Morgunblaðið - 05.10.2003, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
„NÚNA erum við nýkomin frá Costa
Brava á Spáni þar sem við vorum
meðal annars að spila golf,“ segir Sig-
urður Einarsson sem fer með sama
hópnum einu sinni á ári til að spila
golf.
Í hópnum eru auk hans Erla Har-
aldsdóttir, Hrefna Björnsdóttir, Ólaf-
ur Brynjólfsson, Sigurbjörg Jóhann-
esdóttir, Valdís Geirarðsdóttir,
Þorgeir Lúðvíksson og Örlygur
Geirsson.
„Að þessu sinni fórum við til lítils
bæjar sem heitir St. Cristina á Costa
Brava á Spáni. Þar gistum við á af-
skaplega þægilegu hóteli rétt fyrir ut-
an bæinn með golfvöll í örstuttu
göngufæri.
Bærinn er ekki langt frá ströndinni
og allt umhverfi afskaplega notalegt
og fallegt. Við vorum ekki í hálfu fæði
á hótelinu heldur fórum út að borða á
kvöldin á ýmsa matsölustaði í ná-
grenninu. Við höfðum fjögur verið
þarna áður og langaði að fara aftur og
þá með allan hópinn,“ segir Sigurður.
Hann segir að með tilkomu Iceland
Express á markaðinn sé orðið mjög
þægilegt að ferðast á eigin vegum á
haustin. Þá sé hægt að hafa lengd
ferðar eftir eigin höfði og framhalds-
flug frá London sé til margra staða
sem þekktir eru fyrir golf. „Við flug-
um sem sagt til London og gistum þar
í eina nótt. Eldsnemma morguninn
eftir flugum við svo til Girona á Spáni
sem er héraðsborgin á Costa Brava
sem er um 100 kílómetra fyrir norðan
Barcelona. Þar fengum við bílaleigu-
bíla og dvöldum á hótelinu í ellefu
daga.“ Sigurður segir að á haustin sé
ekki á vísan að róa með gott veður
svona norðarlega á Spáni en þau voru
mjög heppin og það dró varla fyrir
sólu þessa ellefu daga sem þau dvöldu
þar.
Fimm sinnum til Portúgals
Hópurinn samanstendur af fernum
hjónum sem byrjuðu að spila saman
golf fyrir ellefu árum og fóru fyrir níu
árum í fyrstu golfferðina til útlanda
og þá varð Suður-England fyrir val-
inu.
„Við höfum síðan farið aftur til
Englands, einu sinni til Bandaríkj-
anna, fjórum sinnum til Portúgals og
svo var þetta í annað skipti sem við
fórum til Costa Brava.
Okkur fannst mjög gott að vera í
Portúgal. Við fengum hagstæð tilboð
á gistingu og golfi á hótelum í Vila-
moura á Algarve í gegnum Netið og
þar var akstur að og frá golfvöllum
innifalinn og öll aðstaða til fyrirmynd-
ar. Veitingastaðir voru í göngufæri
svo í raun var ekki þörf á bílaleigubíl-
um.
Hópurinn: Sigurður Einarsson, Hrefna Björnsdóttir, Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Erla Haraldsdóttir, Valdís Geir-
arðsdóttir, Örlygur Geirsson og Ólafur Brynjólfsson. Á myndina vantar myndasmiðinn Þorgeir Lúðvíksson.
Sigurður Einarsson er hér á golfvellinum Forest course í Suður-Englandi að slá upphafs-
högg í návist villtra dýra sem fá að hlaupa að vild um völlinn.
Hópurinn hefur farið víða um lönd til að spila saman golf
Skemmtilegur félags-
skapur skiptir mestu
Það hefur færst í aukana síðastliðin ár að fólk skreppi í golf til
útlanda þegar tímabilinu lýkur hér heima á haustin. Sigurður
Einarsson er í hópi sem fer í slíka ferð einu sinni á ári.
Hvernig datt þér í hug að fara í gönguferð
til Perú?
„Ég var að ganga á Grænlandi í ágúst með
þremur öðrum sundgörpum og þegar fór að
líða að lokum ferðarinnar þá fór einn göngu-
félaginn að tala um að hann væri að fara í
gönguferð til Perú í september með breskri
ferðaskrifstofu. Það kveikti strax í mér og ég
ákvað að skella mér líka í ferðina.“
Farið þið mörg í ferðina?
„Við erum ellefu, allt Bretar, fyrir utan okk-
ur Íslendingana mig og Kristján Kjartansson.
Ferðin heitir The high Inka trail eða Hátt á
slóðum Inka. Við fljúgum frá London til Lima í
Perú og þaðan til Cuzco sem er í rúmlega
3.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Sú borg er
af kunnugum talin önnur áhugaverðasta borg
heims. Þar tökum við léttar göngur í tvo daga
á meðan við aðlögumst þunnu loftslaginu.
Að því búnu göngum við í sjö daga og byrj-
um í Mollepata og endum í borginni Machu
Picchu sem er oft kölluð týnda Inkaborgin.
Á leiðinni göngum við upp í allt að 5.050
metra hæð en þar er tilkomumikið útsýni og
hægt m.a. að sjá upp á fjallið Salcantay sem
er 6.271 metra hátt.“
Svo ætlið þið í siglingu?
„Þegar gönguferðinni lýkur förum við í flúðafleytingar
á fljótinu Urubamba og endum svo í Cuzco þar sem við
fáum einn frjálsan dag. Hópurinn heldur þá heim á leið
fyrir utan okkur Íslendingana og einn Breta. Við ætlum
að lengja ferðina um þrjá daga og fara til borgarinnar
Puno sem stendur við vatnið Titicaca en sú borg er í um
4.000 metra hæð og rómuð fyrir náttúrufegurð. Á
meðan á heimsókninni stendur munum við m.a.
hitta ættföður Uru-indíána.
Ertu í góðri æfingu?
„Þokkalegri. Ég syndi tíu kílómetra á viku
og gekk í sumar á Grænlandi. Sú gönguferð
gekk það vel að ég hugsa að ég spjari mig
ágætlega. Ég er full tilhlökkunar að fá
þetta tækifæri til að skoða fjarlæga og
litríka menningu inkanna með þessum
hætti.“
Fyrir viku lagði Lísbet Grímsdóttir upp í gönguferð hátt uppi í fjöllum í Perú í Suður-Ameríku. Hún fer síðan í flúðafleytingar á fljótinu Urubamba.
Lísbet Grímsdóttir
Morgunblaðið/Helga Guðrún
Hér er Lísbet á göngu á Grænlandi en þangað fór
hún sl. sumar með félögum sínum.
Ætla að ganga á inkaslóðum í Perú
Breska ferðaskrifstofan Exodus skipulagði
ferðina sem var pöntuð með milligöngu
Ultima Thule.
Slóð Exodus er www.exodus.co.uk
Vefslóð Ultima thule er www.ute.is
Hressandi æfingar áður
en lagt var í hann einn
morguninn á
Grænlandi.
Hvert ertu að fara?