Vísir - 21.11.1980, Qupperneq 5
Föstudagur 21. nóvember 1980
VÍSIR
5
og hins vegar poppararnir, sér-
lega vel klæddir, brilljantin-
greiddir unglingar i támjóum
skóm með oddhvössum hælum.
bað eina sem virðist vera sam-
eiginlegt með þessum hópum —
og það er hatrið á hinum hópnum.
1 október réðust pönkarar i
Berlin á samkomustað poppar-
anna, diskótekið Maxin, og var
það upphaf fjögurra tima slags-
mála þúsund unglinga. Tveimur
dögum siðar hefndu poppararnir
sin og réðust á samkomustað
pönkaranna „öngþveitis-klúbb-
inn” rifu hann næstum til grunna
og skildu 40 pönkara eftir, liggj-
andi i blóði sinu.
Málið hefur nú heldur veriö
flækt þar sem pönkararnir hafa
tilneyddir að þvi er virðist.gert
bandalag við þriðja hópinn sem
er leifar af rokkklikum sjötta
áratugarins.
Bardagarnir hafa hrært svo
upp i V-Berlinarbúum, aö sérstök
„klikunefnd” hefur verið mynduö
innan lögreglunnar. Enda hafa
veriðmeira en tuttugu meirihátt-
ar götubardagar þar á þessu ári.
Mikiö hefur verið skrifað um
þessa hópa og hafa blöð jafnvel
tekið pólitiska afstöðu til hóp-
anna. Vinstri sinnar virðast vera
á bandf pönkaranna, en hægri
sinnar á bandi popparanna.
Væri unglingarnir hins vegar
spurðir þá gæfu þeir hreinlega
„skit i pólitikina”. Það er
spurningin um nú eða aldrei. Nú
— fyrir stéttameðvitaða
popparana, aldrei — fyrir gjör-
eyðingarstefnu pönkaranna.
- Fjórtánda fórnarlambið skorið á háls
Hræðsla hefur gripið um sig
meðal kvenfólks i Leeds i Eng-
landi eftir að „The Yorkshire
Ripper” drap fjórtánda fórnar-
lamb sitt á mánudaginn, en þessi
morðóði náungi hafði ekkert bært
á sér f fjórtán mánuði.
Fórnarlambið aö þessu sinni
var Jacqueline Hill, tvitugur
nemandi, sem var á leiðinni heim
til sín á mánudagskvöld, þegar
ráðist vará hana og hún myrt eft-
ir miklar misþyrmingar.
Sálfræðingurinn Stephan Shaw
sagði i gær, að morðinginn væri
geðklofi, og hann myndi senni-
lega myrða tvær eða þrjár konur
til viðbótar á skömmum tima,
fyrst hann væri byrjaður.
„Hann getur ráðið við hvatir
sinar lengi i einu, en þegar óeölið
nær yfirhöndinni verður það að fá
útrás.”
Þessi fimm ára hryllingssaga
minnir óneitanlega á söguna um
Jack the Ripper, sem hræddi lif-
tóruna úr öllum konum i London
seinni hluta nitjándu aldar. Sá
skar sex hórur á háls og aldrei
komst upp, hver framdi ódæðið.
t fyrra sendi „The Yorkshire
Ripper”-lögreglunni segulbands-
spólu. A henni kynnti morðinginn
sig sem Jack og sagði: Þið eruð
engu nær þvi að ná mér núna en
þegar ég byrjaði fyrir fjórum ár-
um. Spöla þessi var spiluö á leik-
vangi knattspyrnufélagsins
Leeds, þannig að ef einhver
þekktiröddina, þá gæti hannef til
vill gefið lögreglunni visbend-
ingu. begar þetta var reynt hafði
morðinginn drepið ellefu konur.
Svör áheyrendanna á knatt-
spyrnuvellinum voru: „Ellefu
núll — ellefu núll — ellefu núll”.
Niu af fjórtan fórnarlömbum
„The Rippers” hafa verið hórur,
en fimm hafa veriö venjulegar
konur. Ungar konur, sem þurfa
að skreppa bæjarferð að kvöld-
lagi, fara alltaf i hópi eöa fá meö
sér fylgdarmann. Þá hafa for-
eldrar tekið dætur sinar út úr
heimavistarskólum tii öryggis.
Undarleg eftirliking af stétta-
baráttu fer nú frant á hverjum
laugardegi í landinu, þar sem
Karl Marx fæddist, Þýskalandi.
Þeir, sem berjast, eru þó ekki
auðstéttir og öreigarnir, heldur
hópar — eða klikur — unglinga.
Annars vegar eru það pönkararn-
ir — burstaklipptir eða jafnvel
sköllóttir og sóðalegir krakkar i
leðurjökkum og þröngum buxum
Flest fórnarlömb „The Ripper” hafa fundist strax enda virðist morðinginn stoltur af gerðum sinum.
Eitt likið fannst þó ekki fyrr en nokkrum dögum siðar.
OlsahræOsla í Leeds:
Þúsund ung-
lingar í
blóðugum
siagsmálum
- Míkil átðk poppara og pönkara í Berlín
YORKSHIRE RIPPER
KOMINN A KREIK AFTUR
Fjoldahandtðkur í Tyrklandi
Hershöfðingjarnir i Tyrklandi,
sem tóku völdin fyrir meira en
tveimur mánuðum, eru nú farnir
að þjarma verulega að pólitískum
öfgamönnum
Fjöldahandtökur hægri og
vinstri manna.þará meöal hand-
tökur um 60 kennara, hafa verið
viðurkenndar i þessari viku, og
herliðið vinnur nú eftir formúl-
unni „skjótið til dauða”, þegar
það stendur frammi fyrir vopnuð-
um öfgamönnum.
Forsætisráðherra herforingja-
stjórnarinnar, Kenan Everen
hershöfðingi, sagöifyrirnokkrum
dögum, þegar stjórnin var sökuð
um að einbeita sér aö hægri öfga-
mönnum: „Tugir þúsunda vinstri
manna 'eru hneppdr I varöhald,
særðir éöa drepnir daglega”.
Fréttaskýrendur telja það hár-
rétt, að stjórnin höggvi jafnt til
hægri og vinstri, en öfgamenn til
hægriog vinstri hafa drepið fimm
þúsund.manns i götubardögum á
siöustu þremur árum.
Meðal þeirra, sem handteknir
hafa verið i þessari viku, eru sex-
tiu vinstri sinnaðir kennarar, og
eru þeir sakaðir um aðskilnaðar-
stefnu, þarsem þeir kenndu nem-
endum sinum, Kúrdum, móður-
mál sitt kúrdisku. Um átta
milljónir Kúrda búa i Tyrklandi.
Það hefur verið talað um, aö
föngum sé misþyrmt f tyrknesk-
um fangelsum, en engarsannanir
eru fyrir þvi, aö misþyrmingarn-
ar séu skipulagðar. Vinstri
sinnaður ritstjóri,®m var fangi i
herfangelsi i Ankara fyrir að hafa
i fórum sinum bækur eftir Stalín
og Engels, var barinn til ólifis
fyrr i þessum mánuði. Fangelsis-
stjórnin viöurkenndi, aö ritstjór-
inn hafi látist eftir aö hann var
barinn með byssuskefti.
Enginn slasaðist og skemmdir
urðu ekki miklar. Talsmaður ar-
menska leynihersins hringdi til
fréttastofu i morgun og lýsti
ábyrgðinni af sprengjutilræðinu á
hendur sér.
1 mars i vor sprungu tvær
sprengjur við þessa sömu skrif-
stofubyggingu. Einn vegfarandi
béiö þá bana og 12 menn slösuð-
ust. Armenski leyniherinn lýsti
ábyrgðinni af þvi tilræði á hendur
sér.
Fyrir niu dögum sprakk svo
sprengja fyrir utan skrifstofur
Sviss Air og slösuðust þá nokkrir
vegfarendur. Armensk þjóöernis-
hreyfing i Beirút sagöist siöan
bera ábyrgðina á þvf tilræði og að
ráðist hefði verið á Swiss Air
vegna þess að einn félagi
hreyfingarinnar hafði nýlega ver-
ið handtekinn i Sviss.
Förnarlömbin
funda
Guernica, hin forna höfuðborg
Baska, sem nasistar lögðu I rúst
meö loftárásum I spænsku
borgarastyrjöldinni, verður
fundarstaður borgarstjóra þeirra
borga, sem illa urðu úti I loftárás-
um f heimstyrjöldinni. Fundur
þessi veröur haldinn i april i vor.
Þarna verða samankomnir
borgarstjórar Hiroshima, Naga-
saki, London, Liverpool, Ham-
borgar, Kölnar og Varsjá, svo
einhverjar séu nefndar. Fundur
þessi er haldinn i tengslum við og
með styrkjum frá Sameinuðu
þjóðunum og UNESCO.
Fulltrúum frá borgum, sem
orðið hafa illa úti i seinni tima
styrjöldum, veröur einnig boðið á
ráðstefnuna. Má þar nefna viet-
nömsku borgirnar My Lai og Gu-
ang Tri, flóttamannabúðir Pales-
tinuaraba og i Tel A1 Zaatar i Li-
banon, og höfuðborg Nicaragua,
Managa.
Baskaborgin Guernica varð
fyrir valinu vegna þess að hún
var fyrsta borgin, sem varð fyrir
stórfelldum loftárásum, og verð-
ur ráðstefnan haldin á fertugasta
og fjórða afmæli eyðileggingar-
innar.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
minna menn á ógnirnar og stuðla
aö friði.
Karl prlns á
biðiisbuHunum?
Karl Bretaprins er alltaf annað
slagið á milli tannanna á fólki.
Finnst mörgum sem timi sé kom-
inn til að maðurinn festi ráö sitt —
orðinn 32 ára gamall.
Ein slik saga kom upp um helg-
ina — og að þessu sinni segja
menn aö stutt sé i brúðkaupiö
(hefur nokkur heyrt þetta áöur?)
Stúlkutetur nokkurt, Lady Diana
Spencer að nafni, dvaldi eina
helgi i höll bresku konungsfjöl-
skyldunnar ásamt Karli. Elisabet
drottning á að vera hrifin af þess-
ari væntanlegu tengdadóttur
sinni, og Kalli jafnvel lika.
Þarf þá nokkuð frekar vitnanna
viö? Laföi Di, eins og bresku blöð-
in eru svo smekkleg aö kalla
stúlkuna, veröur ef til vill næsta
drottning Stóra-Bretlands. Hvað
hafði hún sjálf að segja um
helgardvölina i höllinni?
„Ég átti dásamlega helgi —
hreint dásámlega”.
Meira vildi laföin 19 ára gamla
ekki segja.
Elns og hundar
og keitir...
Tik nokkur 1 Alexandrlu I
Egyptalandi gaut nýlega tveim-
ur ungum. Að gefnu tilefni er
hér sagt „ungum” en ekki
hvolpum.
Faðir unganna var nefnilega
ekki hundur heldur fressköttur!
Ungarnir llkjast báðum for-
eldrunum.
Fyrir ári siðan gaut þessi
sama tik einnig hund-ketti, sem
dó skömmu siðar. Er ekki ör-
grannt um að þessi tik sé eitt-
hvað afbrigöileg, að sumra
dómi.
Hver segir svo aö hundum og
köttum komi illa saman?