Morgunblaðið - 09.10.2003, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI Í
JANÚAR á næsta ári verða
liðin 90 ár frá stofnun Hf.
Eimskipafélags Íslands, en
stofnfundur félagsins var
haldinn 17. og 22. janúar
1914. Félagið fékk strax í upphafi við-
urnefnið óskabarn þjóðarinnar, en til
þess tíma er fyrsta skip félagsins,
Gullfoss, kom til landsins í apríl árið
eftir, höfðu siglingar til og frá Íslandi
að mestu verið í höndum erlendra
þjóða.
Í bókinni Eimskip frá upphafi til
nútíma eftir Guðmund Magnússon
sagnfræðing sem stjórn Eimskipa-
félagsins átti frumkvæði að væri sam-
in, og gefin var út á árinu 1998, segir
að félagið hafi átt þátt í að auka efna-
lega hagsæld hér á landi. Hjól versl-
unar og viðskipta hafi í kjölfarið farið
að snúast örar en fyrr. Samstaðan og
eindrægnin um stofnun félagsins hafi
gefið landsmönnum von um bjartari
framtíð og aukið sjálfstraust. Höf-
undur bókarinnar segir einnig að
Eimskipafélagið hafi ekki haft minni
þýðingu fyrir Íslendinga með óbein-
um hætti en beinum. Líta megi á
stofnun félagsins sem eins konar yf-
irlýsingu þjóðarinnar um að hún ætl-
aði að taka samgöngur og flutninga til
og frá landinu í eigin hendur og vera
ekki upp á aðrar þjóðir komin. Stofn-
un félagsins hafi því verið liður í sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar.
Eimskipafélagið var stofnað sem
þjóðþrifafélag. Þetta þýddi að því var
ætlað að gera gagn en ekki skapa eig-
endum sínum sérstakan fjárhagsleg-
an gróða. Vegna þessa fékk félagið
oftast framlög úr ríkissjóði á fyrstu
áratugunum, þegar endar náðu ekki
saman í rekstrinum, sem og skattfríð-
indi. Félagið afsalaði sér skattfríðind-
unum árið 1956.
Hugmynd sem lá í loftinu
Frumkvæðið að stofnun Eimskipa-
félagsins áttu nokkrir athafna- og
kaupsýslumenn í Reykjavík. Í árslok
1912 ræddi Sveinn Björnsson, fyrsti
forseti lýðveldisins, sem þá var yfir-
dómari í Reykjavík, þá hugmynd við
nokkra áhrifa- og athafnamenn að
stofna íslenskt skipafélag. Á meðal
þeirra sem hann ræddi við voru
Björn Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, og kaupmennirnir
Ludvig Kaaber, Garðar Gíslason og
Thor Jensen.
Fimmmenningarnir voru þó ekki
einir um að velta fyrir sér stofnun
innlends skipafélags á þessum árum.
Segir Guðmundur Magnússon í bók
sinni um Eimskipafélagið að hug-
myndin hafi legið í loftinu á þessum
tíma og átt víðtækan hljómgrunn og
margir hafi hvatt til að stofnunar ís-
lensks skipafélags.
Hluthafar í Eimskipafélaginu voru
um 7 þúsund talsins þegar það var
stofnað á árinu 1914. Að lokinni hluta-
fjársöfnun á árinu 1917 voru hluthaf-
arnir orðnir tæplega 15 þúsund, sem
svaraði til þess að tæplega 16% þjóð-
arinnar hafi átt hlutabréf í félaginu.
Landssjóður, þ.e. ríkið, tók þátt í
stofnun félagsins og keypti 100 þús-
und króna hlut í því á árinu 1914, en
heildarhlutaféð eftir hlutafjársöfn-
unina árið 1917 var um 1.680 þúsund
krónur. Um frekari hlutafjárkaup
ríkisins varð ekki.
Í fyrstu stjórn Eimskipafélagsins
voru: Sveinn Björnsson, sem var for-
maður stjórnarinnar á fyrstu árun-
um, Eggert Claessen, yfirdómslög-
maður, Garðar Gíslason, kaupmaður,
Halldór Daníelsson, yfirdómari, en
hann var fulltrúi Vestur-Íslendinga í
stjórninni, Jón Gunnarsson, sam-
ábyrgðarstjóri, sem var einnig
fulltrúi Vestur-Íslendinga, Olgeir
Friðgeirsson, kaupmaður og sam-
gönguráðunautur stjórnvalda, en
hann var fulltrúi landsstjórnarinnar,
og Ólafur Johnson, kaupmaður.
Athygli vakti í kjölfar kjörs stjórn-
ar Eimskipafélagsins, að Thor Jen-
sen, sem hafði verið formaður bráða-
birgðastjórnar félagsins er vann að
undirbúningi stofnunar þess, náði
ekki kjöri í stjórnina. Í endurminn-
ingum sínum, sem Valtýr Stefánsson
ritaði um miðja síðustu öld, er haft
eftir Thor að miklir flokkadrættir
hafi orðið í tengslum við félagsstofn-
unina og mikill áróður hafinn um
stjórnarkosninguna. Því nær sem
dregið hafi að aðalfundurinn var
haldinn, þeim mun meira hafi hert á
áróðrinum.
Thor var einn af stærstu hluthöf-
unum Eimskipafélagsins í byrjun, en
hann keypti 10 þúsund króna hlut í
félaginu. Hann gaf þó fljótlega um tvo
þriðju hlutafjárins til styrktar fátæk-
um sjúklingum á Vífilsstaðahæli.
Emil Nielsen skipstjóri var fyrsti
framkvæmdastjóri Eimskipafélags-
ins, en hann var ráðinn til starfa eftir
stofnfund félagsins. Hann var dansk-
ur og hafði siglt lengi milli Íslands og
Danmerkur áður en hann réðst til
starfa hjá Eimskipafélaginu.
Félagið kaupir eigin bréf
Á árinu 1937 lét stjórn Eimskipa-
félagsins taka saman skrá um hluta-
fjáreign í félaginu. Ásakanir höfðu þá
verið á kreiki um að félagið væri að
komast á hendur fárra manna. Kom
þá í ljós að fimmtán stærstu hluthaf-
arnir í félaginu áttu um 15,5% af öllu
hlutafénu, sem var svipað hlutfall og í
upphafi. Ríkissjóður átti mest, eða
tæp 6%, og Útvegsbanki Íslands
næst mest, um 1,6%. Stærsti hlutur
einstaklings var um 0,9% sem var í
eigu Christians Havsteen í Dan-
mörku, en hann var sonur fyrrum
kaupstjóra Gránufélagsins. Sigurjón
Jónsson, bankaútibússtjóri á Ísafirði
átti stærstan hlut íslenskra einstak-
linga, tæp 0,8%. Árið 1945 var aftur
gerð skrá um hluthafana, en það var
skilyrði sem Alþingi setti fyrir sam-
þykki á endurnýjun á skattfríðindum
Eimskipafélagsins. Þá hafði hlutur
fimmtán stærstu hluthafanna aukist
og var orðinn um 20% hlutafjárins.
Sem fyrr átti ríkissjóður stærstan
hlut í félaginu en hlutur einstaklinga
hér á landi hafði hins vegar aukist.
Þorsteinn Sv. Kjarval, bóndi og út-
vegsmaður, hafði eignast tæplega
2,4% í félaginu, sem var þá stærsti
hlutur einstaklings.
Í byrjun sjötta áratugarins voru
nokkur eigendaskipti á hlutabréfum í
Eimskipafélaginu. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga jók á þessum
tíma til að mynda nokkuð hlut sinn í
félaginu. Í tengslum við aukinn áhuga
Sambandsins til áhrifa í Eimskipa-
félaginu keypti félagið sjálft talsvert
af hlutabréfum af hluthöfum. Á árinu
1952 átti Eimskipafélagið fjórða
stærsta hlutinn í félaginu, á eftir rík-
issjóði, Þorsteini Sv. Kjarval og Út-
vegsbankanum.
Á árinu 1969 átti Eimskipafélagið
sjálft stærstan hlut í félaginu, rúm
14% af heildarhlutafénu. Ríkissjóður
var næststærstur með rúm 5% og
Háskólasjóður Eimskipafélagsins
átti tæp 4%. Fimmtán stærstu hlut-
hafarnir áttu á þessum tíma um 31%
og munar þar mest um eigin hlut fé-
lagsins og hlut Háskólasjóðsins, sem
var stofnaður árið 1964.
Hlutur stærstu hluthafa eykst
Umtalsverðar breytingar höfðu orðið
á eignarhaldi stærstu hluthafa í Eim-
skipafélaginu er komið var fram á ár-
ið 1982. Sameinaðir verktakar hf. á
Keflavíkurflugvelli og Halldór H.
Jónsson, formaður stjórnar þess fé-
lags, voru komnir í hóp stærstu hlut-
hafa, en Halldór var á þessum tíma
einnig stjórnarformaður Eimskipa-
félagsins. Ingvar Vilhjálmsson út-
gerðarmaður, Sjóvátryggingafélagið
og Lífeyrissjóður verslunarmanna
voru einnig nýir meðal stærstu hlut-
hafa. Guðmundur Magnússon segir í
bók sinni um sögu Eimskipaféalgsins
að mest hafi kveðið að kaupum þess-
ara nýju hluthafa í félaginu á árinu
1971.
Eimskipafélagið átti sem fyrr
stærstan hlut í félaginu á árinu 1982,
eða tæp 8%. Ríkissjóður kom næstur
með rúm 5% og Háskólasjóðurinn
með um 5%. Næstir þar á eftur komu
Sameinaðir verktakar með um 1,9%,
Þórormstungubúið með 1,8%, Ingvar
Vilhjálmsson og Halldór H. Jónsson
með 1,7% hvor, og Lífeyrissjóður
verslunarmanna, Lífeyrissjóður
Eimskipafélagsins og Sjóvátrygg-
ingafélag Íslands, sem hvert fyrir sig
átti 1,6%.
Fimmtán stærstu hluthafar í Eim-
skipafélaginu áttu samtals 35% af
heildarhlutafé félagsins í desember
1982.
Ríkið selur Sjóvá hlut sinn
Á árinu 1985 seldi ríkið Sjóvátrygg-
ingarfélagi Íslands allt hlutafé sitt í
Eimskipafélaginu, sem var eins og
verið hafði um nokkurt skeið um 5%
af heildarhlutafénu. Ríkið hafði lýst
áhuga á að selja hlut sinn árið áður en
m.a. hafnað tilboði frá stjórnendum
félagsins. Kom ákvörðunin um söluna
almennt nokkuð á óvart. Trygginga-
félagið átti fyrir um 1% hlut í Eim-
skipafélaginu og varð meðal stærstu
hluthafa eftir þessi kaup. Í desember
þetta sama ár var skipafélagið Haf-
skip tekið til gjaldþrotaskipta.
Í mars 1990 var hlutahafaskrá í
fyrsta skipti birt opinberalega hér á
landi, en þá var birt í viðskiptablaði
Morgunblaðsins skrá yfir stærustu
hluthafa Eimskipafélagsins. Var
hlutur fimmtán stærstu hluhafanna
þá kominn upp í 36% af heildarhluta-
fénu. Sjóvá-Almennar tryggingar,
sem hafði orðið til við sameiningu
Sjóvátryggingafélagsins og Al-
mennra trygginga, var þá stærsti
hluthafinn með um 11% hlutafjárins.
Háskólasjóður Eimskipafélagsins
átti þá um 5%, Lífeyrissjóður versl-
unarmanna 3,1%, Halldór H. Jónsson
2,6%, Sameinaðir verktakar 2,1%,
Indriði Pálsson 1,8%, Lífeyrissjóður
Eimskipafélagsins 1,4%, Margrét
Garðarsdóttir, eiginkona Halldórs H.
Jónssonar, 1,4% og Ingvar Vilhjálms-
son sf. 1,4%.
Landsbankinn ráðandi
Breytingar á eignarhaldi á hlutabréf-
um í Eimskipafélaginu voru ekki
stórvægilegar fram til þessa árs, þó
nokkur barátta hafi verið um bréfin á
köflum. Segir Guðmundur Magnús-
son í bók sinni um sögu félagsins að
svo virðist sem í upphafi hafi flest
bréf skipt um eigendur fyrir kaup, en
síðan fyrir arftöku. Mestu breyting-
arnar áttu sér stað um það leyti er
Sambandið ásældist bréf félagsins í
upphafi sjötta áratugarins, þegar ný-
ir eigendur komu inn í upphafi átt-
unda áratugarins og þegar ríkið seldi
Sjóvátryggingafélaginu hlut sinn á
miðjum níunda áratugnum.
Þessar breytingar á eignarhaldi á
hlutabréfum í Eimskipafélaginu voru
litlar í samanburði við þær breyting-
ar sem ákveðnar voru á fundi í
Landsbanka Íslands aðfaranótt 19.
september síðastliðinn. Þá gengu
Landsbankinn, Íslandsbanki, Fjár-
festingarfélagið Straumur, Samson
Global Holdings, Sjóvá-Almennar
tryggingar, Burðarás og Otec Invest-
ment frá samkomulagi um verðbréfa-
viðskipti, sem fól í sér að Landsbank-
inn og tengdir aðilar eignuðust
ráðandi hlut í Eimskipafélaginu. Fyr-
ir þetta samkomulag var Fjárfesting-
arfélagið Straumur stærsti einstaki
hluthafinn í Eimskipafélaginu með
um 15% eignarhlut og Sjóvá-Almenn-
ar tryggingar með um 11%. Eignar-
hlutur fimmtán stærstu hluthafanna
var um 65% af heildarhlutafé félags-
ins en heildarfjöldi hluthafa var um
17.400.
Eftir samkomulagið hverfa bæði
Straumur og Sjóvá-Almennar trygg-
ingar úr hópi hluthafa. Landsbankinn
og tengdir aðilar, sem eru Samson og
Tryggingamiðstöðin, fara hins vegar
eftir samkomulagið með rúmlega
27% hlut í Eimskipafélaginu. Burðar-
ás, stærsti einstaki hluthafinn, á rúm-
lega 21% hlut, en þar sem það félag er
að fullu í eigu Eimskipafélagsins hef-
ur þessi eign ekki vægi á hluthafa-
fundi félagsins. Að teknu tilliti til þess
fara Landsbankinn og tengdir aðilar
því með um 35% hlut í Eimskipa-
félaginu og eru þar með ráðandi og
kjölfestufjárfestir.
Meiri verðmæti í einingunum
Í Eimskipafélaginu er þríþættur
rekstur í jafnmörgum dótturfélögum,
sem er að hluta til óskyldur. Eimskip
ehf. er í flutningastarfsemi, Brim ehf.
er á sviði sjávarútvegs og Burðarás
fjárfestir og annast eignarhald hluta-
bréfa.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir hlutabréfavið-
skiptin í síðasta mánuði, að Lands-
bankinn og Burðarás muni koma til
með að hafa varanleg tengsl, en báðir
séu í sama þætti viðskipta. Bankinn
verði hins vegar inni í hinum tveimur
félögunum, Eimskip og Brimi, sem
umbreytingaraðili.
Sigurjón Þ. Árnason, bankasjóri
Landsbankans, sagði að bankinn
haldi að það séu meiri verðmæti í
hverri einingu dótturfélaga Eim-
skipafélagsins en í þeim öllum saman.
Ekki sé þó tímabært að ræða út-
færslu á framtíð Eimskipafélagsins
þar sem slíkt eigi eftir að skoða.
Ljóst er að ýmsir hafa sýnt fyrir-
tækjum innan Eimskipafélagsins
áhuga. Hvað verður í þeim efnum á
eftir að koma í ljós.
Mestu breytingar nokkru sinni
Ný stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands verð-
ur kjörin á hluthafafundi félagsins í dag. Ef
tillaga ráðandi hluthafa verður samþykkt
verður skipt um alla stjórnarmenn, en það
hefur aldrei gerst áður í tæplega níu ára-
tuga sögu félagsins. Grétar Júníus Guð-
mundsson skoðaði hverjir hafa haldið um
stjórnvölinn í Eimskipafélaginu til þessa.
# +
"
'8'29'8.5
# +
" '8.29'8.1
0
:- ;" '8.59'8.2
< '8.19'8=5
)
# %" '8=59'8=2
# > " '8=29'842
# % ? " .553@
# % " '8889.553
A
0" '88.9'888
)
)- ? " '8429'88.
! '8'29'835
>
/ " '8359'81.
;
B+
'81.9'848
)+
" '8489.55.
A
" .55.@
%&' &(
# ) *+#*
* # % ,
# -.-/
Sveinn
Björnsson
Pétur A.
Ólafsson
Eggert
Claessen
Hallgrímur
Benediktsson
Einar Baldvin
Guðmundsson
Halldór H.
Jónsson
Indriði
Pálsson
gretar@mbl.is
Benedikt
Jóhannesson