Morgunblaðið - 30.06.2003, Blaðsíða 1
2003 MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SVEIT SH SIGURSÆL Á AMÍ / B6
Davíð hættur
í Gróttu/KR
DAVÍÐ Örn Ólafsson hand-
knattleiksmaður er hættur í
Gróttu/KR en hann átti tvö
ár eftir af samningi sínum
við Seltjarnarnesliðið. Dav-
íð fór fram á það við stjórn
handknattleiksdeildarinnar
að verða leystur undan
samningi og varð hún við
því en Davíð ákvað að hætta
eftir ágreining við stjórn-
armenn félagsins.
Davíð, sem er 28 ára gam-
all hornamaður, hefur leikið
með Gróttu/KR undanfarin
þrjú ár en hann lék þar áður
með Val. Davíð segist ekki
vera búinn að taka ákvörð-
un um hvar hann spilar á
næstu leiktíð en líklegast sé
þó að hann gangi í raðir
sinna gömlu félaga í Val.
Grindvík-
ingar
ræða við
Elttör
INGVAR Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Grindavíkur,
er nú staddur í Klakksvík í
Færeyjum til að ræða við
Hjalgrím Elttör, sóknar-
mann KÍ-liðsins. Það dylst
engum að Grindvíkingar
þurfa sárlega á sóknar-
manni að halda eftir að ljóst
var að Grétar Hjartarson,
skæðasti sóknarmaður liðs-
ins undanfarin ár, gæti ekk-
ert leikið með liðinu í sumar
sökum ökklameiðsla.
Ingvar var á vellinum í
gær og sá KÍ leggja FS Vág-
um að velli með tveimur
mörkum gegn engu. Í leikn-
um skoraði Elttör auk þess
sem einum leikmanni FS
Vágum var vikið af leikvelli
eftir að hafa brotið á hon-
um. Elttör er tvítugur sókn-
armaður með 8 landsleiki að
baki og þykir einn efnileg-
asti leikmaður Færeyja. Ís-
lenskir knattspyrnu-
áhugamenn gætu munað
eftir Elttör en hann kom inn
á sem varamaður í leik Ís-
lands og Færeyja á Laug-
ardalsvellinum sem fram
fór fyrr í þessum mánuði.
ur þekkt,“ segir Vanda Sigurgeirs-
dóttir, þjálfari KR. „Í vetur var þetta
orðið það slæmt að ég var sjálf farin
að spila. Ég veit ekki hverju er um að
kenna því það er óvenjumikið um
meiðsl hjá öllum félögum í ár.
Heyrst hafa raddir þess efnis að sí-
breytilegt undirlag á knattspyrnu-
völlum kunni að vera ástæðan, en ég
skil það ekki, því áður en knatt-
spyrnuhallirnar komu voru undir-
Þá mun landsliðsmiðvörðurinnGuðrún Sóley Gunnarsdóttir
ekki leika meira með KR í sumar því
hún fór í aðgerð á ökkla á dögunum
og verður farin út til Bandaríkjanna
til náms þegar hún er orðin leikfær.
Þá hefur Ásthildur Helgadóttir
ákveðið að halda til Svíþjóðar í nám.
Þetta tímabil hefur verið það erf-
iðasta frá því að ég hóf þjálfun. Það
eru miklu meiri meiðsli en ég hef áð-
lagsbreytingarnar meiri. Nú þegar
ég hef misst nokkrar stúlkur úr
hópnum erum við orðnar afar fá-
mennar. Hins vegar er ég mjög
ánægð með frammistöðu minna leik-
manna það sem liðið er af tíma-
bilinu,“ sagði Vanda en útilokaði að
hún muni taka fram skóna.
KR liðið varð á síðustu leiktíð Ís-
lands og bikarmeistari og tapaði að-
eins einum leik allt leiktímabilið. Í ár
er liðið í efsta sæti úrvalsdeildar með
19 stig en er dottið úr bikarkeppn-
inni eftir að hafa tapað gegn ÍBV í
Vestmannaeyjum s.l. föstudags-
kvöld. Næsti leikur KR er gegn FH í
Frostaskjóli n.k. fimmtudag.
Mikið um meiðsli
í herbúðum KR
MIKIL meiðsli hrjá kvennalið KR í knattspyrnu. Það nýjasta er að
Erna Erlendsdóttir er með slitið krossband í hné. Erna er ekki sú
eina sem er frá vegna slitins krossbands því Katrín Ómarsdóttir og
landsliðskonan Elín Jóna Þorsteinsdóttir eru þjakaðar af sömu
meiðslum.
Reuters
Liðsmenn Kamerún koma til leiks gegn Frökkum í úrslitum Álfukeppninnar í knattspyrnu í Frakk-
landi síðdegis í gær. Evrópumeistarar Frakka fóru með sigur af hólmi í leiknum, 1:0, með gull-
marki frá Thierry Henry á 97. mínútu. Leikurinn bar þess merki að hann var leikinn til minningar
um Marc-Viven Foe, kamerúnska landsliðsmanninn, sem lést í síðustu viku í leik Kamerún og
Kólumbíu í undanúrslitum keppninnar. Til að heiðra minningu Foe klæddust leikmenn Kamerún
keppnistreyju með númeri Foe fyrir og eftir leik og við verðlaunaafhendinguna. Einnig héldu þeir
á lofti stórri mynd af leikmanninum. Foe var 28 ára og lék 62 landsleiki fyir Kamerún.