Morgunblaðið - 25.06.2003, Page 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000 480 8000
SELFOSSI
Toyota Land Cruiser VX. 38'' breyttur
árg. 1996 , ek. 294. þús. Verð 3,490,
beinskiptur, leður, topplúga, aukatankur,
toppbreyttur bíll.
Toyota Land Cruiser 100 TDI. árg. 02,
ek. 25 þús., leður, topplúga, tölvukubbur,
með öllu- klassa bíll. Verð 6.290
Toyota Avensis VVTI. árg. 2001, ek. 34
þús. Verð 1.690, sjálfskiptur, svartur,
álfelgur o.fl.
Aprilia MX 50. Verð 375 þús. Nýtt.
Vantar bíla á skrá og staðinn! Brjálað að gera í „sveitinni“.
Vantar t.d. BMW X5! diesel, 90-100 Cruisera o.fl.
Musso Grand Luxe TDI. 12/99. Ekinn 99 þús. km. 5 gíra. 155 hö.
35“breyttur. Dráttarkúla, loftdæla. o.fl. o.fl. Verð 2.790.000. Verð kr.
2.790.000
NÝIR bílar hafa ekki beinlínis
streymt frá Mitsubishi á undanförn-
um árum en nú er að verða mikil
breyting þar á. Nýlega kom á mark-
aðinn jepplingurinn Outlander sem
hefur hlotið verðskuldaða athygli og
vissulega hefur Pajero-jeppinn verið
endurnýjaður reglulega. En alls ráð-
gerir Mitsubishi að senda frá sér
fimmtán nýjar gerðir á næstu fimm
árum. Einn af þessum bílum er nýr
Lancer sem var kynntur blaðamönn-
um í síðustu viku í Finnlandi.
Langbakur og stallbakur
Lancer-nafnið er 30 ára gamalt og
hefur fyrir löngu fest rætur hér á
landi. Samt eru sjö ár síðan nýr
Lancer kom á markað og markaðs-
hlutdeildin nánast horfið. Þetta þótti
jafnan traustur fólksbíll og hafði líka
þá sérstöðu að vera til með sítengdu
aldrifi. Mitsubishi hefur reyndar í
ljósi lítillar eftirspurnar í Evrópu eft-
ir fjórhjóladrifsbílum í þessum
stærðarflokki ákveðið að bjóða hann
eingöngu með framdrifi. Einnig
verður hann einungis fáanlegur í
tvenns konar byggingarlagi, þ.e.a.s.
sem stallbakur og langbakur. Hann
verður framleiddur með þremur
gerðum bensínvéla, 1,3, 1,6 og 2,0
lítra en einungis þær tvær síðar-
nefndu munu rata hingað til lands og
engin dísilvél er í augsýn, sem hefði
getað stuðlað að enn frekari sölu á
bílnum í Evrópu.
Lancer var prófaður bæði í stall-
baks- og langbaksgerðinni með báð-
um vélunum og bæði sjálfskiptur og
beinskiptur. Stallbakurinn er fremur
hefðbundinn í byggingarlagi og kall-
ar í raun á litla athygli. Athyglisvert
er að Mitsubishi býður ekki upp á
hlaðbaksgerð sem hefur verið ein
vinsælasta gerð fólksbíla í Evrópu
undanfarin ár. Engu að síður má
ætla að stallbakurinn falli vissum
kaupendahóp vel í geð – þeim sem
vilja traustlega byggða og hefð-
bundna bíla til að sinna grundvall-
arþörfum í flutningi milli staða.
Laglegur langbakur
Frágangur er allur með ágætum
að innan þótt ekki sé hönnunin æv-
intýraleg á nokkurn hátt – allt er á
hefðbundnum og traustum nótum.
Reyndar virkar mælaborðið dálítið
plastlegt og ókostur er að ekki eru
innbyggð hljómtæki. Bíllinn býður
upp á gott rými – sömuleiðis fóta-
rými í aftursætum fyrir fullvaxna.
Ekki er þó aftursætisbekkurinn á
sleða eins og sumir keppinautarnir.
Ljóst er að Mitsubishi ætlar ekki að
bjóða fjölnotabílsgerð á grunni Lanc-
er heldur ætlar fyrirtækið að reiða
sig áfram á Space Wagon og einn af
nýju bílunum, Grandis, sem leysa
mun Space Wagon af hólmi. Sá bíll er
væntanlegur á markað á næsta ári.
Ólíkt laglegri er langbakurinn með
sína háu hliðarlínu og flatan aftur-
endann með stórri rúðu og háum aft-
urljósalugtum. Hann er líka nokkru
lengri en helstu keppinautarnir og
virkar rúmbetri. Þó dregur stórt
hólfið fyrir fullvaxið varadekkið
nokkuð úr plássinu í farangursrým-
inu. Auðvelt er að stækka rýmið mik-
ið með því að fella niður aftursæt-
isbökin.
Lipur gírskipting
1,6 lítra vélin dugar þessum bíl
þokkalega en með sjálfskiptingunni
er reyndar orðið lítið afgangs af afli,
sérstaklega ef bíllinn er fulllestaður.
Vélin er 98 hestöfl og verður án efa
sú vél sem íslenskir kaupendur kjósa
sér. Í beinskiptum bílnum skilar hún
bílnum úr kyrrstöðu í 100 km á klst á
12,6 sekúndum. Þeim sem geta unað
við beinskiptingu er ráðlagt að íhuga
fremur þann kost með þessari vél –
ekki síst í ljósi þess að þar hafa þeir
yfir fimmta gírnum að ráða en sjálf-
skiptingin er fjögurra þrepa. Gír-
skiptingin er lipur og nákvæm og
sama má reyndar segja um sjálf-
skiptinguna, sem er mýktin uppmál-
uð og auk þess með handskiptivali.
Skemmtileg Sport-útfærsla
Einnig var prófaður langbakur
með 2,0 lítra vél í svokallaðri Sport-
útfærslu. Þar er á ferðinni verulega
skemmtilegur akstursbíll með stífari
fjöðrun og 3 cm lægri þakhæð en
Comfort-útfærslan. Auk þess er
hann á 16 tommu álfelgum í stað 15
tommu stálfelgna á Comfort, með
sportsætum, hvítum mælum og
Momo-sportstýri. Sport-útfærslan
er einnig fáanleg með 1,6 lítra vél-
inni.
Reynsluaksturinn fór fram í
grennd við bæinn Juväskylä þar sem
nokkrar af sérleiðunum í Þúsund
vatna rallinu finnska liggja. Það
gafst því gullið tækifæri til að prófa
bílinn á lausamöl og vakti veggrip
bílsins mikla ánægju undirritaðs.
Hann undirstýrir ekki að ráði og á
mölinni var auðvelt að ná fram yf-
irstýringu og „slæda“ afturendanum
í anda Makkinen og félaga.
Hekla hf., umboðsaðili Mitsubishi,
hefur ekki tilkynnt verð á bílnum
sem kemur á markað hérlendis í
næsta mánuði. Líklegt er þó að
Lancer verði á svipuðu verði og sam-
bærilegar gerðir Toyota Corolla,
sem þýðir frá um 1,7 milljónum
króna. Helstu keppinautarnir eru
Ford Focus, VW Golf, Opel Astra,
Toyota Corolla, Renault Mégane og
Peugeot 397.
Momo-sportstýri og sportsæti fylgja
Sport-útfærslunni.
Afturendinn á langbaknum er flatur
og með háum afturljósum.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Í Sport-útfærslu er bíllinn 3 cm lægri og á 16 tommu álfelgum.
Vél: 1.584 rúmsentimetr-
ar, fjórir strokkar,
16 ventlar.
Afl: 98 hestöfl við
5.000 sn./mín.
Tog: 150 Nm við
4.000 sn./mín.
Eyðsla: 7,0 lítrar í
blönduðum akstri.
Hröðun: 12,6 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði:
181 km/klst.
Lengd: 4.485 mm.
Breidd: 1.695 mm.
Hæð: 1.480 mm.
Eigin þyngd:1.275 kg.
Hemlar: Diskar, kældir
að framan.
Loftpúðar: 6.
Umboð: Hekla hf.
Mitsubishi Lancer 1.6
Station Wagon
Nýr Lancer með
langa sögu Varadekk í fullri stærð gengur á farangursrýmið.
Lancer er lengri og rúmbetri en keppinautarnir.
REYNSLUAKSTUR
Mitsubishi Lancer 1.6 Station Wagon
Guðjón Guðmundsson
Allt með hefðbundnu sniði í Comfort-
útfærslu.
gugu@mbl.is