Morgunblaðið - 07.07.2003, Side 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 2003 B 5
sáttur við leik sinna manna. „Við
spiluðum vel í leiknum. Við byrj-
uðum frekar varfærnislega, ætl-
uðum okkur að sækja hratt á þá
og ég myndi segja að fyrri hálf-
leikurinn hafi verið allt í lagi af
okkar hálfu en ég var mjög
ánægður með hvernig liðið spil-
aði í seinni hálfleik.
Þetta var bara spurning um að
við myndum ná að skora annað
markið, sem tókst því miður ekki
þrátt fyrir fjöldamörg marktæki-
færi. Eftir að við fengum á okkur
fyrra markið þá virtist koma
stress í mannskapinn og þeir ná
svo að skora, í varnarmann og
inn,“ sagði Þorlákur Árnason
þjálfari Vals.
ÞORLÁKUR Árnason, þjálfari
Vals, var ekki sáttur við dóm-
gæslu í leiknum gegn Fram í gær
og fannst mjög á sitt lið hallað.
„Það væri mjög gott að fá hlut-
lausa dómgæslu framvegis. Þetta
var mjög ósanngjarn víta-
spyrnudómur eins og sennilega
allir sem voru á vellinum sáu.
Mér finnst hafa verið verulega
hallað á okkur í sumar hvað
þetta varðar. Ég veit ekki hvort
menn séu búnir að ákveða það að
gefa öðrum meira en okkur en
það lítur oft þannig út. Við get-
um ekki annað en haldið áfram
og lagt okkur fram og vonað að
dómararnir geri það líka“.
Þorlákur var hins vegar mjög
„Vil hlutlausa dóm-
gæslu framvegis“
ÞAÐ vakti athygli þegar flautað
var til leiks Fylkis og KA í gær að
í byrjunarliði Fylkis voru tíu leik-
menn sem eru aldir upp í félag-
inu. Aðeins Eskfirðingurinn Valur
Fannar Gíslason kemur annars
staðar að. Það er því greinilegt
að öflugt yngri flokka starf Ár-
bæjarliðsins skilar sér vel.
Þrír nafnar
hjá KA
Annað sem vakti athygli manna
í upphafi leiks var að í liði KA
voru þrír sem heita Þorvaldur.
Fyrstan skal telja þjálfarann Þor-
vald Örlygsson, þá fyrirliðann
Þorvald Makan Sigbjörnsson og
loks Þorvald Svein Guðbjörnsson.
Fjölmargir
Fylkismenn
Fram 2:1 Valur
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin,
8. umferð
Laugardalsvöllur
Sunnudaginn 6. júlí 2003
Aðstæður:
Frábært knattspyrnuveður.
Hægviðri, skýjað og 14 stiga
hiti. Völlurinn frábær.
Áhorfendur: 1.027
Dómari:
Kristinn Jakobsson,
KR, 4
Aðstoðardómarar:
Örn Bjarnason,
Sigurður Þór Þórsson
Skot á mark: 7(3) - 14(5)
Hornspyrnur: 6 - 13
Rangstöður: 6 - 2
Leikskipulag: 4-4-2
Gunnar Sigurðsson
Ragnar Árnason
Eggert Stefánsson M
Andrés Jónsson M
Gunnar Þór Gunnarsson
Ingvar Ólason M
Ágúst Gylfason M
Freyr Karlsson
(Þorbjörn Atli Sveinsson 57.)
Ómar Hákonarson
(Baldur Þór Bjarnason 62.)
Guðmundur Steinarsson
(Kristján Brooks 62.)
Andri Fannar Ottósson
Ólafur Þór Gunnarsson
Sigurður Sæberg Þorsteinsson M
Ármann Smári Björnsson
Guðni Rúnar Helgason M
Bjarni Ólafur Eiríksson
(Kristinn Ingi Lárusson 86.)
Matthías Guðmundsson M
Stefán Helgi Jónsson
(Elvar Lúðvík Guðjónsson 74.)
Jóhann H. Hreiðarsson
Sigurbjörn Hreiðarsson M
Jóhann Georg Möller
(Birkir Már Sævarsson 73.)
Hálfdán Gíslason M
0:1 (36.) Bjarni Ólafur Eiríksson tók aukaspyrnu frá hægri kanti og sendi inn á
vítateiginn. Hálfdán Gíslason skallaði í átt að markinu og Gunnar Sig-
urðsson, markvörður Framara, misreiknaði knöttinn og missti hann í
netið.
1:1 (78.) Ágúst Gylfason skoraði örugglega úr vítaspyrnu sem dæmd var þegar
Ingvar Ólason féll við í teignum eftir viðskipti við Guðna Rúnar Helga-
son.
2:1 (85.) Ingvar Ólason skaut föstu skoti utan vítateigs. Boltinn hafði viðkomu í
varnarmanni Vals og fór þaðan í netið.
Gul spjöld: Eggert Stefánsson, Fram (75.) fyrir brot. Sigurður Sæberg Þorsteinsson,
Val (76.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin.
að stefndi allt í 50. sigur Vals á Fram á
Íslandsmótinu frá upphafi. Valsmenn
u verðskuldaða forystu en á síðustu tólf
mínútum leiksins snerist
stríðsgæfan á band Fram-
ara. Eftir að Bolvíkingur-
inn Háldán Gíslason hafði
komið Valsmönnum yfir í
i hálfleik með fyrsta marki sínu í deild-
í ár jöfnuðu Framarar metin þvert gegn
gi leiksins með marki úr umdeildri víta-
rnu. Baldur Bjarnason, sem nýkominn
inná sem varamaður, átti snotra send-
u inn í vítateig Valsmanna á Ingvar Óla-
Ingvar átti í höggi við Guðna Rúnar
gason, varnarmann Vals, og féll við og
stinn Jakobsson dæmdi umsvifalaust
spyrnu. Dómur sem virkaði mjög
ngur en Ágúst Gylfason framkvæmdi
rnuna og þessari öruggu vítaskyttu
st ekki bogalistin. Hann jafnaði gegn
m gömlu félögum og aðeins sjö mínút-
síðar fögnuðu Framarar sigurmarkinu
ar skot Ingvars Ólasonar fór í varnar-
n og skaust þaðan í netið.Valsmenn
u vart sínum eigin augum enda höfðu
fram að jöfnunarmarkinu verið með
og hagldir á vellinum og ekkert í stöð-
i sem benti til þess að Safamýrarpiltar
gju stig.
eikur gömlu risanna í austurbæ Reykja-
r reis annars ekki mjög hátt og báðir
ga þeir muna sinn fífil fegurri. Framarar
uðu leikinn með ágætum. Freyr Karls-
fékk á fyrstu mínútunni gott færi en
ut yfir Valsmarkið og á 20. mínútu gerði
fur Þór vel í því að verja skalla frá Ingv-
Ólasyni. Eftir það fóru Valsmenn að
ja í sig veðrið og réðu að mestu leyti
gi leiksins. Frömurum gekk illa að halda
anum innan liðsins og Valsmenn áttu
velt með að brjóta niður sóknir þeirra.
svo að Hlíðarendapiltar hafi ráðið ferð-
gekk þeim illa að skapa sér færi og
kið sem Hálfdán skoraði skrifast algjör-
á Gunnar, markvörð Framara.
alsmenn hófu síðari hálfleikinn með þó
krum látum. Á fyrstu andartökum hálf-
sins skaut Hálfdán yfir í góðu færi og
Jóhann G. Möller fékk upplagt færi á 60.
mínútu en Gunnar Sigurðsson sá við honum
og varði vel í horn. Steinari Þór Guðgeirs-
syni þjálfara Framara leist ekki á blikuna
og á skömmum tíma gerði hann þrjár breyt-
ingar á liði sínu. Þorbjörn Atli Sveinsson,
Baldur Bjarnason og Kristján Brooks voru
sendir á vettvang til að fríska upp á leik liðs-
ins. Ekki virtust þessar skiptingar ætla að
bera neinn ávöxt. Valsmenn héldu undirtök-
unum og rétt áður en Ágúst jafnaði úr víta-
spyrnunni fékk Hálfdán kjörið tækifæri til
að gera út um leikinn. Hann slapp inn fyrir
vörn Framara en Gunnar varði fast skot
hans meistaralega vel og bætti þar sann-
arlega fyrir mistök sín í fyrri hálfleiknum.
Það er kannski of dúpt í árinni tekið að tala
um rán Framara en lukkudísirnar voru svo
sannarlega með þeim bláklæddu. Fyrst
jafnaði Ágúst metin úr vítaspyrnunni vafa-
sömu og Ingvar skoraði svo sigurmarkið
með aðstoð varnarmanns Vals. Valsmenn
reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna metin.
Ólafur Þór markvörður fór í fremstu víglínu
en allt kom fyrir ekki. Framarar fögnuðu
sætum sigri, sínum fyrsta á heimavelli í ár
og öðrum í röð eftir skellinn í Eyjum, 5:0.
Framarar geta ekki glaðst yfir neinu öðru
en stigunum þremur. Leikur liðsins var ansi
tilviljunarkenndur og á köflum mjög ómark-
viss og víst er að með álíka spilamennsku
verða Framarar í því hlutverki enn eitt árið
að forðast fall. Eggert Stefánsson átti ágæt-
an leik í vörninni, Ingvar Ólason og Ágúst
Gylfason voru duglegir á miðjunni en sókn-
armenn liðsins náðu sér ekki á strik.
Valsmenn geta svo sannarlega nagað sig í
handarbökin en þeir léku á köflum ágæt-
lega. Þeir köstuðu stigunum hreinlega frá
sér og í stað þess að skjótast upp í þriðja
sæti deildarinnar fóru þeir í áttunda sæti.
Guðni Rúnar Helgason var fastur fyrir í
vörninni og batt hana vel saman, Sigurður
Sæberg og Sigurbjörn áttu góða spretti og
Hálfdán stóð vel fyrir sínu í fremstu víglínu.
Valsmenn fóru hins vegar afar illa með föstu
leikatriðin sín og til marks um það fóru allar
13 hornspyrnur þeirra fyrir ofan garð og
neðan.
Aftur „stálu“
Framarar sigri
Morgunblaðið/Golli
Framarinn Ingvar Ólason kom við sögu í báðum mörkum sinna
manna gegn Val í gær. Fyrst fiskaði hann vítaspyrnu og skoraði
svo sigurmarkið undir lokin. Hér er Ingvar í baráttu við bræð-
urna Sigurbjörn og Jóhann Hreiðarssyni.
AMARAR nældu sér í þrjú dýrmæt stig þegar þeir höfðu betur gegn Vals-
nnum, 2:1, í viðureign gömlu stórveldanna á Laugardalsvellinum í gær-
ld. Líkt og í leiknum við FH á dögunum skoruðu Framarar tvö mörk á loka-
útum leiksins og með sigrinum þéttist staðan enn frekar í deildinni. Fram
þó sem fyrr í neðsta sæti með 8 stig en aðeins átta stig skilja Fram og topp-
Fylkis en Framarar eiga leik til góða við KA.
mundur
arsson
ar
Keflvíkingar fengu ágæt færi áðuren mínúta var liðin af leiknum.
Það virtist rugla þá aðeins í ríminu,
því þeir sýndu engan
veginn hvað í þeim
býr svo það voru
gestirnir úr Njarðvík
sem voru meira með
boltann. Hvort lið fékk ágætt færi en
Keflvíkingum brá síðan hressilega
þegar Eyþór Guðnason skoraði fyrir
Njarðvík á 17. mínútu er hann stökk
hæst inni í markteig og skallaði inn
aukaspyrnu Guðna Erlendssonar.
Njarðvíkingar náðu ekki að fylgja því
eftir og tök þeirra linuðust uns Kefl-
víkingar voru búnir að ná undirtök-
unum. Það skilaði síðan marki á 34.
mínútu þegar Þórarinn Kristjánsson
skallaði inn fyrirgjöf Magnúsar
Sverris Þorsteinssonar, sem sjálfur
bætti um betur mínútu síðar þegar
hann smeygði sér í gegnum vörn
Njarðvíkur til að koma Keflavík í 2:1.
En Adam var ekki lengi í Paradís því í
næstu sókn gestanna jafnaði Sverrir
Þór Sverrison, 2:2.
Síðari hálfleikur var Keflavíkinga.
Þeir höfðu öll tök á vellinum án þess
að Njarðvíkingar fengju nokkuð að
gert, frekar að þeir reyndu að sparka
boltanum sem lengst í burtu en spila
fram völlinn ef þeim tókst að stöðva
sókn heimamanna. Fleiri mörk Kefl-
víkinga lágu því í loftinu og Þórarinn
bætti við öðru sínu á 58. mínútu eftir
að Magnús Sverrir hafði tætt vörn
Njarðvíkinga í sig. Tíu mínútum síðar
var Jónas Sævarsson á ferðinni þegar
hann smeygði sér í gegnum vörn
Njarðvíkur til að koma Keflavík í 4:2.
Magnús Sverrir var ekki hættur og á
síðustu sekúndum leiksins afgreiddi
hann aðra hornspyrnu Keflvíkinga í
röð með skalla og lokatölur 5:2.
„Við getum ekki valtað yfir Njarð-
víkinga en náðum ekki að sýna okkar
besta leik fyrr en eftir hlé þegar við
náðum að spila okkar leik, það voru
þrjú stig í boði og við ætluðum að taka
þau,“ sagði Þórarinn eftir leikinn en
hann átti góða spretti ásamt Magnúsi
Sverri.
„Það hefur verið beðið eftir þessum
leik síðan í fyrra og sérstaklega mik-
ilspenna myndaðist fyrir nokkrum
vikum. Það var gaman að sjá svona
marga áhorfendur og þeir lögðu sitt
af mörkum, ég er sáttur við þá enda
okkar tólfti maður,“ sagði Þórarinn.
Bestur hjá Keflavík var Stefán
Gíslason, sem fór með öll völd á miðj-
unni, en Haraldur Guðmundsson var
sterkur í vörninni ásamt Kristjáni Jó-
hannssyni. Ómar Jóhannsson varði
oft vel.
„Við ætluðum okkur þrjú stig eins
og í öllum leikjum og það skipti engu
máli að við vorum að spila við besta lið
deildarinnar,“ sagði Sverrir Þór eftir
leikinn. „Við spiluðum vel í byrjun og
áttum að skora fleiri mörk fyrir hlé
því við fengum til þess færin. Við
komum síðan ekki með nóg sjálfs-
traust til síðari hálfleiks, sem gengur
ekki gegn góðu liði eins og Keflavík,
og fengum fljótlega á okkur slysalegt
mark, þá datt botninn úr leik okkar,“
bætti Sverrir Þór við. Sverrir Þór,
Eyþór, Snorri M. Jónsson og Sigurð-
ur B. Sigurðsson áttu góðan leik.
Njarð-
vík hélt
ekki út
RÚMLEGA 1.100 manns voru á
áhorfendapöllunum í Keflavík í
gærkvöld þegar fram fór fyrsti
grannaslagur Keflvíkinga og
Njarðvíkinga í knattspyrnu.
Njarðvíkingar, sem komu upp úr
2. deild, slógu hvergi af í byrjun
og náðu forystu en þrautreyndir
Keflvíkingar, sem spiluðu í efstu
deild í fyrra, sýndu mátt sinn og
megin með því að hafa síðari
hálfleikinn algerlega í sínum
höndum og sannfærandi 5:2
sigri. Með sigrinum komu Kefl-
víkingar sér enn betur fyrir á
toppi deildarinnar og í næstu
umferð mæta þeir Víkingum,
sem eru í öðru sæti.
Stefán
Stefánsson
skrifar
GIN lyf af bannlista fundust í 25 íslensk-
íþróttamönnum sem voru prófaðir í lok
áður en íþróttafólkið hélt á Smáþjóða-
ana á Möltu. Niðurstöður liggja nú fyrir
allir komu vel út úr prófuninni.
etta er fjölmennasta lyfjapróf sem tekið
ur verið hér á landi. Fjórir körfuknatt-
smenn, tveir karlar og tvær konur,
u prófaðir, þrír blakarar, fjórir júdó-
par, tennisleikari, þrír sundmenn, tveir
assspilarar, siglingamaður, fjórir frjáls-
ttamenn, skotmaður og tveir borðtenn-
ilarar.
á liggja fyrir niðurstöður úr lyfja-
fum sem tekin voru í tengslum við úr-
aviðureign Hauka og ÍR í handbolta
a í vor. Þar voru fjórir leikmenn, tveir
hvoru liði, prófaðir og reyndist allt í
með þá.
Engin lyf
undust
TEINAR Guðgeirsson, þjálfari Fram,
ar að vonum ánægður með leik sinna
manna í gær. „Við byrjuðum þennan
eik ágætlega og ég er sáttur við
vernig við spiluðum leikinn fyrstu
uttugu mínúturnar. Þá datt leikur
kkar niður og þeir pressuðu okkur
tíft og markið sem þeir settu á okkur
om upp úr því. Varamenn okkar
omu mjög sterkir inn og hafa gert
það í síðustu leikjum. Við náðum að
halda boltanum betur framar á vell-
inum og aftur tókst okkur að snúa
leiknum við eftir að frískir menn komu
inná völlinn af bekknum. Hins vegar er
margt sem við þurfum að bæta við
okkar leik. Við höfum karakter og mér
sýnist við vera komnir í gott form, við
gefumst aldrei upp og við reynum að
byggja ofan á það.“
„Við gefumst aldrei upp“