Morgunblaðið - 25.06.2003, Page 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
VOLKSWAGEN hefur
ekki boðið upp á eina
vinsælustu gerð bíla í
Evrópu, þ.e.a.s. fjölnota-
bíl í millistærðarflokki,
fyrr en núna. Sex árum
eftir að Opel Zafira var
kynntur með sætum fyr-
ir sjö manns er kominn
sjö sæta keppinautur frá
VW og kallast hann
Touran. Segja má að
biðin hafi verið þess virði því VW
hefur náð öllu því sem prýða má
góðan fjölnotabíl út úr þessum bíl,
þ.e. mikið rými, gott aðgengi,
vandaðan frágang og vel heppn-
aðan undirvagn.
Sami undirvagn og í næsta VW Golf
Undirvagninn er reyndar sá
sami og verður í fimmtu kynslóð
VW Golf sem kemur á markað á
næsta ári. Hér á landi fæst bíllinn
núna eingöngu með 1,6 lítra FSI-
vél, sem nýlega vann til verðlauna
Autocar í Bretlandi fyrir tækninýj-
ung. Hann fæst ekki sjálfskiptur
heldur eingöngu með sex gíra
handskiptingu sem er í senn lipur
og skemmtileg í notkun. Sjálfskipt-
ingin verður síðan í boði í sept-
ember.
Að utan er bíllinn hinn laglegasti
þótt ekki sé verið að brjóta blað í
hönnun fjölnotabíls. Stórar rúður
og há hliðarlína er í takt við aðra
fjölnotabíla en athygli vekur að
stefnuljós eru á neðanverðum hlið-
arspeglum eins og á dýrari gerðum
bíla og er stefnuljósið með ak-
reinablikki; það nægir sem sé að
styðja létt á stefnuljóssarminn til
þess að ljósin blikki þrisvar sinn-
um, t.d. þegar skipt er um akrein.
Þægilegur búnaður.
Gott aðgengi
Aðgengi að bílnum er mjög gott.
Hurðirnar opnast vel og hátt er til
lofts inni í bílnum. Þetta gerir að
verkum að þægilegt er að setjast
inn í hann og fara út úr honum.
Gott rými er í miðjuröðinni og
hægt að færa þar sætin, sem öll
eru sjálfstæð, á sleða til að auka
fótarými eða flutningsrými eftir
atvikum. Þriðja sætaröðin er öllu
jöfnu felld ofan í gólfið en dregin
upp þegar hana þarf að nota. Þetta
eru tvö lítil sæti og sitja fullorðnir
í keng í þeim en þau henta smærri
farþegum enda með þriggja
punkta beltum og hnakkapúðum.
Ókosturinn við þriðju sætaröðina
er sá að afturdekkið er þá geymt
undir bílnum.
Til þess að komast í þriðju sæta-
röðina er miðjusæti fellt upp að
fremsta farþegasætisbaki og er að-
gengið þá gott. Hægt er á einfald-
an hátt að taka öll þrjú miðjusætin
úr bílnum ef ætlunin er að breyta
Touran í hálfgildings sendibíl.
Athyglisvert er að sjá hve vel
Touran er búinn í grunninn og
þarna setur VW nýjan staðal í
þessum flokki bíla. Staðalbúnaður
er sjö sæti og hann kemur með sex
gíra beinskiptingu sem er óvenju-
legt í þessum flokki. Að auki eru
þarna að finna geymsluhólf út um
allan bílinn, alls 49 talsins, sex ör-
yggispúða, diskabremsur á öllum
hjólum með ABS-kerfi og þá er
þarna líka að finna ESP-stöðug-
leikastýringu sem er aftengjanleg,
og spólvörn ásamt spyrnustýringu.
Hljómtækin eru með átta hátöl-
urum. Sömuleiðis er loftpúði í
fremra farþegasæti aftengjanlegur
þannig að þar er óhætt að hafa
barnabílstól. Þá eru tvær ISOFIX-
festingar fyrir barnabílstóla í
miðjusætum.
Frágangur er mjög vandaður og
efnisval í takt við aðra bíla VW.
Ökumannssæti og farþegasæti eru
með hæðarstillingu og milli sæt-
anna er snoturlega klædd armhvíla
með hirslu.
Stífur í fjöðrun
VW hefur líka tekist vel upp
með aksturseiginleika þessa bíls.
Þótt undirvagninn sé hinn sami og
í næstu kynslóð Golf er óvíst hvort
aksturseiginleikunum svipi saman
því Touran er með talsvert lengra
hjólhafi. Bíllinn liggur vel á vegi og
fjöðrunin er fremur stíf og jafnvel
höst þegar ekið er í holur. Vélin
skilar góðri vinnslu á háum snún-
ingi og skiptingin er sportlega
lággíruð. Það má hafa gaman af
því að aka þessum bíl en bent skal
á að hann verður einnig fáanlegur
síðar meir með 2,0 lítra, 150 hest-
afla bensínvél og tveimur gerðum
dísilvéla, þ.e. 2,0 lítra, 136 hestafla
og 1,9 lítra, 100 hestafla.
Grunngerðin, Basicline, kostar
2.250.000 kr. með beinskiptingunni
en verðið hækkar um 200.000 kr.
fyrir Trendline, þar sem við bætist
16 tommu felgur, krómlistar, þoku-
ljós, hraðastillir, hiti í framsætum
og álklæðning í innréttingu. Sjálf-
skiptur kemur bíllinn, eins og fyrr
segir, í september og fyrir sjálf-
skiptinguna þarf að greiða auka-
lega 180.000 kr.
Helsti keppinauturinn er Opel
Zafira sem kostar frá 2.390.000 kr.
með 1,8 l vél. Hyundai Trajet er
líka sjö manna bíll og kostar frá
2.190.000 kr., en fimm manna Ren-
ault Scénic kostar frá 1.990.000 kr.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölnotabílslagið leynir sér ekki.
Touran
með allar
lausnirnar Snotur frágangur er á bílnum. Þriðja sætaröðin fellur slétt ofan í gólfið.
REYNSLUAKSTUR
Volkswagen Touran 1.6 FSI Basicline
Guðjón Guðmundsson
Alls eru 49 geymsluhólf í bílnum.
Aftursæti eru á sleða og borð aftan á sætisbaki.
Mælar eru með baklýsingu.
gugu@mbl.is
Vél: Fjórir strokkar FSI
(Fuel Stratified injection).
Afl: 115 hestöfl við 5.800
snúninga á mínútu.
Tog: 155 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Lengd: 4.391 mm.
Breidd: 1.794 mm.
Hæð: 1.652 mm.
Farangursrými: 695–
1.989 lítrar.
Sæti: Sjö.
Gírkassi: Sex gíra
handskiptur.
Hröðun: 11,9 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði:
186 km/klst.
Hemlar: Diskar, ABS.
Eyðsla: 7,4 lítrar í
blönduðum akstri.
Hámarkshleðsla: 667 kg.
Eigin þyngd: 1.423 kg.
Verð: 2.250.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Volkswagen Touran
1.6 FSI Basicline