Morgunblaðið - 01.05.2003, Page 12

Morgunblaðið - 01.05.2003, Page 12
     B'N N* B''C(* 'N!8 B'8!)!%! A'89B'8! (N* .7517 ( .7597 ./507 ( ./597 15/1 ( 15.1 9537 ( 9531 2588 ( 1571 .2151 ( .2257 25.1 ( 25.2 .9517 ( .0577 8577 ( 8577 29517 ( 20527 .7   .1 '  '     $ #  1)#*5 2)#352"#)5 1"#45 )#)5 2"#452)#*5 BO8'P'*B'8!  '*%'Q7 2"#%5 1"#)5 25#)5 DA'89B'8! '% )* ! HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og Páll Sigurjónsson, fráfarandi stjórnarfor- maður Útflutningsráðs Íslands, undirrituðu rammasamning um samstarf Viðskiptaþjón- ustu utanríkisráðuneytisins (VUR) og Útflutn- ingsráðs á ársfundi ráðsins í gær. Samning- urinn byggir á nýsettum lögum um útflutningsaðstoð og gerir ráð fyrir auknu samstarfi og bættri verkaskiptingu stofnan- anna. Í ræðu sinni á ársfundinum sagði utanrík- isráðherra að nú væru mikil tímamót í opin- berri aðstoð við íslenskan útflutning og gjald- eyrissköpun. „Ný lög um aðstoð við útflutning voru sett í lok síðasta árs og leystu af hólmi eldri lög um Útflutningsráð Íslands. Með nýju lögunum var lagður grunnur að enn frekari efl- ingu íslenskrar útrásar,“ sagði Halldór. Markaðsgjald til fimm ára „Lögum um Útflutningsráð var breytt árið 1998 og þá var hafist handa um aukna sam- tengingu Viðskiptaþjónustu utanríkisráðu- neytisins og Útflutningsráðs. Í nýju lögunum eru stigin stór skref til viðbótar í þessa átt,“ sagði ráðherra og bætti við að jafnframt væri markaðsgjaldið, helsti tekjustofn ráðsins, fest í sessi til fimm ára. Halldór sagði að með nýju lögunum hefði samráðsnefnd Útflutningsráðs verið lögð niður og í staðinn sett á fót pólitísk samráðsnefnd um öll utanríkisviðskipti íslenskra aðila og útflutn- ingsaðstoð. „Samráðið verður leitt af utanrík- isráðherra, sem gefur því pólitískara mikil- vægi. Þetta er nýmæli, en fyrirmyndin er sótt til Írlands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar var kveðið á um að sameina eða sam- ræma ætti starfsemi þeirra opinberu aðila sem sinna alþjóðlegu kynningar- og markaðsstarfi fyrir íslenskt atvinnulíf á kjörtímabilinu, í þeim tilgangi að bæta þjónustu og auka skilvirkni,“ sagði hann. Betri nýting á fjármagni Að sögn Halldórs er samráðsnefndinni ætlað að uppfylla þetta fyrirheit með því að leiða saman alla þá opinberu aðila sem koma með einum eða öðrum hætti að útflutningsaðstoð og hagsmunasamtök þeirra sem búa til afurðir til útflutnings. „Gert er ráð fyrir að opinberir að- ilar og hagsmunasamtök deili hugmyndum um verkefni og áherslur innan samráðsnefnd- arinnar, svo færi gefist á því að stilla saman strengi og nýta betur en áður það fjármagn sem fer til kynningar og markaðssetningar á Íslandi og íslenskum afurðum á erlendri grundu.“ Utanríkisráðherra segir að í þessum breyt- ingum hafi verið horft til nútímalegrar skil- greiningar á útflutningi. „Sögulega séð höfum við horft á sjávarafurðir og iðnaðarvörur sem útflutning. Á síðustu árum hefur vægi þjón- ustuútflutnings aukist stöðugt. Með lögunum frá 1999 var kallað til samráðs við nýja aðila, meðal annars Samtök hugbúnaðarframleið- enda og Bændasamtök Íslands. Nú í hinum nýju lögum eru enn fleiri aðilar kallaðir til sam- ráðs,“ segir hann. „Meðal þeirra sem koma að þessu nýja sam- ráði eru menntamálaráðuneytið og Bandalag íslenskra listamanna, því menning og menn- ingarafurðir eru útflutningsafurðir sem skapa sífellt meiri auð fyrir samfélagið. Þetta er ný- mæli og við þurfum að halda áfram á þessari braut,“ sagði ráðherra í ræðu sinni. Í rammasamningi ráðsins og VUR felst að verkaskipting stofnananna er skýrð og settur á fót sérstakur stýrihópur sem skiptir verkum með aðilum og ákveður samstarfsverkefni. Út- flutningsráð mun leggja tíu milljónir króna á fyrsta samningsárinu til skilgreindra sam- starfsverkefna. Þau geta falist í átaksverkefn- um á vegum sendiráða, eða kaupum á skil- greindri vinnu við markaðsráðgjöf og viðskiptaaðstoðfrá sérfræðingum, íslenskum og erlendum, sem eru hluti af tengslaneti send- iskrifstofu Íslands erlendis. Útflutningsráð tekur jafnframt að sér sölu á þjónustu VUR til innlendra fyrirtækja. Valur Valsson formaður Á ársfundinum var greint frá nýrri stjórn Út- flutningsráðs, sem utanríkisráðherra skipar til tveggja ára í senn. Í henni sitja: Valur Valsson, formaður, Ágúst Guðmundsson, Tölvumiðlun, Grétar Már Sigurðsson, utanríkisráðuneyti, Gunnar Örn Kristjánsson, SÍF, Lárus Ásgeirs- son, Marel, Magnús Kristinsson, Berg-Huginn og Pétur Björnsson, Ísfelli. Varastjórn skipa: Anna Jóhannsdóttir, utanríkisráðuneyti, Einar Guðbjörnsson, Íspólum, Gunnar Tómasson, Þorbirni-Fiskanesi, Kristján Björn Garðarson, Kísiliðjunni, Huld Magnúsdóttir, Össuri, Steinþór Skúlason, Sláturfélagi Suðurlands og Tinna Gunnlaugsdóttir, Bandalagi íslenskra listamanna (BÍL). Tímamót í aðstoð við útflutning Morgunblaðið/Jim Smart Fjölmenni var á ársfundi Útflutningsráðs á Grand hóteli í gær. Útflutningsráð og Viðskiptastofa utanríkisráðuneytisins gera rammasamning um samstarf NÝ VERSLUN Blend of America verður opnuð á neðri hæð í Smára- lind á laugardaginn. Blend of Am- erica er eitt fjölmargra vörumerkja danska fyrirtækisins Brandtex, sem er einn stærsti fataframleiðandi í Norður-Evrópu. Hilmar Binder hjá Blend of Am- erica ehf. segir að hugmyndafræði Blend gangi út á að bjóða allra nýj- ustu tísku. Vel sé fylgst með þróun- inni. „Við leggjum áherslu á að hafa puttann á púlsinum,“ segir hann. Brandtex á einnig vörumerkið 4You, en Blend of America hóf göngu sína sem hliðarmerki 4You fyrir tíu árum. „Á þessum tíu árum hefur orðið til fyrirtæki sem veltir 13 milljörðum á ári og hefur 250 starfsmenn, sem meðal annars hanna yfir 3.000 nýjar flíkur á ári,“ segir Hilmar. Vörur frá Blend of America hafa verið til sölu hér á landi, hjá ýmsum verslunum, síðan 1998. „Við vitum að fatnaður frá fyrirtækinu nýtur mikillar hylli. Stór verslun eins og þessi gerir okkur kleift að bjóða alla framleiðslulínuna í öllum stærðum, frá „extra small“ (XS) upp í XXXL og svo auðvitað alla aukahluti eins og töskur, belti og nærföt, að ógleymdum skóm, sem eru 15% af framleiðslu Blend.“ Í tilefni af opnuninni verður slegið upp hátíð fyrir framan verslunina í Smáralind, milli kl. 13 og 16 á laug- ardaginn. Meðal skemmtikrafta verða hljómsveitin Í svörtum fötum og Auðun „Auddi“ á Popptíví. Morgunblaðið/Sverrir Hilmar Binder fyrir framan hina nýju verslun í Smáralind. Blend of America í Smáralind MINNI reglubyrði og einfaldara eftirlit, tvískipting vinnumarkaðar- ins, lægra matvöruverð, hagræðing og sparnaður í heilbrigðiskerfinu og fækkun náms- ára á grunn- og framhaldsskóla- stigi eru áherslu- atriðin í nýrri skýrslu Samtaka atvinnulífsins (SA) sem Ari Ed- wald kynnti á þriðjudag. Ari sagði í samtali við Morgunblað- ið að fyrir lægi að laun opinberra starfsmanna hefðu um langt árabil hækkað umtalsvert meira en laun á almennum vinnumarkaði sem aftur skapaði alvarlegan sambýlisvanda á tvískiptum vinnumarkaði með ólíka launastefnu og ójöfn réttindi. Þá segir Ari að mikill vöxtur sam- neyslunnar á Íslandi undanfarin ár eigi sér sér að miklu leyti skýringu í launahækkunum hjá opinberum starfsmönnum umfram það sem hefði verið á hinum almenna markaði. Þensla í útgjöldum til samneyslunnar og tvískipting vinnumarkaðarins með mismunandi launaþróun spilaði þarna saman enda um 70% af útgjöld- um ríkisins vegna launa starfsmanna þess. „Þetta er auðvitað mjög alvarleg þróun. Við erum komin með sam- neysluna í 25% af vergri landsfram- leiðslu og erum í því efni komin upp að hlið Noregs og Danmerkur og er- um enn í örari vexti en þeir þannig að það er mjög brýnt að taka á þessari þróun.“ Ari segir það vera mjög erfitt fyrir atvinnulífið ef hið opinbera gefur tón- inn um launabreytingar sem almenni markaðurinn er ekki í stakk búinn til þess að mæta og bjóði þar fyrir utan að mörgu leyti upp á betri starfskjör. „Við teljum að það sé nauðsynlegt að takast á við útgjaldaþensluna hjá hinu opinbera með ýmsum hætti. Hvað varðar heilbrigðismálin, þar sem útgjöldin hafa aukist hröðum skrefum, teljum við að þar þurfi að beita öðrum áherslum við stefnumót- un og fjármögnun þjónustunnar. Við leggjum þar sérstaklega til þjónustu- tengdar greiðslur, hvort sem í hlut eiga opinber fyrirtæki eða einkafyr- irrtæki sem framleiða þjónustuna. Við leggjum einnig áherslu á að aukin útboð og einkaframkvæmd samneysl- unnar geti verið liður í því að gera vinnumarkaðinn einsleitari.“ Ari segir það myndi hafa mjög nei- kvæð áhrif fyrir efnahagsframvind- una á Íslandi ef einkamarkaðurinn litaðist í auknum mæli af því fordæmi sem opinberi geririnn hefur gefið. „Röksemdin um að starfsmenn hjá hinu opinbera séu lakar launaðir á ekki lengur við þegar tekið er mið af hinum miklu launabreytingum þar á undanförnum árum og þá má spyrja sig hvort ekki sé eðlilegt að samræma aðra hluti, eins og t.d. lífeyrisréttindi og margt fleira. Ég tel að svo sé og ég held það verði neikvætt fyrir efna- hagsframvinduna að gera það ekki því á hinum opinbera markaði hafa menn kynt undir og leitt launaþróun sem dregur úr framtíðarvexti þar sem hlutfall launa hefur verið spennt of hátt. Ég tel því að tvískipting vinnumarkaðarins sé vaxandi vanda- mál sem muni leiða til óskilvirkni á vinnumarkaðinum í heild.“ Þarf að taka á tvískipt- ingu vinnumarkaðarins Ari Edwald $  6     ,,   '     7  8   31 0, 01 4, 41 , 1 4661 ?64 4660 4663 ?6/ 466, ?6. 466> ?66 0111 ?10 5 7=#+ " ' +   :  "D 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.