Morgunblaðið - 01.11.2003, Síða 7
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2003 B 7
hönnunarsýningunni „Salone Satel-
ite“ í Mílanó á Ítalíu. „Ég og Gaby
vinkona mín sýndum þarna „her-
bergi“ sem við höfðum hannað. Þetta
var dýrt ævintýri sem kostaði mig
töluvert og að baki því lá mikil vinna.
Við fengum mjög jákvæð viðbrögð frá
stúdentum og öðrum sem hafa djúpan
og einlægan áhuga á hönnun og list.
Hins vegar gengu kaupendur stóru
fyrirtækjanna framhjá okkur, en það
var þeirra athygli sem við þurftum að
ná. Þarna áttaði ég mig á að það geng-
ur ekki að vera í hönnun eingöngu út
frá listrænu sjónarmiði. Það er margt
sem liggur að baki hönnunar, eins og
húmor og jafnvel saga, og það er ljóst
að hönnuðir nálgast viðfangsefnin
með ólíku hugarfari. Ég vil hanna
húsgögn, heimilistæki og hvers konar
nytjavöru en ég ætla samt ekki að
gleyma gleðinni sem þarf alltaf að
vera til staðar í hönnun.“
Vill stofna eigið
fyrirtæki í New York
Hlynur veit vel hvað hann vill og
hefur sótt um landvistarleyfi fyrir af-
burðafólk til að geta starfað sjálfstætt
í New York. „Þegar það er í höfn, sem
ég á von á að verði fljótlega eftir ára-
mót, stefni ég að því að stofna mitt
eigið fyrirtæki. Ég tel að nú sé lag því
mér virðist áhugi Bandaríkjamanna á
hönnun vera að vakna aftur, en hann
hefur verið í ládeyðu frá því þeir tóku
ástfóstri við straumlínuna. Mikill
áhugi fyrir hönnun lætur nú aftur á
sér kræla og Bandaríkjamenn virðast
einnig mjög uppteknir af merkjavör-
um núna og það kemur sér líka vel.“
Hlynur er ákveðinn í að notfæra sér
stöðuna og selja hugvitið sem hann
býr yfir. „Það er ekkert lakara að
vera frá Íslandi, ég sker mig úr fjöld-
anum fyrir vikið og það skiptir máli
þegar maður er að koma sér á fram-
færi. Ég hef líka verið heppinn því ég
hef fengið töluverða umfjöllun í blöð-
um, bókum og tímaritum. Ég var til
dæmis einn af fimmtán sem „Wall-
paper“ valdi sem „People to look out
for“, þ.e.a.s. þeir sem veðjað er á í
framtíðinni og vert þykir að gefa
gaum og fylgjast með. Allt kemur
þetta sér vel í baráttunni, en það sem
ég vil er að hanna hluti sem fara í
fjöldaframleiðslu,“ segir Hlynur og
heldur ótrauður í átt til framtíðar.
Fataskápur Bandaríkin, heilsuþjóð. Mynstur hauslausra kvenna með
fullkominn líkama minnir á netasokkabuxur. Þjóð sem er upptekin af
heilsu og fegurð býður upp á stærstu matarskammtana á sama tíma og hún
var fyrst til að bjóða sykurlausa gosdrykki, „cookie dough ice cream“ og
heilsusamlegri sígarettur.
TENGLAR
.....................................................
www.atlason@atlason.com
khk@mbl.is
Bílskúrshurð Bandaríkin, bíla-
þjóðin. Sameinar þær einstöku
skreytingar sem einkenna amerískar
bifreiðar. Viðarklæddan skutbíl og
málaðar eldglæringar á amerískum
„hot-rod“-kagga. Viðarlíki prentað á
„formica“ var líka eitt einkenni
bandarískra heimila sjöunda áratug-
arins.
"X hilla" Um 180 cm há frístandandi hilla úr ryðfríu stáli. Sýnd í Mílanó 2002. Hin hefðbundna hilla er brotin
upp í marga fleti sem mynda eitt form. Hægt er að setja hluti á hana jafnt frá tveimur hliðum.
Bókahilla
Bandaríkin, sjón-
varpsþjóðin. Fljót-
andi í lausu lofti,
stílfært, amerískt
sjónvarpstæki. Hin
slæmu áhrif sjón-
varpsins eru ávallt
í umræðunni, og þá
ekki síst í sjón-
varpinu.
OPTI L- ZINC
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Öflugt
gæðazink
FRÁ