Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 2
DAGLEGT LÍF
2 B FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
birtuna
D
ESFORM er heiti á
fyrirtæki Kristins og
fleiri til ellefu ára og
það er jafnframt
vörumerki og heiti
sýningarsalarins og verðandi lista-
miðstöðvar. „Hugsunin var að hafa
þetta alþjóðlegt vörumerki. Þetta
er sett saman úr orðunum design
og form og stafirnir hannaðir þann-
ig að þeir geti verið logo eða vöru-
merki. Þetta er fyrst og fremst
hugsað fyrir alþjóðlegan markað,“
segir Kristinn og vísar til hús-
gagnahönnunar sinnar og smæðar
markaðarins hér heima. „Það tekur
því ekki að standa í hönnun,
vöruþróun og markaðssetningu
fyrir svo lítinn markað. Það hefur
tekið þrjú ár að komast þetta langt
með húsgagnalínuna og mikil vinna
sem liggur að baki.“
Húsgögnin eru flest smíðuð í
Litháen. Miklar kröfur eru gerðar
til handverks og er vörunni ætlað
að keppa við það besta á alþjóða-
markaði, að sögn Kristins. Desform
hefur í gegnum tíðina selt húsgögn
bæði til Evrópu og Bandaríkjanna.
Nú er framleiðsluþróun á nýju
hlutunum lokið og frekari markaðs-
setning er í startholunum.
Munurinn á framhliðum jarðhúsanna er greinilegur. Þegar inn er komið sést yfir ílangan sýningarsalinn af vinnustofu Kristins í enda rýmisins.
Efst er sófinn þekkti Wave, sem Kristinn hannaði árið 1992. Þá eru það tveir
sófar úr nýjustu línu Kristins, Luxor og Racer, sem fást einnig sem stólar.
Úr myrkrinuíÍ niðurgröfnum fyrrver-
andi sprengju- og síðar
kartöflugeymslum, eru
nú sýnd húsgögn ís-
lenska innanhúss-
arkitektsins Kristins
Brynjólfssonar.
Hann hefur umbreytt
einu af sjö jarðhúsunum
í Ártúnsbrekkunni í sýn-
ingarsal og vinnustofu
og framtíðarsýn hans er
að gera húsnæðið að
allsherjar hönnunar- og
listamiðstöð. Stein-
gerður Ólafsdóttir
heimsótti Desform.
KARTÖFLUGEYMSLA VERÐUR SÝNINGARSALUR
MENNINGARKVÖLD íBárðardal þar semyrðu sungin og spiluðlög bárðdælskra höf-
unda var gamall draumur sem rætt-
ist í ágúst 2001, segir Guðrún
Tryggvadóttir, einn aðstandenda
Bárðdælskra tóna, eins og platan
heitir.
Það var á árlegu lokahófi sum-
arhótelsins á Kiðagili sem látið var
til skarar skríða; þar voru flutt 13
lög sem Ólafur Ólafsson, kúabóndi á
Bjarnarstöðum, tók upp, en hann
bæði leikur og syngur á plötunni
auk þess að semja nokkur lög. „Sam-
koman tókst ágætlega og við veltum
því strax fyrir okkur að gefa þetta
út, en þegar farið var að hlusta á
upptökurnar komu hnökrar í ljós,“
segir Ólafur. Þau hugleiddu að taka
aftur upp tvö lög sem voru ónýt, en
ekkert gerðist fyrr en í október í
fyrra; „í lok október var ákvörðun
tekin um að kýla á þetta,“ segir Guð-
rún. „Það er einmitt ríkjandi hér í
Bárðardal að ef fólk vill gera eitt-
hvað, á hvaða sviði sem er, þá er
bara kýlt á það.“
Platan kom út fyrir jól og þau eru
ánægð með útkomuna: „Maður met-
ur það ef til vill mest á viðbrögð-
unum og þau hafa verið mjög góð.
Fólk er bæði ánægt með framtakið
og eins með hve diskurinn er góð-
ur,“ segir Ólafur.
Hann segir fjölbreytnina stærsta
kost plötunnar. „Tónlistin höfðar til
svo margra. Þetta er ef til vill ekki
fyrir yngsta aldurshópinn, en fólk
frá tvítugu til sjötugs hringir í okkur
og lýsir því yfir hve platan sé
skemmtileg.“
Lögin á plötunni eru 19, bæði
gömul og ný; það elsta áratuga gam-
alt en hið yngsta var samið tveimur
dögum fyrir upptöku! Anna Sæunn
Ólafsdóttir, 16 ára dóttir Ólafs á
Bjarnarstöðum, samdi það.
Aðeins eitt lag á plötunni er
þekkt, Ég sé þig eftir Áskel Jónsson.
Þau Ólafur og Guðrún taka svo til
orða að búandi og brottfluttir Bárð-
dælingar komi að gerð plötunnar.
Ólafur Héðinsson frá Bólstað,
fulltrúi í Búnaðarbankanum á Ak-
Músík og mjaltir
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ólafur Ólafsson, kúabóndi á Bjarnarstöðum, sinnir skepnum sínum í fjósinu: „Ég get viðurkennt að oft verða lög
til í fjósinu. Það er gott að hugsa þar þegar maður er einn að brasa.“
Bárðdælingar hafa
löngum verið miklir
músíkmenn. Skapti
Hallgrímsson spjallaði
við tvo bændur, sem ný-
verið gáfu út geislaplötu
ásamt fleirum með ljóð-
um og lögum úr dalnum.