hol- lensku 1. deildinni í knattspyrnu á föstudagskvöldið.  ÖRVAR Eiríksson, lykilmaður Dalvíkinga í knattspyrnunni um árabil, skoraði tvö fyrstu mótsmörk sín fyrir KA á laugardaginn þegar liðið vann Tindastól, 5:0, í Norður- landsmótinu í Boganum á Akur- eyri. KA hefur unnið alla fjóra leiki sína í mótinu og á aðeins eftir að leika við erkifjendurna í Þór sem hafa aðeins leikið tvo leiki og unnið báða.  KEFLAVÍK sigraði Njarðvík, 3:0, í úrslitaleik ÍAV-mótsins í knatt- spyrnu í Reykjaneshöll í gær. Magnús S. Þorsteinsson, Haraldur F. Guðmundsson og Einar Ottó Antonsson skoruðu mörkin.  VILHJÁLMUR R. Vilhjálmsson skoraði tvívegis fyrir 1. deildarlið Stjörnunnar sem vann úrvalsdeild- arlið FH, 4:1, í leik um þriðja sætið.  ARJAN Kats, hollenskur knatt- spyrnumaður, lék með 1. deildarliði Njarðvíkur í ÍAV-mótinu. Hann dvelur í Reykjanesbæ vegna náms í sjúkraþjálfun og spilar væntanlega með Njarðvíkurliðinu í sumar.  ÁRNI Gautur Arason, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, verður á varamannabekk Rosenborg í dag þegar norsku meistararnir mæta San Jose frá Bandaríkjunum í fyrsta leik La Manga-bikarsins á Spáni. Espen Johnsen, keppinautur hans um stöðuna, fær tækifæri til að sýna sig og sanna.  ÅGE Hareide, þjálfari Rosen- borg, segir að í augnablikinu sé Johnsen betri, þar sem Árni Gautur sé ekki kominn fyllilega í gang eftir aðgerð fyrr í vetur. „Árni verður að ná sama styrk og í fyrra og það veit hann sjálfur,“ segir Hareide, en af- tekur að það muni bitna á Íslend- ingnum að hann sé ekki enn búinn að gera nýjan samning við félagið. Tékkinn Roman Sebrle sigraðimeð nokkrum yfirburðum í mótinu, hlaut 6.228 stig en gestgjaf- inn Erki Nool krækti sér í annað sætið á lokasprettinum, skaust þá upp fyrir Jón Arnar og fékk 6.044 stig. Jón Arnar hafði lengstum ver- ið í öðru sæti en í næstsíðustu greininni, stangarstökkinu vippaði Nool sér yfir 5,25 metra á meðan Jón Arnar fór yfir 4,85. Þarna fékk Nool 33 stigum meira en Jón Arnar og dugði það honum til að halda í annað sætið því þrátt fyrir ágætt 1.000 metra hlaup hans náði hann ekki að stinga heimamanninn af. Erki Nool sýndi mikla baráttu í þrautinni, byrjaði vel og var með forystu eftir fyrstu grein en Sebrle og Jón Arnar stukku framúr honum í langstökkinu og í kúlunni datt hann niður í fimmta sætið. Hann gafst ekki upp, enda vel studdur af fjölmörgum áhorfendum og eftir fyrri daginn var hann í fjórða sæti. Ekki náði hann sér á strik í fyrstu grein sunnudagsins, 60 metra grindahlaupi og datt á ný niður í fimmta sæti. Nú var komið að hans grein, stangarstökkinu og þar skaust hann upp í annað sætið og hélt því í 1.000 metra hlaupinu þó hann yrði aðeins á eftir Jóni Arnari. Sex bestu sjöþrautarmenn heims, sem eru í efstu sætum viku eða tíu dögum fyrir mót, er boðin þátttaka á HM í Birmingham og verður að telja Jón Arnar líklegan til að fá boðskort. Ljóst er að Lev Lobodin frá Rússlandi kemst þang- að enda fékk hann 6.412 stig á móti í heimalandi sínu á dögunum og er það besti árangur ársins. Sebrle kemst líka þangað á 6.228 stigunum sem hann fékk um helgina og Erki Nool er með þriðja besta árangur- inn, 6.004 stig. Næstir koma Jón Arnar og Rússinn Alexandr Pog- orelov. Þar sem stutt er í mót og til- tölulega fá fjölþrautarmót eftir verður að telja líkurnar á að Jón Arnar hafi tryggt sér rétt til keppni í Birmingham miklar. Raunar verð- ur sænska meistaramótið um næstu helgi og um aðra helgi verður það austurríska og aldrei er að vita hvað Bandaríkjamenn gera. En ætli menn sér upp fyrir þá Jón Arn- ar og Pogorelov verða þeir að gera virkilega vel. Jón Arnar hefur tekið þátt í öll- um sex Erki Nool mótunum, en kappinn hóf að bjóða bestu tug- þrautarmönnum heims á þetta mót í Tallinn árið 1998. Jón Arnar hefur tvívegis orðið í öðru sæti, 2000 með 6.149 stig og í fyrra þegar hann hlaut 5.886 stig. Fyrsta árið varð hann í 5. sæti með 5.831 stig, árið eftir, 1999 varð hann sæti ofar með 5.986 stig, síðan kom annað sætið en 2001 endaði hann í 5. sæti með 6.056 stig og 6.028 stig um helgina dugðu í þriðja sætið. Þess má að lokum geta að Ís- landsmet Jóns Arnars í sjöþraut er 6.293 stig og það setti hann á HM í Japan árið 1999. Morgunblaðið /RAXJón Arnar Magnússon stóð sig vel í Tallinn. Jón Arnar og Erki Nool hafa oft háð harða keppni. Nool stökk fram úr Jóni Arnari JÓN Arnar Magnússon fjöl- þrautarkappi varð í þriðja sæti á Erki Nool sjöþrautarmótinu sem fram fór í Tallinn í Eistlandi um helgina. Jón Arnar fékk 6.028 stig sem gætu dugað honum til að komast á Heims- meistaramótið sem fram fer í Birmingham um miðjan næsta mánuð, en þar keppa sex bestu sjöþrautarmenn heims. TALSVERÐ spenna ríkti meðal knattspyrnuáhugamanna í Münc- hen á laugardaginn því þá var sann- kallaður nágrannaslagur þegar 1860 tók á móti Bayern. Hafi heimamenn gert sér vonir um gott gengi fauk það allt út í veður og vind – en þó ekki fyrr en í síðari hálfleik. Skemmst er frá því að segja að eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik þar sem ekkert var skorað tóku gestirnir sig til eftir hlé og rúlluðu yfir heimamenn. Þar fór Mahmet Scholl fremstur í flokki, skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu á 58. mínútu, annað níu mínútum síðar og fullkomnaði síðan þrennuna á 80. mínútu. Tvö mörk önnur litu dagsins ljós í nepjunni í München á laugardaginn og bæði voru gerð í mark heimamanna. „Við gerðum allt rétt í fyrri hálf- leik en síðan kom Mehmet með þetta stórglæsilega mark og það kom Bayern á fulla ferð, skrið sem við réðum hreinlega ekkert við,“ sagði Peter Pacault, þjálfari heima- manna, eftir leikinn. Bæjarar eru á mikilli siglingu og forysta liðsins hélst óbreytt, átta stig, við þennan stórsigur þar sem Dortmund vann sinn leik. Ottmar Hitzfeld, þjálfari liðsins, er þó ekki sammála þeim sem segja að liðið sé óstöðvandi í deildinni. „Þrátt fyrir þennan góða sigur hefur ekkert breyst í deildinni því Dortmund vann líka og það er okkar helsti keppinautur,“ sagði þjálfarinn. Bæjarar hafa ekki unnið ná- granna sína svona stórt síðan árið 1980 þegar þeir unnu 6:1. Í Dortmund tóku heimamenn á móti Þórði Guðjónssyni og félögum í Bochum og unnu 4:1, góður sigur fyrir Evrópuleikinn við Real Madr- id á miðvikudaginn. „Þetta var virkilega skemmtilegt og við sýnd- um að við getum leikið mjög vel,“ sagði Torsten Frings, miðjumaður hjá Dortmund, sem skoraði tvívegis úr vítaspyrnum sem liðið fékk. Heimamenn byrjuðu þó ekki vel því gestirnir komust yfir strax á 8. mín- útu. Þórður lék allan leikinn með Bochum. Heimamenn sóttu mikið í leiknum en fóru illa með færin og það nýttu gestirnir sér til fullnustu. Sigurganga Stuttgart var stöðv- uð en liðið, sem er mjög ungt, var óvænt komið í þriðja sætið í deild- inni. Schalke vann 2:0 og skaust upp fyrir Stuttgart í töflunni. Auðveldur nágranna- slagur í München

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.