Morgunblaðið - 24.11.2003, Side 1
2003 MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
DRAMATÍK Í FORSETABIKARNUM / B7
„ÞETTA var rosalega góður leikur
hjá okkur og mér fannst við yfir
heildina vera sterkari aðilinn. Það
var því virkilega ljúft að ná jafn-
tefli þó að það næðist á síðustu
stundu. Mér fannst við eiga skilið
að vinna,“ sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, eftir að lið hans
hafði gert 27:27 jafntefli við Barce-
lona í Meistaradeild Evrópu. Þar
með eru Haukar búnir að tryggja
sér þriðja sætið í riðlinum og sæti í
16-liða úrslitum Evrópukeppni bik-
arhafa þar sem liðið mætir Créteil
frá Frakklandi.
Viggó sagðist hafa haldið um
tíma að stigið væri gengið Haukum
úr greipum. „Í lokin þegar bolt-
anum var stolið af Pauzuolis hélt
ég að þetta væri búið. Það átti líka
að vera það en þeir reyndu ótíma-
bært skot sem Birkir Ívar varði og
við náðum að skora. Þetta var svo
sannarlega dramatískur endir á
skemmtilegum leik.
Ég hélt líka um tíma að við vær-
um að brotna, þegar Barcelona
komst tveimur mörkum yfir í síð-
ari hálfleiknum. En strákarnir
voru ekkert á því og hertu róður-
inn,“ sagði Viggó. Hann sagði fé-
laga sinn, Valero, þjálfara Barce-
lona, en þeir léku saman með
félaginu á árum áður, hafa verið
alveg brjálaðan í lokin enda hefðu
leikmenn hans verið með leikinn í
hendi sér á lokasekúndunum.
„Í svona leik þarf allt að smella
saman og það gerði það hjá okkur.
Stórkostleg markvarsla, fín vörn,
mikill hraði og agaður leikur þeg-
ar það á við. Mér fannst eins og ég
sagði áðan að við hefðum átt skilið
að vinna því við fórum illa með
nokkur góð færi og misnotuðum
þrjú vítakaköst.
Við ákváðum áður en við fórum í
leikinn að keyra upp hraðann, al-
veg eins og Barcelona og Magde-
burg gerðu á móti okkur, þau léku
á allt öðrum hraða en við gerðum.
Þetta gekk vel hjá okkur og tókst
frábærlega. Það var ótrúleg
stemning í mannskapnum og við
náðum stórkostlegum úrslitum,“
sagði Viggó.
Viggó var
ánægður
EDDA Lúvísa Blöndal fékk brons-
verðlaun í -60 kg flokki á alþjóðlega
mótinu Bohemia Cup í karate, sem
haldið var í Prag í Tékklandi um
helgina. Jón Ingi Þorvaldsson
komst í undanúrslit í -75 kg flokki
en tapaði naumlega viðureign um 3.
sætið. Í opnum flokki keppti hann
einnig um 3. sæti í uppreisnarglímu
en náði ekki að krækja í bronsið.
Edda fékk
brons í Tékklandi
Aron er meiddur um þessarmundir og hefur ekkert leikið
með Tvis/Holstebro undanfarnar
vikur.
„Það er fyrst og fremst mikill heið-
ur fyrir mig að félagið skuli sækjast
eftir kröftum mínum aftur. Eftir
nokkra umhugsun ákvað ég að taka
tilboð þess enda stefnir hugur minn
að þjálfun þegar ferlinum sem leik-
maður lýkur,“ sagði Aron í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Skjern er um þessar mundir í
fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinn-
ar og er einnig komið með annan fót-
inn í 16-liða úrslit Meistaradeildar
Evrópu. Aron lék með liðinu við góð-
an orðstír um nokkurra ára skeið
undir lok tíunda áratugs síðustu ald-
ar og þá eins og nú var Anders Dahl
Nielsen þjálfari þess.
Aron gerði tveggja ára samning
við Tvis/Holstebro í vor, en í samn-
ingunum er uppsagnarákvæði að
einu ári liðnu sem Aron nýtir sér auk
þess sem óvissa ríkir á þessu stigi um
hvort hann geti leikið handknattleik
af fullum krafti í framtíðinni vegna
erfiðra meiðsla sem hann varð fyrir í
öðru hnénu í haust. „Meiðsli af þess-
um toga sem ég glími við eru alltaf
erfið og óljóst hvort ég geti æft og
leikið af fullum krafti næstu ár og því
hafa forsendur fyrir samningi mínum
hjá Tvis breyst. Ég vonast til að geta
leikið eitthvað áfram en það mun bet-
ur skýrast þegar ég fer í skoðun hjá
lækni 11. desember. Skjern er með
góðan leikstjórnanda þannig og þótt
ég stefni að því að leika með liðinu þá
reikna ég frekar með að vera í hlut-
verki varamanns,“ sagði Aron sem
hlakkar mikið til að starfa með And-
ers Dahl Nielsen á nýjan leik.
Aron verður ekki í landsliðinu
á EM í Slóveníu
„Það er alveg ljóst að Evrópu-
keppnin í Slóveníu í byrjun næsta árs
er alveg út úr myndinni hjá mér, ég
get ekki gefið kost á mér í það verk-
efni, jafnvel er staðan sú að ég hef
þegar leikið minn síðasta landsleik.
Að minnsta kosti er ljóst að það er
útilokað að ég verði með á EM,“
sagði Aron sem er rétt byrjaður að
æfa létt eftir aðgerð á hné í haust.
„Ég er aðeins farinn að hjóla en ég
vonast til að geta farið að skokka eft-
ir heimsókn til læknis í næsta mán-
uði. Ég vonast til að spila á ný með
Tvis í febrúar eftir hléið sem kemur í
deildarkeppnina á meðan EM í Slóv-
eníu fer fram,“ segir Aron Kristjáns-
son handknattleiksmaður.
Sú staðreynd að Aron verður ekki
með á EM er talsvert áfall fyrir
landsliðið þar hann lék þýðingarmik-
ið hlutverk með því bæði á EM í Sví-
þjóð og á HM í Portúgal snemma á
þessu ári.
Morgunblaðið/Þorkell
Aron Kristjánsson verður aðstoðarþjálfari hjá Skjern í Danmörku næsta vetur.
Aron aðstoðar-
maður Anders Dahl
ARON Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður
danska úrvalsdeildarliðsins Tvis/Holstebro, hefur ákveðið að taka
tilboði síns gamla liðs, Skjern, um að gerast aðstoðarþjálfari liðsins
við hlið Anders Dahl Nielsen á næsta sumri. Frá þessu var gengið
um helgina. Aron hefur legið undir feldi síðustu vikur og hugleitt til-
boð Skjern, sem sóttist eftir kröftum hans eftir að núverandi að-
stoðarþjálfari tilkynnti fyrir skömmu að hann hygðist hætta í vor.