Morgunblaðið - 23.04.2003, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 B 3
bílar
B&L frumsýnir helgina 26. og 27.
apríl nk. Getz, nýja smábílinn frá
Hyundai. Steinar Örn Ingimund-
arson, sölustjóri Hyundai, segir
fjöruga frumsýningu í undirbún-
ingi, þar sem litagleði og lífsgleði
verður í fyrirrúmi.
Stór smábíll
Að sögn Steinars er Getz stór
smábíll. „Bæði er hann með eitt
mesta innanrýmið í þessum flokki
og sérlega vel útbúinn að auki.
Sem dæmi um staðalbúnað má
nefna ABS-hemla, fjarstýrðar
samlæsingar og 4 loftpúða. Þá
eru sætin hástæð þannig að þú
færð það ekki á tilfinninguna að
þú sitjir í litlum bíl. Eins og Morg-
unblaðið greindi frá stóð til að
frumsýna Getz um miðjan febrúar,
en þar sem bíllinn seldist upp var
ákveðið að slá því á frest. Það
hefur aldrei gerst áður hjá okkur
að bíll hafi spurst svo vel út að
hann seldist upp áður en við sett-
um hann formlega á markað,“
segir Steinar.
„Við töldum því fara best á því
að bíða aðeins með að frumsýna
hann eða þar til fleiri bílar kæmu
til landsins.“
Ungfrú Ísland.is á Getz
„Vegna þessarar frestunar var
hins vegar ljóst að annar stór við-
burður hjá B&L yrði um líkt leyti
og Getz yrði frumsýndur. „Keppn-
in Ungfrú Ísland.is fer fram í sýn-
ingarsal okkar föstudaginn 25.
apríl nk. Þar sem mikil stemmning
hefur jafnan fylgt þessari keppni,
fannst okkur það bara skemmtileg
tilviljun að frumsýningin skyldi
koma í kjölfar keppninnar,“ segir
Steinar.
„Að sjálfsögðu fer sigurvegarinn
síðan heim að keppni lokinni á nýj-
um Getz, sem hún fær frítt til
ráðstöfunar í eitt ár.“ Grunnverðið
á Getz er að sögn Steinars veru-
lega hagstætt eða frá 1.150.000
kr. „Við teljum Getz því vera mjög
góðan kost sem fyrsta bíl ungs
fólks eða viðbótarbíl fyrir heimilið.
Með hliðsjón af útliti, aksturseig-
inleikum og staðalbúnaði er þetta
bíll sem er hannaður fyrir þá sem
gera kröfur. Þetta lága grunnverð
auðveldar fólki jafnframt að fá sér
sinn óskabíl, þar sem svigrúm er
verulegt fyrir ýmiss konar auka-
búnað á borð við sóllúgu, filmur
eða stærri felgur.“
Hyundai Getz verður frumsýndur
um helgina.
Ungfrú Ísland.is
á Hyundai Getz
INGÓLFUR Arnarson, formaður
Kvartmíluklúbbsins, segir að klúbb-
urinn stefni að því leynt og ljóst að
loka kvartmílubrautinni við Straums-
vík á næstu dögum. Um leið er stefnt
að því að hafa hana opna á föstu-
dagskvöldum í sumar og veita ungum
mönnum aðgang að henni. „Við vilj-
um kenna þeim á brautina og leyfa
þeim að fá útrás. Eins og sakir standa
geta allir farið inn á brautina en við
erum að vinna í því þessa dagana að
setja upp hlið og höfum fengið leyfi
frá Hafnarfjarðarbæ til þess. Ég hef
heyrt að það sé mikill spenningur fyr-
ir því að hafa aðstöðu sem þessa fyrir
unga áhugamenn um akstursíþróttir
opna. Við erum búnir að panta nýjan
ljósabúnað og tölvubúnað og verðum
því vel í stakk búnir að taka á móti
mönnum. Ég veit að þetta mun spyrj-
ast hratt út en við ætlum líka að láta
heyra í okkur til þess að koma þessu
á framfæri,“ segir Ingólfur.
Vilja nýliðun
Hann segir að tilgangurinn sé sá að
hraðakstur sé eingöngu stundaður
undir eftirliti en ekki á götum úti.
Menn geti þarna fengið útrás fyrir
hraðakstursþörf sína. Ingólfur bendir
á að menn hafi verið að fara inn á
brautina án eftirlits og það hafi
stundum endað með ósköpum.
Skemmst er að minnast þess þegar
tveir bílar fóru fram af brautinni og
kviknaði í þeim báðum.
„Við erum á fullu í því að bæta að-
stöðuna og höfum mikinn meðvind í
málinu. Þetta er ekki hugsað sem
tekjulind fyrir Kvartmíluklúbbinn. Við
munum leita að kostendum og um
leið innheimta vægt gjald þannig að
þeir sem annast eftirlit beri ekki
skarðan hlut frá borði. Þetta er hugs-
að sem aukin þjónusta við unga öku-
menn og vonandi ganga þeir um leið í
Kvartmíluklúbbinn,“ segir Ingólfur.
Á milli 100 og 200 virkir félagar
eru í klúbbnum. Ný stjórn Kvartmílu-
klúbbsins vill reyna að opna klúbbinn
og fá nýliðun í íþróttina.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá keppni á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni.
Hraðaksturinn inn á
kvartmílubrautina