Morgunblaðið - 25.06.2003, Blaðsíða 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
MMC Pajero
Sport Presedent
2500 Diesel, f. skr.d.
29.05.2002, ek. 23 þús. km.,
5 dyra, beinskiptur, 33“
breyting, leðurinnrétting,
sóllúga, dráttarbeisli o.fl.
Verð 3.390.000. Volvo S60 T5. 6/02. Ekinn 8. þús.km, sjálfskiptur. ABS. 18“ álfelgur.leður. topplúga. CD magasín. spólvörn. og margt fleira. Verð 4.230.þús.
Tilboð 3.990 þús. (bein sala).
Verð kr.
4.230.000
BMW er nú að hefja kynningu um
allan heim á nýjum jepplingi, BMW
X3. Myndir sem BMW sendir út af
nýja bílnum voru teknar með mikilli
leynd hér á landi svo það er ljóst að
hróður íslenskrar náttúru mun ber-
ast víða meðal BMW-áhugamanna.
BMW X3 verður með nýju sí-
tengdu aldrifi sem kallast xDrive.
BMW segir að þetta nýja fjórhjóla-
drifskerfi setji ný viðmið hvað varðar
lipurð en það flytur átak frá fram- til
afturöxuls á augabragði eftir þörfum
hverju sinni.
XDrive getur flutt allt aflið til ann-
ars öxulsins þegar þörf krefur og
með því unnið á móti undir- og yf-
irstýringu þegar beygt er á vegi.
Kerfið eykur einnig veggripið með
því að beina aflinu til þess öxuls sem
mesta gripið hefur. Um leið og hætta
er á því að hjól fari að spóla flytur
kerfið aflið til þess öxuls sem meira
grip hefur. Auk þess verður bíllinn
með DSC-stöðugleika- og spólvarn-
arkerfi BMW en það grípur seinna
inn í en xDrive. Hlutverk DSC er að
draga úr afli til þess hjóls sem er far-
ið að missa grip og beita hemlum á
það til að auka stöðugleika bílsins.
BMW X3 verður frumsýndur á
bílasýningunni í Frankfurt í haust og
fer síðan í sölu í framhaldi af því í
Bandaríkjunum og í Evrópu í janúar
næstkomandi. Tvær gerðir verða í
boði í upphafi; báðar með 3,0 lítra,
línusex-vélum. Önnur þeirra brennir
dísilolíu og skilar að hámarki 204
hestöflum en bensínvélin 231 hest-
afli. Báðar verða vélarnar fáanlegar
með fimm þrepa sjálfskiptingu eða
sex gíra handskiptingu.
Að innan verður bíllinn tækni-
legur og í anda nýju 5-línunnar og
innanrýmið mun meira en í 3-línunni.
Bíllinn var líka myndaður í átökum á íslensku malbiki. BMW-menn óku X3 á Skeiðarársandi
þar sem þessi mynd var tekin.
Með íslenska jökla í bakgrunni.
Tæknilegur að innan eins og fimman.
BMW X3
myndaður
á Íslandi
UM tvöhundruð bifhjól óku í fylk-
ingu frá Kópavogi austur fyrir
fjall og enduðu á Selfossi sl.
laugardag. Það var fyrirtækið
Arctic Trucks sem stóð fyrir
ferðinni og komu þátttakendur úr
bifhjólafélögum á Suður- og
Vesturlandi, en félögin Raftar í
Borgarnesi, Sniglar í Reykjavík,
Ernir úr Keflavík og Postular frá
Selfossi tóku þátt í hópakstr-
inum.
„Að lokum voru þetta um tvö-
hundruð hjól. Við lögðum af stað
klukkan ellefu frá okkur hér á
Nýbýlavegi 2 og keyrðum á
Þingvöll og grilluðum þar. Fórum
síðan þaðan á Mótordaga á Sel-
fossi,“ segir Loftur Ágústsson,
framkvæmdastjóri Arctic Trucks
og einn forsprakki ferðarinnar.
Hann segir að halarófan hafi
teygt sig mjög langt og að tugir
kílómetra hafi verið á milli fyrsta
og síðasta manns. „Það var al-
veg ótrúlega flott að sjá þetta.
Við enduðum síðan á Selfossi og
þaðan fór hver til síns heima,“
bætir hann við.
Loftur segir að þetta hafi verið
í fyrsta sinn sem hann tók þátt í
svona hópakstri og segir hann
það gaman að sjá hversu öflug
menning fylgi akstrinum. Hann
lýsir því að hugmyndin að ferð-
inni hafi kviknað í vor. „Ég hélt
að þetta yrðu kannski 50–60
hjól. Ég held að þetta sé í fyrsta
eða annað skiptið sem klúbbarnir
keyra saman. Þetta hefur ekki
oft gerst. En annars var þetta til
þess að hafa gaman af,“ segir
hann og er þess fullviss að ferðin
verði að árlegum viðburði.
Morgunblaðið/Sverrir
Mótorhjól í hópakstri.
Tvöhundruð bif-
hjól í halarófu