Morgunblaðið - 17.02.2003, Síða 9

Morgunblaðið - 17.02.2003, Síða 9
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 C 9 Ég var mikið í lágbrögðum því umtíma átti ég í meiðslum á baki en hef verið að vinna í því. Þá koma aftur mjaðmahreyfingar sem þarf í hábrögð- um sem ég notaði mikið þegar ég var yngri. Mestu skiptir að vinna á góðu bragði,“ sagði meist- arinn. Hvorki var keppt í þyngri flokki kvenna né opnum flokki þar sem hluti keppenda var veðurtepptur en alls áttust við 13 glímumenn, 9 karlar og 4 konur. Keppnin var samkvæmt nýju fyrirkomulagi þar sem búið er að slá saman Landsglímunni og Lands- flokkaglímunni en Bikarkeppnin og Íslandsglíman, þar sem keppt er um Grettisbeltið eru þó enn sjálfstæð mót. HSK vann í stigakeppni félaga með 83,5 stig en HSÞ fékk 37 og UÍA tuttugu. Sigur Ólafs Odds skilaði honum einnig sigri á Meistaramótinu því hann vann bæði í opnum og sínum þyngdarflokki í fyrri tveimur umferð- unum en á sunnudaginn varð hann að lúta í gras fyrir Lárusi Kjartanssyni félaga sínum úr HSK í +85 kg flokki. „Ég held að það hafi ekkert farið úr- skeiðis hjá mér, heldur stóð Lárus sig vel. Við æfum saman en erum líka farnir að æfa með KR og keyrum um tvö hundruð kílómetra til þess. Það er erfitt en þeir sem leggja það á sig uppskera. Það er helsta vandamál okkar í glímunni, við erum með svo fámennan kjarna og þá er langt að fara á milli en það er þá gott að geta æft með góðum mönnum, sem refsa þér um leið og þú gerir mistök.“ Pétur Eyþórsson úr Víkverja, sem vann í –85 kílóa flokki, hafnaði í öðru sæti opna flokksins og Lárus í þriðja en í mótaröðinni varð Lárus í öðru sæti og Jón Smári Eyþórsson úr HSÞ í þriðja. Í –85 kg flokki karla sigraði Víkverjinn Pétur en Snær Seljan Þóroddsson UÍA hafnaði í öðru og í þriðja Jón Örn Ingileifsson úr HSK. Ólafur Oddur var að vonum ánægður með uppskeru helgarinnar. Hann hefur æft síðan 1986 og oft unn- ið í yngri flokkum en hyggur nú á frekari afrek. „Ég hef verið meira og minna á fullu í glímunni, sló aðeins af fyrir nokkrum árum en hef verið að koma upp síðustu árin. Ég hef á þess- um árum safnað í reynslubankann og að standa efstur á verðlaunapalli í dag er virkilega góð tilfinning. Nú er að reyna vera með á næstu mótum og glíma eins og maður. Þrjár síðustu Ís- landsglímur hef ég náð öðru sæti og það segir sig sjálft að nú vill maður eitthvað meira. Sigur þar yrði topp- urinn á ferlinum en það eru margir sem koma til greina sem sigurveg- arar,“ sagði kappinn. Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Oddur Sigurðsson kampakátur með uppskeru helgarinnar. Galdurinn er ekki bara eitt bragð „GALDURINN er að nota öll brögð, ekkert bara eitt sterkt,“ sagði Ólafur Oddur Sigurðsson úr HSK eftir sigur í opnum flokki í þriðju umferð Meistaramóts Íslands í glímu, sem fram fór í Hagaskóla um helgina. Stefán Stefánsson skrifar Valur var ánægður með sigurinnen var hinsvegar ekki sáttur við sitt framlag í leiknum. „Ég er búin að vera veikur í tvær vikur og gat ekki neitt í þessum leik. Ástandið var orðið þokkalegt fyrir nokkrum vikum og ég var að leika ágætlega en ég er nánast á byrjunarreit núna,“ sagði Valur en hann hefur leikið 397 leiki í efstu deild með Njarðvík, Tindastól og Skallagrím. Aðeins fyrrum félagi hans frá Njarðvík, Teitur Örlygsson, hefur leikið fleiri leiki eða 400. Valur sagði tímabilið verið tímabil endalausra breytinga á leikmanna- hóp liðsins sem átti í raun að leika í 1. deild en ekki þeirri efstu. „Það er bú- ið að vera mikið rót á leikmönnum sem hafa ýmist hætt eða farið og aðr- ir hafa komið í staðinn. Slíkt rót veld- ur því að liðið getur aldrei náð neinni dýpt í vörn eða sókn. Það er margt sem við þurfum að geta gert mun betur, sagði Valur sem var ráðinn til starfa til þess að hefja uppbyggingu á „nýju liði“ í Borgarnesi í 1. deild. „Ég gerði samning til tveggja ára og ætlaði að vera með liðið eitt ár í 1. deild og það síðara í úrvalsdeild. Dvölin í 1. deild var afar stutt og nú er markmiðið hjá okkur að halda sæti okkar í deildinni. Það er afar góður andi í þessum hóp þrátt fyrir það sem gengið hefur á í vetur og tímabilið er búið að vera skemmtilegt,“ sagði Val- ur sem keyrir á milli Borgarness og Reykjavíkur nánast daglega. „Er ósáttur við að þurfa að spila“ Eins og áður segir er Valur enn að leika í efstu deild en hann lék sinn fyrsta leik með Njarðvík árið 1979 en hann lagði áherslu á orð sín þegar hann sagði að hann vildi í raun ekki vera að leika með liðinu í dag og leikjafjöldi í efstu deild skipti hann engu máli. „Ég er í rauninni mjög ósáttur við að vera enn að spila í efstu deild. Reynslan nýtist manni vel á þessum aldri þar sem maður hleypur ekki mjög hratt eða stekkur hátt. Það vantar „stóra“ leikmenn í okkar lið og ég þurfti að leysa það með því að spila sjálfur. Ég er því aðeins að reyna hjálpa liðinu en ég hef aldrei hugsað um leikjafjöldann. Á meðan strákarnir hafa gaman af því að leika með mér og ég með þeim er þetta í lagi en ég er aðeins til „bráðabirgða“ í þessu liði. Valur hefur eins og áður segir leik- ið og þjálfað í efstu deild í rúma tvo áratugi og var hann sammála því að körfuknattleikshreyfingin þyrfti að fara í naflaskoðun á sinni starfssemi. „Menn þurfa að setjast niður og ræða með opnum huga um stöðu deildarinnar og um íslensku leik- mennina. Það er mitt mat að við eig- um of fáa leikstjórnendur miðað við hve lágvaxnir íslenskir leikmenn eru,“ segir Valur og leggur til að er- lendir leikmenn verði ekki leyfðir í ís- lenskum liðum í nokkur misseri – þrátt fyrir að þrír slíkir séu í hans röðum þessa stundina. „Íslendingar taki meiri ábyrgð“ „Mér finnst að íslenskir leikmenn þurfi að taka meiri ábyrgð í sínum liðum. Ég naut góðs af því sjálfur að spila í úrvalsdeildinni í sjö ár þar sem útlendingar voru bannaðir. Á þeim tíma þurfti maður að taka af skarið og taka afleiðingunum, Teitur Ör- lygsson, Guðjón Skúlason og Jón Kr. Gíslason nutu einnig góðs af þessu banni á sínum tíma,“ segir Valur sem einokaði efsta sætið í stigaskorun á þessum tíma er hann lék með Njarð- vík. „Mér finnst vanta þennan þátt í íslenska leikmenn í dag að þeir þori og vilji framkvæma hlutina sjálfir og hafi óbilandi trú á því að þeir geti gert það sem þeir geta. Þróunin hef- ur verið sú að liðin hafa tekið erlenda leikmenn til þess að stoppa í götin til þess að geta verið með í baráttunni um titlana en ég tel að það þurfi að byrja á því að banna útlendinga í ein- hvern tíma.“ Valur taldi keppnisfyrirkomulagið ágætt eins og það er í dag og vildi ekki leggja niður úrslitakeppnina. „Mótið sjálft er ekki vandamálið – það eru leikmennirnir, en þeir þurfa að fá tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og axla ábyrgð,“ sagði Valur Ingimundarson en hann komst ekki á blað í leiknum gegn KR sem er óvanalegt en mest hefur hann skorað 29 stig í leik á þessum vetri, gegn Hamarsmönnum í Hveragerði. „Ég naut góðs af því að erlendir leikmenn voru bannaðir í sjö ár á Ís- landi,“ segir Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms í Borgarnesi Morgunblaðið/Ásdís Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms í Borgarnesi. „Það á að banna erlenda leikmenn“ Þrátt fyrir að Valur Ingimundarson verði 41 árs gamall í þessari viku er hinn reyndi körfuknattleiksmaður enn að leika í efstu deild – og má jafnframt segja að hann sé að leika gegn „sínum vilja“ ef svo má að orði komast. Valur stundar nám við Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann er að læra málaraiðn og auk þess þjálfar hann körfu- knattleikslið Skallagríms í Borgarnesi en sl. haust var liðið skráð til leiks í næstefstu deild en þáði sæti í úrvalsdeild eftir að Þór frá Ak- ureyri helltist úr skaptinu rétt áður en Íslandsmótið átti að hefjast. Gengi Skallagríms hefur verið upp og ofan í vetur en þegar Valur var tekin tali sl. föstudag hafði liðið lagt KR að velli í Borgarnesi með minnsta mun, 86:85, og var þetta þriðji sigur liðsins í vetur. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson ’ Á meðan strák-arnir hafa gaman af því að leika með mér og ég með þeim er þetta í lagi en ég er aðeins til „bráðabirgða“ í þessu liði. ‘ Ólafur Oddur safnaði verðlaunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.