Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 1
F Ö S T U D A G U R 7 . M A R S 2 0 0 3 B L A Ð B
HÖNNUN ER HUGARFAR/2 TÁR ÚR SKÆRUM/2 VAXMYNDIR
MADAME TUSSAUD/4 KÖTTUR OG MÚS HERRAMANNSMATUR/5
BÚSETA FATLAÐRA/6 BLÓMLEG BRÚÐKAUP/7 AUÐLESIÐ/8
Morgunblaðið/Sverrir
Heimir Þór Guðjónsson hjá Rauðhettu
og úlfinum útfærði hár Steinunnar:
„Þetta er það sem okkur finnst einna mest
vera á leiðinni, blanda af stíl 7. og 10. ára-
tugarins. Skáklippingin er einmitt dæmi-
gerð sixtís-tíska – kannski sú lína sem
einna mestu breytti á þeim tíma. Svo er
hárið gífurlega stutt undir, næstum rakað,
sem við köllum undercut.“
Heimir lýsir því hvernig þríhyrningur er
klipptur undan hnakkanum og kanturinn
þar í kring dekktur. „Í yfirhárið setjum
við svo annan heillit, sem er blanda af ljós-
um, fjólubláum og gráum tónum,“ út-
skýrir hann og kveður svonefnda ösku-
tóna njóta vaxandi vinsælda í stað kopars
og gylltra tóna. Annar meginstraumur séu
ósamhverfu línurnar, eins og hér, en þótt
hárið virðist skyggja á annað augað ítrek-
ar Heimir að auðvelt sé að greiða toppinn
frá þegar tískumyndatökum sleppir.
„Þetta er ekki klipping sem eykur slysa-
hættu í umferðinni,“ segir hann og brosir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nonni Quest á hárgreiðslustofunni Kristu klippti Móu þannig:
„Við finnum að síðar línur eru að koma dálítið sterkt inn. Þessi
flokkast sem slík og einkennist af því að hárið virkar jafnsítt, en
samt er heilmikill strúktúr í miðjunni sem gefur höfuðlaginu fyll-
ingu. Þegar hárið er sett upp koma fjaðrandi endarnir líka
skemmtilega út.“ Hann bendir á toppinn sem klipptur er á ská og
opnar þannig fyrir vinstra auga og kinnbein. „Toppurinn er að-
skilinn frá hárinu með hvössu horni og dreginn enn meira fram
með þremur ljósum strípum,“ útskýrir Nonni og bætir við að
klippingin sé mjög meðfærileg eftir að heim er komið. „Fólk er
oft með sömu klippinguna í 3-4 mánuði og þá verður það að geta
greitt sér sjálft. Það á ekki að þurfa að koma á stofuna til þess að
líta vel út. Fyrir myndatökuna flækti ég endana til þess að ná
fram ákveðinni áferð, en möguleikarnir eru annars óteljandi.“
Hárið á Móu er lýst í miðjunni, í kringum fyrrnefndan strúktúr,
en heildarsvipurinn fékkst með náttúrulegu skoli í mahóní-lit.
Tár úr skærum
Fannar Leósson hjá Space vann hárið á
Edith: „Hún var með strípur fyrir, þannig
að ég setti gráa litablöndu yfir. Kaldir lit-
ir, eins og silfurgrár, eru mikið að
koma,“ segir Fannar og bætir við að oft
sé óþarfi að strípa hár upp á nýtt, hægt sé
að fríska upp á það með fljótlegri aðferð-
um sem kosta minna. „Reyndar setti ég
aðeins dekkri, kaldan brúnan lit í topp-
inn, sem er klipptur aflíðandi. Toppar
hafa einmitt verið áberandi að und-
anförnu og verða það enn meira í vor,
þungir eða skakkir. Um þessa klippingu
er að öðru leyti hægt að segja að hún sé
síð með ýktari styttum í hvirflinum.“
Fannar bendir á að áberandi strípur séu
að detta út. „Í staðinn er þeim meira
blandað inn í hárið eins og tónum, þær
eru settar undir svo hárið verði ekki
röndótt. Já, svo eru liðir að koma aftur
eftir talsverða fjarveru – og gefa
skemmtilega möguleika á einföldum og
afslöppuðum hárgreiðslum.“
Klippt á ská yfir brá
Þrír ungir hárgreiðslumenn gefa forsmekkinn að
því sem koma skal í hártísku íslenska vorsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Hártískan vorið 2003
2