Morgunblaðið - 25.06.2003, Blaðsíða 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Chevrolet Corvette árg.1996. 6 gíra, glertoppur, leður, CD. rafmagn í
öllu. Sumarbíllinn í ár. Verð 2990 þús. Tilboð 3.590 þús. (bein sala). Verð kr.
3.590.000
Alþjóðleg dómnefnd bílablaðamanna
hefur ákveðið að veita Volkswagen
viðurkenninguna „Vél ársins“ fyrir
hina nýju V10 TDI dísilvél, sem er
með fjölda nýjunga, eins og hún birt-
ist í lúxustorfærujeppanum VW Tou-
areg og lúxusbílnum VW Phaeton.
V10 TDI stóð fyrir sínu sem dísilvél
og fór á toppinn í 4,0 lítra flokknum –
og kom á óvart – því hún skaut V8 og
V12 bensínvélum frá BMW, Ferrari,
Mercedes-Benz og Porsche ref fyrir
rass.
Þessi viðurkenning byggir á alþjóð-
legum grunni. Alls tóku 50 dóm-
nefndarmenn frá 22 löndum í fimm
heimsálfum þátt í valinu, þar sem far-
ið var yfir allar vélar sem eru í boði í
þessum flokki. Frank Markus frá Car
and Driver í Bandaríkjunum hafði
þetta að segja um V10 TDI: „Ef við
þurfum að spara afl og taka koltvísýr-
ingsmengunina frá stórum jeppum og
fólksbílum með í reikninginn, má ég
þá vinsamlegast fá stóra og aflmikla
dísilvél“. Thomas Imhof, sem skrifar
fyrir „mot“ í Þýskalandi auk annarra
blaða segir: „Þessi dísilvél sameinar
yfirburðaafl og framúrskarandi elds-
neytisnýtingu ásamt fágun í afli og
viðbragði.“ Jake Venter frá Car í Suð-
ur-Afríku bætir við: „V10 TDI gerir To-
uareg að þeim fágaðasta og aflmesta
af öllum lúxusjeppum með dísilvél.“
Þessi tíu strokka dísilvél með for-
þjöppu skilar hámarkssnúningsvæg-
inu, sem er 750 Nm, á allt niður í
2.000 snúninga á snúningshraða-
mælinum. Auk dágóðs rúmtaks upp á
5,0 lítra eru afl og viðbragð á við það
besta sem gerist meðal margra
sportbíla. Það erháþrýst dæluinn-
sprautunin frá Volkswagen og tvöföld
forþjappan sem stendur að baki þess-
um miklu afköstum.
tvinnun afls og sparneytni.
Nú þegar hefur verið skráður 21 To-
uareg hér á landi og umboðið hefur
tekið við 30 pöntunum, þar af þremur
fyrir bílum með V10 dísilvélinni. „Við
kynnum núna í sumar tvær nýjar vél-
ar í Touareg. Annars vegar er um að
ræða 4,2 lítra, V8 bensínvél sem skil-
ar 310 hestöflum og hins vegar V5
TDI vél sem skilar 174 hestöflum,“
segir Jón Trausti Ólafsson, kynn-
ingar- og blaðafulltrúi Heklu.
313 hestöfl og 750 Nm í Touareg og Phaeton
V10 dísilvél VW fékk viðurkenningu.
Grettir Rúnarsson bóndi hefur
skipulagt mikið sumarbústaða-
svæði á jörðinni Svínhaga. Áður
en uppbygging og uppræktun
hefst þótti honum kjörið að fá tor-
færuhjól til að marka vegi og stíga
um svæðið. Ökumenn torfæru-
hjóla láta ekki bjóða sér slíkt
tvisvar heldur hópuðust á svæðið
og héldu þolakstursmót.
Krefjandi keppnisbraut
Keppnisbrautin var fjölbreyti-
leg og mjög krefjandi. Fyrsti hlut-
inn lá um jeppaslóða á grónum
túnum sem skreytt voru hvössu
grjóti og hættulegum þúfum sem
gátu þeytt hjólamönnum harka-
lega af baki, færu þeir ekki með
gát. Því næst þurfti að aka yfir á
sem flaut yfir vélar hjólanna. Þeir
sem fóru of geyst lentu í því að
bleyta vélarnar og stoppuðu í
miðri ánni. Síðan tóku við miklar
sandgryfjur sem buðu upp á brött
börð, kletta sem þurfti með lagni
að klifra yfir, krappar og þungar
sandbeygjur ásamt sandöldum
sem reyndu mikið á ökutækni og
handstyrk. Aftur þurfti að fara yf-
ir ána en nú þar sem hún var dýpri
og straumþyngri. Vatnið flaut yfir
dekk og vélar og straumurinn
gerði mönnum erfitt fyrir með
aksturinn. Brautin endaði síðan í
þýfðu landi sem tæmdi keppendur
orku – væri hún einhver eftir.
Misreiknuðu eyðsluna
Einar Sigurðarson byrjaði dag-
inn með látum. Hann er þekkt þol-
aksturshetja og frægur fyrir mik-
ið þol og hraðan akstur á
óþekktum svæðum. Hann tók
strax forystu en mistök hans við
innskráningu í tímahliðið eftir
fyrsta hring kostuðu hann foryst-
una sem hann náði ekki til baka.
Viggó Örn Viggósson greip gæs-
ina, tók forystuna og vann fyrri
umferðina. Margir biðu eftir af-
rekum frá Ragnari Inga Stefáns-
syni sem keyrði þétt og af miklu
öryggi, en eins og hjá þó nokkrum
ökumönnum misreiknaði hann
eyðsluna í þungum sandinum og
varð bensínlaus. Í seinni umferð-
inni tókst Einari betur upp í
harðri baráttunni við Viggó. Hann
sýndi klærnar strax í fyrsta hring
og náði góðu forskoti. Einar vann
þá umferð og sigraði í keppninni
með samanlögðum árangri beggja
umferða. Viggó náði 2. sæti og
Haukur Þorsteinsson með sitt
ótrúlega úthald og mikla útsjón-
arsemi í þolakstri keyrði af skyn-
semi sem fyrr og þurfti varla að
blása úr nös til að sækja sér
bronsið.
Morgunblaðið/Alfons
Viggó Örn Viggósson á fljúgandi siglingu.
Einar í
fantaformi
Önnur umferð Íslandsmótsins í þolakstri var haldin
á sumarbústaðalandi Grettis Rúnarssonar, bónda í
Svínhaga, um síðustu helgi. Bjarni Bærings mætti
fyrstur á svæðið og segir hér frá keppninni.
ÖNNUR umferð Íslandsmótsins í
ralli var haldin um síðustu helgi og
var ekið um Tröllháls, Uxahryggi,
Kaldadal og Geitháls.
Þrettán áhafnir voru skráðar til
leiks, þar af sex á fjórhjóladrifnum
bifreiðum. Þeir Metró-menn, Sig-
urður Bragi og Ísak, tóku forustu á
fyrstu sérleið, en á hæla þeirra
komu bræðurnir Rúnar og Baldur á
Subaru. Þeir virtust vera nokkuð
svekktir með stöðu mála, enda ekki
vanir að tapa sérleiðum án þess að
lenda í vandræðum með bíl sinn.
Eitthvað var bíllinn þó að hrjá þá á
þessari leið, en því var síðan kippt í
liðinn. Á næstu sérleið sýndu þeir
sitt rétta andlit og náðu 47 sek-
úndum betri tíma en Sigurður og
Ísak. Gríðarleg barátta Sigurðar og
Ísaks skilaði þeim besta tíma á öll-
um öðrum sérleiðum dagsins. Má
þar nefna besta tíma frá upphafi
ralls á Íslandi, bæði á Tröllhálsi/
Uxahryggjum, (31 km), og á Tröll-
hálsi til baka (18 km). Rúnar og
Baldur náðu því fyrsta sæti keppn-
innar með þó einungis 9 sekúndna
forskoti og eru því enn efstir í bar-
áttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Í öðru sæti urðu þeir Sigurður og
Ísak og í þriðja sæti Guðmundur og
Jón á Subaru.
Í 2.000 cc flokki með drifi á einum
öxli náðu þeir Hlöðver og Halldór á
Toyota sigri, eftir að Daníel og
Sunneva skemmdu fjöðrun að aftan
í Honda-bíl sínum.
Úrslit urðu þessi:
1. Rúnar/Baldur, Subaru 0:46:09.
2. Sigurður Bragi/Ísak, Metro
0:46:18.
3. Guðmundur/Jón, Subaru 0:52:09.
4. Hlöðver/Halldór, Toyota 0:53:34.
5. Daníel/Sunneva, Honda 0:54:08.
6. Sighvatur/Úlfar, Cherokee
0:53:12.
7. Ingólfur/Kolbeinn, Suzuki
0:59:44.
8. Ingvar/Jón, Toyota 1:00:14.
9. Sigurður/Elsa, Toyota 1:07:02.
10. Guðmundur/Borgar, Renault
1:11:18.
11. Þorsteinn/Þórður, Mazda, luku
engri leið (gírkassi brotinn).
12. Kristinn/Jóhannes, Nissan, luku
einni leið (út af/brutu dekk).
13. Þorsteinn/Witek, Renault, luku
þremum leiðum (bilaður gír-
kassi).
Það var Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur, með Harald Bjarma
Pálsson keppnisstjóra í fararbroddi,
sem hélt þessa keppni.
Næsta keppni er 26. júlí í Skaga-
firði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Einar Briem
Rúnar og Baldur á Geithálsinum.
Rúnar og Baldur klár-
uðu á einni sérleið
Rúnar Jónsson á Subaru og Sigurður Bragi Guðmundsson á Metro.